Þjóðviljinn - 08.07.1980, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 8, jýjl mo,
g íþróttir
Oddur SigurOsson hefur nd hlaupið sig inni ólympiuliö Is-
íslandsmótið 2. deild
KA rótburstaði Austra
með í baráttunni
Víkingar
Vfkingar ætla ekki aö gefa sinn
hlut eftir fyrr en I fulla hnefana.
Þaö er alveg klárt mál. A sunnu-
daginn unnu þeir Þróttara 1:0 á
Laugardalsvellinum og sá sigur
gerir þaö aö verkum aö þeir eru
nú jafnir Vestmannaeyingum i
5-5. sæti I deildinni meö 8 stig,
úr jafnmörgum leikjum. Ef
Framarar missa flugiö eitthvaö
er aldrei aö vita nema Vikingar
geti blandaö sér I baráttuna um
sigurinn. Þeir hafa góöu liöi á aö
skipa og ættu aö geta spjaraö sig
enn betur en oröiö hefur.
Eftir slappan fyrri hálfleik
lifnaöi heldur yfir leikmönnum i
þeim siöari. Vlkingar voru tals-
vert ákveönir og sköpuöu sér
þegar góö marktækifæri sem ekki
nýttust. Þeir skoruöu sitt eina
mark á 65. minútu leiksins þegar
Heimir Karlsson lét vaöa á
markiö og þaut knötturinn efst
upp i markhorniö vinstramegin.
Ekki tókst þeim aö bæta marki
viö þrátt fyrir nokkrar snarpar
atlögur aö marki Þróttar.
Heimir var einn bestur i jöfnu
Vikigsliöi en hjá Þrótti sýndi Páll
Ólafsson og Sigurkarl Aöalsteins-
son bestan leik.
—hól.
Magni sigraði
grænlenska
landsliðið
Grænlenska iandsliöiö i knatt-
spyrnu sem skoraöi eitt mark hjá
iélegu islensku landsiiöi um dag-
inn lék um helgina viö 3. deildar-
liö Magna frá Grenivik. Gren-
vikingar grenjuöu út sigur, 2:1 og
er þaö athyglisvert aö þeir skuli
ekki vera nema tveimur mörkum
lakari en islenska landsliöiö.
Meistaramót fslands í frjálsum íþróttum
Helga fjórfaldur
meistari
Fátt markvert geröist á Meistaramóti Islands I frjálsum iþróttum
sem haldiö var um helgina. Ekkert Islandsmet karla sá dagsins Ijós,
hinsvegar var árangur jafnbetri en oft áöur og má þvi þakka aö þaö er
ólympíuár i ár og frjálsiþróttamenn tjalda til þvi besta. Einna
mesta athygli vakti einvigi Odds Sigurössonar og Siguröar Sigurös-
sonar i spretthiaupunum, 100 og 200 metrunum. t 100 metrunum vann
Siguröur Odd, hljóp á 10,72 sek.,Oddur fékk timann 10,82 (rafmagns-
timataka)ogViImunduriVilhjálmssonhljóp á 11, 03 sek..Sigur Siguröar
er auðvitaö allra góöra gjalda veröur en þó ber aö veita þvi athygli aö
100 metrarnir eru ekkert sérstaklega á dagskrá hjá honum um þessar
mundir. 1 1 200 metrunum vann hann hinsvegar Sigurö á 21.44 gegn
21.68 sek.frá Siguröi. Er gott tii þess aö vita aö okkar besti sprett-
hlaupari skuli geta fengiö jafn haröa keppni hér heima og raun ber
vitni.
— Oddur tapaði í
100 metrum!
Annaö einvigi fór fram i kúlu-
varpi. Þaö háöu auövitaö þeir
Hreinn Halldórsson og Óskar
Jakobsson. Hvorugum tókst aö
fara yfir 20 metra strikiö, en aö
þessu sinni sigraöi Hreinn,
kastaöi 19,63 á móti 19,56 metrum
Óskars.
Þaö var þó enginn i hópi
karlmanna sem með réttu gat
talist keppandi mótsins. Ung KR
stúlka, Helga Halldórsdóttir,
varð fjórfaldur islandsmeistari
og setti að auki eitt Islandsmet.
Hún hljóp 100 metrana á 12,34
sek.. Stökk 5,57 metra i lang-
stökki, hljóp 200 metrana á 24,96
sek.. og lalsndsmetiö var i 100
14,46 sek.. Glæsileg frammistaða
Framhald á bls. 13
m
lands.
Olumpíulið íslands
Oddur í
Nú hefur næstum veriö
gengiö frá hverjir taka þátt i
Ólympiuleikunum I Moskvu
fyrir tslands hönd. Af 9
keppendum sem áætlaö er aö
senda út þá hafa þegar 8 veriö
valdir. Um heigina var einum
af okkar ágætasta afreks-
manni i frjálsum iþróttum,
Oddi Sigurössyni, bætt I hóp-
inn. Hann hefur aö visu ekki
alveg náö settum lágmörkum
en svo litið vantar á aö ekki er
taliö aö skipti máii.
Þeir sem þegar hafa veriö
valdir eru eftirtaldir: Hreinn
Halldórsson, Óskar Jakobsson
og Oddur Sigurösson i frjáls-
hópínn
um iþróttum. Halldór Guö-
björnsson og Bjarni Friöriks-
son sem keppa i judo. Birgir
Þór Borgþórsson, Þorsteinn
Leifsson og Guömundur
Helgason sem keppa i lyft-
ingum.
Allt er á huldu meö þaö sæti
sem óráöstafað er og
skammur timi til stefnu. Er-
lendur Valdimarsson hefur
náö lágmarkinu i kringlukasti
en ólympiunefndin hefur tekiö
ákvöröun um aö senda ein-
ungis einn keppanda I þá
grein, óskar Jakobsson.
Þykir liklegt aö Jón Diöriks-
son veröi sendur til keppni.
Borg
Sænska undriö, tennis-
snillingurinn Bjöm Borg er á
góöri leið meö aö slá öll hugsan-
leg met I fþrótt sinni. Á laugar-
daginn vann Wimbledon keppn-
ina i fimmta sinn þegar hann
vann Jdm McEnroe I úrslitum.
það af
Þurfti aö leika allar loturnar til
aö ná fram úrsiitum enda voru
keppendur algjörlega aö niöur-
lotum komnir þegar leikurinn var
úti. Er ekki lengur nokkur vafi á
aö Borg er sterkasti tennisleikari
heims f dag. — hól
hafði
Fjórir leikir fóru fram i 2. deild
um heigina og breyttu þeir Iftt
stööunni hvaö efstu liöin áhrærir.
Akureyrarliöin, Þór og KA unnu
bæöi sfna leiki og skyldi maöur
haida aö hægt væri aö búa til úr
báöum þokkalegasta 1. deildarliö.
KA-menn léku Austra grátt, úr-
slitin uröu 11:1 og sýnir þaö svo
ekki veröur um vilist aö styrk-
leikamunur efstu og neöstu liöa i
2. deild er hreint meö ólikindum.
Gunnar Gislason skoraöi 4 mörk
fyrir KA, nafni hans Blöndal
skoraöi þrisvar og Elmar Geirs-
son skoraöi tvivegis. Úrslit leika i
2. deild uröu annars sem hér
segir:
Fylkir-Völsungur 2:0
Haukar-Þór 1:3
tsafjöröur-Armann 4:4
KA-Austri 11:1
Staöan i deildinni er þessi:
KA 7 5 11 23:5 11
Þór 7 5 11 15:5 11
Fylkir 7 4 12 15:4 9
Isafjöröur 7 3 3 1 18:15 9
Haukar 7 3 2 2 15:15 7
Völsungur 7 3 13 9:9 7
Þróttur, N 6 2 13 8:12 5
Armann 7 12 4 10:17 4
Selfoss 6 114 6:14 3
Austri 7 0 16 7:28 1
Syskinin óskar Sæmundsson og
Steinunn Sæmundsdóttir unnu 1.
verölaun á Opna GR- mótinu
sem haldið var um heigina á
Grafarholtsvelli. Fyrirkomuiagiö
var meö þeim hætti aö tveir og
tveir léku saman og gilti betri
bolti viö hverja holu. Þau
systkinin hlutu 87 punkta og
skutu bræörunum Ragnari og
Kristni ólafssonum aftur fyrir
sig, en þeir fengu 85 punkta. Fýrir
sigurinn á mótinu hlutu þau
óskar og Steinunn sólarlanda-
ferö. Hér á myndinni má sjá
nokkra spennta áhorfendur en aö-
staöa fyrir þá er meö skemmti-
legra móti á Grafarholtinum.