Þjóðviljinn - 22.11.1979, Side 9
Fimmtudagur 22. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN_StÐA 9
Siglaugur Brynleifsson
skrifar um
bókmenntir
Undir skörðum mána
Meginhluta þess tima sem Is-
lendingar hafabyggtþetta eyland
hafa bókmenntir þeirra veriö
epískar. Breið og lygn frásögn
mótub af rlkjandi skáldskapar-
hefö og siöareglum samfélagsins
sem var næst þvi aö vera þeo-
krati'skt ættarsamfélag lengstaf.
Tungan var bundin samfélags og
framleiðsluháttum, formi skáld-
skaparerfö sem kraföist mikillar
kunnáttu og leikni. Formiö varö
skáldunum oft þröngur stakkur
en jafnframt styrkur. Persóna og
eigin hvatir skáldanna samsöm-
uðust og aölöguöust hinu epíska
tjáningarformi sem var vissulega
mismunandi vltt til tjáningar.
Persónulegar hneigöir fengu
meiri eöa minni iltrás innan
formsins, tilfinningaleg og trúar-
leg tjáning gat t.a.m. náö hinum
mestu hæöum, einsog I trúarkveö
skap 17. aldar. Þótt kristin rök-
hyggja ramismans (Petras Ram-
us) væri áberandi innan lúth-
erskrar kristni, komin þangaö
eftir ýmsum leiöum, þárunnu þar
saman leifar fornra heittrúar-
stefna, sem ramisminn studdi ó-
tvlræöum rökum þeirra tlöa
manna áliti. Hinfullkomna vissa
um endurlausnarverk Krists og
útskýringar játningarritanna
mögnuöu innlifum bestu skáld-
anna, svo þau gátu tjáö innstu
verund slna I farvegi kristinna
kenninga. Þvl nær 17. aldar
skáldskapur sllkum hæöum, án
þess aö hiö heföbundna form og
kröfur episks skáldskapar rask-
ist. Þaö er ekki fyrr en meö róm-
antfsku skáldunum, sem persónu-
legar og persónubundinnar
reynslu tdiur aö gæta, svo aö skil
veröa greind milli episks skáld-
skapar og lyrisks skáldskapar.
Tjáningarform lyrisks skáld-
skapar eru bundin innlifun
skáldsins, persónulegur lifsstill
hans og oftar en ekki andóf og
hrein andúö á rlkjandi heföum.
Skáldiö varö hrópandinn I eyöi-
mörkinni, stundum „lýsandi
kyndill, sem varpaöi birtu um al-
heiminnogbrannslöan upp”. Þvl
lengur sem leiö á öldina því meir
fjarlægöust skáld og listamenn
rlkjandi heföir eigin samfélags,
þeir leituöu nú þess I sjálfum sér
og eigin reynslu, sem þeir tjáðu I
nýjum formum, hrein persónuleg
tjáning varö ríkjandi og til þess
‘ aö svo mætti veröa hér á landi
vari) ekki lengur unaö viö hefö-
bundiö ljóöform. „Hiö hefö-
bundna ljóöform er loksins
dautt”, sagöi sá sem var meöal
þeirra formskapenda, sem hvaö
mest áhrif haföi til nýbreytni, en
sá sami orti jafnframt manna
best samkvæmt hinni fornu hefö,
ef hann vildi. Þessi formbreyting
olli á slnum tima miklu f jaörafoki
og eölilegri og réttlátri reiði
þeirra sem töldu hin nýju form
leirburð og vitleysu. Sú afstaöa
þeirra vottaöi greinilega nauösyn
þeirra sömu fyrir skáldskap og
hversu þeim var skáldskapurinn
dýrmætur. Formbylting veldur
alltaf sárindum og því nærtækari
sem skáldskapurinn er þvl veldur
formbyltingin meiri sviöa. „Hiö
heföbundna ljóöform” var ekki
stakt og einangraö fyrirbæri,
heldur einn þáttur I aldagömlum
llfsstll og þvi fylgdi viröing og ást
á tungunni sem slfkri, þetta var
mörgum arfur kynslóöanna. Þaö
var ekki aöeins ljóðformiö sem
var þeim dýrmætt, það var þaö
samfélagsform aldanna sem
haföi mótaö og meitlaö þá hefð-
bundnu tjáningu I rími og stuöl-
um.
Eins og oft vill veröa, þá uröu
ekki þáttaskil I ljóöagerö, hiö
heföbundna ljóöform er ekki
dautt, heldurhefur þaö endurnýj-
ast og jafnframt hefur fátt auög-
aö islenskan skáldskap miö og
slöari hluta þessarar aldar meira
en „atómkveöskapurinn”.
Hugtakiö atómkveöskapur er
ágætt og lýsir hversu framandi og
hættulegt þetta ljóöform var taliö
I þann tfð þegar nýtt form ljóö-
listar kom upp.
Samanburöur og dómar um
ágæti skáldskapar á vissum
timabilum er alltaf vafasamur,
en þótt svo sé, þá virðast hæö,
vldd, fjölbreytni ogmálsnilldekki
eiga sér hliöstæöur I skáldskap
annarra alda, nema ef vera
skyldi 17. aldar hér á landi. Og
þáttur „atómskáldanna” I þróun
ljóölistar á 20. öld er harla mikill.
Bestu skáldin og þau eru mörg
hafa vikkað skáldamáliö, aukiö
þan tungunnar og stemmt þaö til
heildar viö eigin kenndir og til-
finningar, s.s. skapaö listaverk I
ljóöum, fleirien dæmi finnast til á
umliönum öldum.
Meöal þeirra skálda sem hæst
ber er Stefán Höröur Grimsson. 1
þessari útgáfu eru öll þau Ijóö
hans sem hann hefur hingaö til
gefiö út I þremur ljóöabókum . Sú
fyrsta „Glugginn snýr I noröur”,
kom út 1946 og er hér endurskoö-
uö. „Svartálfadans”, 1951 og
„Hliöin á sléttunni”, 1970.
„Glugginn snyr I noröur” kom
út á þeim áratug þegar greina
mátti lok þess samfélagsforms,
sem tók aö riölast þegar upp úr
aldamótunum Skáldskapur og
samfélag höföu veriö nokkurn
veginn samferöa fram á 19. öld og
lengur, en upp úr aldamótunum
koma þegar fram þau einkenni,
sem urðu ljósari þegar kemur
fram yfir Fyrri-heimsstyrjöld*
andstæöa skáldskapar og samfé-
lags. Markaössamfélagiö tekur
viö af sjálfsþurftarsamfélaginu I
flestum fram leiöslugreinum,
samvinnuhreyfingin ogkreppan á
fjóröa áratugnum hamlaöi kap-
Italismanum nokkuö, en meö lýö-
veldisstofnun og hernámi og
auknum úrkostum til gróöa-
myndunar fýrst I sambandi viö
hernám og slöar I sambandi viö
inngöngu íslands I félagsskap
þeirra sem „frelsinu unnu” og
hersetu „frelsisunnandi þjóöar”
hér á landi, hófust hér til lykil-
áhrifa menn, sem voru alteknir
hugsjón hins frjálsa framtaks.
Bandarlsk lágmenningaráhrif,
herbrask, vúlgær græögi ýmissa
lágmenningarfyrirbæra innan
stjórnmálaflokkanna, sem virtust
ekki kunna einföldustu mannasiði
I utanrlkismálum og samskiptum
viö aörar þjóöir, náöu hér yfir-
höndinni , iykiláhrifum I krafti
peninganna. Strax eftir lýöveldis-
stofnunina mátti sjá hvert
stefndi og þess gætir greinilega I
skáldskapnum. öll vönduöustu
skáld þjóöarinnar fylktu sér til
andstööu gegn þeim öflum sem
kepptu aö þvi aö skrilmenna þjóö-
ina.
Andóf skálda og listamanna
Kvöldvísur um sumarmál
Yfir mófjalliö rauöa
bláhvltu ljósi stafar
nýmáninn fölur á brá
Oti af fjörum brúnum
vesturfallinu knúin
ómar I logni hvltu
harpa I djúpum sjó
harpa sem leikur undir
vorkvöldsins slæöudansi
dapurt og glatt I senn.
Moldin dökka sem geymir
llk hinna týndu blóma
blóma sem hönd þin snerti
aftur er hlý og fersk.
Rökkur fellur á augu
kvöldsins og önnur blárri
handan viö glötuö vor
veröur aö einu og rennur
saman kvöldiö og mynd þln
hljóö og fögur sem minning
hrein og hvit eins og bæn.
gegn ráöandi öflum samfélagsins
varö strlöari eftir þvi sem á leiö.
Þessi afstaöa er ekki islenskt
fyrirbæri, þetta á sér staö um
allan heim, og hefur viöa staöiö
allt frá þvl á 19. öld einkum þar
sem markaöskerfið, óheftur
kapitalismi eða rikiskapitalismi
ræður rlkjum.
Þessa misræmis gætti I litlum
mæli á fyrri öldum. Hellensk
leiklist var ætluö öllum borgurum
Aþenuog vitaö ermeöfullrivissu
aö Divina Comedia Dantes var
lesin og notiö af öllum sem á
hlýddu IFlórenz og vitt um Itallu
á slnum tíma. Shakespeare var
dáöur af háum sem lágum.
Passiusálmarnir voru kunnir
hverju mannsbarni hér á landi
fyrrum. Menningin var samhæfö
uppbyggilegu samfélagi, þar sem
stefnan var samhæfing I ákveönu
formi,
Meö kapltalismanum myndast
gjá i samfélaginu og sú gjá
veröur æ breiöari þvl meiri ,af-
skipti sem gróðaöflin hafa af sölu
lágmenningarfyrirbrigöa, sölu-
hæf lágmenning ætluö markaös-
torginu veröur mjög gróöavænleg
einkum nú á dögum. Fjölþjóöa-
fyrirtæki ráöa markaönum meö
aöferöum sem eru samhæföar
gróöasjónarmiöi I smáu sem
stóru, fjölmiölar eru óspart not-
aöir.
Ifyrstu bók Stefáns Haröar má
strax greina þann tón, sem náöi
fullkomnun I næstu ljóðabókum
hans. Stefán náöi þegar I fyrstu
bók sinni aö fylla oröin persónu-
bundinni reynshi, oröin eru þá
þegar dýr og hvert orö, hver
hugsun er skýr og hnitmiöuð.
Myndræn tjáning hans er einföld
og dregin sterkum litum, sem
falla aö efninu hverju sinni. Hann
hefur fullt vald á rimi og beitir
þvi af næmleika. 1 Svartálfadansi
1951 tekst Stefáni aö yrkja ljóö,
sem eru einstök I íslenskum bók-
menntum. Fyrsta ljóð bókarinn-
ar, „Þegar undir sköröum mána”
er meöal þeirra.
Eitt er þaö kvæöi eftir Goethe
sem oft er nefnt sem dæmi um
fullkomiö ljóö, sem er „Cber all-
en Gipfeln / ist Ruh...” Meöal
kvæöanna I Svartálfadansi, er eitt
kvæöi sem ber I sér þessháttar
rytma hins fullkomna listaverks,
sem einkennir ljóö Goethes, sem
er „Kvöldvisur um sumarmál”.
Þaö vildi svo til aö tækifæri gafst
til þess að fá ágætan þýöanda á
þýzkutilþess aö þýöa þetta kvæöi
Stefáns Haröar á þýzku s.l.
sumar. Þýöandinn er Jón Laxdal
Halldórsson, sem vinnur nú aö
nýrri þýöingu á verkum Halldórs
Laxness á þýzku fyrir Verlag
Húber I Zúrich. Ýmsir fræöimenn
i bókmenntasögu hafa haldiö þvi
fram, að erfittséaöþýöa lyrik en
sé ljóöiö fyllt merkingu og merk-
ing og oröanotkun falli saman, þá
sé þaö gerlegt. Þessvegna var
tækifærið notaö og hér kemur
þýöing Jóns Laxdals:
Adendverse zur Sommerwende:
Uber den Moberg, den roten
fallt blauweisses Licht
vom Mondlicht mit blassen Wangen.
raussen vor braunen Ufern
von der westlichen Strömung bespielt
klingt in der weissen Stille
eine Harfe in tiefer See
Hér viröist inntak ljóösins
koma fyllilega til skila og oröin
halda seið sinum á þýzkunni,
enda þótt maöur hljóti aö sakna
hinnar fullkomnu hrynjandi
ljóösins á Islensku. Ljóðiö er
gegnum heilt og býr yfir andblæ
sem gerir þaö aö hinu fullkomna
ljóöi eins og tJber allen Gipfeln.
Þótt tvö ljóö séu hér nefnd úr
Svartálfadansi, þá bera önnur
ljóö bókarinnar merki orðsnilldar
og vandvirkni.
Hliöin á sléttunni kom út 1970.
Þar reynir á óbundiö form fremur
en áöur I ljóöum Stefán Harðar,
prósaljóöin i meöförum hans
veröa ljóörænni en ljóöiö sbi.
Náttúrufegurö og Fjöll. Eitt
kvæöi þeirrar bókar Siödegi,
vakti eðlilega andsvar úr
herbúöum lágmenningarinnar,
þar þótti óhæfa aö lýsa I ljóöi
amrískri glæpasögu I Vietnam.
Þetta andsvar vottar þaö djúp
sem nú er milli listarinnar og
málsvara prangarasamfélagsins.
Þaö er mikill fengur aö þessu
ljóöasafni, frumútgáfurnar eru
fyrir löngu uppseldar og frá hendi
forlagsins er vandaö til
útgáfunnar. Hringur Jóhannes-
son hefur myndskreytt bókina og
falla þær teikningar vel aö ljóöum
skáldsins.
eine Harfe, die sanft begleitet
des Lenzabends Schleiertanz,
traurig und Fröhlich zugleich.
Die Erde, die dunkle, sie birgt
die Leichen verlorener Blumen,
Blumen berúhrt von deiner Hand
deiner Hand, die so warm und so frisch.
Dammerung fallt auf die Augen
des Abends, und auf andere, noch blauer
jenseits von verschwundenen Lenzen
wird zu einem, verschmilzt,
der Abend und das Bild von dir
still und schön wie Erinnerung,
rein und weiss wie Gebet.
FJOLVISS
er komin í bókaverslanir um land allt
Talning í 4-5 daga?!!
Talning atkvæða gæti dregist um ófyrirsjáanlegan tima, vegna
veðurs og slæmrar færðar. Hafið þvi kosningahandbók Fjölvlss
við höndina og færið inn úrslit úr einstökum kjördæmum þegar
þau liggja fyrir.
MEÐAL EFNIS í BÓKINNI ER:
• Allir framboðslistar ásamt myndum af frambjóðendum i
efstu sætum listanna.
• fJrslit alþingiskosninga frá upphafi.
• (Jrslit borgar- og bæjarstjórnakosninga frá 1954-1978.
• Skrá yfir rikisstjórnir á íslandi.
• úrdráttur úr lögum um alþingiskosningar og reglur um
úthlutun uppbótarþingsæta.
• Verðlaunagetraun.
___oo____□
Einnig er hægt að kaupa bókina
hjá bókaútgáfunni
Siðumúia (>, simi 8129oJ E