Þjóðviljinn - 23.02.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 23.02.1980, Blaðsíða 7
Laugardagur 23. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Helgi Seljan alþingismaður: Um ávöxtun skyldusparnaðar Fyrir u.þ.b. hálfum mánuöi lagöi ég fram I Efri deild Alþingis litla breytingartillögu viö 71. gr. þess mikla lagabálks, sem þar liggur ml fyrir um HúsnæBis- málastofnun rikisins. Sú grein er um endurgreiBslurétt skyldu- sparnaBareigenda og hverjir þaB eru, sem endurgreiBslu eiga aB njóta. Tillagan er þannig: ViB endurgreiBslu þá, sem hé» um ræöir, fær umsækjandi fulla vexti og verBbætur, sbr. 70. gr., til viö- bótar viö inneign sfna á hverjum tima. A dögunum ritaöi Guöjón Sveinsson rithöfundur á BreiB- dalsvik skarpa ádeilugrein varB- andi meöferö opinberra aöila á skyldusparnaöi ungs fólks, þegar um er aö ræöa þá sem eiga þar rétt til endurgreiöslu, taka sem sagt Ut skyldusparnaB sinn oftast af. brýnni nauösyn, t.d. skólafólk, sem fær þá upphæöina greidda nálega án allra vaxta og verB- bóta. Skiptir þar engu þó upphæö- in hafi legiö inni I kerfinu svo Stutt greinargerð með lítilli breytingartillögu mánuöum skiptir og þar meö komiB aö fullum notum til útlána meB þeim háu vaxta- og verö- tryggingarkjörum sem þeim lán- um fylgja. Skrif GuBjóns skýröu þetta mál I framkvæmd, enda engu þar viB aö bæta, en ég fór aö leita lagaaö- stoöar þessa óréttlætis, sem hefur einnig veriö gert aö umtalsefni i blööum nyveriö. Ég fann ekkert i lögunum, sem heimilar þennan fjárdrátt, þar eru þvert á móti ákvæBi um vexti og viöbót skv. kaupgjaldsvisitölu, enda eru veröbætur verulegar, ef skyldu- sparnaöur liggur inni allan tim- ann. 1 núverandi frumvarpi, 70. gr., er hér enn hert á og full verö- trygging skyldusparnaöar er tek- in upp og vextir þeir sömu og á nýbyggingarlánum Byggingar- sjóös rlkisins. Akvæöi skýrari og bætur betur tryggöar. Allt er þetta býsna ótvlrætt, og þvi erf- itt aö' sjá hvernig á ósköpum þessum stendur. MiöaB viö reynslu mundi hiö enn skýrara oröalag nú I 70. gr. frumvarpsins engin áhrif hafa á þetta fremur en er I dag meö lagaákvæÐum, sem þar gilda. A.m.k. fæ ég ekki séö þaö og flutti þvi umrædda breytingartillögu. —En skýringar eru á öllu, og eins mun hér. Þegar til endurgreiöslu kom fyrst hjá Veödeild Landsbankans voru notaöar svokallaBar vinnu- reglur frá SeBlabanka Islands, þar sem óréttlæti þetta er innleitt. Slöar mun hafa veriö samin reglugerö, þar sem óréttlætiö var rækilega innsiglaB og staöfest. Eg veit þaB frá þeim, sem hér aB starfa hjá Veödeild, aö þeim er I hæsta máta óljúft aö standa svo aö máliim en aö sjálfsögöu beygja þeir sig fyrir ótvlræörireglugerö. Sigríöur Ella syngur í Austurbæjarbíói Það nýjasta í Þórskaffi: Kabarett í anda liðinna tíma Sigriöur Ella Magnúsdóttir söngkona kemur fram á áttundu tónleikum Tónlistarfélagsins I Reykjavik á þessu starfsári, sem haldnir veröa í Austurbæjarbfói kl. 14.30 i dag. Undirleikari er dr. Erik Werba. A efnisskránni eru verk eftir Mozart, Schubert, Schumann, Mendelssohn, Brahms, Grieg og Dvorák. Sigriöi Ellu þarf ekki aö kynna islensku tónlistaráhugafólki. Pró- fessor dr. Erik Werba, sem er þekktastur sem undirleikari margra helstu ljóðasöngvara heims, hefur jafnframt stundaö kennslu- og fræöistörf. Hann hef- ur um árabil veriö prófessor viö Tónlistarháskólann i Vlnarborg. Þar stundaöi Sigriöur Ella nám undir handleiöslu hans i fjögur ár, og lauk þaöan prófi með besta vitnisburöi áriö 1975. Þá hefur Sigriöur Ella tvisvar tekiö þátt I alþjóölegum námskeiöum I ljóöa- söng, sem dr. Werba heldur vlös- vegar, og hlaut hún fyrstu verö- laun á sliku námskeiöi i Belgiu áriö 1971. Dr. Werba stendur nú Sigriöur Ella Magnúsdóttir. fyrir námskeiöi i ljóöasöng á veg- um Söngskólans I Reykjavik. — ih Hver man ekki þá gömlu góöu daga þegar settar voru upp hér i Reykjavik skemmtilegar kabar- ettsýningar. Þeim fylgdi alveg sérstök stemming, sem seint gleymist þeim er sáu. Sunnu- daginn 24. febrúar mun Þórscafc hefja sýningar á kabarett, sem nefndur veröur ÞÓRS-KABAR- ETT og veröur settur upp i anda liöinna tima. Til að skapa stemmingu meöal gesta sinna á fimmtudags og sunnudagskvöldum hefur Þórs- kaffi fengiö ma. bræðurna Halla og Ladda meö nýtt prógram og meö þeim veröur Jörundur. Þeir félagarnir hafa samið og útfært kabarettinn. Til liðs við sig hafa þeir fengiö hóp listafólks. Alla leiö frá Bretlandi kemur sjón- hverfingamaöurinn Johnny Hay. Hann hefur undanfarið hrifiö fólk Helgi Seljan: Ekkert I lögunum sem heililar þennan fjárdrátt Þetta leiöir hugann hins vegar aö atriði, sem ég hefi ærið oft bent á hér á Alþingi, þ.e. meöferö og samningu reglugeröa og hversu þær hverju sinni samræmast lög- um eöa anda laganna eða beinni túlkun ákvæöa þeirra á Alþingi. Oft eru lög þannig úr garöi gerö, og veröur æ algengara, aö öll útfærsla er eftir og allsherjar- lausnin er þá sú aö setja inn grein, þar sem segir, aö nánari ákvæöi skuli sett I reglugerð. Ekki væni ég embættismenn um óheiöarleika, en túlkun þeirra og okkar þingmanna, sem þó setjum þessi lög og berum á þeim ábyrgö, sú túlkun þarf ekki aö vera eins; og ég fullyröi: er oft ekki eins. Eg hefi þvl oft sagt þaö, aö brýna nauösyn bæri til þess, aö áöur en viökomandi ráöherra gæfi út reglugerð, þá væru þing- Framhald 13. slöu. meö brögöum sinum, ma. gerir hann sér litið fyrir og „sker” aðstoöarkonu slna I tvennt! Islenski dansflokkurtnn kemur fram. Það verður þrumustuö á dönsurunum og meöal annars dansaö charleston og can-can. Stórband Svansins kemur og fram. Hljómsveit hússins, Galdrakarlar sjá um tónlistina. Þórscafe býður upp á logandi rétt. Stefán Hjaltested, yfirmat- reiðslumaöur hússins, kemur i salinn og eldsteikir (flambé) réttinn við borð gesta. Verði er I hóf stillt, sex þúsund krónur. Gestir, sem mæta fyrir klukkan átta fá „hanastél” frá húsinu, — þeim aö kostnaöarlausu. Þá má geta þess, aö listamaöurinn Hreggviöur Hermannsson sýnir verk sin á 1. hæö hússins. „Samþjöppun sálarorku” verk eftir Atla Heimi Sveinsson frumflutt í Norrœna húsinu 1 dag kl. 16.00 halda Ingvar Jón- asson, vióluleikari, og Janðke Larsson, pianóleikari, tónleika i Norræna húsinu. Meöal efnis sem þeir flytja er nýtt verk eftir Atla Heimi Sveinsson: „Cathexis fyrir viólu og píanó”. Um þetta verk hefur Atli Heimir m.a. sagt: „Cathexis merkir samþjöppun sálarorku um eitthvaö sérstakt, t.d. hug- mynd, endurminningu, hlut eöa atferli. Þaö tók mig langan tima aö semja þetta verk”.... „Viólan hefur löngum veriö uppá- haldshljóöfæri mitt einkan- lega i höndum Ingvars Jónas- sonar, en á sinum tfma kenndi hann mérýmislegt um möguleika þess.” Verkið er tileinkað hjón- unum Guörúnu Vilmundardóttur og Gylfa Þ. Gislasyni. A efnisskránni eru auk þess verk eftir Boccherini, Glinka, Max Reger, Arnold Bax og Louis de Caix d’Hervelois. Ingvar Jónasson hefur dvalist viö tónlist- arstörf og kennslu i Sviþjóö siöan 1972 auk þess sem hann hefur fariö i fjölda tónleikaferöa bæöi sem einleikari og með kammer- sveitum vlða I Evrópu og i Bandarikjunum. Hann kom m.a. fram hér i Norræna húsinu haustiö 1976 ásamt sænska gitar- leikaranum prófessor Per-Olof Johnson i kammertriói hans. Ráðstefna um Reyðarfjarð- arkjarnann Orkustofnun hefur boöiö þátt- takendum i hinni alþjóðlegu rannsóknarborun á Reyöarfirði aö halda lokaráöstefnu um rannsóknir á borholunni, i Reykjavik dagana 13.-15. mai 1980. Gert er ráö fyrir um eöa yfir 30 erlendum gestum og trúlega hafa margir Islendingar áhuga á að taka þátt i ráöstefnunni. Reiknað er meö aö flutt veröi 30-40 erindi um rannsóknir á hinum 1920 m langa borkjarna frá Reyöarfiröi og er ekki óliklegt að einhverjum starfsmönnum Orkustofnunar finnist þaö mikiö mál um eina borholu. Erindi þau sem flutt veröa á ráöstefnunni munu birt- ast i sérstöku hefti Journal of Geophysical Research. Orkustofnun veitir frekari upplýsingar um efni ráðstefnunn- ar og tilhögun. -mhg Fyrirlestur um Baldur og Loka Dr. Shaun Hughes, prófessor i ensku við Purdue University i Indiana, Bandarikjunum, flytur opinberan fyrirlestur I boöi heim- spekideildar Háskóla Islands mánudaginn 25. febrúar 1980 kl. 17.15 I stofu 301 I Arnagarði. Fyrirlesturinn fjallar um nor- ræna goðafræði og nefnist „Baldur og Loki”. Hann verður fluttur á islensku. öllum er heim- ill aðgangur. Kassa- verk í Djúpinu Karl Júliusson opnar sina fyrstu sýningu i Djúpinu i dag, laugardag, og sýnir þar 17 kassa- verk (box-art). Karl er ungur Reykvlkingur og hefur stundaö sjáifsnám i mynd- list, en aö aöalstarfi er hann leö- ursmiöur og rekur Leöursmiöj- una viö Skólavöröustíg. Sýningin er sölusýning og veröur opin til 9. mars. kl. 11-23 daglega. Djúpiö er i kjallara undir veit- ingastaönum Horninu, á horni Hafnarstrætis og Pósthússtrætis. Gengiö er inn I sýningarsalinn úr veitingastaönum. -ih Karl aö störfum I Leöuriöjunni

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.