Þjóðviljinn - 21.10.1979, Blaðsíða 17
Sunnudagur 21. oktéber 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
Tryggvi Emilsson rithöfundur:
Vegna barnanna
Lögræöisaldur lækkaður úr 20
árum i 18 ár segir i fréttatilkynn-
ingu frá Dómsmálaráðuneytinu.
Þessari frétt fylgir sú klásúla i
samtali fjölmiðla viö ráðuneytis-
stjórann að honum þyki
„aúgljóst” að áfengiskaupaaldui
verði einnig lækkaður, og svo
virðist þaðmálaðkallandi að ekki
var hægt að biða með upplýsing-
arnar þar til óskalistinn var aö
fullu afgreiddur. En hversvegna
er það svo „augljóst” aö ungling-
ar fái lækkaðan áfengiskaupaald-
ur þó lögræðisaldur sé lækkaður,
á þaö kannski að vera mótleikur
tiltekinna stjórnvalda gegn starfi
þeirra áhugamanna sem nú aug-
lýsa „Viku gegn vimugjafa” sem
mörg bindindismanna-og Lands-
sambönd gangast fyrir að haldin
veröi á næstunni. Mér er þessi
„augljósa” frásögn dæmi þess
hve ásóknin i vimuefnin grefur
um sig, og þvi má enn spyr ja, hve
langt það á i land að aldurstak-
mark til áfengiskaupa verði fært
enn dýpra niður og jafnvel af-
numið. Engan þarf að furða þó
þungur sé róðurinn gegn spilling-
unni.
A þessu barnaári hefir margt
mætra manna látið til sin taka i
starfi, ræðu og riti og allir leggja
þeir áherslu á þá höfuðnauðsyn
að vanda beri til uppeldis barn-
anna og firra þau hverskonar
fári,aðbarnið verði settofar öilu,
heilbrigði þess og framtiðarheill,
ekki geta þeir menn verið fylgj-
andi þvi aö áfengiskaupaaldur
ungmenna verði lækkaður, sem
aðlikum mundi leiða til aukinnar
áfengisneyslu.
Þegar ég var beðinn að stinga
niður penna i tilefni af bindindis-
degi Landssambandsins gegn
áfengisbölinu varð mér fyrst
hugsað til barnanna og þá fy rst og
fremst þeirra barna sem seld eru
undir þá sök að umgangast það
fólk sem neytir áfengis i nærveru
barna. Það er hryggileg þjóölífs-
mynd að sjá ofurölva manneskjur
slangra innan um börn, með
lafandi sigarettu milli varanna,
spúandi frá sér eiturlofti sem
börnin siðan anda að sér og sýkj-
ast af, biöa þess kannski aldrei
bætur. Mér verðurá að taka undir
með norska skáldinu överland:
„Fyrirgefið þeim ekki, þvi þeir
vitahvað þeirgera”.. Vitandi vits
spilla menn heilsu barnanna
sinna oggefa þeim jafnframt for-
dæmi sem er i senn fyrirlitlegt og
siöspillandi. Baráttan gegn
áfengisbölinu er ekki komin i
efsta þrep.
Börn hafa lengi verið bitbein
sinna forsvarsmanna og þjóö-
félagsins, þér munið fátækra-
flutningana, hreppsómagana,
hljómlausar grátraddir hinna
réttlausu, mönnum þótti gott að
hafa barn til blóra og kenna þvi
klækina, börn voru hýdd og hrak-
inog látin kyssa á blóðugan vönd-
inn, það er löng sorgarsaga og
jafnlöng er raunar barátta ein-
stakra menna og smárra sam-
taka fyr'ir li'fsrétti barnsins, og þó
viðgengst enn þan dag i dag að
börnerulátinkyssa á vöndinn, nú
er vöndurinn sá vimugjafi sem
fullorðið fólk ber að vörum barn-
anna. Frá upphafi verklýðssam-
taka og um þaö leyti sem Þor-
Tryggvi Emilsson.
steinn Erlingsson orti kvæöið
Eden, hefir baráttan staðið um
börn alþýðunnar, hin undirokuöu,
réttlausu.
Þér blöskrar að heyra
það brauðleysisóp
til blágrárra, ómálgra vara,
og sjá þennan skjögrandi
horgrindahóp
með hungruðum kýraugum stara.
Það varð að heyja baráttu fyrir
brauði þessara barna, og jafn-
langa baráttu og ekki siður harða
varðað heyja fyrir jafnrétti allra
islenskra barna til skólagöngu og
tæpast ersú barátta á leiðarenda,
enn standa menn svo misvel að
vigi efnalega. öll þessi barátta er
samhljóma baráttunni gegn
áfengisbölinu, hvergi var ör-
birgðin tilfinnanlegri en á heimil-
um drykkjumanna, heimilisbölið
jafn helsjúkt og harmþrungið og
svo mun enn þar sem vindrykkja
er stunduð. Vitað er að fjölmargir
menn gera sig að ævilöngum
aumingjum vegna áfengis-
drykkju, hvað verður um börn
þess fólks? Arlega verður að
bæta við heilsuhælum og sjúkra-
húsum fyrir drykkjusjúklinga og
slasaöa menn vegna slysa sem
vindrukknir menn valda. Aldrei
hefir fjöldi þeirra sem áfengis
neyta verið slikur sem nú sam-
kvæmt þeim tölum sem tala. Eða
þeir miljarðar sem eytt er til
áfengiskaupa. Ennstöndum við á
þvergötum og sjáum fólksstraum
hinna breiðu stræta sem allur
liggur til vinsalanna, tölur sýna
aö um áttatiu af hverjum hundrað
íslendinga á áfengiskaupaaldri
neyta áfengis aðeins i misstórum
mæli.
Vissulega hafa menn komið
áuga á leiðir til Urbóta sem lik-
legar eru til árangurs, leiðir
kennslu og náms, aö fræðsla um
skaðsemi áfengis og annarra
vimugjafa verði tekin upp i' skól-
um landsins sem skyldunáms-
grein; tvimælalaust er fræðsla sú
aðferð sem mest viðnám getur
veitt, gerir menn hæfasta til
skiinings á vandanum sem við er
að fást og veitir mest brautar-
gengi i baráttunni. Þaö getur eng-
um manni dulist að fræðsla um
hverskonar ákvaröanir og at-
hafnir er undirstaða þess að
lifa verði menningarlifi i
landi voru, allir verða aö
afla sér nokkurrar þekkingar
til hinna breytilegu verk-
efna, og vissulega hefir þjóðin
sótt fram til mikillar menntunar,
hagnýtrar og heillarikrar og
alveg sérstaklega eftir að börn
alþýðunnar tóku að skipa skóla-
bekki, og þarsem menntun hlýtur
að kalla á siaukna menningu og
siðgæði er fræðsla um skaðsemi
áfengisneyslu meðal þýðingar-
mestu þátta þjóðlifsins, ekkert
má til spara að veita börnunum
MYNDARTEXTI OSKAST
Hér er svo nýja myndin. Vonandi fara heilasellurnar gráu strax
af stað þegar þiö berjiö fyrirbæriö augum, og þá er bara aö festa
hugdetturnar á blaö og senda okkur. Merkiö umslagiö: „Mynda-
texti óskast” — Sunnudagsblaðið, Þjóöviljinn, Siðumúla 6,
Reykjavik. — Góöa skemmtun.
Við þökkum alla
myndatexta sem borist hafa
og biðjumst forláts á aö þátt-
urinn datt niður I siðustu
tveimur blöðum. En hér er
besta lausnin:
— Já, viö tæknimenn út-
varpsins vinnum viö dálitiö
frumstæö skilyröi!
Textinn var merktur Hólm-
friði Jónsdóttur.
önnur svör:
— Hvernig vissiröu aö ég
var tölvufræöingur? (Einn að
vestan)
— Ég er oröinn snældu-spól-
andi vitlaus á þessu segul-
bandi! (Jón Halldórsson)
— Viö tövlufræöingarnir
ættum aö fá áhættuþóknun.
(N.N.)
þá fræðslu i skólum og á heimil-
um.
Færið börnunum þær fórnir á
barnaári aö loka huröum fyrir
ásókn áfengisnautnar, látið
áfengi hverfa úr lifi yöar og þar
meö barnanna. Hver sá,sem
stundar þann heiöarleika aö
fræða börnin og náunga sinn um
það böl sem vindrykkjan veldur
og á hvern hátt sé auðveldast að
bægja frásérþvi böli, vinnur þjóö
sinni ómetanlegt gagn. Tökum
höndum saman við þá menn sem
af alhug vinna aö bindindismál-
um, útrýmingu áfengis, styðjum
þá sem þessa dagana stofna til
Viku gegn vimugjafa og alla þá
sem bera uppi bindindisdag og
daga Landssambandsins gegn
áfengisbölinu, sinum hverskonar
spillingu og afsiðun viönám,
vegna barnanna sem eiga að erfa
landiö.
Að lokum til áréttingar þvi sem
hér er sagt vegna barnanna leyfi
ég mér að minna á ljoðlínur úr
einu af kvæðum Jakobinu
Sigurðardóttur:
„að grös fái aö spretta,
aö börn fái aö brosa
meö blómum á islenskri grund.”
Tryggvi Emilsson
SÍMASKRÁIN
1980 !
i
Simnotendur i Reykjavik, Seltjarnarnesi,
Kópavogi, Garðabæ, Bessastaðahreppi og
Hafnarfirði.
Vegna útgáfu nýrrar simaskrár er nauð-
synlegt að rétthafi simanúmers tilkynni
skriflega um breytingar, ef einhverjar
eru, fyrir 1. nóv. n.k. til Skrifstofu sima- !
skrárinnar við Austurvöll.
Athugið að skrifa greinilega.
Þeir sem hafa skipt um heimilisfang frá i
þvi að simaskráin 1979 kom út þurfa ekki j
að tilkynna breytingar á heimilisfangi j
sérstaklega.
Atvinnu- og viðskiptaskráin verður prent- !
uð i gulum lit og geta simanotendur fengið '
birtar auglýsingar þar. Einnig verða i
teknar auglýsingar i nafnaskrána.
Nánari upplýsingar i simum 29140 og 26000
og á Skrifstofu simaskrárinnar.
i
Ritstjóri simaskrárinnar. !
Dvalarheimili óskast
öskjuhliðarskóli óskar eftir dvalarheimil-
um fyrir nemendur þetta skólaár.
Upplýsingar i sima 23040 á skólatima.
Skólastjóri.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i byggingu afgreiðsluhúss
(stál- og trévirki) og frágang lóðar vegna
bensínstöðvar Shell og Olis á Seltjamar-
nesi. — Gögn eru afhent á Teiknistofunni
Óðinstorgi, óðinsgötu 7, Reykjavik, gegn
20.000 kr. skilatryggingu. — Tilboð verða
opnuð 7. nóvember n.k.
rBrosandi PLOKKFISKUR~'l
eftir Gísla J. Ástþórsson
ATH!
9 af hverjum 10 geðlæknum mæla með PLOKKFISK
sem úrvals meðali gegn skapvonsku, þunglyndi,
kláða og stjórnmálaþreytu.
Bókaútgáfan BROS