Þjóðviljinn - 29.03.1980, Síða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. mars 1980
AF UPPHAFI AÐ RITDEILU
Mér finnst ailtaf voða gaman að blaðadeil-
um. Svoleiðis skrif eru einmitt í hátísku í
Þjóðviljanum um þessar mundir. Allir á bóla-
kafi í því að skrifa um Þjóðviljann í Þjóðvilj-
ann.
Nú ætla ég að fara í blaðadeilu við Böðvar
og Bríeti og ef þau ekki svara mér, þá svara
ég mér bara sjálfur í Þjóðviljanum á laugar-
daginn kemur.
Ég ætla að byrja á Bríeti, sem er bæði vin-
kona mín og kollega.Hún sagði mér nefnilega í
morgun (þriðjud. 25. mars) að hún væri að
skrifa grein, sem væri um Þjóðviljann og ætti
að koma í Þjóðviljanum. Hins vegar er ég að
fara á spítala á morgun og grein Bríetar ekki
komin, svo ég verð að svara henni án þess að
hafa séð hana eða lesið. Það kemur ekkert að
sök, þóég hafi ekki hugmynd um hvað stendur
í grein Bríetar, því að ég get haft að leiðarljósi
klassískan ritdeilustíl, eins og hann gerist
bestur.
Þó ég haf i enn ekki lesið grein Bríetar f inn
ég mig knúinn til að svara henni nokkrum orð-
um og leiðrétta hrikalegustu missagnirnar,
sem kunna að koma fram í skrifum hennar.
Ég get vissulega fallist á margt sem væntan-
lega kemur fram í greininni, en væri Bríeti
ekki nær að forðast alhæfingar, beita rök-
hyggju, sleppa staðlausum stöfum, halda sig
við afmarkað efni, án þess þó að einhæfa um
of — heldur en að geysast f ram á ritvöllinn af
því offorsi, sem við má búast þegar — og ef
— greinin birtist.
(
Auðvitað er það rétt að Þjóðviljinn mætti
vera öðruvísi en hann er, en gleymir þá Bríet
ekki þeirri augljósu staðreynd að fræðilega
(hér á ég ekki við hugmyndafræðilega) má
Þjóðviljinn líka vera einsog hann er. Ef til vill
mun Bríet haga orðum sínum öðruvísi ef hún
hefði kannað það hve oft það hefur verið
reyfað og rannsakað á ritstjórn blaðsins og í
samráði við útgáf ufélagið, f lokkinn og fólkið í
landinu, hvernig Þjóðviljinn gæti orðið, ef
bæði væri reynt að haf a hann eins og hann er,
eins og hann er ekki, eins og hann gæti orðið ef
hann væri ekki eins og hann er, já jafnvel
hvernig hann yrði ef hann væri eins og hann á
að vera að dómi þeirra sem vita hvernig hann
á að vera til að sem f lestir kaupi hann, lesi og
tileinki sér hið smellna og hnitmiðaða póli-
tíska innihald hans.
Gagnrýni á alltaf rétt á sér, en gagnrýni
sem beinist aðeins að hinu neikvæða og því
sem miður fer er niðurrifsstarfsemi, sem
þjónar engum nema erkióvinum öreiganna í
landinu, kapítalistunum.
Hvers vegna alltaf að benda á það versta?
Getur Bríet ekki bent á greinarnar mínar, í'
staðinn f yrir (ef hún þá kemur til með að gera
það) að tönnlast á vanköntum Þjóðviljans?
Slíkar spurningar hljóta að leita uppí hugann
þegar og ef grein Bríetar birtist. Sjálfur
mun ég nota banaleguna mína á Borgarspítal-
anum til að lesa þá grein, sem ég hef nú þegar
svarað án þess að hafa lesið hana, og fá
endanleg lokasvör við því hvað horf ir til heilla
fyrir blað vort, Þjóðviljann.
Ég á hinsvegar óhægara um vik að stofna
til blaðadeilu við Böðvar en Bríeti, af þeirri
einföldu ástæðu að ég hef þegar lesið grein
Böðvars um Þjóðviljann í Þjóðviljanum og
það sem verra er, ég er honum sammála í öll-
um megindráttum. Það er auðvitað rétt að það
er ekki bara afrek, heldur kraftaverk að
starfsfólki Þjóðviljans/ sem er að sögn
Böðvars „úrvalsgott einvalalið og valinn
maður í hverju rúmi", skuli takast að búa til
versta blað sem um getur. Samanburðurinn á
Morgunblaðinu og Þjóðviljanum er líka orð í
tíma töluð. Þetta er nefnilega hárrétt og
skarplega athugað hjá Böðvari að Morgun-
blaðið birtir ítarlegri erlendar fréttir fyrir út-
lendinga á Islandi en Þjóðviljinn, en það er
ekki nog með það heldur líka ítarlegri auglýs-
ingar, ftarlegri eftirmæli, ftarlegri skrítlur og
myndabrandara og það sem verst er, ítarlegri
umf jöllun um það sem okkur er þó öllum kær-
ast, sjálft kynferðislífið. Það er erfitt að geta
sér til um hvað veldur ítarleika Morgunblaðs-
ins framyfir Þjóðviljann en sumir hafa getið
sér þess til að það sé í einhverju sambandi við
þá staðreynd að Morgunblaðið er 64 síður en
Þjóðviljinn 16 og í Mogganum eru sko „dálk-
sentímetrarnir" ekki „goldnir með
lambsverði fátæka mannsins og eyri ekkj-
unnar", eins og Böðvar segir réttilega um
blaðrými Þjóðviljans.
Hér hef ég aðeins rakið það sem ég er
Böðvari sammála um. Nú kem ég að því sem
að mínum dómi er rangt í grein hans um Þjóð-
viljann í Þjóðviljanum, en það er að kyn-
ferðismálum séu gerð f ull-ítarleg skil í blaðinu
Það vekur furðu mína að nokkur sannur
sósfalisti skuli leyfa sér að varpa fram slíkri
skoðun og það í málgagni alþýðunnar á (s-
landi. Veit Böðvar ekki að kynlffið er eitt
helsta hagsmunamál fólksins í landinu og
raunar eini þátturinn í hinni eilífu kjarabar-
áttu þar sem ríkir og fátækir sitja við sama
borð. Um þetta merka hagsmunamál fólksins
í landinu hef ur Þjóðviljinn verið f urðu hljóður
uppá síðkastið og ekki verið minnst á „do-do"
síðan Olga Guðrún var með eina opnu um það,
fyrir svo sem mánuði, á unglingasíðunni, að
það væri ekkert hættulegt fyrir unglinga að
gera „hitt" við sjálfa sig.
Síðan hefur ekki verið minnst á kynlífið í
Þjóðviljanum, nema ef vera skyldi það sem
Böðvar segir um blaðamenn Þjóðviljans, að
þar sé valinn maður í hverju rúmi.
Morgunblaðið hefur hér afturámóti verið
vel á verði, fengið prófessor Jónatan Þór-
mundsson til að skrifa um vændi; skýrði frá
því á forsíðu á sunnudaginn var, að búið væri
að stofna sæðisbanka á (talíu, og mun páfinn
eiga bankabók nr. 1. Þá er skýrt f rá því í sama
tölublaði Morgunblaðsins, 70. tbl. 67. árg., að
„ kvenf ólk spjari sig betur buxnalaust" og f
sama tölublaði ítarleg úttekt á f Ijótandi hóru-
húsum í Rotterdam undir yfirskriftinni „Fast
þær sækja sjóinn Rotterdamdömurnar".
Nei Böðvar. Þjóðviljinn verður nú sem
endranær að hafa forystu og frumkvæði f
feimnismálum. Hinar vinnandi stéttir mega
ekki missa sjónar af þeim lífsgæðum sem þær
haf a öðlast til jaf ns við kapítalistana — sjálf u
kynlífinu. Þvíeinsog Karl Marx sagði: „Kyn-
lífið er ópíum öreiganna".
Hér fer vel á þvf að birta lesendabréf sem
barst til Þjóðviljans fyrir nokkru:
Þjóðviljinn mun vel og lengi lifa
lesinn verða hér í Reykjavík,
ef Bríet mín og Böðvar í hann skrifa
um bolsévisma, list og pólitík.
Flosi
Likan af Austurdeildinni. Höfundur skipulags er Geirharöur Þorsteinsson arkitekt.
Austur-
deildinni
úthlutað
Borgarráö úthlutaöi I gær löö-
um undir 50 einbýlishús I Hóla-
hverfi, þar sem kallab hefur veriö
Austurdeild. Húsin veröa I þyrp-
ingum noröan Hólabergs eins og
sjá má af meöfylgjandi mynd af
skipulaginu og nefnast göturnar
Klapparberg, Lágaberg og
Neöstaberg. úthlutun raöhúsa-
lóöa á Eiösgranda fer væntanlega
fram á þriöjudag.
Eftirtaldir lóöarhafar fengu
allir 84 stig: Klapparberg 1,
Sveinn Guömundsson, Noröur-
brún 8, 3. Gisli Magnússon, Hof-
teig 28. 5. Bryndis Steinþórsdótt-
ir, Austurbrún 4. 7 Haukur Gunn-
arsson, Laugarnesvegi 37. 9 As-
bjöm Björnsson, Suöurhólar 6.11
Guörún Siguröardóttir, Vestur-
berg 98. 13 Bjarni Þorvaldsson,
Hrisateig 32. 15 Páll Hannesson,
Hrafnhólar 4. 17 Þórir Sigur-
björnsson, Stórageröi 24. 19
Haukur L. Friöriksson, Grensás-
vegi 26. 21 Einar S. Hjartarson,
Reykjavikurveg 29. 23 Egill
Gestsson, Miöstræti 5. 25 Björn
Gústafsson, Vesturberg 122. 27
AgUst Þóröarson, Austurberg 8.
29 Ægir Jónsson, Kriuhólar 2. 31
Hallgrimur ólafsson, Stelkshólar
10. 2 Skúli Guöbrandsson, Hraun-
bæ 150. 4 Pétur Agústsson, Dúfna-
hólar 2. 6 Stefán Vagnsson,
Hraunbæ 2.8 Einar O. Einarsson,
Eyjabakka 9.10 Kristján O. Jóns-
son, Suöurhólar 8. 12 Guömundur
H. Hannesson, Þórufell 12. 14 Sig-
uröur G. Þorsteinsson, Arahólar
4. 16 Asgeir H. Eiriksson,
Krummahólar 6.
Lágaberg 1 Úlfar Þorláksson,
Mariubakka 12. 3 Július Jónsson,
Dalsel 12. 5 Haraldur Lýösson,
Fellsmúla 12. 2 Jón S. Hallgrims-
son, Bræöraborgarstig 1. 4. Sig-
uröur R. Guöjónsson, Hæöargaröi
50. 6 Eysteinn Pétursson, Eyja-
bakka 11. 8 Gunnar Gestsson,
Kleppsvegi 76.
Neöstaberg 1 öli H. Jónsson,
Grænahliö 22. 3 Rúnar Gunnars-
son, Kóngsbakka 4. 5 Finnbogi G.
Kristjánsson, Mariubakka 10. 7
Gunnar A. Ingvarsson, Bústaöa
vegi 107. 9 Erlendur Eysteinsson,
Bólstaöarhlfö 62. 11 Björn ólafs
son, Arahólar 4. 13 Óskar G. Sig-
urðsson, Holtsbúö 35, Garðabæ. 2
Inga S. Ingvadóttir, Æsufell 2. 4
Reynir H. Jóhannsson, Hraunbæ
38.6 Arni M. Björnsson, Dalaland
3. 8 Jóhann Diego Arnórsson,
Espigeröi 18. 10 Sævin Bjarnason,
Asparfell 10. 12 Baldur H. Jóns-
son, Tómasarhaga 55. 14 Gunnar
H.Magnússon, Miklubraut 76. 16.
Eirikur Briem, Hraunbæ 180. 18
Olafur Jónsson, Flúöasel 74. 20
Karl Kreidler, Suöurhólar 8. 22
Svavar Magnússon, Asparfell 12.
24Björgvin H. Kristinsson, Jóru-
fell 2.
Gatnagerðargjald er um 3,5
miljónir króna sem greiöist I
þrennu lagi á þessu ári.
— AI.
Umferdar-
vika S.V.F.L
— Munum aö ganga á móti
akandi umferö á vinstra veg-
arkanti, þar sem engar
gangstéttir eru.
— Blindir mega ekki aka
bifreiö, og þvf má ökumaöur,
sem ekki sér út úr bifreiö,
alls ekki aka af staö.
— Hafið ljósker bifreiö-
anna hrein og ljósin rétt
stillt. Takmarkiö er aö þið
sjáiö aöra og aörir sjái
ykkur.
— Dimmviöri og slæm
færö krefst aukinnar aö-
gæslu. Metiö aöstæöur hverju
sinni og akiö meö ökuljós.
— Förum yfir götur á
gangbrautum.
— Verum kurteis; kurteisi
kostar ekki peninga.
— Gatan er ekki leiksvæði.
— I góöu skapi gengur allt
betur.