Þjóðviljinn - 27.06.1980, Page 1
«SfiÍfl
UJOÐVIUINN
Föstudagur 27. júní 1980, 144. tbl. 45. árg.
r
Eirnr Sveinsson framkvœmdastjóri BUR:
Nóg af ódýru frysti-
rými í Bandaríkjunum
„Það liggur alveg
ljóst fyrir að það er nóg
framboð á frystirými í
Bandarikjunum i dag,
og það er mjög hagstætt
leiguverð fyrir þessar
geymslur miðað við það
sem þekkist hér heima”,
sagði Einar Sveinsson
framkvæmdastjóri Bæj-
arútgerðar Reykjavikur
í samtali við Þjóðviljann
i gær.
„Vandamálib núna er ekki
geymsluplássið, heldur það að
koma fiskinum i þær geymslur
sem standa til boða. Við þurfum
að þrauka með það sem við höf-
um hérheimanæstu vikur, en sið-
an ætti að vera hægt að afskipa og
/ _ /
1
480 krónur
Rikisstjdrnin hefur heimilað
hækkun bensins I um 480 krónur
literinnoghækkun gasoliu i 196,40
krdnur literinn. Ekki lá ljóst fyrir
I gær hvort bensin myndi hækka i
480 krdnur literinn eða 481 krónu.
Fyrir hækkunina var bensinlit-
erinn 430 krdnur og gasoliulit-
erinn 155,20 krónur. Hækkun þessi
stafar fyrst og fremst af gengis-
lækkun Islensku krónunnar.
—þm
Enn hækkanir
flytja i geymslur ytra”,sagði Ein-
ar ennfremur.
Þorsteinn Gislason fram-
kvæmdastjóri Coldwater Seafood
I Bandarikjunum vinnur nú að
frekari athugun þessara mála
fyrir Bæjarútgerðina að sögn
Einars, en fulltrúar i sendinefnd
SH, sem fór utan til að kanna
markaðsmál fyrr i mánuðinum,
könnuðu I leiðinni möguleika með
leigu á frystirými þar ytra.
Eins og fram kom i Þjóðviljan-
um I gær, ákvað útgerðarráö
BOR á fundisinum i fyrradag, að
stöðva ekki rekstur frystihússins,
heldur leita nýrra markaða fyrir
fiskafurðir sinar I Evrópu, auk
þess sem fundið yrði geymslu-
pláss i Bandarikjunum fyrir þær
afurðir sem eiga að fara þangað á
markað. —lg.
Forseti tslands hr. Kristján Eldjárn tendrar eld tþróttahátiðar tSt við
Tjörnina i gær. Við hlið hans stendur GIsli Halldórsson foreti tSt. Sjá
tþróttasiðu. — Mynd —gel.
Fjöldauppsagnir eystra
og í Vestmannaeyjum
,,t>£ir sögðu mér það
tveir i dag að fólkið
myndi fá uppsagnirnar í
launaumslögunum á
morgun. Þetta er stór
hluti starfsfólks frysti-
húsanna á Norðfirði,
Seyðisfirði og Eskifirði
og er fólkinu sagt upp
með löglegum fyrir-
vara.”
Þetta sagði Sigfinnur Karlsson
formaður Alþýöusambands
Austurlands, þegar Þjóöviljinn
spuröi hann I gær hvort sú frétt
ætti við rök að styöjast aö fyrir-
hugaðar væru uppsagnir i
miklum mæli i frystihúsunum á
Austurlandi.
Sigfinnur sagðist ekki hafa
fréttir frá fyrstu hendi af Seyðis-
firði, hins vegar hefði Ölafur
Gunnarsson forstjóri Sildar-
vinnslunnar á Noröfiröi staðfest
þetta og eins Aðalsteinn Jónsson
framkvæmdastjóri Hraöfrysti-
húss Eskifjaröar.
Hið sama er að gerast i Vest-
mannaeyjum. Þar var verkalýðs-
félaginu tilkynnt á þjóðhátiðar-
daginn að um mánaðamótin júli
ágúst yrði frystihúsinu þar lokað.
Jón Kjartansson formaður
Verkalýðsfél. Vestmannaeyja
sagði I samtali við Þjóöviljann i
gærkvöld aö sér heföi verið sagt
aö fólkinu myndu berast upp-
sagnirnar i launaumslögunum i
dag.
Astæðan fyrir uppsögnum
þessum I Eyjum og á Austurlandi
eru sagöar vera mikil birgöa-
söfnun I landinu og slæmur
rekstrargrundvöllur.
Bæði Sigfinnur og Jón sögðu að
farið myndi að lögum varðandi
uppsagnir þessar en uppsagnar-
frestur er mislangur og fer eftir
starfsaldri. Þeim sem unnið hafa
skemur en eitt ár er sagt upp meö
viku fyrirvara, mánaðarfyrirvari
er hjá þeim sem unnið hafa i eitt
ár og þeir sem unniö hafa i 5 ár
eöa lengur fá þriggja mánaða
uppsagnarfrest.
—hs
Sumarfrí tekín 20. júlí
Langflest frystihúsin á Vest-
fjöröum hafa tilkynnt fastráðnu
starfsfólki sinu að það verði að
taka sumarfri sin frá og með 20.
júli n.k., að þvi er Pétur Sigurðs-
son forseti ASV sagði i samtali við
Þjóöviljann I gær.
Pétursagði að ákvöröun um að
stööva frystihúsin kæmi verst viö
sumarfólk sem hefði ætlaö að
heyja sér vetrarforöa i sumar en
við fastráðna fólkiö að þvi leyti að
ekki væri um sjálfsákvörðunar-
rétt þess að ræöa hvenær það færi
I sumarfri. Þá veröur að sjálf-
sögðu aðeins um dagvinnukaup
að ræða á meöan,en engan bónus.
—GFr
Rikisstjórnin staðfesti á fundi i
gær ákvörðun verölagsráðs um
hækkun á unnum kjötvörum, um
12—13%, ysu og þorski um 12% og
taxta leigubila um 12%. Kemur
hækkun kjötvara og soðningar-
innar I framhaldi af nýlegri
hækkun landbúnaðarvara og
hækkun fiskverðs.
—vh
Féll af 3. hæð
Islensk stúlka 19 ára gömul féll
ofan af 3. hæð á hóteli einu á Ibisa
á Spáni. 1 fyrstu var taliö að hún
heföi slasast mjög alvarlega, en
siðar kom I ljós aö hún hafði
mjaðmagrindarbrotnað og brotn-
aö á báðum handleggjum. Hún er
nú á batavegi.
Nefnd ASÍ á
fund ríkís-
stjórnarinnar
Aðalsamninganefnd ASl kom
saman til fundar i gær og var þar
samþykkt að senda nefnd á fund
rikisstjórnarinnar til aö kynna
henni stööu mála eins og þau
horfa viö verkalýðsfélögunum.
Þá var og samþykkt itarleg
ályktim um gang mála i
viðræöunum siðustu daga og
vinnubrögð VSI fordæmd.
Sjá 3. slöu.
Fólk flykktist I bliðviðrinu I gær á útifund Alberts Guðmundssonar á Lækjartorgi. — Mynd: —gel