Þjóðviljinn - 29.02.1980, Page 1

Þjóðviljinn - 29.02.1980, Page 1
þá mistakist flest sem menn taka sér fyrir hendur. NU, og svo hefur það verið vinsælt blaðaefni að ræða við fólk sem fætt er á hlaupársdegi, 29. febr. og á þvf ekki afmælis- dag nema fjórða hvert ár. En hvers vegna er bætt inn einum aukadegi á 4ra ára fresti? Astæðan er sU, að sóiar- árið og almanaksárið fara ekki alveg saman, sólarárið stendur ekki uppá heilan dag. Þess vegna er þessi aukadagur settur inn til að leiðrétta skekkjuna. Þetta var ekki gert allsstaðar á sama tfma og þvf er þessi mun- ur á okkar timatali og til að mynda JUIIanska timatalinu, en á þvi og okkar tlmatali munar 13 dögum og erum við á undan. — S.dór/Ljósm. — gel — 1 dag er 29. febrUar, hlaupárs- dagur, eða eins og segir I hinni frægu mánaðavlsu: Ap. jUn. sept. nóv. þrjátlu hver, einn til hinir kjósa sér. FebrUar tvenna fjórtán ber, frekar einn þá hlaupár er. 1 bók Arna Björnssonar þjóðháttafræðings, „Sögu daganna”, segir aö á hlaupárs- degi hafi konur leyfi til að biöja sér karlmanns. Hann má þá ekki neita, en getur þó keypt sig undan þvl með gjöf. Sem sagt smá varnagli gegn þvi að vera hnepptur I hjónabandið. Annars er viða um lönd ótrU á þessum degi og jafnvel á hlaup- árinu öllu. Það er trU sumra að Föstudagur 29. febrúar 1980. 50. tbl. — 45. árg. Ákvörðum um nýtt fiskverö: Vísað tilifir- nefiidar Lágmarksverð á loðnu- hrognum ákveðið Akvörðun um nýtt fiskverð, sem bæði kaupendur og seljendur höföu sagt upp frá 1. mars hefur verið visaö til yfirnefndar, eftir að reynt hafði verið að ná sam- komulagi I Verðlagsráöi sjávar- Utvegsins, en ekki tekist. Hinsvegar tókst ráðamönnum aö ná samkomulagi um verð á loðnuhrognum I vetur og var það ákveðið 120 kr. pr. kg. Afhend- ingarskilmálar eru óbreyttir frá þvi sem verið hefur. BUast má viö að erfitt verði að ná samkomulagi um nýtt fiskverð frá 1. mars. Sjómenn og Ut- geröarmenn vilja hækkup,en fisk- kaupendur segjast tapa meira en nokkru sinni fyrr og vilja lækkað verö. — S.dór Auka- blað um framtaliö fylgir blaðinu í dag Þjóðviljanum fylgir i dag sér- stakt 12 siðna aukablað með leiöbeiningum við Utfyllingu skattframtals einstaklinga og skattmati framtalsárið 1980. Ný skattalög eru gengin I gildi og nýtt framtalseyðublaö hafa framteljendur nU fengiö heimsend. Vegna þessara nýj- unga eru leiðbeiningarnar nú amk helmingi viðameiri en oftast áður og dugir ekki minna en heilt aukablað til þess að koma þeim fyrir. Þjóöviljinn minnir á aö framtalsfrestur einstaklinga rennur Ut 10 mars. Haldiö auka- blaöinu til haga, og gangi ykkur vel með framtalið. — Um 700 sœkja þing Norðurlandaráðs í Reykjavík: Sextíu ráðherrar! Þjóðleikhúsið aðal- fundarstaðurinn /,Þetta þing verður fjöl- mennasta þing Norður- landaráðs sem haldið hef- ur verið hér á landi og lík- lega munu sækja þingið milli 500-600 manns fyrir utan starfsmenn f jölmiðla er verða rúmlega 100", sagði Friðjón Sigurðsson skrifstofustjóri Alþingis er Þjóðviljinn ræddi við hann um þingið/ en Friðjón hef- ur á hendi undirbúning fundarins af hálfu Islands. Að sögn Friðjóns þá eiga 78 þingmenn sætii Norðurlandaráði. Atta þingmenn eru frá Islandi, en 18 frá hverju hinna Norðurland- anna. Auk þingmannanna taka milli 50-60 ráðherrar beinan þátt i störfum ráðsins og þar af allir forsætisráðherrar landanna. Skýringarinnar á þeim mikla fjölda er hingað kemur i tengslum við þingið er aö leita I þvi, aö meö ráöherrunum kem- ur mikill fjöldi embættis- manna, sérfræðinga og alls konar aðstoðarfólks, auk þess sem þær þrjár skrifstofur sem starfa á vegum ráðsins verða hér með sina fulitrUa. Þá munu einnig mæta fulltrúar norrænu félag- anna. Gert er ráö fyrir að þeir rúmlega 100 starfsmenn fjölmiðla er hingað koma verði meö aðstöðu I Þjóöleikhúsinu og i Kristalsal Loftleiða. Noröurlandaráösþingið verö- ur sett mánudaginn 3. mars kl. 14.00 I Þjóðleikhúsinu. en Þióð- j Líflegra þing en áður?\ IÞað er álit ýmissa stjórn- málamanna að umræöur á þingi I" Norðurlandaráös I næstu viku geti orðið öllu liflegri en á B undanfömum þingum. Astæöan Ier sú að nú geta þingfulltrúar tekiö upp ýmis „heit mál” með ■ litlum fyrirvara svo sem loðnu- deilu Islendinga og Norömanna og beint fyrirspurn um málið til viökomandi ráöherra. Slika fyrirspurn þarf að leggja fram meö 24 klukkustunda fyrirvara, en samkvæmt fyrri fundarsköp- um þurftu þingmenn aö hafa lagt fyrirspurnir sinar fram með 3 vikna fyrirvara/Taliö er g liklegt að þingmenn ,krata fra ® Noröur-Noregi muni nota fyrir- « spurnarrétt þennan til að fjalla | um loönudeilu Norömanna og m Islendinga. leikhúsið verður aðalfundarstað- ur þingsins. Flestir erlendu þátt- takendanna koma hingaö I leigu- flugvélum siðdegis á sunnudag- inn 2. mars og fara föstudaginn 7. mars, en gert er ráð fyrir að þing- inu verði slitið siðdegis þann .dag. Þó að ÞjóðleikhUsiö verði aðal- fundarstaður þingsins þá verður fundarsalur I Arnarhvoli, hUs- næði Hæstaréttar og AlþingishUs- ið notað til nefndarstarfa. Vegna sýninga I ÞjóöleikhUsinu fær Norðurlandaráð ekki hUsið til af- nota fyrr en á föstudagskvöld, en öllum undirbUningi innanhUss þarf að vera lokiö á sunnudag, svo ekki er mikill tími til fram- kvæmda. Minna verður um veisluhöld á þessu þingi en áður. Þannig verð- ur hin svokallaða rlkisstjórnar- veisla sem móttökulandið hefur haldið felld niður, auk þess sem sendiráð Norðurlandanna verða ekki með móttökur fyrir þingfull- trUa. Á þinginu nUna verða þvl aðeins um að ræða tvær opinberar mót- tökur. í fyrsta lagi veröur mót- taka þriöjudaginn 4. mars að lok- inni afhendingu bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlanda- ráðs. I öðru lagi verður Alþingi með hádegisverðarboð fyrir alla þátttakendur auk gesta miðviku- daginn 5. mars. — þm. lón Rafns son látinn Jón Rafnsson einn besti og þekktasti baráttumaöur verkalýöshreyfingarinnar á Islandi er fallinn i valinn. Hann lést i fyrrinótt á sjúkradeild Landspltalans aö Vifilsstööum eftir þriggja mánaöa legu. Jón heföi oröiö 81 árs 6. mars næstkomandi. Hann fylgdist af eldlegum á- huga meö nýjustu atburöum stjórnmálanna fram á siö- ustu daga sina og haföi einskis misst af þeim bar- áttuanda sem einkenndi allt hans Ilfsstarf. Jón Rafnsson fæddist 6. mars 1899 aö Vindheimum i Norðfirði, sonur hjónanna GuðrUnar Glsladóttur og Rafns Júliusar Simonarson- ar, útgerðarmanns. Jón Rafnsson tók mikinn og góðan þátt I skipulagningu verkalýðsbaráttunnar á Norðfirði og I Vestmanna- eyjum á sinum yngri árum. Arum saman var hann á- samt mági sinum Isleifi Högnasyni aðaldrifkraftur- inn og skipuleggjandinn I hörðum kaupgjaldsátökum sjómanna og landverkafólks i Véstmannaeyjum. Jafn- framt byggöu þeir Jón og ís- leifur ásamt mörgum öðrum upp öfluga róttæka stjórn- málahreyfingu, eina þá þróttmestu og athafnasöm- ustu á landinu. Fundahöld og skipulags- störf viösvegar um landið á vegum hinnar róttæku verkalýðshreyfingar voru um árabil höfuðverkefni Jóns. Hann átti mikinn þátt i þvi að undirbúa jarðveginn I verka- lýöshreyfingunni fyrir að- skilnað Alþýöusambands og Alþýðuflokks. Upp Ur þvi efldist Alþýðusambandið meir en nokkru sinni fyrr og það tókst að sameina öll verkalýðsfélög landsins inn- an vébanda þess. Meðan vinstri öflin réðu Alþýöu- sambandinu á fimmta ára- tugnum var Jón Rafnsson framkvæmdastjóri sam- bandsins. Dagsverk Jóns Rafnssonar i verkalýðshreyfingunni og flokkum hennar, fyrst I Al- þýðuflokknum, siðan I KommUnistaflokknum, Sósialistaflokknum og loks i Alþýöubandalaginu er svo mikið að vöxtum að það verður ekki tiundaö I stuttri dánarfrétt. En Jón Rafnsson kom viðar við en I verkalýðs- hreyfingunni. Hann var einn af helstu hvatamönnum og stofnendum Sambands is- lenskra berklasjúklinga og starfaði einnig að bindindis- málum. Eftir Jón Rafnsson liggja ýmsar bækur I bundnu og ó- bundnu máli. Mikla athygli vakti er bók hans „Vor i ver- um” var lesin i RikisUtvarp- ið fyrir 2-3 árum. Þá var hann og meistari ferskeytl- unnar og Rósarimur hans eru mörgum kunnar. Jón Rafnsson kvæntist aldrei en sonur hans og Þór- disar Ottesen er Valdimar Jónssoii skólastjóri á Norð- firði sem þar býr ásamt fjöl- skyldu sinni. Þjóðviljinn vottar aðstandendum Jóns Rafnssonar samúð sina. Margir eiga honum mikið að þakka fyrir samfylgdina og mun Þjóðviljinn minnast hans siðar. —ekh.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.