Þjóðviljinn - 27.02.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 27.02.1980, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 27. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Gunnar Thoroddsen forsætisráöherra opnaði hiö nýja húsnæði Byggingaþjónustunnar viö hátiölega at- höfn á föstudag (Ljósm.: gel) Byggingaþjónustan: Nýtt húsnæði og bætt þjónusta Byggingaþjónustan er nú flutt i nýtt og stærra húsnæöi aö Hallveigarstig 1, Iönaöarmanna- húsinu. Hiö nýja húsnæöi sem Gunnar Thoroddsen forsætisráö- herra opnaöi viö hátiölega athöfn á föstudag er I kjallara hússins og norövesturhluta 1. hæöar, sam- tals 540 fermetrar. Um áramótin 1978—1979 komu Húsnæöismálastofnun og Rannsóknastofnun byggingariön- aöarins til liös viö Arkitektafélag íslands og geröu Bygginga- þjónustuna aö sjálfseignarstofn- un og siöan hafa Akureyrarbær, Fél. isl. iönrekenda, Iöntækni- stofnunin, Landsamband iön- aöarmanna og Reykjavikurborg lagt hönd á vogarskálina til efl- ingar þessum mikilvæga þætti og bættrar þjónustu i byggingarmál- um þjóöarinnar. Sýningarfyrirkomulagi veröur breytt frá þvi sem veriö hefur þannig aö sýnishorn byggingar- efna og tækja veröa flokkuö eftir Sfb alþjóölegu flokkunar- kerfi, þannig aö auöveldara veröur fyrir hönnuöi og almenn- ing aö gera samanburö hinna einstöku efna, þ.e.a.s. öll gólfefni veröa i sérdeild, þakefni i annarri o.s.frv. Lögö veröur áhersla á aö innflytjendur og framléiöendur kynni allar nýjungar sérstaklega og veröur sérstakt rými ætlaö til þess, sem er miödepillinn — PALLBORÐIÐ — I sýningarsaln- um. Ennfremur veröur kappkost- aö aö alltaf veröi eitthvaö um aö vera á þessu svæöi, svo sem myndasýningar, kynning á bygg- ingarefnum og meöhöndlun þeirra, skipulagsuppdrættir og likön o.þ.h. Spjaldskrá yfir byggingarvörur og tæki sem Byggingaþjónustan hefur veriö meö um árabil veröur aukin og endurbætt. Samhliöa veröur komiö upp safni af vott- oröum viöurkenndra rannsóknar- stofnana um gildi og gæöi þessara efna, svo sem buröarþol, slitþol, brunaþol o.fl. Um þessar mundir er byggingaþjónustan aö vinna aö skrásetningu á brunaþolnum efn- um og eldvarna- og slökkvitækj- um i samvinnu viö Brunamála- stofnun rikisins, sem veröur hin opinbera flokkun á þessum efnum og tækjum. Samkvæmt nýrri byggingarreglugerö veröa öll ný byggingarefni aö hljóta viöur- kenningu hér á landi og mun Byggingaþjónustan geta veitt upplýsingar um hvort slik viöur- kenning er til staöar. Auk þess veröur lögö áhersla á aö hafa ávallt sambærileg verö fyrir hendi, þannig aö treysta megi samanburöi á veröi og gæö- um á hverjum tima. Af þessu má m.a. sjá aö leitaö veröur I rikara mæli en áöur til Bygginga- þjónustunnar um upplýsingar um gildi og gæöi hinna mismunandi byggingarefna og tækja. Formaöur stjórnar Bygginga- þjónustunnar er ólafur Sigurös- son arkitekt en Olafur Jensson framkvæmdastjóri. Hún er opin alla virka daga kl. 10—18 og þegar tilefni gefst á kvöldin og um helg- ar. — GFr FEF útskýrir skattaskýrsluna Félag einstæöra foreldra hefur fengiö Guömund Guöbjarnarson hjá rikisskattstjóra til þess aö koma á fund hjá félaginu og mun Guömundur fjalla um breytt framtalseyöublaö og leiöbeina félags- mönnum og svara fyrirspurnum um skattframtöi. Fundurinn veröur fimmtudaginn 28. febr, kl. 21.00 aö Hótel Heklu, Rauöarárstig 18 (kaffiteriunni). Félagar eru hvattir til aö mæta vel og stundvislega og nýir félagar eru velkomnir. Málfreyjur kynna starfsemi sína Málfreyjur halda kynningarfund I veitingahúsinu Glæsibæ (kaffi- teriu) fimmtudagskvöld 28. feb. kl. 20:30, og er öllum heimill aögangur, körlum ekki siöur en konum. Fundur þessi er haldinn til aö kynna tilgang og starfsemi Alþjóöa Málfreyjudeilda (International Toastmistress Clubs) Markmiö samtakanna er aö stuöla aö frjálsum og fordómalaus- um umræöum á hvaöa sviöi mannllfsins sem er. Mikil áhersla er lögö á tjáningu, en i þvl felst æfing I aö semja og flytja ræöur, eöa taka til máls á opinberum vettvangi. Annar liöur er fundarstjórn og fundasköp, nefndarstörf og ýmiss konar stjórnúnarstörf i þeim til- gangi aö stuöla bæöi aö samstarfshæfni og þvi aö þjálfa forystuhæfi- leika. Fuglalif Vestfjaröa Næsti fræöslufundur Fuglaverndarfélags Islands, veröur I Norræna húsinu, föstudaginn 29. febrúar 1980, kl. 20.30. ólafur Nielsen, liffræöingur, semárum saman hefur stundaö rannsóknir á Vestfjöröum, mun sýna litskyggnur og tala um fuglalif á Vestfjöröum.'á margan hátt frábrugöiö fuglali.fiI öörum lands hlutum. Fundurinn er öllum opinn. Lánskjaravísitalan 143 Seölabankinn hefur reiknaö út fyrir marsmánuö 1980 lánskjara- visitöluna 143. Böm alkóhölista — hin gleymdu böm Fyrir skömmu kom út hjá Otgáfufélaginu Úr bókin BÖRN’ ALKÖ- HÓLISTA — hin gleymdu börn. Fjallar hún um hagi 115 barna I Toronto i Kanada. Þó bókin sé skýrsla byggö á rannsókn er máliö á henni blátt áfram og aö nokkru er hún iifandi iýsing i oröum barnanna sjálfra á tilfinningum sinum. Höfundurinn, Margaret Cork, er félagsráögjafi meö 15 ára reynslu f meöferö hins drykkjusjúka og fjölskyldu hans. Byggir hún könnun sína á viötölum viö börnin og dregur fram aöaleinkenni fjölskyldulífs alkóhólistans. Markmiö bókarinnar er aö auka skiln- ing á högum barnanna og bendir Cork á aö verulegur hluti alkóhólista og maka þeirra eru börn alkóhólista. Aftast 1 bókinni er lýsing á gerö og framvindu könnunarinnar. Börn Alkóhólista er 128 bls. Þýöandi er Asgeröur Einarsdóttir. Umbrot og filmuvinnu annaöist Prentþjónustan,Guöjón 6. setningu og prentun en Félagsbókbandiö bókband. Mörgum finnst að fá ríki séu ólíklegri til að taka upp náið samstarf en Norður- og Suður-Kórea, bæði vegna fyrri fjandskapar og styrjaldarátaka og vegna gerólíkrar þróunar. Engu að síður virðist nú aftur kominn nokkur skriður á viðræður um einskonar ríkjasamband, sem mun gera ráð fyrir að hvor haldi sínu í innri mál- umaðverulegu leyti. Hér á eftir fer greinargerð frá Norður-Kóreumönnum komin um ástand mála, en þar er lögð sérstök áhersla á að Park, forseti Suður- Kóreu, sem myrtur var í október leið, hafi öðrum fremur staðið í vegi fyrir því að skriður kæmist á samninga. Tveim vikum eftir moröiö á Park Chung Hi tóku 6 Noröur- kóreumenn aftur upp samninga- umleitanir sinar viö Suöurkóreu. Þann 9. nóvember i fyrra skrifaöi noröurkóreanska flokksblaöiö „Rodong Shinmun” aö nú væri stundin inni fyrir Suöurkóreu aö velja sér framtiöarbraut, þvi væru miklir möguleikar fyrir noröriö og suöriö aö taka aftur upp samningaviöræöurnar. Smámsaman fengu viöræöurn- ar á sig formlegan blæ. Li Jong Ok forsætisráöherra N-Kóreu sendi Shin Hyon Hwack starfs- bróöur sinum i Seúl bréf og sam- timis sendi varaforseti N-Kóreu, Kim II, 11 bréf til allra stjórn- Nýjar samningaviöræður Noröur- og Suður-Kóreu málaleiötoga i suöri, svo og til allra samtaka, sem berjast fyrir friöi, lýöræöi og almennum mannréttindum i S-Kóreu. Þar sem póstsamgöngur milli landanna hafa legiö niöri siöustu 30 árin voru bréfin afhent af opin- berum starfsmönnum i landa- mærabænum Pamnunjong. Skyndilegur dauöi Park Chung His 26. október 1979 opnaöi nýja möguleika til sameiningar. A átt- unda áratugnum voru geröar fleiri tilraunir til sameiningar, auk þess sem reynt var aö leysa sameiginleg vandamál beggja landanna, en allar umræöur höföu endaö I algeru skilnings- leysi og án minnsta árangurs. Asakanir ganga á báöa bóga, en frá sjónarhól N-Kóreu var eini möguleikinn á áframhaldandi viöræöum aö Park hyrfi af sjónarsviöinu. Fimm ár eru liöin frá þvi aö Seúl og Pyongyang höföu siöast samband sin á milli. 1976 ákvað Pyongyang aö leggja formlega niöur viöræöurnar vegna harön eskjulegrar framkomu Parks I garö stórnmálaandstæöinga sinna i suðri. Þá voru i gangi réttarhöld yfir stjórnmálaleibtog- um. Þekktust eru sennilega réttarhöldin yfir Kim Dae Jung, sem sigraði næstum þvi Park i forsetakosningunum 1971, en litiö er að marka úrslit kosninganna A landamærum suöurs og noröurs: meira aö segja póstsamgöngur hafa legiö niöri I 30 ár. vegna margskonar svinarís og svindls. 1971 tók Rauöi krossinn upp umleitanir viö bæöi löndin I þeim tilgangi aö þær 10 miljón fjölskyldur sem höfðu tvistrast I Kóreustriöinu gætu haft samband sin á milli yfir landamærin, hist, hringt og skrifast á. Þann 4. júli 1972 byrjuðu svo umræður um sam einingu landanna, i þetta skiptiö fyrir tilstilli Suöur-Kóreu sem var uggandi um sinn hag vegna vináttuhóta Nixons viö Kina. Þrátt fyrir aö sendinefndir feröuöust frá noröri til Seúl og öfugt, voru umræöurnar árangurslausar. Þegar norölend- ingar tóku nú aftur upp þráöinn þar sem frá var horfiö voru sunn- lendingar einsog ætið áöur fullir efa, hvað þá nú þegar ráöamenn þar voru gjörsamlega i rusli vegna þessa óvænta morös á Park . Þann 11. janúar i ár hringdu norölendingar til Seúl. 1 meir en tvo tima hringdu þeir og var þá loksins svarað af einhverjum sem ekki kynnti sig. Sagbi hann aö þaö væri vonlaust aö reyna að ná sambandi og skellti svo á. Norðlendingar höföu ætlað sér aö koma á framfæri mikilvægum boðum, sem þeir gerbu svo skrif- lega daginn eftir. Þann 24. janúar kom svak frá Seúl og var þar tillaga um fundarstað og stund, undirrituð af forsætisráöherra S-Kóreu. Eng- inn hinna, sem voru send bréf frá Pyongyang, hefur svaraö, enda vafamál aö þeir hafi fengið bréfin. Aö minnsta komsti tveir viötakenda sitja i fangelsi siöan 24. nóvember siöastliöiö ár. Takmark N-Kóreu er samein- ing beggja landanna meö gagn- kvæmri viröingu fyrir stjórn- mála- og efnahagskerfum beggja aöila, sameiginlegt sæti hjá Sameinuöu þjóöunum og sameinginlega fulltrúa á iþróttaleikvöngum annarra landa. Park, hvattur af Bandarikja- mönnum, var meir inn á þeirri linu að staöfesta enn betur að- skilnað landanna. Nú á eftir aö reyna á hvort arf- takar Parks geti hugsaö sér aö taka upp stefnu, sem komi meira heim og saman viö stefnu noröursins.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.