Þjóðviljinn - 08.03.1980, Page 9
Laugardagur 8. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Fréttir úr borgarstjórn
Eldhúsdagsumrædur
um skipulagsmál
Grunnt á ofstœkið hjá íhaldinu
Það er orðið langt siöa'n haldinn
hefur verið jafnlangur fundur i
borgarstjórn Reykjavikur og I
fyrrakvöld, en fundurinn stóð til
klukkan að ganga fjögur um
nóttina. Þó þreytumerki sæjust á
einstaka borgarfuiltrúa var Al-
bert Guðmundsson I essinu slnu
og sagði hann um tvö-leytið að
vonandi yrðu næstu fundir svona
langir lika, — það næði ekki nokk-
urri átt að senda menn heim á
miðju kvöldi, þegar vinnudag-
urinn væri rétt háifnaður!
Mest var rætt um skipulags-
málin, endurskoðun og stað-
festingu aðalskipulagsins, og
Höfðabakkabrúna. Inn i þær
umræður blönduðust þó einstaka
ræður m.a. um aðild borgar-
starfsmanna að stjórnun fyrir-
tækja og stofnana borgarinnar,
leiktækjasalina, sem nú á að gera
leyfisskylda og fleira. Veröur
gerð grein fyrir þessum málum
siðar I Þjóðviljanum en plássinu
nú varið i skipulagsmálin, sem
voru mál málánna eins og áður
segir.
Heift og stóryrdi
Liklega hafa allir borgarfull-
trúarnir 15 tekið til máls og sumir
oftar en einu sinni og oftar en
tvisvar i þessum „eldhúsdags-
umræðum um skipulagsmál.”
eins og Kristján Benediktsson
kallaði það. Var ýmislegt látið
flakka sem vart er hafandi eftir,
en málflutningur Sjálfstæðis-
manna, einkum I Höfðabakka-
málinu einkenndist mjög af heift
og stóryrðum, bæði gagnvart
borgarstarfsmönnum, frétta-
flutningi Þjóðviljans og þeim sem
mælt hafa gegn byggingu þess-
arar hraðbrautabrúar. Það kom I
ljós að borgarfulltrúar allra
flokka, annarra en Alþýðubanda-
lagsins, voru harðir á þvl aö hefja
framkvæmdir við mannvirkið I
sumar. Ekkert var til I þeim orð-
rómi, aö Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
borgarfulltrúi Alþýöuflokksins
væri á móti þvl, en hún kallaði
frestun framkvæmdanna „svik
við borgarbúa” I ræðu sinni. Var
framkvæmdin samþykkt með 10
atkvæðum.
Hvaö var verið
að samþykkja?
Einhvern veginn hafði maður
samt á tilfinningunni að sumir
borgarfulltrúar ættu bágt I
málinu eins og stundum er sagt,
þ.e. að þeir væru ekki vissir nema
þeir væru að verja rangan mál-
stað, en eins og ólafur B. Thors
sagði þá hafa borgarfulltrúar
árum saman legið undir skömm-
um fyrir að hafa ekki komið á
tengingu milli Arbæjar og Breið-
holts. Þeir hafa borið viö fjár-
skorti en nú þegar peningarnir
væru til, mætti borgarstjórn ekki
láta standa á sér.
Þó á miöju gólfi I borgar-
stjórnarsalnum væri stórt likan
af Höföabakkabrúnni, sem sýndi
hvað veriö var að samþykkja,
þ.e. fjögurra akreina hrað-
brautarbrú með miklum uppfyll-
ingum beggja vegna i dalnum og
miklar upphækkanir undir veg-
inum norður af enda brúarinnar,
þá var eins og borgarfulltrúar
gerðu sér ekki grein fyrir þvi.
Kristján Benediktsson og Björg-
vin Guðmundsson lögðu þvert á
móti áherslu á að áðeins ætti að
gera tvær akreinar i fyrsta
áfanga og að lækka ætti veginn i
landinu meðfram Arbæjarsafni
eins og slikar breytingar væru
enginn vandi, og kölluðu ekki á
nýja hönnun.
Röksemdafærslur andstæöinga
þessarar framkvæmdar, sem
fólust aðallega I þvi að fyrst ekki
ætti að leggja Fossvogsbrautina
og ekki Höfðabakkaveginn milli
Breiðholts I og III væri engin
ástæða til þess að gera ráð fyrir
þessu mikla mannvirki, heldur
Húsid illa
Éariö af fóa?
ætti að hanna annaö og minna,
létu menn eins og vind um eyr-
un þjóta, og eins og Sigurjón
Péturssonorðaði þaö, þá var ljóst
að orð gátu engu um þokaö á
þessum borgarstjórnarfundi.
Skammir i
allar áttir
Þau féllu þó æði mörg eins og
fyrr segir og vöktu mörg hver
hneykslan og furðu. Magnús L.
Sveinsson og Elln Pálmadóttir
réöust af mikilli hörku á ótil-
greinda embættismenn borgar-
innar fyrir að „hlaupa I blöðin”,
„vera á launum við að safna und-
irskriftum ” „leka upplýsingum ’ ’,
„gefa einhliöa og litaöa mynd af
hlutunum”, „æsa upp og panta
mótmæli” og fleira I þeim dúr. Lá
við að maður byggist við tillögu
um að málfrelsi og prentfrelsi
yröi ekki látið ná til starfsmanna
Rey kjavikurborgar.
Greinilega hafði það hlaupiö
fyrir brjóstið á þessum borgar-
fulltrúum að Þjóðviljinn hefur
gegnt þeirri sjálfsögöu skyldu
sinni að upplýsa borgarana um
það hvað er á döfinni hjá
borgarstjórn Reykjavlkur, um
hvað er deilt og hvers vegna. Las
Magnús L. Sveinsson upp úr
mörgum fréttum Þjóöviljans af
þessum fyrirhuguðu fram-
kvæmdum auk þess sem hann
hellti sér yfir þá borgarbúa I
Arbæ og Breiöholti sem hafa mót-
mælt þeim. Beindust ásakanir
hans ekki síst að undirrituðum
blaðamanni, sem var I þeirri
óvanalegu aðstöðu að sitja
þennan fund sem formaður
umhverfismálaráðs og vara-
borgarfulltrúi, en Magnús tók
greinilega mjög til sin almenn orð
undirritaörar um að stjórnmála-
menn lokuöu augunum fyrir stað-
reyndum og beittu sjálfa sig og
aðra blekkingum af þvi þeir
þyrðu ekki að skipta um skoðun á
neinum hlut. Lá við að maður
byggist við tillögu um aö blaðaút-
gáfa yröi lögð niður, alla vega að
Þjóöviljinn, þetta voöalega blað
yrði bannað.
Torfusamtökin
Daviö Oddson kallaði Borgar-
skipulag Reykjavikur aldrei
annaö en „Torfustofnunina” i
ræðum sinum á þessum fundi og
Albert Guömundsson sá ástæðu
til að vara borgarstjórn við
þremur hættulegum mönnum,
sem hefðu komist til áhrifa hjá
Reykjavikurborg, — öllum úr
„Torfuhópnum”. Þessir voöalegu
menn voru Sigurður Harðarson,
Framhald á 17. slðu.
Teikningar af nýbyggingum eru til
t fréttum Þjóöviljans undan-
fama tvo daga um Suöurgötu 7
hefur gætt misskilnings, sem
nauösynlegt er aö leiörétta og
biöja hlutaöeigendur velviröingar
á. Hiö rétta er aö eigendur lóöar-
innar eru ekki aöeins erfingjar
séra Bjarna Hjaltested, eins og
sagt var i blaöinu, heldur einnig
erfingjar bróöur hans, Péturs
Hjaltested, stjórnarráösfulltrúa.
Aö sögn Geirs Stefánssonar lög-
fræöings, sátu allir eigendurnir
sameiginlegan fund, þar sem tek-
in var ákvöröun um aö sækja um
niöurrifsleyfi á húsinu, utan
tveggja, en annar býr erlendis og
hinn er sjúklingur.
Þá er það ekki rétt sem fram
kemur I frétt Þjóðviljans í gær aö
Geir Stefánsson hafi keypt hlut i
dánarbúi þeirra bræðra. Hann á
engan hlut I eigninni, en kona
hans er dóttir séra Bjarna og þvi
ein af eigendunum.
Þjóöviljinn ræddi I gær viö Geir
Stefánsson og sagöi hann að fyrir
um 15 árum hefðu eigendur húss-
ins haft mikinn hug á þvi að það
yrði varöveitt uppi I Árbæ. Lárus
Sigurbjörnsson, þáverandi for-
stöðumaður Arbæjarsafns hefði
skoðað húsið vandlega og hefði
álit hans verið að ekki væri unnt
að flytja það úr stað. þar sem
hinn upphaflegi hluti þess er múr-
aöur I binding og neðri hluti húss-
ins mjög illa farinn.
Húsiö stóð úpphaflega á grunni
og var þá gengið upp I það frá göt-
unni, en tvivegis hefur verið
byggt við það. Þegar Suðurgatan
var hækkuð fyrir um 40 árum fór
grunnurinn og neðsti hluti hússins
á kaf og nú er svo komiöað gengið
er niður eitt þrep inn um útidyrn-
ar. Húsiö hefur þvi staöið I bleytu
og for allan þennan tima að sögn
Geirs og er mikill fúi i því allt upp
undir gluggana.
Geir sagöist furða sig á þvi að
bygginganefnd væri ekki kunnugt
um fyrirhugaöa notkun lóðarinn-
ar, þvi fyrir tveimur árum hefði
skipulagsnefnd borgarinnar fjall-
að um tvær tillögur að nýbygg-
ingum á henni. önnur tillagan
gerði ráð fyrir þvi að gamla húsið
yrði rifið, en hin aö þaö yrði látið
standa, en nýbyggingar kæmu
annars staðar á lóðinni. Sagði
Geir að skipulagsnefnin hefði
verið fylgjandi siðari tillögunni
meö gamla húsinu áfram, en gef-
ið nokkrar ábendingar um hvað
betur mætti fara á teikningunum.
Einnig hefði skipulagsnefndin
gefiö upp nýtingarhlutfall á lóð-
inni.
Magnús Skúlason, formaöur
bygginganefndar sagði i gær að
engar teikningar hefðu fylgt
niöurrifsbeiöninni til bygginga-
nefndar og þó teikningar hefðu
veriö lagðar fyrir skipulagsnefnd
fyrir týeimur árum þyrfti bygg-
inganefnd að fá staöfestingu á þvi
hvað ætlunin væri aö framkvæma
á lóöinni I dag, áður en hún tæki
afstööu til niðurrifs.
Borgarminjavörður mun á
næstunni kynna sér ástand og
sögu hússins og væntanlega gefa
umsögn fyrir næsta bygginga-
nefndarfund um niðurrifsbeiön-
ina. -AI
Tónleikar
Lúðrasveit
Verkalýðsins
heldur sína árlegu
tónleika í dag kl. 14.00
í Háskólabíói
Stjórnandi er
ELLERT KARLSSON
Kynnir
JÓN MÚLI ÁRNASON
Hörku góð
lúðrasveitartónlist
við allra hæfi
AÐGANGUR ÓKEYPIS