Þjóðviljinn - 08.03.1980, Side 14
14 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 8. mars 1980
iTekst Val hið
| ótrúlega?
I Stórviðburður í íslensku íþróttalífi
■ á morgun þegar Valur og Atletico Madrid
■ leika í 4-liða úrslitum Evrópukeppni
■ meistaraliða
// Ég þori ekki að spá um úrslit leiksins, en það má
■ bóka fjöruga viðureign. Spánverjarnir eru með
I gríðarlega skemmtilegt lið," sagði Brynjar
! Kvaran, markvörður Vals, aðspurður um það
I hvernig leikurinn gegn Atletico Madrid á morgun
J! legðist í hann.
Atletico er lið sem byggir
mikið á hröðum handknattleik
og þeir vilja hasar og læti. Ef
þeim tekst að fá mótherja sina
út i slíkt eru úrslitin nánast
ráðin. Sænska liðið Heim
(Víkingsbanarnir) sáu ekki
við þessu þegar þeir léku gegn
spænska liðinu Calipsa og
Sviarnir máttu þola háðuglegt
tap, 25-40.
Þá hefur það komið fram að
lið Atletico Madrid er skipað
vel þjálfuðum leikmönnum og
skortir þá hvorki krafta né
snerpu. Meira að segja
Þorbirnirnir i Valsliðinu urðu
að láta undan þegar liðin léku
á Spáni og kalla þeir þó ekki
allt ömmu sina.
Valur stillir upp sinu sterk-
asta liði á morgun, en í þeim
hópi eru: Brynjar Kvaran,
Brynjar Harðarson, Björn
Björnsson, Bjarni Guðmunds-
son, Steindór Gunnarsson,
Stefán Gunnarsson, Þorbjörn
Jensson, Jón H. Karlsson,
Stefán Halldórsson, Ólafur
Benediktsson, Þorbjörn
Guðmundsson og Gunnar Lúð-
víksson. Valsararnir hafa ein-
beitt sér alla vikuna að æfa
ýmis varnartilbrigði, sem
hægt veröur að beita á Spán-
verjana, allt eftir því hvernig
leikurinn þróast.
Viðureignin á morgun hefst
kl. 19 i Laugardalshöllinni og
verður forsala i gangi eftir
hádegi. Væntanlegum áhorf-
endum er bent á að tryggja sér
miða snemma og ekki siður að
vera timanlega á ferðinni.
— IngH
Valsmaðurinn Stefán Halldórsson verður i siagnum á morgun og
vonandi tekst honum aö hrella Spánverjana. Hér að ofan er hann
að skora gegn sænska liðinu Drott.
Hver vill breskan
fótboltaþjálfara?
Hafi eitthvert islenskt
knattspyrnufélag áhuga á að
næla sér i breskan þjálfara
næsta sumar þá er hægt að
snúa sér til skrifstofu KSl.
Þangaö hafa skrifað 2 Bretar
og lýst áhuga sinum á að
starfa hér á iandi.
Danny McLennon heitir
annar þeirra og hefur hann
leikiö fótbolta I 14 ár i Skot-
landsliðsmaður og leikið með
Aston Villa. Siðan klykkir
hann út með þeim oröum að
hann hafi getið sér góðan orð-
stir sem þjálfari á Græn-
landi!!!!
— IngH
Úrvalsdeild
landi. Þá segist kappinn hafa
verið landsliðsþjálfari i Irak
og Jórdaniu.
Registur og sjálfhól Peter
McParland er öllu lengra og
skrautlegra en hjá McLennon
og hann segist hafa verið
■ ■HiailMIBIBilH
Þessir leikir verða í úrvals-
deildinni um helgina:
Sunnudagur:
Fram-fr, Hagask. kl. 13.30.
UMFN-KR, Njarðvik
Mánudagur:
Valur-ÍS, Hagask. kl. 20.
J
Sporhundarnir hér á landi:
Hafa bjargað sjö
mönnum sl. 10 ár
Sem kunnugt er hefur hjálpar-
sveit skáta I Hafnarfiröi haft yfir
að ráða tveimur sporhundum síð-
an 1970 og hefur nýveriö fengiö
þann þriðja. t Arsskýrslu sveitar-
innar sem Þjóövilja'num barst
fyrir skömmu kemur fram að á
þessum 10 árum hafa spor-
hundarnir fundið 10 manns sem
týnst hafa, þar af 7 á lifi.
í skýrslunni segir, að frá 2.
október 1970 til ársloka 1979 hafi
útköll sporhundanna verið 221.
Þar af voru 109 útköll afturkölluð,
áöur en hundarnir hófu leit, I 35
skipti hefur sannast að hundarnir
voru á réttri leið, en ekki reyndist
þörf á að ljúka leit, þar eð viö-
komandi var kominn fram. 1 23
skipti hafa slóöir verið raktar aö
sjó eða vötnum og viðkomandi
siöan fundist drukknaöur. Alls
hafa 10 manneskjur fundist, þar
af 7 á lífi.
110 skipti hefur ekki verið hægt
að komast að þvi hvort hundarnir
Vi'evfftU'gert rétt og 18 leitir hafa
misheppnast. 1 4 tilfellum var um
sérstáka aðstoð og trúnaöarmál
aö ræöa. 112 skipti hefur ekki ver-
ið hægt aö búast við árangri þar
eð slóö þess týnda hefur verið
oröin of gömul.
A árinu 1979 var farið I 218
æfingar meö sporhund og eru þær
mislangar, allt frá 1 km uppi 10
km famar i misjöfnum veðrum,
bæði að nóttu og degi til. Sveitin á
nú einn blóðhund, Sám, —S.dór.
Viltu læra Bridge?
Ásinn, Bridgeskólinn
i Reykjavik.
Páll Bergsson
Asinn, Bridgeskólinn i
Reykjavik, tók til starfa siðast-
liðið haust með námskeiöi fyrir
byrjendur, og mjög fljótlega
kom fram, að marga langar til
að læra bridge. Og frá áramót-
um hafa verið hér 1 Reykjavlk
námskeið I tveim flokkum, bæöi
fyrir byrjendur og aðra, sem
lengra eru komnir. Námskeið
þessi sækir fólk á öllum aldri og
skemmtir sér vel.
Framhaldsskólar á lands-
byggðinni hafa sýnt námskeið-
um skólans nokkurn áhuga.
Bæði á Akranesi og á Reyðar-
firöi eru starfandi útibú frá
skólanum. En á þessum stöðum
eru um 30 ungmenni úr fram-
haldsskólunum á bridgenám-
skeiðum og gengur vel. Má á því
sjá, að bridge er svo sannarlega
iþrótt fyrir alla.
Sunnudaginn 16. mars mun
skólinn kynna bridge-spiliö og
skólastarfið sérstaklega milli
kl. 14 og 17 I félagsheimili
Hestamannafélagsins Fáks á
mótum BUstaöavegar og Breið-
holtsbrautar, en þar fer kennsla
skólans fram. A kynningardegi
þessum munu liggja frammi
kennslugögn skólans. Tekin
verða fyrir og skýrö á sýningar-
tjaldi sérstiSc kennsluspil auk
þess sem kennarar skólans
verða til viðtals um skólastarfið
og annað sem þvi viökemur.
Næstu námskeið Bridgeskól-
ans hefjast 22. og 24. mars og
verða I tveim flokkum, fyrir
byrjendur og fyrir þá, sem
lengra eru komnir. Við þetta má
bæta, að miðvikudagskvöldiö
19. mars gengst Bridgeskólinn
fyrir stuttri einmenningskeppni
fyrir nemendur slna.
Bridgeskólanum stýrir Páll
Bergsson.en auk hans kenna viö
skólann þeir Guðjón Sigurðsson
og Guömundur Páll Arnarson.
— Frekari upplýsingar, gefur
Páll Bergsson I simum 19847 eða
20443.
Glæsilegt hjá
Sigurði og Vali
Siguröur Sverrisson og Valur
Sigurösson endurtóku það sem
þeir afrekuöu einnig sl. ár, aö
„stela” sigri I aðaltvimennings-
keppni BR, I siöustu umferð
mótsins.
Fyrir hana höfðu Jón og
Simon 4 stig til góða á Sigurð og
Val, sem höfðu tekið mikinn
endasprett, svo sem venja
þeirra er.
Til að mynda var staöa efstu
para þessi eftir 38. umf.: Jón--
Simon 366, Guðm. - Sævar 361
Sig. - Valur 304.
Næstu 2 umferðir skoruðu
Siguröur og Valur yfir 100 stig
en Jón og Simon „aöeins” um 50
stig.
Röð og stig efstu para varö
þessi, eftir 41 umferö:
stig
1. Siguröur Sverrisson—
ValurSigurðsson 378
2. Jón Asbjömsson—
Slmon Simonarson 376
3. Guömundur Hermannsson—
Sævar Þorbjörnss. 364
4. Helgi Jónsson—
Helgi Sigurðsson 321
5. Björn Eysteinsson—
Þorgeir Eyjólfss 284
6. Guðlaugur R. Jóhannsson—
Orn Arnþórss. 228
7. Skafti Jónsson—
Viöar Jónsson 222
8. Asmundur Pálsson—
Sverrir G. Armannss. 219
Umsjón:
Ólafur
Lárusson
7. Vikar Davfðsson—
Olafur Sigurðsson 21
Frá TBK:
1 vikunni hófst 36 para Baro-
eter-tvlmenningur hjá TBK.
Spiluð eru 4 spil milli para, og er
lokið 7 umferðum. Staða efstu
para er þessi:
stig
1. Þorsteinn Kristjánsson—
Rafn Kristjánss. 149
2. Gissur Ingólfsson—
Steingrlmur Steingrímss. 95
3. Hrólfur Hjaltason—
Stefán Pálsson 95
4. Finnbogi Guðmundsson-
Hróðmar Sigurbjörnsson 59
5. Þórhallur Þorsteinsson —■
BragiBjörnsson 56
6. Tryggvi Gislason —
Sveinn Sigurgeirss 53
Keppnisstjóri er Agnar Jörg-
ensson.
Frá Bridgefélagi
Reyðarfjarðar &
Eskifjarðar:
Athyglisvert er, að pör I 1.-3.
sæti, enduðu öll 11.-4. sæti sl. ár.
Siguröur og Valur sigruðu, Jón
og Símon I 4. sæti og Guðm. -
Sævar einnig þá I 3. sæti. Nokk-
uö „stabilt” þaö...
Næsta keppni BR er 3 kvölda
hraösveitakeppni sem mótast af
þátttöku (spilafjöldi o.fl.).
Keppnisstjóri BR er Agnar
Jörgensson.
Frá Ásunum
Sl. mánudag hófst hjá félag-
inu 4 kvölda Barometertvl-
menningur. Spiluö eru 6 spil
milli para. Lokiö er 4 umferð-
um, og er staða efstu para
þessi:
1. Ragnar Björnsson—
Sævin Bjarnason 64
2. Oddur Hjaltason—
GuöbrandurSigurbergss 52
3. Jón Baldursson—
Jakob R. Möller 49
4. Þórarinn Sigþórsson—
Óli Már Guömundss 35
5. Skúli Einarsson—
Þorlákur Jónsson 27
6. Sigurður Sigurjónsson—
TraustiFinnbogas. 18
Keppnisstjóri er Hermann
Lárusson.
Frá Barðstrend-
ingafélagi Rvk.:
Eftir 10 umferðir I Barómet-
erkeppninni er staða efstu para
þessi:
1. Þórarinn Arnason —
Ragnar Björnss. 94
2. Sigrún Straumland —
Kristln Kristjánsd. 42
3. Sigurbjöm Armannsson —
HróömarSigurbjörnss 37
4. Helgi Einarsson—
Málfrlður Lorange 35
5. Jóhann H. Sigurðsson—
Karl Karlsson 29
6. Pétur Karlsson —
Jón Karlsson 28
Aðal-sveitakeppni BRE 1980
lauk þann 4. mars. 7 efstu sveit-
ir urðu þessar:
stig
1. KristjánKristjánsson 168
2. Aðalsteinn Jónsson 148
3. Friðjón Vigfússon 129
4. Búi Birgisson 103
5. GuðmundurBaldursson 96
6. Ólafla Þórðardóttir 97
7. Magnús Bjarnason 76
Frá Bridgefélagi
Hafnarfjarðar:
Slöastliðinn mánudag hófst
Barometer-tvímenningskeppni
GH. með þátttöku 28 para.
Staöan eftir fyrsta kvöldið:
stig
1. Höröur Þórarinsson—
Halldór Bjarnason 106
2. Aðalsteinn Jörgensen—
Asgeir Asbjörnsson 103
3. Stefán Pálsson—
Ægir Magnússon 65
4. Dröfn Guðmundsdóttir—
Erla Sigurjónsd. 56
5. Magnús Jóhannsson—
Bjarni Jóhannsson 55
6. Kristófer Magnússon—
Björn Eysteinsson 49
7. Friðþjófur Einarss. —
Halldór Einarss. 45
8. Kristján Hauksson—
Haraldur ólason 37
9. Ingvar Ingvarsson—
Ægir Björgvinsson 34
10. Sævar Magnússon—
Ami Þorvaldsson 32
Næstkomandi laugardag
verður farið á Selfoss og spilaö
þar við heimamenn á sex borð-
um. Bæjarkeppnirnar hafa ver-
10 árviss viöburður, og höfum
við Gaflarar alltaf haft af þeim
hina mestu skemmtun (sérstak-
lega þó þegar farið er á Selfoss).
Næstkomandi mánudag held-
ur Barometerinn svo áfram.
Spilamennska hefst stundvlsa-
lega hálf átta og fer að venju
fram i Gaflinum.