Þjóðviljinn - 01.06.1980, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. júni 1980.
Rætt við Hólmfríði Birnu
Hildisdóttur, sjómanns-
konu í Grindavík
„Nei, ég held ég
vildi ekki vera gift
manni sem ynni
í bílskúrnum”
Gunnar Gunnlaugsson eiginmaður HóimfrlOar viO vinnu sina á sjónum.
„Við giftum okkar þegar
ég var 19 ára gömul. Þá
var Gunnar í Stýrimanna-
skólanum og við bjuggum í
Reykjavík. Ég átti tvö börn
á meðan hann var enn í
skólanum og fjárhagurinn
var mjög erfiður. Við
reyndum að fá lán í Út-
vegsbankanum en fengum
ekki eyri og um námslán
var ekki að ræða. Ef það
hefði ekki verið síldin á
sumrin, veitég ekki hvern-
ig þetta hefði bjargast."
Hildur Maria og HólmfriOur meO litla soninn.
Þaö er sjómannskona suöur I
Grindavik, sem býöur okkur upp
á kaffi og segir okkur af lifi sinu.
Hún heitir Hólmfríöur Birna
Hildisdóttir, á fjögur börn og
mann á sjó.
„Við vorum heppin aö íúa i
ókeypis húsnæöi á þessum tima
og aö sildin var ennþá i sjðnum.
Eftir aö hann lauk náminu fór
hann strax á bát sem stýrimaöur
og nokkru siöar fengum viö ibúö i
Framkvæmdanefndarblokk i
Breiðholti.”
i Breiðholti
„Hvernig var aö vera sjó-
mannskona i Breiöholti?”
,,Ég kunni að mörgu leyti vel
viö mig á meðan ég var þarna.
Þaö voru mikil viöbrigði aö koma
úr lélegu húsnæöi i nýja ibúö. Ég
get ekki sagt, aö mér hafi fundist
ég beinlinis einangruö, þótt ég
hafi fundiö mikinn mun á aö flytja
til Grindavikur, og nú get ég ekki
hugsaö mér aö flytja aftur til
Reykjavikur. Ég dreif mig i
kvöldskóla og tók gagnfræðapróf i
Laugalækjarskólanum þegar
hann tók upp kvölddeildir. Ég
haföi hætt I skóla strax eftir
skyldunám og mér fannst nauð-
synlegt aö ljúka þessu prófi upp á
framtiöina.”
„Og hvenær flytjiö þiö svo til
Grindavikur?”
„Viö fluttum hingaö 1973. Við
leigöum fyrst húsnæöi, en byrjuö-
„Maður lærir
ad bjarga
sér sjálfur”
um fljótlega aö byggja húsiö sem
viö búum núna I. Gunnar var
fyrst á útilegubátum og var i
burtu lengri tima I einu, en núna
er hann á dagróörabát og þar af
leiðandi mun meira heima.”
ekki svo þröngur aö frelsiö sé
ekkert. En ég held aö hjónabönd
sjómanna séu oft talsvert ööru
visi en landvinnumanna vegna
þess aö hjónin hafa hreinlega ekki
tima til aö veröa leiö hvort á ööru.
Fólk þarf ákveöiö frelsi og sjó-
mannskonur hafa þaö. Maöur
veröur sjálfstæöur og flestar sjó-
mannskonur læra aö bjarga sér.
Ég þarf aö taka allar ákvaröanir
á meöan maöurinn er á sjó.
Mörgum konum finnst þetta erf-
itt, en þaö er lika kostur aö þegar
maðurinn er heima, þá er hann
heima, — þaö er aö segja hann
er i frii, en ekki eilifri aukavinnu
eöa stússi út af sinni daglegu
vinnu eins og margir sem vinna
daglaunavinnu I landi.”
gift manni sem ynni frá 9-5 ?”
„Ég held varla. Ég er orðin vön
þvi aö eiga mann á sjónumog mér
fellur það ágætlega. Núna I vor
hætti Gunnar að fara I langa
róöra. Hann er nú á bát sem kem-
ur heim á kvöldin og ég finn strax
fyrir breytingunni. Þetta hefur
vissulega mikla kosti, einkum
fyrir börnin, en nú þarf maður
lika aö bera miklu meira undir
hann og getur ekki lengur stjórn-
aö einn,” og Hólmfrlöur hlær viö.
„En ég vildi ekki eiga mann sem
ynni heimaviö allan daginn, t.d. I
Að búa i Grindavík
„Og hvernig er svo að búa I
Grindavik?”
„Mér finnst alveg prýöilegt aö
búa hér og gæti ekki hugsaö mér
aö búa annars staöar. Hér er
mjög mikiö af sjömannafjöl-
skyldum og samheldnin er mikil.
Hér tekur maöur miklu meiri þátt
I starfi mannsins og þaö er mikill
samgangur á milli kvennanna
sem eiga menn á sama bát. Þó aö
þetta hafi verið mikil vinna á
meöan viö vorum aö koma húsinu
upp, hefur maöur alltaf átt vini
hér allt i kring sem hefur veriö
hægt aö leita til. Samstaöan á
miíli fjölskyldnanna er miklu
meiri en hún var I Reykjavik.”
„Er erfitt aö vera sjómanns-
kona?”
„Þaö er þaö vissulega að ýmsu
leyti, en þaö hefur lika marga
kosti. Auðvitað skiptir afkoman
mikiu máli, en hún veröur aldrei
góö nema mikiö sé unniö. Sjálf er
ég alin upp viö þetta, pabbi var
sjómaöur og ég þekki þvi lif sjó-
manna vel. Kostirnir eru óneitan-
lega margir, ef fjárhagurinn er
Að eiga mann á sjó
„Gætir þú hugsaö þér aö
vera
f,IVIikil sam-
stada meðal
sjómanns-
kvenna hér
í Grindavík”
Ég fór einn
tur í Norður-
sjoinn
Sunnudagur 1. júni 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
bilskúrnum. Þaö held ég að væri
allt of mikiö álag á hjónabandiö.”
„En börnin,hvernig kunna þau
þvi að hafa pabba á sjónum?”
„Þau hafa auðvitað saknaö
hans og þaö er alltaf hátiö þegar
pabbi er i landi. Hér fylgjast
krakkar mikiö meö sjómönnun-
um. Þau hafa vanist þvi aö leita
til min meö flesta hluti og treysta
á mig, en þau eru mjög glöö yfir
aö hann skuli ekki lengur vera
burtu nema yfir daginn.”
Hildur Maria 7 ára sem hefur
hlustaö spennt á samtaliö, bland-
ar sér nú i máliö. Hún segist einu
sinni hafa farið á sjó meö pabba.
„Ég var ekkert sjóveik, en ég
vildi ekki vera sjómaður. Ég ætla
aö vinna i búö.”
Viö spyrjum Hólmfriöi hvort
hún gæti hugsaö sér aö vera sjó-
maður.
„Nei, það held ég ekki, en ég
hef hins vegar unniö oft viö fisk i
landi og fór reyndar einu sinni
einn túr á Noröursjó.
Þaö var mjög gaman og ég var
sjóhraust. Ég hef unnið viö
sildarsöltun a haustin og hér úti I
bflskúr hef ég unnið viö aö skera
net. Þaö er mjög eftirsótt vinna
hjá konunum hér, en talsvert erf-
ið. Netin eru keyrö hingaö i bil-
skúrinn þegar þau hafa veriö
dregin úr sjó og svo sker maöur
þau af köölunum. Þetta er vel
borgað ef maöur er duglegur.”
Félagslíf og vinna
„Hvað gera sjómannskonur hér
I fristundunum þegar mennirnir
eru á sjó?”
„Þaö er talsvert félagslif hér,
kvöldnámskeið og ýmislegt. Sjálf
hef ég unnið meö leikfélaginu hér
sem hvislari og mér hefur fundist
það mjög gaman. Þaö er bara
verst hvaö þaö gengur erfiölega
aö fá karlmenn i svona störf
vegna hinnar miklu vinnu.”
„Er „Fiskur undir steini” hér i
Grindavik?”
„Ég er hrædd um aö þaö hafi
ýmislegt veriö til i þvi sem fram
kom I þessari umdeildu kvik-
mynd, þótt margt hafi lagast. Til
dæmis heyri ég aldrei i kanaút-
varpinu hér. En menningarlifiö
mætti óneitanlega vera
blómlegra. Auðvitað sækir maöur
mikiö til Reykjavikur en þaö er
slæmt að þurfa aömiöaallt félags-
og menningarlif viö sjóinn.”
„Hvernig fara sjómannskonur
aö meö börnin þegar þær stunda
vinnu eöa félagslif?”
„Margar skiptast á viö aö gæta
barnanna og það er miklu auö-
veldara aö vera hér meö börn en
t.d. i Reykjavik. Vinnan er lika
oftast I skorpum og svo koma góð
hlé á milli.”
„Helduröu aö manninn þinn
langi til aö vinna i landi?”
„Nei, hann reyndi þaö einu
sinni. Hann fór aö vinna I steypu-
stöð og honum leiddist þaö óskap-
lega. Hann getur ekki hugsaö sér
aö vinna undir stimpilklukku.
Þaö er viss spenna og áhætta sem
fylgir þessu starfi og þótt þaö sé
erfitt, þá fylgja þvi ýmsir kostir
sem ekki fylgja öörum störfum.
Þetta fer svo mikiö eftir einstak-
lingum og sjómennska á alls ekki
viö alla.”
„Og þiö ætliö aö búa áfram i
Grindavlk?”
„Já, áreiöanlega. Hér hefur
maöur fest rætur og eignast vini.
Sem dæmi um samstööuna hér
hjá sjómannskonunum get ég
nefnt aö i vor rétt áöur en ég átti
þennan,” segir Hólmfriöur og
sýnir okkur nýfæddan son sinn,
„var verið aö ferma hjá mér aöra
eldri stelpuna. Ég var alveg
komin á steypirinn og þá komu
konurnar hér I kring og þær bók-
staflega héldu fyrir mig ferm
ingarveisluna.”
ÞS
„Nú kemur
hann heim á
kvöldin og ég
stjórna ekki
lengur ein”
Rætt við Einar Guðnason
skipstjóra á Sigurvon ÍS
Suöureyri viö Súgandafjörö
Um leið og
steinbíturinn
kemur hverfur
annar fiskur
Nú er stund milli stríða
hjá sjómönnum á Vest-
fjörðum# vetrarvertið ný
lokið og sumarvertíðin
ekki hafin. Sjómenn eru
því gjarnan heima við og
dunda við sitt hvað sem
ekki vinnst tími til að sinna
meðan vertíð stendur yfir.
Þannig var með Einar
Guðnason skipstjóra á Sig-
urvon IS frá Suðureyri,
hann var að ditta að bíl sín-
um þegar blaðamann
Þjóðviljans bar að garði
hjá honum í vikunni sem
leið. Maður spyr bónda um
tíðarfar en sjómann um
aflabrögð.
Betri beita
— Viö fengum rúm 500 tonn á
vertiöinni i vetur, sem er nú ekki
nógu gott, svona I meöallagi.
Gæftir voru slæmar og mikiö um
landlegur, sagöi Einar.
tsfiröingar segja liöna vertiö
eina þá bestusem þeir muná eftir,
nú sækiö þiö sömu miö ekki satt?
— Jú, viö gerum þaö, en mun-
urinn liggur I þvi aö þeir hafa haft
miklu betri beit á Hnuna en viö.
Þeir beittu smokkfisk sem veidd-
ur var i Djúpinu, en viö vorum
meö útlendan smokkfisk, sem
ekkert veiöist á. Þetta geröi
gæfumuninn.
Þorskveiðibann
snertir okkur lítið
Hvernig kemur þorskveiöi-
banniö viö ykkur linusjómenn á
Vestfjöröum?
— Þaö snertir okkur afar litiö. 1
vetur vorum viö á steinbitsveiö-
um þegar þorskveiöibanniö var
sett á og I sumar veröum viö á
grálúöuveiöum meöan þaö stend-
ur yfir. Aö visu snertir þaö okkur
þá, vegna þess aö veröiö sem viö
fáum fvrir grálúöuna er svo litiö.
Þaö er ekki helmingur af þvi sem
fæst fyrir þorskinn.
Eruö þiö eingöngu viö steinblts-
veiöar seinnipart vetrarvertiöar?
— Já, vegna þess aO eftir aö
steinbiturinn er genginn á miöin,
sem er vanalega svona i febrúar,
hverfur allur annar fiskur af miö-
unum. Og steinbiturinn veiöist
vanalega fram Iapril, þá fer hann
aftur. Nú hin siöari ár hefur stein-
bitsaflinn dregist verulega saman
frá þvi sem var hér áöur fyrr.
Friður
síðan Bretinn fór
Finnst þér fiskur hafa aukist á
miöunum hér fyrir vestan eftir aö
Iandhelgin var færð út og Bretinn
hvarf af miöunum?
— Nei, andskotakorniö, ég held
ekki, enda hefur togurum ekkert
fækkaö hér, þar sem allur islenski
togaraflotinn er hér á veiöum fyr-
ir utan. Aftur á móti er meiri friö-
ur á miöunum siöan Bretinn fór
og veiöafæratjón hefur minnkaö
til muna, enda gott samkomulag
milli línubáta og Islensku togar-
anna. Meöan Bretinn var hér aö
veiöum, var mikiö um veiöar-
færatjón hjá okkur. Ég held aö
ástæöan fyrir þvi hve oft bresku
togararnir skemmdu linuna fyrir
okkur, hafi veriö sú, aö þeir vissu
ekkert um linuveiðar, kunnu þær
hreinlega ekki. lslensku togara-
skipstjórarnir þekkja þær aftur á
móti og þaö heyrir til undantekn-
inga aö þeir skemmi linu. En
varöandi þaö hvort meiri fiskur
hafi komiö á miöin eftir aö Bret-
inn fór þá hygg ég þaö ekki vera,
vegna þess aö einn Islenskur
togari afkastar álika miklu viö
veiöar hér og tveir breskir geröu
vegna þess hve löng siglingin var
hjá bresku togurunum af og á
miðin. Ég tel aö þessi góöa veiöi
isfiröinganna I vetur stafi ein-
göngu af þvi aö þeir voru meö svo
góöa beitu. Þegar þeir notuöu
þessa útlendu beitu eins og viö
geröum, þá veiddu þeir ekkert
betur en viö, þannig aö ég held aö
aukin fiskigengd sé ekki ástæöan
fyrir þvi hve vel vertíðin gekk hjá
þeim
Dýrt að veiða steinbít
Hvernig gengur ykkur aö
manna llnubáta ykkar hér á Suö-
ureyri?
— Þaö gengur nú hálf brösu-
lega og mikiö um aökomumenn á
bátum hér. Þaö eru geröir út 3
stórir linubátar, tveir minni og
einn skuttogari frá Suöureyri. Og
bæöi á bátunum og þá ekki siöur i
fiskvinnslustöövunum, er mikiö
af aökomufólki. Þaö liggur ekki
viö aö heimamenn anni þessu,
þegar topparnir koma i veiöina og
þvi veröum viö aö fá fólk aö.
Hvaö finnst þér Einar um
tiliögur fiskifræöinganna i þorsk-
veiöunum?
— Fyrst viö erum meö
Hafrannsóknarstofnunina og
fiskifræöingana, þá tel ég aö viö
veröum aö fara eftir þvi sem þeir
segja i sambandi viö veiöarnar.
Annaö teldi ég vera rangt. Aftur á
móti hef ég ýmislegt aö athuga
viö framkvæmdina á verndun
þorskstofnsins. Ég tel að meö þvi
veröi sem viö fáum greitt fyrir
steinbitinn, se beinlinis verið aö
hrekja okkur á þorskveiöar.
Veröiö á steinbitnum hefur hlut-
fallslega iækkaö miöaö viö þorsk-
verö. Og þaö getur vel farið svo
aö við neyöumst til aö fara yfir á
net vegna þessa. Mér finnst aö
þaö veröi aö jafna veröiö meira.
Þaö er til sjóöur sem jafnar út
verö á karfa og ufsa fyrir
togarana I þorskveiöibönnum,
en viö sem erum á steinbltsveiö-
um fáum ekkert úr þessum sjóöi.
Svo ég tali nú ekki um hvaö stein-
bitsveiöar á linu eru miklu dýrari
en aörar veiðar, vegna þess aö
steinbiturinn fer alltaf meö krók-
inn, þaö næst aldrei öngull útúr
steinbit.
Verðhrun á grálúðu
Og nú fariö þiö á grálúðuveiðar
I sumar þegar þorskveiöibanniö
skellur á?
— Já, það er ekki um annaö aö
ræöa, þótt þetta sé varla gerandi
vegna þess hve litiö viö fáum
fyrir hana. Gagnvart okkur sjó-
mönnum hefur oröið veröhrun á
grálúöunni frá þvi sem var hér i
eina tiö. Þaö eru ekkert mörg ár
siðan aö grálúöa var i hærra veröi
en þorskurinn, en nú segja þeir að
ekkert verö fáist fyrir hana -
erlendis og viö fáum ekki nema 94
kr. fyrir kg af henni, en á þriöja
hundraö krónur fyrir kflóiö af
þorski. Hér er þvi ekki um neina
smámuni fyrir okkur aö ræöa.
Hinsvegar er þetta frekar stuttur
timi sem viö erum á grálúöu-
veiöum, viö byrjum um miöjan
júni og erum viö þetta út júli, þá
kemur smá stopp og siðan hefst
haustvertiö. 1 fyrra var haust-
vertiöin ein sú besta sem menn
muna eftir hér fyrir vestan og nú
er bara aö vona aö komandi
haustverllö veröi ekki lakari, þaö
myndi bæta manni upp basliö á
grálúöunni. ..