Þjóðviljinn - 22.04.1980, Side 5
Þriðjudagur 22. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Stofnað í Reykjavík:
Æskulýdsfélag
sósíalista
Stofnfundur æskulýðsfélags sósialista var haldinn i Lindarbæ og má hér sjá nokkurn hluta fundar-
manna.
Siðastliðinn laugardag var
stofnað i Lindarbæ i Reykjavik
æskulýðsfélag sósialista, en fyrir-
hugað er að starfssvæði þess taki
yfir Stór-Reykjavikursvæðið. A
stofnfundinum voru félaginu sett
lög, samþykkt starfsáætlun fyrir
næsta starfsár og kjörin stjórn
fyrir félagið.
Samkvæmt lögum félagsins þá
grundvallar það starfsemi sina á
stefnuskrá Alþýðubandalagsins
frá 1974, en félagið er þó ekki i
neinum skipulagslegum tenslum
við flokkinn, þvi menn þurfa ekki
að vera félagar i Alþðubandalag-
Fræðslunefnd BSRB:
Hvernig eign-
ast fóik þak
yfur höfuðið?
Þeirri spurningu og mörgum
öðrum ætlar Sigurður E. Guð-
mundsson framkvæmdastjóri
Húsnæðismálastofnunar rikisins
að svara i erindi er hann flytur á
vegum fræðslunefndar BSRB
annað kvöld, kl. 20.30.
Sigurður mun m.a. gera grein
fyrir löggjöf um húsnæðismál.
Hann mun fjalla um félagslegar
ibúðabyggingar og stefnu rikisins
og sveitarfélaga i þeim efnum. Þá
um skyldusparnað, lánamögu-
leika og aðstöðu einstaklinga til
húsbygginga. Þá er liklegt að
málefni leigjenda beri á góma.
Erindi Sigurðar er eitt i röð
fjölmargra sem fræðslunefnd
BSRB heur staðið fyrir i vetur.
Bandalag kvenna
Reykjavík:
Auka þarf
aðstoð við
börn með
sérþarfir
A aðalfundi Bandalags kvenna I
Reykjavik voru samþykktar eft-
irfarandi ályktanir um aðstoð við
börn með sérþarfir:
1. Aðalfundurinn skorar á
Félagsmálaráð Reykjavikur-
borgar að auka aðstoð við fjöl-
skyldur barna meö sérþarfir.
2. Aðalfundurinn skorar á
Menntamálaráðuneyti að hlutast
til um það að heyrnarskert börn
-fái notið sjónvarpsefnis - með
islensku tali. Skal stefnt að þvi að
settir verði textar við islenskt
efni. Má þar nefna efni fyrir börn
eins og „Stundina okkar” o.fl.
Þetta myndi stuðla að þvi að
minnka þann aðstöðumun, sem
nú er með heyrnarlausum og
heyrandi börnum.
3. Aðalfundurinn vill hvetja
stjórnvöld til umhugsunar um til-
verurétt barna með sérþarfir og
hvetur þvi forráðamenn fjölmiðla
að endursýna þáttinn „svona
erum við”, sem sýndur var 31.
okt. 1979.
4. a) Vangefin börn: Eru i
fyrsta lagi börn, sem hafa sömu
þarfir, sama rétt og heilbrigð
börn.
b) Vangefin börn: Eru ekki sér-
hópur, sem ber að meðhöndla á
frábrugðinn hátt, sem þýðir
venjulega lakari meðferð.
Við skorum á fjárveitingayfir-
völd að veita allt það fjármagn,
sem þarf til uppbyggingar
þjónustu fyrir vangefin börn. Við
skorum á fjárveitingayfirvöld að
veita fé, svo unnt sé að fram-
fylgja lögum um aðstoð við
þroskahefta, sem tóku gildi 1. jan.
sl.. — mhg
inu til að geta gerst félagar. Inn-
tökuskilyrði er bundið þvi að ann-
að hvort séu menn i Alþýðu-
bandalaginu eða ekki i nein-
um flokkspólitiskum samtökum.
Þá var samþykkt að aldursmörk
félagsmanna skuli vera 16-30 ára
að báðum árum meðtöldum.
Hugmyndin með stofnun
félagsins er m.a. sú að hefja
skipulagt starf til að vinna gegn
áróðri hægriaflanna meðal ungs
fólks. Fyrirhugað er að nota
sumarið til að skipuleggja starf-
semi félagsins næsta vetur og á
næstunni munu 5vinnuhópar fara
af stað til að vinna að þessum
undirbúningi. Munu þessir hópar
m.a. fjalla um fræðslustarf
félagsins, útgáfumál, hagsmuna-
mál, menningarmál og utanrikis-
mál.
A stofnufundinum var kosin 7
manna stjórn fyrir félagið. For-
maður var kosinn Þorsteinn
Magnússon (17233/81333), en að
öðru leyti skiptir stjórnin þann-
ig með sér störfum að
Bragi Guðbrandsson (20799) er
varaformaður, Lúðvik Geirsson
(50458) er ritari, Svandis
Svavarsdóttir (12912) er gjald-
keri og meðstjórnendur eru
Magnús Ingvason (81647), Kristó-
fer Svavarsson (66200) og ólafur
Jónsson. Varamenn i stjórn eru
Ólafur ólafsson (16011), Stigur
Agústsson (72928) og Sölvi Ólafs-
son (28947).
Þeir sem ekki gátu mætt á
stofnfundinn en hafa áhuga á þvi
að ganga i félagið geta haft sam-
band við ofangreinda stjórnar-
menn i þeim simanúmerum sem
tilgreind eru.
Full verótrygging
_________________öruggfjárfesting_________________
Verðtrygging spariskírteina ríkissjóðs byggist nú á raunhæfustu
vísitöluviðmiðun sem völ er á — lánskjaravísitölunni.
Lánskjaravísitalan miðast að 1/3 við byggingarvísitölu og 2/3
við framfærsluvísitölu, og eru hún reiknuð út og birt
mánaðarlega.
Þannig geta eigendur spariskrteina nú fylgst með verðgildi
þeirra og vexti frá einum mánuði til annars.
Lánskjaravísitalan verðtryggir spariskírteinin að fullu.
Vandfundin er öruggari fjárfesting.
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs eru til sölu nú.
/áSSifr
ÉiiíJí
fj
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
j-
- PUTJEí*
v1?.rð'j:eygging
( -VI :V J ,;
'0AR.JGS.U