Þjóðviljinn - 31.10.1979, Síða 6

Þjóðviljinn - 31.10.1979, Síða 6
6 StDA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 31. október 1979 '”i—-------- -j--------’----*--------ö ntuiinu gero nanar sku Jrá sjónarhóliþeirtu, „ Jon ÍMgurosson. imanna. Það má ekki gleymast, að sjávarútveg og Umadferðir stiórn fiskveiða Gylfi Þ. Gíslason: Núgildandi ráðstafanir eru ófullnægjandi Verður íslenska þjóðfélagið fært á betlistig af „sérfræð- ingum” sem skortir þekkingu á fiskiveiðum? ,1 sjómannablabinu Vikingi, 9. tölublaBi 1979, kveBja sér hljóBs þeir Jón SigurBsson þjóBhags- stjóri og Gylfi Þ. Gislason pró- fessor og ræBa stjórn Islenskra fiskveiBa, ásamt nauBsynlegri skattheimtu af veiBunum. Vlking- urinn hefst aB þessu sinni á grein þjóBhagsstjóra sem hann nefnir: ,,Um aBferBir viB stjórn fisk- veiBa”. Grein þessi er vangavelt- ur höfundar um þaB, hverskonar opinber stjórnun henti fiskveiöum íslendinga í komandi framtiö. Hér er komiB viBa viB, og er strax auBfundiB, aB „efnahagssér- fræBingur” rikisvaldsins vill ekki festa sig I þvl neti fastmótaBra til- lagna sem ýmsir „fræBingar” hafa komiB fram meB á þessu ári. 1 niBurlagi greinar sinnar segir þá þjóBhagsstjóri: „Hugmyndina um fiskveiBistjórnkerfi sem hér er varpaB fram, má draga saman svo: ” Hugmynd um stjórnkerfi 1) „Framseljanleg veiBileyfi til veiBa á ákveBnu aflamagni ilr hverjum fiskstofni. Gætt veröi atvinnuhagsmuna og byggBarsjónarmiBa viB úthlut- un. Upphafleg úthlutun án endur- gjalds til þeirra, sem veiöar hafa stundaB. Heimild til framsals þorsks-, rækju- og skelfiskveiöi bundin viB landshluta eBa héruB, en viB allt landiB fyrir uppsjávar- fiskveiöileyfi. Aflahlutir verBi greiddir til sjómanna af andviröi seldra leyfa.” 2) AflajöfnunarsjóBur innan sjávarútvegsins meö gjöldum á ofnýttar en verBuppbótum á van- nýttar fisktegundir. 3) „Veröjöfnunarsjóöur fisk- iönaöarins likt og nú er.” Næst á eftir þessum tillögum óskar svo þjóBhagsstjóri eftir aö- haldssömum fjarmagnskjörum viö nýsmiöi fiskiskipa og riflegri aöstoö viö aö taka úrelt skip úr rekstri sem myndi sIBan eins-i konar umgjörö um þetta kerfi, eins og segir I grein þjóöhags- stjóra. Svo mörg eru þau orö æösta sérfræöings Islenska rikisins I efnahagsmálum. Veiðileyfin og Gylfi Þ. Þegar grein þjóöhagsstjóra lýkur, tekur viö I Vlkingnum grein eftir Gylfa Þ. Glslason prófessor I hagfræöi viö Háskóla Islands, sem hann nefnir:„Núgild andi ráöstafanir eru ófullnægj- andi”. Hér er ekki veriö aö fara I neinar grafgötur meö hvaö prófessorinn vill og telur heppi- legast. Undir frásögninni „Sala veiöileyfa” I grein hans segir: „Eina færa leiöin, sem bent hefur veriö á til þess aö tryggja, aö dregiö veröi úr þeirri sókn sem skilar minnstum nettóafrakstrier aö láta á þaö reyna hverjir treysta sér til aö greiöa þjóBar- heildinni þaö afgjald sem fiski- hagfræöin sýnir óumdeilanlega aö eölilegt er aö innheimta af fiskveiöum, og er þá heppilegast aö gera þaö I formi gjalds fyrir veiBileyfi. Allar aörar atvinnu- greinar greiöa hliöstætt gjald af þeim auBlindum sem þær hag- nýta”. Hér vantar óneitanlega I grein prófessorsins hvaö hann á viö, þvi mér vitanlega greiöir engin atvinnugrein I þessu landi hliBstætt afgjald þvi sem prófess- orinn vill aB sjávarútvegurinn greiöi. Slöan segir prófessorinn: „Þeir greiöa gjaldiö sem hafa til þess nógu hagstæöan rekstur. Hinir draga saman seglin”. Hvernig þetta virkar Þá segir Gylfi Þ. Gislason þeg- ar hann ræöir um andmæli gegn veiBileyfisgjaldi: „I þessu sambandi yröi aö fara fram úttekt á stööu útgeröarinnar sem heildar. Fiskifræöingar geta sagt okkur, hversu mikiB þeir telja, aö veiöa megi og siöan veröa stjórnvöld aö taka ákvaröanir I þessum efnum. Ef útgeröarkostnaöur þess flota sem nauösynlegur er til þess aö veiöa þaö aflamagn, sem stjórn- völdhafa ákveöiö, aö viöbættu þvi gjaldi fyrir þau veiöileyfi, sem gefin eru út fyrir þvl aflamagni er meiri en tekjur hans, ber þaö ein- faldlega vott um, aö gengi krón- unnar er rangt skráö. Gengiö veröur þvi að lækka þannig aö sllk útgerö beri sig. Hafa veröur 1 huga aö um minnkaöan flota og Jóhann J.E. Kúld fiskimét um minnkaöa sókn yröi að ræöa”. Hér er talaö algjörlega tæpi- tungulaust um þá leiö sem hag- fræðiprófessorinn Gylfi Þ. Gisla- son vill fara I islenskum efna- hagsmálum, og ber aö virða hreinskilni hans I þeim efnum. Hinsvegar mundi áreiöanlega mörgum vera forvitni á þv!, hvernig prófessorinn hyggst sam- ræma þessa leið I efnahagsmál- um, baráttu Alþýöuflokksins gegn verðbólgu Hugleiðingar um auðlinda- skatt á íslenskar fisk- veiðar Hér á Islandi hefur á slöustu ár- um myndast einskonar trúarsöfn- uöur sem heldur því fram viö öll tækifæri, að Islenskar fiskveiöar séu á heljarþröm, allir fiskistofn- an séu aö veröa uppétnir. Aróöur og predikanir til stuðnings þess- um málstaö færöist þó fyrst I aukana, þegar búiö var aö færa fiskveiöilandhelgina út I 200 mil- ur. Margar tegundir fræðinga, og ýmsir þeirra sem aldrei höföu á sjó komiö, vissu nú allt I einu meira um fiskveiöar og heppilega tilhögun þeirra, en allir aðrir. Hingaö til hafa sjómenn og út- vegsmenn li'tiö haft sig I’frammi f umræðum um þetta mál. en hlustaö aðeins á hina. Þeir hafa þó þarna mestra hagsmuna aö gæta, ásamt þvl fólki sem aö fisk- vinnslunni vinnur i landi. 1 málflutningi þeirra tveggja hagfræöinga, sem kvatt hafa sér hljóös I málgagni Farmanna- og fiskimannasambands Islands og vitnaðertilhéraöframan kemur ótvlrætt fram að báðir eru tals- menn þess aö fiskveiöifloti okkar veröi minnkaður og nýsmiöi skipa torvelduö. Þjóöhagsstjóri leggur til að fiskveiöileyfi veröi ekki seld útvegsmönnum til aö byrja meö, en hinsvegar verði þeim heimilt aö selja fengin fisk- veiöileyfi til annarra, og fái þá skipshöfn þess skips sem leyfið er selt frá, hlutdeild I sölunni. Þetta er mjög sérkennileg uppástunga hjá fræðimanni I efnahagsmálum og get ég aöeins skiliö hana á þann eina veg, aö ef þannig væri af staö fariö, þá yröi auöveldara fyrir rikisvaldiö á eftir aö hefta sjómenn og útvegsmenn meö auölindaskatts-hnappheldunni. Gylfi Þ. Glslason prófessor viö Háskóla Islands vill hinsvegar ganga beint aö þvi „brýna verk- efni” að koma skattlagningu á fiskveiöar I framkvæmd. Þetta þarf aö hans áliti aö gera, fyrst og fremst til aö bjarga hinum of- veiddu fiskstofnum á Islandsmiö- um. Hinsvegar er prófessorinn ekki viss I því, hvort betra sé aö selja fiskveiöileyfin hæst- bjóöanda á uppboöi eöa ákveöa veröiö fyrir þau, af stjórnskipuöu ráöi, líkt og verölagsráöi sjávar- útvegsins. Prófessorinn hefur að sjálf- sögöu leitaö aö fyrirmyndum að auölindaskatti á fiskveiðar vitt um heim, til stuönings slnum málstaNen hvergi fundiö neitt. Þó segir hann aö Kanadamenn hafi byrjaö aö selja veiöileyfi til lax- veiöa áriö 1968. Hinsvegar getur hann þess ekki aö þetta var ein- ungis gert til aö dekka óhemju mikinn kostnaö hins opinbera vegna laxaklaks. Ég get hinsveg- ar upplýst aö ýmsar þjóöir og þar á meðal bæöi Kanadamenn og Bandarlkjamenn hafa siöan þeir færðu fiskveiöilandhelgina út i 200 mllur selt veiöileyfi til erlendra skipa. Þetta hafa þeir einungis gert vegna þess aö þeir eiga ekki ennþá nægan veiöiflota til nýting- ar miöanna. Aö selja sinum eig- in þegnum fiskveiöileyfi, hefur aö þvi að ég best veit hvergi komið á dagskrá nema hér á Islandi. Hug- -myndin er þó ekki islensk, heldur er hér á ferö gamall dariskur upp- vakningur síðanisnemma áöldinni. Og hugmyndin komaö sjálfsögöu frá hagfræöingi, sem var að reyna aö vekja athygli á sér og setti þetta fram I ritgerð, en fékk þá litlar undirtektir. Síöan hefur þetta danska lik legið og rotnaö I gröf sinni, þar til nú, að Islenskir „kunnáttumenn” vilja freista þess aö vekja þaö upp. Hver yrði hlutur okkar á fiskmörkuðum eftir álagð- an auðlindaskatt á fisk- veiðar? Gylfi Þ. Gislason prófessor gengur ekki framhjá þeirri stað- reynd aö auölindaskattur á fisk- veiöar hafi I för meö sér aukinn kostnaö fyrir sjávarútveginn. Þetta er aö sjálfsögöu alveg lauk- rétt. Hinsvegar sýnast mér úr- ræðin sem hann kemur fram meö gegn þessu ekki margra fiska virði. Eins og ég hef áöur bent á hér aö framan, meö þvi aö vitna 1 grein hans, þá er úrræðiö aöeins eitt. Þetta úrræöi heitir gengis- lækkun islensku krónunnar, þar til fiskveiðar og fiskvinnsla skila aröi. Þetta úrræöi islenskra hagfræö- inga ætti nú aö vera oröiö þekkt hér á landi, þvi svo oft er búið aö beita því á undangengnum áratugum. Meö öörum oröum fyrrverandi formaöur Alþýöu- flokksins hikar ekki við að boöa gengislækkun þ.e. skipulagöa mögnun veröbólgunnar og rýrn- andi llfskjör almennings i land- inu. Og allt á þetta að gerast til þess aö hægt sé að koma iönaöi sem ekki er talinn fær aö standa undir sjálfum sér, og veröi þvi aö halda i honum lifinu meö fé sem fengið skal með auölindaskatti á islenskar fiskveiðar. Þetta á svo allt að framkvæmast undir þvi yfirskini aö veriö sé aö bjarga fiskistofninum á islenskum miö- um frá hruni. En hvorugur sérfræöinganna, sem láta ljós sitt skina i sjó- mannablaöinu Vikingi, kemur inn á markaðsmál islenskrar fisk- vinnslu, eftir að þvi takmarki væri náö aö skattleggja islenskar fiskveiöar með auðlindaskatti. Að sjálfsögðu heföi slík skattlagning I för meö sér stðrhækkaö hrá- efnisverö fyrir fiskvinnsluna, þvi einhversstaöar þyrfti aö taka þaö fé sem útgerðin yröi aö greiöa fyrir veiöileyfi. Ef athuguö er staða islensks sjávarútvegs 1 dag, eftir langvarandi verðbólgutima- bil og hávaxtastefnu, þá má áreiöaniega ekki mikið út af bera til þess, aö Islenskar fiskafuröir yröu ekki samkeppnishæfar I veröi á heimsmarkaöi, og hvar stæöum viö þá? Og þannig er staöa okkar nú þrátt fyrir þá staðreynd aö islensk fiskvinnsla hefur um margra ára skeið búiö viö lægra kaupgjald heldur en flest fiskvinnsla annarra landa á norðurhveli jaröar hefur þurft að greiða. Vilji almenningur i landinu halda þeim llfskjörum sem náöst hafa, og bæta þau i náinni fram- tiö, þá veröur þaö ekki gert meö auðlindaskatti á islenskar fisk- veiöar sem óhjákvæmilega mundi hafa i för meö sér stór- fellda gengislækkun, aukna verö- bólgu og skert lifskjör alls al- mennings. Hér þarf að spyrna viö fótum svo trúarsöfnuöur margs- konar fræðinga, sem skortir þekkingu á sjávarútvegi en þykj- ast allt vita, fái ekki teymt þjóö- ina yfir á betlistig i efnahagsmál- um. Staöa okkar getur oröiö nógu erfiö, þó þvi veröi afstýrt. Menn verða aö gera sér þaö ljóst aö llfs- kjör I landinu veröa I náinni framtiö tengd vel reknum sjávar- útvegi, fiskveiöum og fiskvinnslu. Þar er margt ennþá ógert, sem hægt er aö færa til betri vegar og bættari afkomu, ef menn samein- ast um þaö. 1 þessu sambandi þarf sjávarútvegurinn á öllu fáanlegu fjármagni aö halda til aö koma fiskiönaöi I landinu yfir á það stig, sem samskonar iönaöur stendur hæst á I öörum löndum. Hér er mikiö og þarft verk aö vinna, sem á ekki aö þola aö veröi truflaöeöa eyöilagt. Hugmyndina um auölindaskattá islenskar fisk- veiðar sem nú rlður húsum i islensku þjóöfélagi, hana þarf aö kveöa niöur, áöur en hún hefur grafiö meira um sig en oröiö er, þvi kæmist þessi hugmynd I framkvæmd þá yröi mikil vá fyrir dyrum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.