Þjóðviljinn - 31.10.1979, Side 15

Þjóðviljinn - 31.10.1979, Side 15
Miðvikudagur 31. október 1979 þjöÐVILJINN — SIÐA 15 Fötlun og þingkosningar Magnús Kjartansson Fatlaðir minntu á vandamál sin á dögunum þegar þeir til- kynntu fjölmiðlum um nokkr- ar þær spurningar sem þeir vildu leggja fyrir stjórnmála- flokka. Þærlúta að þvi flestar, aö fá það fram I hvaöa mæli stjórnmálaflokkar og fyrir- svarsmenn þeirra eru reiðu- búnir til að fylgja eftir i verki þeirri jákvæöu afstöðu til mál- efna fatlaöra, sem allir eru reiðubúnir að tjá með orðum. * Utvarp kl. 19.35 Um þessi mál fjallar MagnUs Kjartansson fyrrum ráðherra i erindi sem hann flytur I Utvarp 1 kvöld kl. 19.35. Það nefnist einmitt „Fötlunog þingkosningar.” Vatnalíf og mannlíf Veröld vatnsins heitir kanadisk mynd um llfheim vatnsins og baráttuna þar eins og I kynningu segir. Sjónvarpið er nokkuð iðið viö að bjóöa okkur upp á heim- ildarmyndir um lifandi og dauða náttúruog er ekki nema gott um þaö aö segja. Þær opna fólki nýja heima og það hlýtur að vera mikill munur fyrir börn að fást við dýra- fræði og annað þessháttar eft- ir að sú kvikmyndatækni kom til sögunnar sem slikar mynd- ir skapar. En stundum finnst okkur Sjónvarp kl. 18.30 eins og mannh'fið sitji þá nokkuð á hakanum fyrir þess- ari náttUrudýrð — enda eru mannleg vandamál viðkvæm og margir fiskar undir steini þegar myndavélum er beint aö þeim. Reyndar hefur nú verið i gangi á mánudögum sænskur myndaflokkur um Suðurriki Bandarikjanna;nú I fyrradag var i þeim flokki sögð merkileg saga um glimu verkafólks I Suðurrikjunum við verksmiðjueigendur um jafn sjálfsagðan hlut og samn- ingsrétt. Viö megum vera viss um að fá mörg lesendabréf i Velvakanda kvartandi um svo svívirðilegan sænskan áróöur gegn Bandaríkjunum meö áminningu um að það væri nær að sýna ófrelsiö i Rúss- landi! Sannið þið bara til. Chmottiaftur með Jazz-þátt Jazz-þátturinn „Svört tón- list”, sem var á dagskrá hljóð- varpsins undir stjórn Gerards Chinotti i fyrravetur ávann sér miklar vinsældir hjá jazz- áhugamönnum. 1 haust hefur Chinotti ekki verið með jazz- þátt, Jón Múli hefur einn séð um þá tegund tónlistar hjá hljóðvarpinu. En nú verður breyting á, þeir Jón Múli og Chinotti munu I vetur skiptast á um stjórn jazzþáttar og veröur fyrsti þáttur Chinottis I kvöld kl. 23.00. Við spuröum Chinotti hvers vegna hann heföi breytt um nafn á þættinum, hann heitir nú „Jazz”. Hann sagðist bara vera aö breyta til, annað ekki og þátturinn yrði efnislega fram- hald af Svartri tónlist. Chinotti sagöist I kvöld myndi taka fyrir og kynna jazz-leikara sem væntanlegir væru til Islands 11. nóv. nk. en þeir væru allir á hraðri leið uppá stjörnuhimininn I jazztónlist- inni. Þetta eru þeir George Adams sem leikur á tenór- saxafón, Don Pullen sem leik- Gerard Chinotti • Útvarp kl. 23.00 ur á pfanó, Dannie Richmond á trommur og Cameron Brown á bassa. Allir þessir menn hafa leikið með þeim fræga jazz-leikara Charles Mingus og stefna sem fyrr segir hraðbyr á toppinn, eru raunar nú þegar vel þekktir meðal jazz-áhuga- manna um allan heim. í kvöld fáum við sem sé að hlýöa á þessa kappa og þann 11. nóv. nk. koma þeir til íslands og þá gefst fólki kostur á aö heyra þá og sjá á tónleik- um. -S.dór Kvenfólk ofar á listann! E.E., kaupandi blaösins og kjósandi Alþýðubandalagsins (þó ekki flokksbundinn) sem er á vinnustað þar sem vinna á annað hundraö manns, hringdi og sagðist vera óánægður með út- komuna úr forvali Alþýðubanda- lagsins I Reykjavik og kvaö svo vera meö marga fleiri á sínum vinnustað. Formann Verka- mannasambandsins taldi hann hafa I of miklu að snúast til að faralika á þing, en einkum beind- ist þó óánægjan aö þeirri staö- reynd, að kvenfólkinu væri nánast sparkað úr sæti þar sem það hefði áöur átt verðugan fulltrúa. — Égvil lika, að fram komi, aö ég er sjaldnast ánægður með jafnréttissföu Þjóðviljans og finnst hún ganga út i öfgar oft á tiðum. Samt vil ég hafa kvenfólk- ið inni á þingi. Ég var reglulega hrifinn af grein Soffiu Guömunds- dóttur á Akureyri, sem birtist i blaöinu nýlega, og tek undir með henni, sagði E.E. að lokum. Fleiri beinar ferðiríbœinn Breiöholtsbúi hringdi og bað blaöið aö koma á framfæri til- mælum til Strætisvagna Reykja- vikur. Svokallaðar hraöferðir, þe. beinar feröir úr Breiöholtinu I bæinn og öfugt, nr. 13 og 14, eru þær ferðir sem Breiðholtsbúar nota áreiðanlega mest af öllu þegar þeir geta, þvi þær spara bæði mikinn tfma og umstang. En sáerhængurá,sagöihann,aö nr. 13 gengur aöeins á hálftímafresti og á timabilinu kl. 5—7 slðdegis, þegar allir eru að koma heim úr vinnunni eru vagnarnir svo yfir- fullir, að vart er hægt að komast innf þá, aukþess sem þeir veröa seinni af þessum sökum. Eru það þvi tilmæli Breiðholtsbúa, hvort ekki mætti fjölga vögnum nr. 13 á þessu timabili á virkum dögum. Um nr. 14 er þaö að segja, að hann gengur aðeins á klukku- timafresti og aðeins til kl. 6 siðdegis og kemur þvi ekki að not- um fólkisemstundar vinnu i bæn- um. Væri ekki hægt aö fjölga feröum hans og láta hann ganga lengur? Myndin I gær: HjaltiKristgeirsson hagfræðingur. Kulusuk: eins og seiður og spásögn úr formri galdratrú, eins og örlagagól sleöahundsins I auðn norðursins Kulusuk: eins og grimmd og hatur og viðkvæmni i senn, i hljóðfalli og dansi eskimóans, undir einföldum takti trumbunnar Kulusuk: i brosi litlu eskimóabarnanna er komu á móti okkur með óráðna framtið Kulusuk: danskt natóhreiöur i striðsóðri atómöld (1979) Kulusuk er litið eskimóaþorp á vesturströnd Grænlands. frá lesendum KÚLÚSÚK ! I I 1 i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.