Þjóðviljinn - 08.03.1980, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. mars 1980
Hér sjáum viö hluta af „betri helmingi” hljómsveitarinnar. Mynd. — gel
Sinfóníuhljómsveitin 30 ára
Hér eru 6 af þeim 10, sem starfaO hafa i hljómsveitinni frá upphafi, — og eru ekki
mikil ellimörk á körium. Frá v. IndriOi Bogason, Skafti Sigþórsson, (sagöist hafa
veriO i Novu-siagnum), Jón SigurOsson, Sveinn Ólafsson, Þorvaldur Steingrfmsson
og Jónas Dagbjartsson. Mynd — gei
r
i
stundum eru aö velta þvi fyrir
sér hver séu hin raunverulegu
störf, sem þessi eöa hinn meölim-
ur hljómsveitarinnar stundi, rétt
eins og daglegar æfingar til
undirbilnings tónleikum séu bara
tómstundavinna. Starfsáriö er frá
sept.-byrjun til júniloka.
Sinfóniuhljómsveitin hefur
talsvert gert aö þvi aö halda tón-
leika Ut um land og jafnan veriö
tekiö þar tveim höndum, dæmi
eru auk heldur um þaö, aö sumir
áheyrendur þar hafi fylgt hljóm-
sveitinni eftir af einum tónleik-
unum á aöra.
1 öndveröu var hljómsveitin
skipuö 39 hljóöfæraleikurum. Af
þeim starfa 10 ennþá meö hljóm-
sveitinni.
Aö sjálfsögöu hefur Sinfóniu-
hljómsveitin einkum lagt stund á
flutning sigildrar tónlistar en á
siöari árum hefur hún einnig flutt
„léttari” verk og aukiö þannig
breidd og fjölbreytni I vali viö
fangsefna.
Fram kom á fundinum aö for-
ráöamenn Sinfóniuhljómsveitar-
innar telja aö fjölmiölar mættu
geta starfsemi hennar oftar og
ýtarlegar en þeir geröu og raunar
sinna betur músikmálum yfir-
leitt. Hér skal undir þaö tekiö.
. Þegar um var spurt, hvaöa af-
mælisgjafar, (þaö þarf vist ekki
aö búast viö þeim mörgum), —
hljómsveitin mundi helst óska
Björn R. Einarsson, (meö frá
byrjun), á „sjó” á Mývatni.
Mynd: — gel
sér, þá reyndist þaö vera löggjöf,
sem fæli það ma. i sér aö gera
hana að sjálfstæðri stofnun, — og
er nú ekki fram á mikið fariö.
Munaöi raunar aöeins fáum
augnablikum aö af þvi yröi á Al-
þingi nú fyrir jólin,en á siöustu
stundu var fæti brugöiö fyrir
frumvarpiö. Vonandi nær þaö
fram aö ganga nú i vetur. Hitt er
svo auövitaö framtiöardraumur-
inn aö hér risi upp sómasamlegt
hljómleikahús þar sem góö aö-
staöa gefst bæöi til æfinga og tón-
listarflutnings, en nú er slikt hús
nánast ekki tií.
Stundum heyristþvi fleygt, aö
þaö sé alltof kostnaöarsamt fyrir
svona fámenna þjóö aö vera aö
Framhald á bls. 17.
3—4 mánuöir
Sinfóniuhljómsveit islands er
oröin 30 ára. Hún hélt sfna fyrstu
tónleika i Austurbæjarbiói 9.
mars 1950. i tilefni af afmælinu
efnir hljómsveitin til afmælistón-
leika I Háskólabiói I dag kl. 17.
Engir aögöngumiOar veröa seldir
aö tónleikunum, þar veröur „opiö
hús” fyrir alla, svo lengi sem
magarúm Háskólabiós leyfir.
Dagskrá tónleikanna er á þessa
leið:
Richard Wagner: Forleikur aö
óperunni Tannhauser.
Vincenco Bellini: Konsert I Es-
dúr fyrir óbó og strengjasveit.
Einleikari Kristján Þ. Stephen-
sen.
Gabriel Fauré: Elégie op 24
fyrir celló og hljómsveit, einleik-
ari Pétur Þorvaldsson.
Weber: Konsertino fyrir klari-
nett og hljómsveit. Einleikari
Einar Jóhannesson.
Peter Tchaikowsky: Sinfónia
nr. 4 i f-moll Op. 36.
Hljómsveitarstjóri er Páll P.
Pálsson.
Þá heldur Sinfóniuhljómsveitin
og tónleika I sjónvarpssal á
morgun i tilefni afmælisins.
Komið hefur út afmælisrit þar
sem er aö finna ýmsan fróöleik
um aödragandann aö stofnun
hljómsveitarinnar, starfsemi
hennar þessi 30 ár og þá menn,
sem þar hafa mest komiö viö
sögu.
Þetta kom fram á fundi, sem
forráöamenn hljómsveitarinnar
héldu meö fréttamönnum sl. miö-
vikudag.
Sinfóniuhljómsveitina skipa nú
59 hljóöfæraleikarar, þar af
nokkrir útlendingar. Hún heldur á
ári hverju um 50 tónleika eöa
eina tónleika á viku aö kalla.
Æfingar fara fram alla virka
daga vikunnar og má þaö vera til
nokkurs fróðleiks fyrir þá, sem
Mikiö asskoti áttum viö Gunnar
ljósmyndari skemmtilega stund i
gærmorgun. Viö vorum vestur i
Háskólabiói þar sem Sinfóniu-
hljómsveitin var aö æfa undir af-
mælistónleikana. Viö uröum aö
visu iviö of seinir til þess aö ná aö
mynda hljómsveitina fyrr en eftir
hlé, en viö duttum hinsvegar
beint ofan i kaffibollana hjá þess-
um fjöruga félagsskap, — og átt-
um þar góöa vist.
Auövitaö heföi verið hægt aö
eiga þama viötal viö hvern ein-
asta mann, en hvar I ósköpunum
fékkst rúm til aö birta þau?
Kannski skrifa þau i snjóinn? Nei,
jafnvel sú leiö var lokuö þvi nú
var komin hláka.
— En hérna er einn af út-
lendingunum, sem vinnur meö
okkur, sagöi Helga Hauksdóttir
og leiddi á fund okkar ungan
mann.
— Og þú heitír?
— Duncan Campellog er Skoti.
— Og hefur spilaö meö hljóm-
sveitinni?
— 1 sjö ár, spila á óbó og enskt
horn. Ég kom hingaö daginn eftir
Vestmannaeyjagosiö, beint úr
skóla, og var þá strax ráöinn til
starfa i hljómsveitinni I forföllum
annars. I byrjun var gert ráö
fyrir aö ég yröi þarna meö I 3-4
Duncan Campell segist vera i
góöum félagsskap. mynd: —gel
mánuöi en þeir mánuöir eru nú
orönir aö 7 árum.
— Og hvernig likar þér lífiö?
— Mjög vel. Félagsandinn og
samstarfiöhér i hljómsveitinni er
meö miklum ágætum. Og ég er
mikill náttúruunnandi og fyrir
slikt fólk er gott aö vera á Islandi.
Ég á smá-hús austur i Fljótshliö
og þangaö skýst ég stundum á
veturna og á sumrin er ég uppi
um fjöll og fimindi.
Og nú glymur flautah, allir eru
kallaöir til starfa og meira að
segja Arni Elfar veröur aö
stinga niöur blýantinum og hætta
viö teikninguna 1 miöjum kliöum.
Gunnar fer upp aö mynda.
—mhg
Páll P. Pálsson, hljómsveitarstjóri, kom til landsins 1949 og er fyrir
löngu oröinn „sannur islendingur” og Helga Hauksdóttir, form. Starfs-
mannafélags hljómsveitarinnar. Mynd:—gel.
Einleikarar á afmælistónleikunum: Einar Jóhannesson, Kristján Þ.
Stephensen og Pétur Þorvaldsson. Mynd: — gel.
AÐALFUNDUR
Samvinnubanka íslands h.f.
verður haldinn að Hótel Sögu, Atthagasal, Reykjavik,
laugardaginn 15. mars 1980 og hefst kl. 13.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram tillaga
um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunarhlutabréfa og
rætt um breytingar á samþykktum bankans.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða af-
hentir i aðalbankanum, Bankastræti 7, dagana 12. - 14.
mars, svo og á fundarstað.
Samvinnubanka
íslands
Afmælistónleikar
Háskólabíói í dag
Orðnir að 7
árum