Þjóðviljinn - 23.07.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 23.07.1980, Blaðsíða 7
Mi&vikudagur 23. júli, 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Það fór ekki fram hjá neinum, sem staddur var á kvennahátíðinni í Fælledparken í Kaup- mannahöfn laugardag- inn 19. júli að það hafði verið framið valdarán i Bóliviu aðfararnótt föstudags. Aðal-ræðu- manneskja hátíðarinnar var bóliviska konan Domitila Barrios de Changara sem er stödd hér sem gestur óopin- beru kvennaráðstefn- unnar sem nú stendur. Me& grátstafinn I kverkunum flutti Domitila ræ&u slna og sag&i helst þetta: „Bólivía er au&ugt land, þarsem mikil málmvinnsla fer fram. Þeir sem stjórna vinnslu málmanna eru ýmsir alþjó&legir au&hringar og þaö eru þeir sem stjórna efnahagsllfi okk- ar. I fjölda ára hefur bóliviönsk alþý&a barist fyrir efnahagslegu og pólitfsku sjálfstæ&i slnu og sú barátta hefur kostaö fjöldann all- an af saklausu fólki lifiö. 1 þessu landi, þar sem málm- vinnsla er helsta atvinnu- greinin, eiga námuverka- mennirnir ekki , þak yfir höfu&i&. Þeir og fjölskyldur þeirra biía I húsnæ&i sem er i eigu námuvinnslufyrirtækjanna. Þeg- ar verkamennirnir sem vinna I námunum deyja, er varpaö I fangelsi eöa myrtir sökum póli- tlskrar baráttu, þá standa konur þeirra og börn uppi allslaus. Þá eru þau húsnæ&islaus, matarlaus og án læknishjálpar. Þetta var ástæöan fyrir þvl aö viö stofnuö- um „Samtök eiginkvenna námu- verkamanna Bólivíu”. Vi& fórum I hungurverkfall áriö 1977 og þa& meöal annars varö til aö herfor- ingjastjórn Banzers féll. Fyrir framan vélbyssurnar er lýörœðið lítils virði Síöan þá hafa fariö fram þrenn- ar kosningar og samkvæmt úr- slitum þeirra kosninga sem voru haldnar I júnl si&astli&num átti borgaralegur forseti aö taka viö völdum 6. ágúst, en þiö vitiö öll hvers vegna þaö mun ekki veröa. Allt þaö undirbúningsstarf sem Lidia Guelier og stjórn hennar, sem steypt var af stóli, hefur unn- iö undanfama 8 mánuöi er nú fót- um troöiö. Þær litlu fréttir sem viö höfum fengiö aö heiman'eru hræ&ilegar. Þaö er búiö aö drepa marga forustumenn verkalýös- ins og varpa fjölda fólks I fang- elsi. Þaö rikja nú herlög I Bólivlu og útgöngubann eftir kl. 6 á kvöldin. Hermenn hafa umkringt öll sendiráö og skjóta á þaö fólk sem reynir aö leita þar hælis. Viö sem höfum upplifað svipaö ástand vitum aö þaö er hræöi- legra en hægt er aö imynda sér. Nú er veriö aö semja mikiö af fln- um skýrslum á kvennaráöstefnu Sameinuöu þjóöanna, viö erum búin aö halda bamaár, kvennaár og höfum mannréttindasamþykkt Sameinuöu þjó&anna viö höndina. Þd er þaö svo aö fyrir framan vél- byssuhlaupin veröur lýöræöiö og réttlætiö svo lltils megandi. Viö biöjum allar þjóöir heims aö hjálpa okkur og sýna okkur sam- stööu meö þvl aö vi&urkenna ekki þessa stjórn sem nú rlkir I Bólivíu, heldur einangra hana efnahagslega og stjórnmálalega. Þeir sem styöja þessa stjórn eru meösekir I þvl sem hún er aö gera núna I Bólivlu”. Baráttukona firá Bolivíu Og hver er þessi Domitila? Hún er 43ja ára, kona námuverka- Domitila de Changara á útifundínum f Fælledparken þar sem mótmælt var valdarán- inu I Bóliviu. manns I Bólivlu, móöir átta lif- andi bama af ellefu fæddum. Hún kom I fyrsta sinn út fyrir landa- mæri Bólivlu fyrir fimm árum til að ávarpa konur á kvennaráö- stefnunni I Mexico-borg. Þar tal- aði hún um kjör sln og sinna I námuverkabænum Siglo Veinte. Hún talaöi um fátækt fólksins, vinnuþrælkunina sem þaö býr viö og a&búnaö námuverkamann- anna. Þeir geta ekki vænst þess aö ná hærri aldri en 35 árum, tutt- uguþúsund þeirra eru haldnir ólæknandi lungnasjúkdómum og hósta bldöi. Fyrir þá er ekki önn- ur vinna en námavinnan þótt þeir vildu vinna annaö. Frá þvl á ráö- stefnunni I Mexíkó-borg hefur ýmislegt á daga hennar drifiö og þaömargtmiöur ánægjulegt. Eitt bama hennar dó þegar hún og fjölskyldan uröu aö leita hælis I námunumá fldtta undan hernum. Bamiö dó af gasi I námunum. Hún hefur oröið vitni aö ofsóknum og moröum á félögum sínum. Hún tók mikinn þátt I baráttunni viö aö koma herforingjanum Banzer frá völdum 1978 og var I framboöi til varaforseta fyrir tveim árum. Ekkert kvenfélag! 1 viötölum viö fjölmiöla hér hef- ur hún sagt meðal annars: „Nú em 35 þúsund konur I samtökum eiginkvenna námuverkamanna I Bólivíu. Þetta er ekki kvenfélag sem hugsarum mataruppskriftir eöa handavinnu,heldur félag sem berst harðri baráttu fyrir bættum llfskjörum fjölskyldna sinna. Viö eigum enga peninga og þvl biöj- um viö önnur kvennasamtök um aöstoö. Þaö mikilvægasta er aö kenna öllum konunum aö lesa og skrifa.því fyrst þegar þær fara aö geta tjáö sig munu þær gera sér grein fyrir aö a&sta&a þeirra er miklu verri en hún þyrfti aö vera”. Og var&andi kvenna- baráttuna almennt sag&i hún: „Eg lft kvennabaráttuna aöeins I tengslum viö stéttarbaráttuna. Kröfu vesturlandakvenna um frelsi á viö karla á öllum sviöum er ég ekki sammála. Réttur t.d. til aö drekka jafn mikiö áfengi og karlar er mérlítils viröi. í Bólivlu er áfengi ódýrt til aö menn okkar geti drukkiö mikiö og þar meö oröiö auösveipari stjórnvöldum. Valdhafar hafa notaö áfengi til þess aö halda baráttu námu- verkamanna fyrir betra llfi I lág- marki”. Mótmælum valdaráninu Þaö er áberandi á kvennaráö- stefnunum breitt bil á milli hugs- unarháttar kvenna á Vesturlœid- um og kvenna sem koma frá þri&ja heiminum. Kona frá Guyana sem talaði meö Domitilu fyrir því aö fara I mótmælagöngu út I Bella Center á föstudaginn sagöi: „Þaöhlustar enginn á okk- ur. Okkur er sagt aö blanda ekki pólitlk I kvennabaráttuna, en áö- ur en viö getum fariö aö berjast fyrir nýrri hlutverkaskiptingu milli kynjanna veröum viö aö berjast fyrir brauöi og lýöræöi. Þegar viö sjáum félaga okkar falla er enginn tlmi til aö spyrja hvort þar hafi falliö maður eöa kona. Viö veröum aö berjast við hliö karla fyrir frelsi og brauöi og okkar barátta á ekki margt sameiginlegt meö kvenfrelsis- baráttu Vesturlanda”. Domitila hvatti um hádegisbiliö á föstudag konur á óopinberu ráöstefnunni til aö fylgja sér yfir á opinberu ráöstefnuna til aö reyna aö ná tali af forseta hennar og svo bóliviönsku fulltrúunum á henni. „Ef þiö meiniö eitthvaö meö þessum oröum um friö og lýöræöi þá fylgið mér. Mótmælum valda- ráni herforingjanna I Bolivlu sem er kannski þegar búiö aö kosta manninn minn og börnin mln llf- iö. Þeir eru aö drepa börn og fá- tækt fólk”. Óblíðar mótttökur A milli 50 og 100 konur fylgdu henni, flestar frá öörum rlkjum Suöur-Amerlku eöa þriöja heim- inum. Þegar þessar konur komu friösamlega til ráðstefnunnar til aö biöja um viötal viö forseta hennar, danska menningarmála- ráöherrann Lise östergaard, fengu þær óblíöar móttökur hjá dönsku lögreglunni. Domitila var auövitaö „fjarlægö” fyrst allra. Tvær kMiur báru þess merki að hafa komið nálægt lögreglunni, önnur var handleggsbrotin, hin snúin I axlarlið. Blaöamenn sem komu of nálægt atburöinum uröu lika fyrir hnjaski og skrifa aö sjálfsögðu um þessa framgöngu lögreglunnar til sinna heima- landa. Þetta er ekki fagurt af- spurnar fyrir „lýöræöislegt vel- ferðarriki” enda hafa opinberir a&ilar be&ist afsökunar á fram- feröi lögreglunnar og skýrt þaö sem misskilning. Þaö er heldur óþægilegt aö lenda I svona hand- leggsbrota-misskilningi fyrir þann sem á handlegginn. Og svona misskilningur hefur átt sér staöhér skipti eftir skipti aö und- anförnu. Domitila sagöi: „Hvers konar lýöræöi búiö þiö viö hér I Danmörku sem leyfir ekki einu sinni friösamlegum konum aö koma I hóp aö kvennaráðstefnu til aö ná tali af fulltrúum ráöstefn- unnar? já, og þaö eru fleiri en hún sem velta þvl fyrir sér. Sýnið samstöðu Elba Ohajara de Jemio var fé- lagsmálaráöherra 1 þeirri stjórn sem steypt var I Bóliviu I fyrri viku og hún er formaður fulltrúa Bólivíu á opinberu kvennaráð- stefnunni. Hún var spurö aö þvl hvort hún myndi sækja um hæli I Danmörku sem pólitískur flótta- maöur og svaraöi: „Helst vildi ég fara á stundinni til Bóliviu. Ég á þar tvö börn sem ég veit ekki hvaö um hefur oröið. Viö erum hræddar. Ég fer svo fljótt sem auöiö er heim”. Og sömu spurn- ingu svaraöi Domitila: „Ég get ekki fariö til Bólivlu núna. Ég yröi fangelsuö. En mér finnst ég vera aö svlkja fólkiö mitt meö þvl aö vera hér þar sem viö gerum ekkert nema aö tala. Helst vildi ég berjast meö þeim heima. Ég er hrædd, dauöhrædd. Ég veit ekk- ert hvemig fjölskylda mín hefur þaö eöa félagar mlnir. Þið veröiö aö hjálpa okkur og sýna samstööu meö okkur 1 baráttunni”. Elba Ohajap sagöi: „Besta hjálpsem heimuknn getur veitt okkur nú er aö vi&urkenna ekki þessa stjórn sem nú er viö völd I Bólivlu”. Svala Sigurleifsdóttir Kauomannahöfn Við biðjum , þjóðir heims um hjálp , 4,!-» i Domitilla útifundi T Kaupmannahöfn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.