Þjóðviljinn - 24.10.1979, Page 2
Nina Björk á milii ieikmyndahöfundar, Þórunnar S. Þorgrlmsdóttur og leikstjórans, Stefáns Baldurs-
sonar.
— Ljósm. Jón
LITLA SVIÐIÐ:
Hvað sögðu englamir?
Frumsýning
annaö kvöld
Gengin er i gildi reglugerö um
samráð stjórnvalda um efna-
hagsmál og kjaramál við samtök
iaunafólks, bænda og atvinnu-
rekenda. i henni er gert ráö fyrir
a.m.k. ársfjórðungslegum sam-
ráðsfundum fuiltrúa rikis-
stjórnarinnar og samráðsnefnda
9 tiltekinna samtaka. Auk þess er
gert ráð fyrir einum sameiginleg-
um fundi á ári.
Umrædd samtök eru ASt,
FFSÍ, BSRB, BHM, SIB, Stéttar-
samband bænda, Samb. isl.
sveitarfél., Vinnumálasamb.
Ekki var réti frá greint i
blaðinu i gter, aðutn inismæliheföi
verið að ræöa i utvarpsfréttum er
Benedikt Brbndal var sagöur
leikstjóri,,Gamaldags kómediu.”
Gröndal stóð nefnilega skýrum
stöfum i fréttinni og Pétur
samvinnufél. og VI. Markmiðið
með samráðinu er að ieggja
grundvöll að samræmdum
ákvörðunum.
Þá kveður reglugerðin á um ár-
legan sameiginlegan fund allra
samráðsaðila sem forsætisráö-
herra kallar saman fyrir 15. okt.
Fyrir þann fund leggur forsætis-
ráðherra skýrslu um þjóðhags-
áætlun fyrir næsta ár.
Reglugerð þessa undirbjó frá-
farandi forsætisráðherra og var
húnsamþykkti fyrrverandi rikis-
stjórn. — GFr
Pétursson þulur las þvi nákvæm-
lega eins og fyrir hann var lagt.
Þarna var þvi um að kenna mis-
ritunfréttamannsins en ekki mis-
mæli þularins og leiðréttist það
hér með.
— eös
Stundvísi
naudsyn
— Þetta form gerir það að
verkum, að útilokað er að hleypa
áhorfendum inn eftir að sýningin
er byrjuð, — sagöi Stefán. —
Þessvegna viljum við minna fólk
á aö koma stundvislega.
Sýningarnar hefjast kl. 20.30 og
standa í u.þ.b. hálfa aðra klukku-
stund, og við höfum ekkert hlé.
Barinn verður hinsvegar opinn
eftir sýningu.
Hvað sögðu englarnir? er
fyrsta leikrit Ninu Bjarkar, sem
sýnt er I Þjóöleikhúsinu, en
Leikfélag Reykjavikur sýndi leik-
rit eftir hana, Fótatak.árið 1972,
og Litla leikfélagið sýndi tvo ein-
þáttunga, Hæliöog Greimið.árið
1969. Hæliövar siðan sýnt i sjón-
varpi 1973.
— ih
Gröndal ekki mismæli
Tinna Gunnlaugsdóttir og Briet Héöinsdóttir f hlutverkum sinum.
— Ljósm. Jón
Reglugerð
um samráð
A morgun fimmtudag, verður
frumsýnt á Litla sviði Þjóðleik-
hússins leikritið Hvað sögðu
englarnir? eftir Nlnu Björk Arna-
dóttur, og verður það fyrsta
frumsýningin á Litla sviðinu á
þessu hausti.
Stefán Baldursson leikstýrir
verkinu, Þórunn Sirgriður Þor-
grímsdóttir teiknaði leikmynd og
búninga og Kristinn Danielsson
annaðist lýsingu. Leikendur eru
tiu talsins: Sigurður Sigurjóns-
son, Tinna Gunnlaugsdóttir, Briet
Héðinsdóttir, Bessi Bjarnason,
Helga Bachmann, Sigriður Þor-
valdsdóttir, Helgi Skiílason, Þór-
hallur Sigurðsson, Helga Jóns-
dóttir og Arnar Jónsson.
Leikritið fjallar um ungan
strák sem lendir utangarðs I þjóð-
félaginu. Hann lendir i smáhnupli
i barnæsku og eftir það er hann á
stöðugum flækingi milli stofnana.
A sama tima eru stórsvindlarar
að velta miljónum á milli sln og
lenda aldrei á neinni stofnun.
Tvöfalt siögæöi
— Leikritið fjallar fyrst og
fremst um þetta tvöfalda siðgæði
i þjóðfélaginu, — sagði Nina
Björk á blaðamannafundi, sem
haldinn var i fyrradag.
Stefán Baldursson sagði á sama
fundi, að Þjóðleikhúskjallarinn
væri notaður á allnýstárlegan
hátt i þessari sýningu. Eiginlega
væri öllu snúið við: áhorfendur
sitja þar sem leiksviðið hefur
venjulega verið, en leikurinn get-
ist i veitingasalnum. Þunnar
gardinurerufyrirsviðinu, þannig
að áhorfendur horfa á það einsog
gegnum glugga. Þar að auki ger-
ast nokkur atriði frammi á snyrt-
ingu og þau atriði sjást á sjón-
varpsskermi.
Laugardaginn 27. október, eða fyrsta vetrardag, fer hópur
fatlaðra barna ásamt foreldrum i dagsferð til Akureyrar á veg-
um Kristins Guðmundssonar fararstjóra. Á Akureyri fer hópur-
inn m.a. I leikhúsið og sér sýningu Leikfélags Akureyrar á
Galdrakarlinum i Oz.
I hópnum feröa 15 börn og er þetta i f jórða skiptið sem Kristinn
skipuleggur ferð af þessu tagi.
„Hinn vangefni íþjóöfélaginu” -
ritgerðasamkeppni
t tilefni barnaárs hefur stjórn Styrktarfélags vangefinna
ákveðið að efna til ritgerðarsamkeppni um efnið: Hinn vangefni
I þjóöfélaginu.
Veitt verða þrenn verðlaun, 150 þús. kr., 100 þús. og 50 þús.
Lengd hverrar ritgerðar skal vera a.m.k. 6—10 vélritaðar
siður. Ritgerðirnar, merktar dulnefni, skal senda skrifstofu
félagsins að Laugavegi 11, Reykjavik, en nafn og heimilisfang
höfundar fylgi með I lokuðu umslagi. Félagið áskilur sér rétt til
að birta opinberlega þær ritgerðir, er verðlaun hljóta. Skila-
frestur er til 30. nóv. n.k.
Gaf mynd eftir Snorra Arinbjarnar
„Uppstiliing” eftir Snorra Arinbjarnar.
Þorvaldur Skúlason iistmálari hefur fært Listasafni tslands
höfðinglega gjöf, oliumálverkið „Uppstillingu” eftir Snorra
Arinbjarnar, málað á árunum 1942-46.
Fundum þeirra Þorvaldar og Snorra bar fyrst saman norður á
Blönduósi um 1921, er Þorvaldur var nýbyrjaður aö mála, og tel-
ur hann kynni þeirra hafa orðið sér til mikillar uppörvunar.
Seinna urðu þeir námsfélagar við Listaháskólann i ósló og sam-
býlismenn.
Listasafnið kann Þorvaldi bestu þakkir fyrir gjöfina, sem þvl
er afar kærkomin, ekki sist fyrir það hversu fá verk safnið á eftir
Snorra frá þessu timabili, segir i frétt frá Listasafni íslands.
Humboldtfélag stofnað
Þann 17. september sl. var stofnað félag þeirra, sem dvalist
hafa við nám og rannsóknir i þýska Sambandslýðveldinu með at-
beina Alexander von Humboldt visindasjóðsins þýska.
Markmið hins nýja félags er að kynna starfsemi Humboldt-
stofnunarinnar hér á landi og margvislegt liðsinni hennar á sviði
náms og rannsókna, m.a. kynnisferöir til háskóla og vísinda-
stofnana I Sambandslýðveldinu. Jafnframt að halda uppi tengsl-.
um við stjórn stofnunarinnar og vinna að gagnkvæmum kynnum
þeirra, sem dvalist hafa erlendis á hennar vegum. Slik félög
starfa viða erlendis.
Formaður Alexander von Humboldt félagsins var kjörinn dr.
Oddur Guöjónsson fyrrv. sendiherra. Aðrir i stjórn eru: dr.
Frosti Sigurjónsson læknir og dr. Gunnar G. Schram prófessor.
Gjöf til Krabbameinsfélagsins
Hinn 17. október sl. barst Krabbameinsfélagi tslands 100
þúsund króna gjöf úr minningarsjóði, sem Starfsmannafélag
Hafnarfjarðar stofnaði á árinu 1961 til minningar um Guðjón
heitinn Gunnarsson framfærslufulltrúa.
A niræðisafmælisdegi Guðjóns heitins, hinn 21. september
1979, ákvað stjórn sjóðsins aö gefa Krabbameinsfélagi íslands
þessa fjárhæð, sem renna á i sjóö sem ætlaður er til styrktar
krabbameinssjúklingum sem þurfa aö leita sér lækninga
erlendis.
Guðjón var einn af stofnendum Starfsmannafélags Hafnar-
fjarðar og var fyrsti formaöur þess og gegndi þvl starfi um tvo
áratugi.
Nýr framkvæmdastjóri Rafha
A stjórnarfundi Raftækja-
verksmiöjunnar (Rafha) I
Hafnarfirði i byrjun október
var ákveðiö að ráða Ingva I.
Ingason véltæknifræðing
sem framkvæmdastjóra fyr-
irtækisins, en hann hefur
starfað hjá þvi i 8 ár.
Við fyrirtækið starfa um 60
manns að framleiðslu, viö-
gerðarþjónustu og við versl-
un Rafha I Austurveri i
Reykjavik.
Ingvi I. Ingason.