Þjóðviljinn - 12.04.1980, Page 1
UOÐVIUINN
Laugardagur 12. apríl 1980, 82. tbl. 45. árg.
Verkfall nú
yfirvofandi
Yfirlýsingar atvinnurekenda
hafa hingað til veriö alleinhlftar
um aö þeir væru ekki til viðtals og
Þorskveidar í
2 miij net stöðvadar
Frétt Morgun
blaðsirts um
skattheimtu
alröng
horfir þvi til verkfalls á Suður-
eyri, sagði Sveinbjörn Jónsson
formaður Verkalýðsfélagsins
Súganda á Suöureyri i samtali við
Þjóðviljann í gær.
Bjóst hann við að stjórnarfund-
ur yrði haldinn f félaginu annað-
hvort i gærkvöldi eða dag og yröi
þar boðað til verkfalls með viku-
fyrirvara. Þó yrði reynt aö hafa
samráö við önnur sjómannafélög
á Vestfjörðum en ASV hefur ósk-
aöeftir 20. apríl sem viðmiðunar-
degi.
A Suðureyri mundi verkfallið
ná til togarans Elinar Þorbjarn-
Framhaid á bls. 13
„Stjórnarfiokkarnir og
rikisstjórnin hafa nú gert til-
lögu um nokkra breytingu á
skattstiganum sem miðar að
þvf að teygja úr honum
þannig að menn komast ekki
i efsta skattþrep fyrr en
nettótekjur eru orðnar yfir
sjö miljónir króna. Auk þess
hækkar persónuafsiáttur og
barnabætur. Ég er viss um
að þessi breyting á skattstig-
anum mun mælast vel fyrir
en þvf er ekki að leyna aö
rikissjóður tekur aukna á-
hættu með þessum breyting-
um sem gætu þýtt að skatt-
urinn skilaði einum til einum
og hálfum miijarði minna en
áætlað var,” segir Ragnar
Arnalds fjármáiaráðherra i
viðtaii á baksfðu blaösins i
dag.
1 tilefni fullyrðinga Morg-
unblaösins um aö skatt-
heimtan færi 3 miljarða
fram úr áætlun á þessu ári og
verði 46.7 miljarðar I stað
43-44 miljarða sneri Þjóð-
viljinn sér til Olafs Ragnars
Grimssonar formanns fjár-
hags- og viðskiptanefndar
efri deildar.
Olafur kvaö þetta fjarri
lagiog minnti á að við álagn-
ingu skatta nú væri verið að
framkvæma kerfisbreyt-
ingu. Viö þessa skattkerfis-
breytingu skapaðist mun
meiri óvissa um tekjuöflun
fyrir rikissjóð en verið hefur
áundanförnum árum. ÞaÖ á-
lit sérfræðinga heföi komið
fram að þessi óvissa f tekju-
skatti einstaklinga gæti
numið að minnsta kosti
tveimur miljörðum iplds eða
minusog jafnvel mun meira.
„Ef óvissan reynist rikis-
sjóði mjög i óhag getur á-
lagning tekjuskatts þvi skil-
að að minnsta kosti tveimur
miljörðum og jafnvel þrem-
ur til fjórum miljörðum
minna en nú er gert ráð
fyrir. Sú lækkun teljuskatta
sem felst i tillögum um
breyttan skattstiga hefur
það I för með sér að rflds-
sjóöur tekur mun meiri á-
hættu i álagningu tekju-
skattsins.
Þótt Þjóðhagsstofnun hafi
nú endurskoðaö tekjuáætlun-
ina og hækkaö um 1-2% felur
sú niöurstaöa ekki f sér nema
1 til 2 miljaröa króna breyt-
ingu til hækkunar. Þaö er
breyting sem er vel innan
fyrrgreindra óvissumarka.
Samanlögö niöurstaöa
þeirra upplýsinga sem fram
komu á fundi fjárhags- og
vibskiptanefnda Alþingis I
morgun er þvi sú aö rikis-
sjóöur tekur enn verulega á-
hættu og getur ef óvissan
reynist rikissjóöi i óhag skil-
að amk. einum til tveimur
miljörðum minna en gert
hefur verið ráð fyrir.
Baksiðufrétt Morgun-
blaðsins i gær er þvi alröng
og dæmi um lélegar upplýs-
ingar blaðsins f skattamál-
um”, sagöi Ölafur Ragnar
Grimsson.
— ekh
frá og með
30. april
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að stöðva þorsknetaveið-
ar frá hádegi 30. april næstkom-
andi á svæðinu frá Eystra-Horni
suður, vestur og norður um aö
Bjargtöngum. Bann þetta gildir
að svo stöddu til 21. mai næst-
komandi.
Akvörðun þessi er tekin eftir
umræður i rikisstjórn og fundi
með hagsmunasamtökum i
sjávarútvegi og sjávarútvegs-
nefndum Alþingis. Byggist
ákvöröun þessi á þeirri forsendu,
að afli á þessu svæði hefur þegar
náð þeim viðmiðunarmörkum,
sem lögð voru til grundvallar um
þorskafla á vetrarvertiðinni, en
með þeim var gert ráð fyrir svip-
uðum afla og i fyrra.
Þar sem bátaafli á Vestfjörö-
um, fyrir Norðurlandi og Austur-
landi er minni en I fyrra, hefur
ráðuneytið ákveðið að fresta
ákvörðun um stöðvun þorskneta-
veiða á þessu svæði um sinn og
sjá hvernig þróun aflabragða
verður i aprilmánuöi.
Sjá baksfðu
Skákáhugi hefur sennilega aldrei veriö meiri á tslandi en nú. Mynd þessi var tekin á skólaskákmóti
Reykjavikur ifyrradag. (Ljósm.: eik) —Sjá 3. slöu.
ÍBM kynnir tölvubúnað fyrir sjúkrahús:
Býður ekki helstu ráð-
gjöfum á þessu sviði
IBM á Islandi hefur raöstefnu
um tölvuvæöingu sjúkrahúsa 16.-
17. april n.k. Þar veröur kynntur
sá tölvubúnaöur, sem fyrirtækið
hefur á boöstólum á þessum vett-
vangi. Ráðstefna þessi eða öllu
heldur sölukynning verður haidin
I samráði viö tölvunefnd rlkis-
spitalanna, en IBM kostar hana
aö öllu leyti og býöur m.a. hingaö
tveimur Svium, sérfræðingum á
þessu sviöi töivutækni.
Athygli vekur, að meðal þeirra
sem boðið er að sitja þessa ráð-
stefnu, er ekki að finna þá aðila
sem mest hafa unnið að tölvuvæð-
ingu i heilbrigöiskerfinu hér á
landi, en hinsvegar er ýmsum ut-
an ríkisspítalanna boðið.
IBM hefur þá ágætu baktrygg-
ingu fyrir hugsanlegri gagnrýni á
þetta „ráðstefnuhald”, að tölvu-
nefnd rikisspitalanna sendi fyrir-
tækinu bréf þann 11. febrúar s.l.,
þar sem óskað var eftir kynningu
á tölvubúnaði fyrir heilbrigðis-
þjónustu. Samskonar bréf munu
Framhald á bls. 13
Verðum að skoða það sem
markaðurinn býður upp á
— Nýstofnuð tölvunefnd hefur
fengið þaö hlutverk að tölvu-
væöa alla rikisspitalana, sagöi
Daviö A. Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri rikisspltaianna
er Þjóðviljinn ræddi viö hann I
gær vegna ráöstefnu IBM I
næstu viku. — Til þess aö kanna
hvaö á boöstólum væri höföum
viö samband viöalla umboösað-
ila tölvubúnaðar, bæði vélbún-
aöar og hugbúnaöar, og óskuö-
um eftir þvi að þeir kynntu
nefndarmönnum það sem þeir
hafa upp á að bjóöa.
Daviö sagöi aö Kristján ó.
Skagfjörð hefði þegar kynnt
þeim þremur sem sæti eiga i
nefndinni nokkuð af sinum bún-
aði, og haft góö orð um þaö aö
boöið yrði upp á betri kynningu
siðar. í tölvunefnd rikisspltal-
anna eru auk Davíðs þeir Bjarni
Þjóðleifsson og Siguröur Þórð-
arson.
Siðan baust IBM til að standa
fyrir kynningu á sinum búnaði
og baö nefndina aö tilnefna 15
þátttakendur. — Við þáðum
þetta boö og tilnefndum 15
starfsmenn rikisspltalanna til
þátttöku i þessum kynningar-
fundi, sagði Davið, en sfðan
bauð fyrirtækiö ýmsum öðrum
til fundarins.
— Það er greinilegt aö þetta
hefur valdið miklum úlfaþyt hjá
ýmsum, sagði Daviö. — Þeir
bjóða dálltið undarlega til ráð-
stefnunnar. Stjórnendum heil-
brigöismála er boðið, en hins-
vegar ekki þeim ráðgjöfum.
sem mest hafa sinnt þessum
málum i heilbrigðiskerfinu, en
starfa ekki á stofnunum.
— Menn verða að skoða það
sem markaðurinn hefur upp á
að bjóða, annars erum viö ekki
þeim vanda vaxnir aö taka á-
kvarðanir I þessum efnum,
sagði Davíð. Hann sagðist vona,
aðaðrir tölvuinnflytjendur sæju
sér fært að standa fyrir svipaöri
kynningu og IBM.
Davið sagði aö ríkisstofnanir,
þ.e. sjúkrahúsin og Háskólinn,
væru að kaupa tölvur af Krist-
jáni Ó. Skagfjörð fyrir 200-300
miljónir um þessar mundir og
það væri til vitnis um að IBM
einokaði ekki tölvumarkaðinn
hér, eins og oft hefur verið hald-
ið fram. — Mér finnst það þvl
ekkert mál, þó að þessi fyrir-
tæki fái hingaö erlenda sérfræð-
inga og hafi svolltiö fyrir þvi að
kynna okkur hvað þau hafa á
boöstólum, sagði hann.
— Við höfum ekkert keypt af
IBM, en hinsvegar erum við að
kaupa núna Digital-tölvur, sem
Kristján Ó. Skagfjörö hefur um-
boð fyrir, vegna þess að reynsl-
an á hinum Noröurlöndunum
sýnir það að þær hafa verið
notadrýgri á rannsóknastofum.
--Ég treysti læknum okkar og
öðrum starfsmönnum hér til
þess að vega og meta þær upp-
lýsingar, sem erlend fyrirtæki
gefa um þau tæki sem þau
framleiða, sagði Davið A.
Gunnarsson að lokum.