Þjóðviljinn - 24.10.1979, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 24.10.1979, Qupperneq 3
Miövikudagur 24. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Meistari Schneiderhan. Ur þjóðar- djúpinu Fræðsló biður „Ég hef meiri áhyggjur af þessu en nokkru ö&ru sem er að gerast i dag. 1 fúlustu alvöru get ég tapaö þessu sæti og dottiö út af þingi. Þá verö ég aö fara aö leita mér aö annarri atvinnu.”, segir Benedikt Gröndal i gær vegna þess aö dr. Bragi Jósepsson ætlar i hann i prófkjörinu. Þvílikt grin. Ahyggjur forsætisráöherr- ans eru ekki smáar. En biöur ekki Fræðslumyndasafnið? Gröndal var þar forstööu- maöur um árabil án þess aö j nokkur yröi var viö hann. Hann gæti áreiöanlega feng- iö starfiö aftur ef hann lofaöi aö láta ekki sjá sig þar. Hættir námi Gunnlaugur guöfræöinemi Stefánsson er sagöur hafa undirbúið prófkjörsslaginn innan Alþýöuflokksins á Reykjanesi samfellt i 13 mánuöi. Nú hefur hann kvatt heim frá námi i Sviþjóö kosningastjóra sinn úr siðasta slag, Gunnar Friöþjófsson. Þaö er engu til sparað þegar barist er um þingsætin. Getraun „Ég tek ekki þátt i neinni baráttu viö ólaf Jóhannes- son, sem er ókrýndur foringi flokksins”, sagöi Guö- mundur G. Þórarinsson verkfræöingur i viötali viö Visi i gær. Vel á minnst, hver er hinn krýndi foringi Framsóknar- flokksins? Hver er nú aftur formaöur flokksins? Svör sendist öngli fyrir föstudag. A á undan Á — ,,Ekki regla en sterk venja” Þjóöviljinn fékk i gær staö- festingu á þvi aö bola átti Albert Guömundssyni úr efsta sæti á prófkjörslista ihaldsins meö þvi aö jafna A viö A eins og skýrt var frá i blaöinu i gær. Þegar geröar voru athugasemdir viö þaö aö kjörnefnd gaf upp rööina Ágúst Geirsson, Albert Guömundsson, uröu Alberts- menn reiðir og leitaöi Sjálf- stæöisflokkurinn aö lokum til Oröabókar Háskóians til aö fá úr þvi skorið hvort ekki mætti hafa Albert á eftir Ágústi. Þeir Oröabókarmenn hljóta aö vera miklir Albertsmenn eins og þúsundir Reykvikinga reyndar eru, — þvi þeir gáfu þaö visa svar aö þó það væri ekki ótviræö regla aö hafa A á undan A I stafrófinu, þá væri þaö mjög sterk venja! Úr þessu varö ekkert aö gert og Albert er sem fyrr fyrstur á listanum. Wolfgang Schneiderhan meö Sinfóníusveitinni Wolfgang Schneidarhan, einn af snjöllustu núlifandi einleikur- um á fiðlu, spilar meö Sinfóniu- hljómsveit tslands á tónleikum hennar annaö kvöld. Hann leikur fiölukonsert Beethovens. Wolfgang Schneiderhan er Aust- urrikismaður, fæddur 1915 i Vin, hóf tónleikanám þriggja ára, kom fyrst fram opinberlega 5 ára og sem einleikari 11 ára. Innan viö tvitugt var hann orðinn konsert- meistari i Sinfóniuhljómsveit og Filharmoniuhlómsveit Vinar og hefur siöan haldiö áfram á sömu braut, unniö til ótal verölauna og er nú viöurkenndur einn af mestu einleikurum heims. Stjórnandi á tónleikunum ann- að kvöld er danski hljómsveitar- stjórinn Eifred Eckart-Hansen, sem nú er tónlistarstjóri Tivolt garösins i Kaupmannahöfn, en hefur stjórnaö hljómsveitum viöa um Evrópu og Bandarikin sem gestur. Auk fiölukonsertsins eru á dag- skrá Sinfóniusveitarinnar Eg- mont-forleikurinn eftir Beethoven og Sinfónia nr. 5 eftir Holmboe. — vh. k i 1 »» ' & Frá blaöamannafundi Llfs og lands, taliö f.v.: Gunnar G. Schram, Björg Einarsdóttir, Ragnar Aöal steinsson, Jón Óttar Ragnarsson og Hjalti Steinþórsson. Ljósm Jón. LÍF OG LAND: Hvalurinn fvrir rétti Sa mtökin Lif og land efna til al- menns borgarafundar um hval- veiðar n.k. laugardag kl. 2 e.h. aö Hótel Borg. Fundurinn veröur meö nýstárlegu sniöi, sem ekki hefur áður tiökast hér á landi en ku vera vinsælt i Þýskalandi og Bandarikjunum. Sett verða á sviö réttarhöld, og hafa tveir lögmenn verið til kvaddir, þeir Ragnar Aöalsteins- son og Hjalti Steinþórsson. Mun Ragnar reyna aö sýna fram á aö hvalurinn sé ekki ofveiddur hér við land, og leiða fram fjögur vitni máli slnu til stuönings. Hjalti mun hinsvegar reyna aö sýna fram á aö um ofveiöi sé aö ræöa, og kallar hann einnig á fjögur vitni. Umsjónarmaöur meö vitna- leiöslum og stjórnandi fundarins, eöa dómari verður Gunnar G. Schram. Þá verður einnig kallað- ur til kviödómur tólf hlutlausra borgara, sem valdir eru af handahófi úr þjóöskrá. Verður þess gætt aö kviödómendur hafi ekki myndaö sér ákveöna skoöun á málinu, og einnig aö þeir eigi engra hagsmuna aö gæta l sam- bandi við hvalveiðar. Tilgangur samtakanna með þessum fundi er aö glæöa áhuga almennings á lifriki og náttúru- auöæfum Islands, og einnig aö safna saman öllum tiltækum upp- lýsingum um þetta mikla deilu- mál. A fúndi meö blaðamönnum s.l. föstudag sögöu forsvarsmenn Life og lands að þeir vonuöust til að þetta nýstárlega fundarform höföaöi meira til almennings en þungarráðstefnur. Ef vel tekst til á laugardaginn er hugsanlegt að þetta form veröi notað áfram, þegar til umræöu veröa önnur hitamál af svipuðu tagi. -ih Fylkingin býður fram Segir framboðið kröfuum róttœka pólitík Fylkingin hefur ákveöiö aö bjóöa fram I Reykjavlk og segir I frétt frá flokknum, aö „i pólitiskri hægrisveiflu og hnignun sósfal- iskra hugsjóna innan verkalýðs- flokkanna sé nauösyn byltingar- sinnaðs framboös meira en oft áöur”. Aherslupunktar i kosninga- stefnuskrá eru taldir: Eflum sjálfstæöa verkalýöshreyfingu. — Enga samfylkingu verkalýösafla meö borgaraflokkunum. — Gegn skipulagsleysi auövaldskerfisins. — Fyrir áætlanagerð og verka- lýöseftirliti. — Island úr NATO. — Herinn burt. Þjóöaratkvæöi um hermáliö. Fylkingin telur sig standa póli- tiskt vel aö vigi fyrir þessar kosn- ingar og segir, að varnaöarorö hennar til verkalýðshreyfingar- innar, um að þátttaka verkalýös- flokka I borgaralegum sam- steypustjórnum þýddi ekkert annað en undanslátt i verkalýös- baráttunni sem hefndi sin fljótt meö hægri sveiflu og sókn ihalds- aflanna, hafi sannast illilega. ■ „Feykilegur undansláttur Al- þýðubandalagsins i herstööva- málinu, samvinna þess viö VSI og bráöalögin gegn farmannaverk- fallinu sýna aö flokkurinn er aö veröa kratiskari en páfinn. Oflug- ur róttækur verkalýösflokkur er nauösyn,” segir i tilkynningu Fylkingarinnar. Fylkingin bendir á, aö engar likur séu á þvi, aö hún nái stefnu- málum sinum fram eftir borgara- legum þingræöisleiöum, þvi aö i raun tákni þau afnám kapital- iskra efnahagshátta. Atkvæöi á Fylkinguna þýöi ekki aö fram komi enn einn þingflokkurinn sem hyggst leiða alþýðuna eftir hinni þingræöislegu braut til sósialismans, en sé krafa um rót- tæka pólitik og róttæka verka- lýöshreyfingu og jafnframt van- traustsyfirlýsing á Alþýðubanda- lagiö og Alþýöuflokkinn og for- ystu verkalýöshreyfingarinnar, stendur aö lokum Iönnemasambands- þíng um helgina 37. þing Iönnemasambands ts- lands veröur haldiö dagana 26.-28. október aö Hótel Esju. A þinginu veröa rædd kjara- mál, iönfræösla, félagsmál og al- menn þjóömál. Einkum veröa kjaramálin og iönfræöslan i brennidepli. Kjaramálin vegna komandi kjarasamninga, þar sem nauösyn er á aö leiörétta k jör iönnema ásamt félagslegum rétt- indamálum. Iönfræöslan sökum þeirrar óvissu er rikir um stööu verkmenntunar I menntakerfinu og þeirra vandamála þessarar menntunar, sem nauösynlegt er aö leysa. Um 120 fulltrúar iönnemafé- laga viösvegar aö af landinu sækja þingiö, en félagsmenn i þessum félögum eru samtals um 2500. Auk þess er þingið opiö öll- um iönnemum sem fylgjast vilja meö störfum þess. Iönnemasambandsþingiö hefst kl. 15. 30 á föstudaginn meö setn- ingarræöu Hafsteins Eggertsson- ar, formanns sambandsin^ og á- vörpum gesta. Siðan veröa rædd- ar Skýrslur fyrir liöiö starfsár og lögö fram drög aö ályktunum. A laugardag veröa málefni þingsins rædd I umræöuhópum og þau siö- an afgreidd á sunnudag. Þann dag lýkur þinginu meö þvi aö kjöriö veröur I trúnaöarmanna- stööur fyrir næsta starfsár. — eös. k. Daviö Scheving Thorsteins- son forstjóri Sólar hf. ásamt Rannveigu Eliasdóttur, blaöamanni Morgunblaös- ins, sem setti verölauna- strimilinn I fernuna. Hálf miljón á tiu miljönustu Tropicanafernu Sá sem hittir á tiu miljón- ustu fernuna sem Tropicana safa hefur veriö tappað á hérlendis fær 500 þús. króna veröiaun. Tappaö var á fernuna I gær og sett I hana plastræma i sótthreinsuöum plastpoka meö tilkynningu um vinning- inn, en búast má viö aö fern- an seljist einhvern næstu daga. Fyrirtækiö Sól h.f. upplýsti i gær, aö i þessar tiu miljón fernur frá þvi aö pökkun hófst i febrúar 1973 heföu fariö uþb. 9.930.000 litrar af appelsinusafa, sem reiknaö er út, aö pressaöur hafi veriö úr 137 miljón appelslnum. Þaö er þvi ekkert smá- ræöi sem Islendingar hafa innbyrt af „sólargeislanum frá Flórida”, en auk hans er nú boðiö upp á hreinan epla- safa og greipsafa frá Tropi- cana. Bráðabirgða- aðstaða fyrir trillur þegar í stað Borgarráð beindi i gær þeim tilmælum til hafnar- stjóra aö reynt yröi þegar i staö aö sjá trillubátaeigend- um I Reykjavlk fyrir bráöa- birgöaaöstööu og aö hraðaö yröi undirbúningi aö nýrri aöstööu fyrir þá. Forsaga þessa máls er aö vegna framkvæmda I Vesturhöfninni var öllum trillubátaeigendum tilkynnt aö þeir yröu aö hafa sig á brott úr viölegunni. Hefur þetta sætt mikilli gagnrýni enda var fyrirvari hafnar- stjóra mjög skammur og ekki auðvelt um vik aö út- vega nýja viölegu. Arum saman hefur aðstaöa „trillu- karla” i Vesturhöfninni verið fyrir neöan allar hellur og ónýtar trébryggjurnar hafa stórskemmt bátana sem þar hafa legiö. 1 skipulagi hafnarinnar er gert ráð fyrir þvi aö smábátar veröi áfram i Vesturhöfninni, en þó haföi ekki veriö undirbúin ný aö- staöa fyrir þá áöur en þeir voru reknir I burtu nú fyrir skömmu. _ ai Kratar tilnefna í félagsmálaráð Alþýöuflokkurinn f borgar- stjórn hefur loksins ger.gið frá skipun fulltrúa sinna i félagsmálaráði en þar hefur flokkurinn engan fulltrúa átt siöan Sjöfn Sigurbjörnsdóttir sagöi sig úr ráöinu fyrir nokkrum vikum. Gerir flokkurinn tillögu um aö i staö Sjafnar komi Helga S. Einarsdóttir, kenn- ari.og i staö Kristlnar Arna- dóttur, varamanns Sjafnar, sem flutt er úr borginni,komi Guöiaugur Tryggvi Karls- son, hagfræöingur. Þess má geta áð á meöan flokkurinn hefur ekki sinnt um aö eiga fulltrúa i ráöinu hafa borgarfulltrúar hans fengiö frestun á afgreiöslu samþykkta ráösins i borgar- stjórninni. _ AI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.