Þjóðviljinn - 08.08.1980, Side 1

Þjóðviljinn - 08.08.1980, Side 1
UOWIUINN Föstudagur 8. ágúst 1980—178. tbl. 45. árg. Tillaga ráðherra um þorskveiðitakmarkanir: 49 daga þorskveiði- bann til áramótanna „Á siðustu 5 mánuðum ársins i fyrra voru veidd um 80 þús. tonn af þorski, og miðað við það að þorskaflinn i dag er mjög nálægt 300 þús. tonnum og þessar til- lögur okkar gera ráð fyrir nokkuð meiri þorskveiðitakmörkun- um en voru á sama tima i fyrra, þá tel ég að heildarþorskaflinn á þessu ári verði ekki langt frá þvi marki sem við settum okkur, um 350 þús. tonn.” sagði Steingrimur Hermanns- son, sjávarútvegsráð- herra,i samtali við Þjóð- viljann i gær. A fundi með hagsmunaaðilum i sjávarútvegi i gær kynnti ráð- herra tillögur sinar um þorsk- veiðitakmarkanir það sem eftir er af árinu. 1 þeim tillögum er miðað við þær tillögur sem sömu aöilar samþykktu i febrúar I vetur, þ.e. að fyrir hver 500 tonn af þorski sem togarar veiddu umfram 110 þús. tonn miðað við 1. ágúst s.l. yrði settur 1 skrapdagur. Heildarþorskafli togaranna var um siðustu mánaðarmót um 125.550 tonn og þvi verða skrap- dagarnir 31 talsins. Auk þess er I tillögum sjávarútvegsráðherra lagt til 18 daga þorskveiðibann i desember og inn i það falli 5-7 daga algert veiðibann á tima- bilinu 21. des. til 3. jan, svonefnt jólaleyfi sjómanna. A fundinum óskuðu fulltrúar LIÚ og Sjómannasambandsins eftir þvi að fá að kynna tillögur ráðherra fyrir stjórnum sinna sambanda áður en endanlega væri gengið frá þeim i reglu- gerðarform. Steingrimur sagði i samtali við Þjóðviljann að hann myndi kynna tillögurnar fyrir rikisstjtírninni á fundi i dag, en nýr fundur meö hagsmunaaöilum hefur verið boðaður n.k. þriðjudag. „Það er ráðuneytið sem endan- lega ákveður með þessar veiði- takmarkanir og ég á von á þvl að þessar tillögur verði samþykktar óbreyttar á þriðjudaginn” sagði Steingrimur. Komid til móts vid óskir sjómanna „Við höfum oft látið uppióskir um að veiðitakmarkanir væru iátnar koma til framkvæmda I auknum mæli yfir jtílahátiðar. Með þessum tillögum ráðherra er komið til móts við þær tískir og viðerum ánægðir meöþaö” sagði Óskar Vigfússon formaður Sjó- mannasambands isiands f sam- tali við Þjóðviljann í gær. I tillögum sjávarútvegsráð- herra um þorskveiðitakmarkanir á siðasta hluta ársins er lagt til algert veiðibann I 5-7 daga yfir jólahátiðina. Óskar sagði að önnur atriði I tillögum ráðherra væru I beinu framhaldi af þeim samþykktum sem gerðar voru af hagsmuna- aðilum um framkvæmd þorsk- veiða á árinu s.l. vetur. -lg. |----------------------------------1 | Dagsbrúnarfundurinn j Í kl. 5 í Iönó Í * ■ IAlmennur félagsfundur verður haldinn i verkamannafélaginu I Dagsbrún I dag þar sem leitaö verður heimildar til verkfalls- | • boðunar. Fundurinn verður I Iðnó og hefst kl. 5 e.h. ■ L________________________________ l Þær hafa trúlega verið barn- ungar þessar tvær þegar siðast rigndi jafnmikið i henni Reykja- vfk eins og aðfaranótt gærdags- ins, en það var i ágústmánuði 1920. Úrkoman frá kl. 21 að kvöldi 6. ágúst til kl. 9 I gærmorgun mældist hvorki meira né minna en 35.8 millimetrar. En það rigndi ekki aðeins i Reykjavik heidur á öllu suðvesturhorninu og spáð er áframhaldandi úrkomu með köflum að vlsu á þeim slóöum og skýjuðu um mestan part landsins. Ljósm.-eik. Guðmundur J. Guðmundsson um samninga- fimdinn: VSI breytti tillögunum ,, Vinnuveitendasam- bandið breytti nokkuð tillögum sinum i dag hvað varðar Verka- mannasambandið, en alls ekki það mikið að ástæða sé til þess að við afboðum félagsfund Dagsbrúnar þar sem leitað verður verkfalls- heimildar” sagði Guð- mundur J. Guðmunds- son formaður Verka- mannasambands ís- lands i samtali við Þjóð- viljann i gær. Á fundi Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasam- bandsins i gær fór allur timinn i það að VSl ræddi við einstök sér- sambönd innan ASí. Að þeim viðræðum loknum var ákveðið að halda nýjan fund á morgun, laugardag. Guðmundur J. Guömundsson staöfesti það sem Þjóðviljinn skýrði frá I gær að i tilboði þvi sem VSl lagði fram á þriðjudag hefði verið um að ræða lækkun kauptaxta frá þvi sem VSI hafði áður lagt til i sumar. Tilboð VSI hefði þvi verið láglaunafólki óhagstætt. Guðmundur sagði að strax hefði oröið ljóst aö tilboðið gæti ekki orðiö grundvöllur samninga og yrði að gera á þvi bragabót ef samningar ættu að nást. — pm Mikill hluti verkafólks atvinnulaus: Engin lausn í Eyjum Umbótatillögur láta á sér standa „Það virðast allir biða eftir Godot” sagði Jón Kjartansson formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja i samtali við Þjóðviljann I gær. „Hér er allt stopp það er löngu búið að segja öllum upp og nú eru þær uppsagnir komnar til framkvæmda. Við sjáum fram á mjög alvarlegt ástand. I morgun höfðu 90 manns skráð sig á atvinnu- leysisskrá, en samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef hjá mér eru þaö um 400 manns sem missa vinnuna. Það er eitthvað af karl- mönnum sem vinnur við við- hald og frágang á saltfiski og skreið, en mikill meirihluti er nú atvinnulaus. Við erum heldur óhressir yfir þessu ástandihér. Það er löngu búið að skoða vandamálin ofan i kjölin, en engar tillögur til umbóta hafa komiö fram. Það biða allir, það er enga lausn að sjá ennþá á vandamálum Vestmannaeyinga.” -ká. Jón Kjartansson: Allir eru að biða eftir Godot. n Veríð að pakka skreiðinni i Eyjum: Maókarnir lii'a góðu M Maðkarnir á lofti Vinnsiu- stöðvarinnar I Vestmanna- eyjum lifa þar góðu llfi, eftir þvi sem fregnir herma. í sumarhitunum skriða nýir maðkar úr púpunum og nóg er ætið, þó að senn fari að þreng- jast hagur. Að sögn Jóns Kjartanssonar hjá Verkalýös- félagi Vestmannaeyja er búið að pakka um 200 pökkum af skreiö, sem er um helmingur þess magns sem er á loftinu. Afgangurinn fær að liggja þar áfram, möðkum og púpum að leik. Jón sagði að það hefði aldrei verið ætlun þeirra Vinnslu- stöðvarmanna aö flytja skreiðina, nema þegar kaup- endur kölluðu, þeir færu ekki eftir neinum boðum, aöeins eigin lögmálum. Ibúar ver- búðanna undir loftinu fræga mega þvl búast við að finna maðka I rúminu hjá sér i náinni framtiö, nema gripið verði I taumana og loftið endanlega hreinsað. _ký

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.