Þjóðviljinn - 01.06.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.06.1980, Blaðsíða 3
Sunnudagur 1. júnl 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Rabbaö viö þann aldna heiöursmann Gísla Guðmundsson á Súgandafirði Hvaða lesanda Þjóðvilj- ans kannast ekki við hin skemmtilegu fréttabréf Gisla Guðmundssonar frá Suðureyri við Súganda- f jörð/ sem um árabil hafa birst í blaðinu? Og þótt bréfin hans Gísla séu skemmtileg, þá er enn skemmtilegra að heim- sækja hann og heyra hann segja frá viðburðaríkri ævi, sem sjómaður um áratugaskeið/ þar af lengi sem kunnur aflaskipstjóri. Gísli er nú orðinn 79 ára/ samt er minnið óbrigöult, og það sem rekur mann í rogastans er hversu ná- kvæmlega hann man allar tölur, tímasetningar, daga og ár. — Ég hef alltaf átt einkenni- lega gott meö aö muna tölur, ég bara gleymi þeim aldrei, svaraöi Gisli þegar orö var haft á þessu. Komst ekki til baka Nei, ég er ekki Súgfiröingur, heldur Grundfiröingur, skal ég segja þér. Ég er fæddur 1901 og kom fyrst til Suöureyrar 22ja ára gamall. Ég haföi þá ráöiö mig á handfæraveiöar á bát héöan, og þaö var allt i lagi, gekk ágætlega. A þessum árum var ekki greiöfær leiö frá Suöureyri, flugiö ekki byrjaö og feröir strjálar. Ég segi alltaf aö ég hafi ekki komist burtu, því hér hef ég átt heima siöan. Konan segir nú annaö. Nú, en þar sem ég „komst” ekki burtu, þá réö ég mig á bát um haustiö, en eftir 6 daga á sjúnum veiktist ég og lá 16 vikur á sjúkra- húsinu á Isafiröi. Vilmundur Jónsson, slöar landlæknir, var þá á Isafiröi og hann skar upp.ámér höfuöiö, þetta var höfuömein, sem hrjáöi mig. — Hvenær byrjaöir þú svo skip- stjðrn? — Ariö 1927 á 11 tonna hand- færabát, en þá var alltaf róiö meö handfæri héöan yfir sumariö. A vetrum fórum viö suöur á land á vertiö. — Var þetta ekki leiöindalif aö vera aö heiman frá sér meira en hálft áriö á vertiö fyrir sunnan; kom ekki til tals hjá ykkur aö flytja suöur? — Mér likaöi all-vel hér á Suö- ureyri, en samt vildi ég flytja, en konan vildi þaö ekki; nú aftur á móti vill hún flytja en ekki ég. Sigldur niður — Svo eignaöistu bát, ekki rétt? — Já, ég keypti Freyju 1S 64 meö öörum og var meö hana þar til 1939, en áriö 1930 haföi ég tekiö skipstjórapróf á Isafiröi, sem veitti mér réttindi á allt aö 60 tonna bát. Ég var svo meö ýmsa báta, bæöi á vertlö og á sumar- sildveiöum, en ég hætti á sjó 1955, eftir mikiö slys sem viö lentum I. Ég var þá meö Súgfiröing IS sem var alveg nýr 40 tonna bátur. Viö vorum 5 á og vorum aö draga lln- una 36 mllur N-V af vestri frá Sauöanesi og áttum eftir aö draga 40 lóöir. Þaö var svarta þoka en ekki mikill sjór. Allt I einu sáum viö breskan togara koma út úr þokunni og stefna á okkur. Hann rásaöi mikiö og viö vorum aö velta þvl fyrir okkur hvort hann ætlaöi fyrir framan eöa aftan viö okkur, en svo allt I einu stefndi hann beint á okkur á fullri ferö og þrátt fyrir tilraun til aö vlkja okkur undan tókst þaö ekki. Hann keyröi innl bátinn miöjan, alveg innaö vél. Súgfiröingur sökk á 5 til 7 mínútum eftir aö togarinn haföi bakkaö. Viö lentum allir I sjón- um; mér og öörum var bjargaö; tveir félagar mínir drukknuöu. Hann hét Kingstone Perol, þessi togari og skipstjórinn á honum bar þaö fyrir sjórétti á tsafiröi aö hann heföi veriö meö sjálfstýr- ingu á og aö enginn maöur heföi veriö I brúnni; þeir heföu veriö búnir að setja strikið heim til Englands. Sjálfstýringin er skýr- ingin á þvl hvers vegna hann rás- aöisvona mikiö. Eftir þetta hætti ég á sjó. Þetta var ógurlegt áfall, sem ég jafna mig aldrei á. Eftir þetta vann ég viö smlðar og slöan tók ég viö vigtinni hérna, þar til 1975 aö ég hætti vegna heilsu- brests. Maður veit aldrei hve langt er á milli lifsog dauða — Hefuröu oft lent i lifsháska á sjó fyrir utan þetta Gisli? — Já, nokkrum sinnum. Ég hygg aö þaö hafi staðiö tæpt 9. mal 1926 þegar ég lenti i strandi viö Hraun I Grindavlk. Ég var þá háseti á Hákon og viö vorum á heimleið, þar sem lokadagur var 11. maí. 8. mai var austanrok og úfinn sjór, en aö morgni 9. mai var skolliö á N-A fárviöri og kl. 10.00 um morguninn strönduöum viö. Okkur tókst öllum 22 aö kom- ast I jullu og á henni hröktumst viö til kl. 19.00 um kvöldiö aö okkur var bjargaö á land I Blá- siðubás nærri Reykjanesvita. Rétt á eftir skall yfir ólag og möl- braut julluna; þaö heföi ekki þurft að spyrja aö leikslokum hefðum viö veriö enn um borö. Maöur veit aldrei hve langt er á milli llfs og Þeir gátu ekki þagað nema í sex daga dauöa. Svona til gamans má geta þess aöáriö áöur strandaöi kútter Sigrlöur og áhöfnin bjargaöist l sömu jullunni og viö björguöumst á I þetta skiptiö. — Ég hef nokkrum sinnum ver- iö hætt kominn fyrir utan þetta. Þegar ég var 12 ára datt ég I mó- gröf og frændi minn bjargaöi mér á siöustu stundu. Eitt sinn hvolfdi undan okkur pramma þegar viö vorum á leiö út I bát hér á leg- unni, en okkur var bjargaö öllum þrem. Nú, og maöur hefur lent milli skips og bryggju og svona eitt og annaö hent mann á langri ævi. Þegar við sóttum eplin — Versta veöur sem ég man eftir á sjó var 1947, þegar viö vor- um á leið frá Reykjavik til Suöur- eyrar rétt fyrir jól, meö epli, sem viö vorum beönir um aö sækja suöur. Viö vorum á 19 tonna bát og lentum 1N-A fárviöri. Viö lögö- um af staö frá Reykjavlk á Þor- láksmessu I ágætu veöri. Aö visu var spáö versnandi veöri, en viö létum þaö ekkert á okkur fá og lögöum af staö, enda mikiö I húfi þar sem jólaeplin voru. Viö kom- um ekki til Suöureyrar fyrr en kl. 23.00 á aðfangadagskvöld og I ægilegra veöri hef ég ekki veriö á sjó. Ég stóö viö stýriö allan tlm- ann þvl meö mér voru aðeins tveir ungir piltar, báöir óreyndir. Ég man alltaf þegar viö vorum staddir I Látraröstinni, þá heyröi ég smelli I vélinni og hélt aö hún væri aö gefa sigi ef svo heföi ver- iö, væri ég ekki hér. Þetta var þá bara brúsi sem slóst viö kúpplíng- una. Viö komum viö á Flateyri og lönduöum þar nokkrum kössum af eplum. Þeir báöu okkur aö vera um kyrrt, þaö væri alls ófært til Suöureyrar. Ég ansaöi þvl ekki og hélt áfram og komst heim. — Daginn eftir á jóladag fór ég I kirkju og þá komu allir til mln og tóku I höndina á mér án þess að segja neitt. Ég vissi aldrei hvort þaö var vegna þess að viö slupp- um lifandi úr þessu eöa hvort þaö var aö þakka mér fyrir aö koma meö jólaeplin. Þeir gátu ekki þagað — Segðu mér söguna af þvi, þeg’- ar þú fannst steinbltsmiöin hér fyrir utan. — Já, þaö var nú meira. Þaö var áriö 1952 að vertlö hér haföi veriö meö eindæmum léleg. Ég get sagt þér sem dæmi aö I mars- mánuöi fengum viö ekki nema 21 tonn af steinbit. Þaö var alveg sama hvar lagt var, allt stein- dautt. Hluturinn hjá okkur fyrir mars var 491 kr. Svo var þaö einu sinni aö ég lagöi mig I róöri. Og mig dreymdi draum, sem ég réö á þann veg aö veriö væri aö gefa mér vlsbendingu um aö leggja llnuna á ákveönum staö. Þegar ég vaknaöi gaf ég skipun um aö sigla þangaö, en þar haföi ekkert veriö lagt. Jæja, lagsmaöur, þaö er eins og viö manninn mælt, steinbltur á hverjum krók, þegar fariö var aö draga. Hinir voru komnir heim og búnir að landa einhverri óveru þegar viö komum hlaönir heim. Þeir horföu mikiö á okkur, vöpp- uöu I kringum okkur, en enginn sagöi orö. Þegar viö svo fórum út aítur sá ég engan bát og hyggst nú halda aftur á sömu miö. Þegar viö komum hér fyrir nesiö blöur einn þar og eltir okkur á miöin. Hann fyllti sig eins og viö og þegar I land var komiö sagöi hann öllum hinum frá. Ég haföi nú samband viö karlana og lagöi til aö viö héldum kjafti yfir þessu I talstöövarnar, svo viö fengjum ekki allan Vestfjaröaflotann yfir okkur. Þeir voru sammála þvl. Þetta gekk I 6 daga, þá sprakk einn af monti og kjaftaöi frá öllu saman. Næsta dag var allur flot- inn kominn á staöinn og eftir 2 daga var allt uppuriö. Þá bara hætti ég að drekka — Já. mér þótti sopinn helvíti góöur, og drakk of mikiö, en samt aldrei til skaöa. Ég stundaöi alla ævi mlna vinnu; vlniö taföi mig aldrei frá henni. Ég drakk mig fullan I fyrsta skipti þegar ég var 12ára. Þá sátu karlar undir vegg og voru aö drekka og hreppstjór- inn var þar á meðal og hann rétti alltaf flöskuna aftur fyrir sig til mln og ég saup á. Auövitað varö ég dauöadrukkinn og fárveikur, fór heim og kastaöi upp. Amma mln blessunin kom aö mér og sá hvers kyns var og sagöi: — Guö blessi þig barniö mitt. Þessi bæn hennar ömmu minnar kom oft uppi huga mér slöar á fyllirli. Og óg skal viöurkenna þaö aö ég baö oft guö um aö hjálpa mér til þess að hætta aö drekka. Svo var þaö 1963,8. janúar aö ég var á fyllirli I Reykjavlk. Ég fór slöan heim þangaö sem ég gisti, sofnaöi og vaknaöi ekki fyrr en um kvöld- mat og var þá svo aumur aö ég haföi ekki matarlyst. Um nóttina, þann 9. janúar 1963 dreymdi mig draum. Ég þóttist hitta Jesú Krist vestur I Grundarfiröi á æsku- slóðum mlnum, þar sem hann lá særöur eftir aö hafa veriö grýttur. Ég tók hann upp og ætlaöi meö hann um borö I Fréyju 1S og til læknis I Stykkishólmi. Þá var Freyja farin frá bryggjunni. Þar sá ég þá allt I einu uppbúiö rúm og lagöi hann þar og fannst mér þá sem sonardóttir min lægi I rúm- inu. Þegar ég vaknaöi réö ég drauminn á þann veg, aö þetta væri svar viö bænum mínum og ég ákvaö aö steinhætta aö smakka vln. Slöan hefur ekki komiö dropi innfyrir minar varir, og veröur ekki úr þessu. — S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.