Þjóðviljinn - 23.07.1980, Side 1
MOWIUINN
Miðvikudagur 23. júli 1980 — 165. tbl. 45. árg.
Spá Þjóðhagsstofnunar:
Hvalveiðibamt fellt
Þd tillögur Bandarikjamanna og Ástrala um hvalveiði-
bann hafi hlotiö 13 atkvæði á mdti 9 voru þær þó báðar
felldar á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins I gær, þar sem 3/4
aðildarþjóðanna þurfa að vera svo róttækum ákvörðunum
samþykkir. Islendingar greiddu atkvæði gegn tillögunum
og sagði Þórður Ásgeirsson, forseti ráðsins, i gær, að nú-
verandi veiðar gætu alls ekki útrýmt öllum hvölum I* höf-
unum. Athuga yrði hvern stofn út af fyrir sig og gera viö-
eigandi ráöstafanir ef einhver þeirra væri I hættu. Engin
vlsindalegur grundvöllur væri fyrir algeru hvalveiði-
banni.
—AI.
Verðbólgan á hægu undanhaldi
— 3-6% kjararýrnun án
kjarasamninga
Þjóðhagsstofnun hef-
ur nú tilbúna nýja þjóð-
hagsspá fyrir árið 1980
og kemur hún á prent
næstu daga. Þar er gert
ráð fyrir að hækkun
framfærslukostnaðar
frá upphafi til ioka
þessa árs verði 50—55%,
sem er nokkru minna en
á siðasta ári, en þá
hækkaði framfærslu-
visitaian um 60,6% frá
upphafi til loka ársins.
Þessar upplýsingar
komu fram i samtali
50% fleiri
bílar
fluttir
inn í ár
Eins og fram kemur i annarri
frétt hér á siðunni varð mikil
magnaukning i vöruinnflutningi
til landsins á fyrri hluta þessa
árs. Þjóðhagsstofnun telur þvi
ástæðu til að reikna með 4%
magnaukningu i innflutningi I ár
og kostar sú aukning ein þjóðar-
búið 16—17 miljaröa I gjaldeyri.
Af þessu tilefni hefur Þjóðvilj-
inn aflað sér upplýsinga um,
hversu mikið af bilum var flutt til
landsins á fyrri hluta þessa árs
miöað við sama tima i fyrra.
í ljós kemur að fyrstu 6
mánuðina i fyrra voru fluttir til
landsins 3459 nýir fólksbilar, en
fyrstu 6 mánuðina i ár 5079 nýir
fólksbilar. Hér er um nær 50%
aukningu að ræða i bilainnflutn-
ingi.
Þarf nokkur að vera hissa á
viðskiptahalla, þegar svo frábær-
lega er haldið á málum!
Þjóðviljans i gær við
Bolla Bollason hjá
Þjóðhagsstofnun.
Samkvæmt spá Þjóðhagsstofn-
unar er hins vegar reiknað með
að framfærslukostnaður hækki
um 58% frá ársmeöaltali 1979 til
ársmeðaltals 1980.
Bolli Bollason sagði, að væri
ekki reiknað með áhrifum
komandi kjarasamninga mætti
ætla að kaupmáttarrýrnun lægstu
kauptaxta yrði i ár 3—4%, en
kaupmáttarrýrnun kauptaxta
helstu launastéttanna að jafnaöi
5—6%. Þá væri spáð 3—4% rýrn-
un kaupmáttar ráðstöfunartekna
heimilanna i ár, en hann stóð i
stað i fyrra. Gert er ráð fyrir, að
viðskiptakjör rýrni um 6% i ár, og
hefðu þau þá versnað um tæp 16%
á tveimur árum.
Bolli tjáði okkur, að nú væri
reiknað með þvi, að i ár hækkaði
erlent verð á okkar innfluttu
vörum um 15% að jafnaði (oliu-
vörurnar um 30%). A móti er
reiknað með 8—9% hækkun i
erlendri mynt á okkar útflutn-
ingsvörum. Þá gerir þjóðhags-
spáin ráð fyrir, að innflutningur
til landsins aukist aö magni til um
4%, og er sú spá byggð á mikilli
magnaukningu á innflutningi á
fyrri hluta þessa árs. Slik magn-
aukning kostar ein sér 16—17
miljarða króna.
Niðurstaðna af þessu verður sú,
að spáin gerir ráð fyrir 40
miljarða viðskiptahalla i ár, sem
sundurliðast i 14 miljarða halla I
vöruskiptum og 26 miljarða halla
i þjónustuviðskiptum. 40
miljarðareruum 3% af áætluðum
þjóðartekjum, en i fyrra var
viðskiptahallinn 0,9% af þjóðar-
tekjum. Siöustu 10 ár, að árinu
1980 meðtöldu, hefur viðskipta-
hallinn að jafnaði numið 4—5% af
þjððartekjum.
Þjóðhagsspáin nú gerir ráö
fyrir 9—10 miljarða aukningu út-
flutningsbirgöa i ár, og kemur sú
eignamyndun á móti 40 miljarða
viðskiptahalla.
Athygli vekur, þegar þessar
Framhald á bls. 13
Vinnumálasambandiö lagöi fram
tillögur á sáttafundi í gær:
Skíma í
tíllögunum
— segir blaöafulltrúi ASÍ
„Vinnumálasamband sam-
vinnufélaga lagði fram tillög-
ur að umræðugrundvelli á fundin-
um i gær og við teljum að i þess-
um tillögum sé ákveðin skima
sem sé þess eölis að ástæða sé til
að skoða þær nánar og þvi hefur
sáttanefnd boðað til fundar á
morgun, miðvikudag, þar sem
fjallað verður frekar um tillög-
urnar”, sagði Haukur Már
Haraldsson biaðafulltrúi Alþýðu-
sambands Islands i samtali við
Þjóðviljann i gær.
Fundur ASl og VMSS stóö i nær
4 klukkutima og voru tillögur
Vinnumálasambandsins ræddar
ýtarlega. Samningamenn vörðust
hins vegar allra frétta af
innihaldi umræðugrundvallarins.
— þm
Lifiö I miðbænum er fariö aðfikra sig upp eftir Laugaveginum eins og sjá má á þessari mynd, sem tekin
er uppiundir Frakkastig. Þar hafði varning verið stillt upp á gangstéttina og vakti greinilega forvitni
vegfarenda. Mynd.Eila.
„Sólskin á Suöurlandi,
í sveitum, í Reykjavík”
í Reykjavik skin bros
af andlitum, menn
spóka sig léttklæddir i
sumargolunni og
þykjast hafa himinn
höndum tekið á besta
sumri sem komið hefur
árum saman. En það
eru ekki allir landsmenn
svona heppnir þessa
dagana. Á veðurstofunni
fengust þær upplýsingar
að það væri aðeins hér á
suðvesturhorninu sem
sólar nýtur, smá glæta
hefði verið á Snæfells-
nesi i gær og syðst á
Vestfjörðum.
Aðrir landsmenn mættu
búa við súld og sút, rign-
ingu og skúri.
Trausti Jónsson veður-
fræðingur var inntur eftir þvi
hvort sumarið i ár væri ekki eitt
besta hér sunnanlands um árabil
og sagði hann að júni hefði verið
hinn sólríkasti i 9 ár, hins vegar
heföi júli verið þungbúinn framan
af og mistrið dularfulla i lofti.
Hiti væri enn rétt undir meðal-
lagi, en ekki er enn útséð um
útkomu júlimánaðar.
Þá var Trausti spurður hvort
einhverjar skýringar hefðu feng-
ist á mistrinu sem legið hefur
yfir landinu og sagðist hann telja
að það ætti rætur að rekja til
gossins fyrir norðan, en allt væri
það mál i rannsókn.
Þó að við sunnlendingar teljum
okkur eiga harma að hefna eftir
mörg rigningasumur og sólar-
leysi þá þýðir ekki annað en að
óska þess að allir landsmenn fái
góös að njóta næstu vikur, þegar
feröagleðin nær hámarki á
bindindis- og sumarhátiðum.
— ká
Jlvaö liöur lokun frystihúsanna?
í hálfa gátt fyrir
vestan, annars opin
Hvað líður lokun
fyrstihúsanna á landinu
sem boðuð var i sumar-
byrjun? Hversu margt
verkafólk hefur fengið
tilkynningu um ,,óvænt
sumarfri” og þar með
fyllst óvissu um
framtiðina?
Um það liggja ekki neinar
heildarupplýsingar fyrir ennþá,
en samkvæmt uppiýsingum
Guðmundar H. Garðarssonar hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
höfðu engin frystihúsanna lokað
15. júli s.l., en þá komu siðustu
framleiðslutölur frá húsunum.
Hins vegar hefur nú dregið til
tiðinda á Vestfjörðum, en óvist er
hvort frystihús viðar á landinu
fylgja hótunum sinum eftir. Sjá
baksiðu.
— ká
Sjá baksíðu