Þjóðviljinn - 14.08.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 14.08.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. ágúst 1980 Er tekin til starfa Nýstofnaö Kerfisdeild StS tók til starfa hinn I. júli. Helsta verkefni deildarinnar nú er aö koma upp nýju aöal- bókhaldskerfi fyrir Samband- iö. Á aö taka þaö I notkun um næstu áramót. Leysir þaö af hólmi gamla kerfiö. Kerfisdeildin tilheyrir Skipulags- og fræösludeild eins og Skýrsluvéladeild hefur áöur gert, en tekur aö nokkru viö hennar störfum. Veröur verkaskipting á þann veg, aö Kerfisdeildin mun annast skipulagningu forritun.prófun og uppsetningu tölvuverkefna og viöhald þeirra en Skýrslu- véladeild sér um vinnslu á kerfunum og rekstur á tölvu- búnaöi Sambandsins. Þessa dagana er veriö aö gera könnun á þörf deilda Sambandsins og kaupfélag- anna fyrir tölvuvinnslu. I framhaldi af þvi veröur svo gerö áætlun um verkefni deildarinnar næstu 3-5 árin. Er ætlunin aö yfirfara öll tölvuverkefni, endurbæta þau og bæta viö nýjum verkefnum þar sem þess gerist þörf. Kerfisdeildin hefur aösetur i kjallara Sambandshússins viö Sölvhólsgötu en þar var áöur ibúö húsvaröar.Trúlega koma til meö aö vinna þarna 8-10 manns. Björgvin B. Schram er for- stööumaöur Kerfisdeildar. — mhg Opið mót í Félags- stofnun Taflfélagiö hans Nóa og Skákfélagið Mjölnir efna til skákmóts i Félagsstofnun Stúdenta. Tefldar veröa 9 um- feröir eftir Monrad-kerfi. Er hér um aö ræöa svokallaö „hálftima-mót” þ.e.a.s. aö hver keppandi fær hálfa klukkustund til aö ljúka skák sinni. Mót þetta er hugsaö sem æf- ingamót fyrir haustmótiö og deildakeppnina sem hefjast innan skamms. Mótiö er opiö öllum þeim skákmönnum sem áhuga hafa fyrir góöri æfingu án tillits til i hvaöa félagi þeir standa og eru góö peninga- verölaun veitt fyrir efstu sæt- in. Tefldar veröa 3 umferöir á íslandsmeistarinn Jóhann Hjartarson. kvöldi og veröur teflt á miö- vikudagskvöldum, hefst keppnin f kvöld miövikudag- inn 13. ágúst kl. 8. Skákmenn eru hvattir til aö mæta og má taka fram aö nú þegar hafa margir öflugir skákmenn til- kynnt þátttöku sina þar á meöal Islandsmeistarinn Jóhann Hjartarson. Sam vinnutryggingar: Reisa nýtt húsnæði Samvinnutry ggin gar eru nú í þann veginn aö hefjast handa viö aö byggja ofan á húsiö Ar- múla 3. Erhugmyndin aö hækka nokkuð turninn noröan viö húsiö og siöan byggö fimmta hæö ofan á núverandi byggingu og verður hún inndregin. Allt húsiö er nú eign Samvinnutrygginga. A siöasta ári heimilaöi stjórn félagsins framkvæmdastjóran- um aö hefja þessa byggingu á þessu ári, ef tilskilin leyfi fengj- ust. Þau eru nú fyrir hendi. Hallgrimur Sigurösson, fram- kvæmdastjóri tók þá þegar til viö aö undirbúa bygginguna. Teikningar voru geröar af Teiknistofu Sambandsins og var lokiö viö þær á öndveröu þessu ári. Hugmyndin er, aö á hæöinni veröi sameiginlegt mötuneyti fyrir allt húsiö og auk þess góö aöstaöa til fundahalda. —mhg L eik tœkjasalurinn veröur starfræktur áfram Borgarráö féllst i gær á aö veita leiktækjasalnum aö Laugavegi 92 rekstrarleyfi til bráöabirgöa enda mun staöur- inn hafa tekiö nokkrum stakkaskiptum frá þvi i upp- hafi en þá var mikiö kvartaö undan starfseminni. Nú hefur engin lögregluskýrsla borist um hana frá þvi i september I fyrra, eldvarnareftirlit og heilbrigöiseftirlit hafa ekkert út á staöinn aö setja og veröur hann sem fyrr segir starfrækt- ur a.m.k. til áramóta. — AI Nýtt starf hjá Sjávarafurðadeild: Sölustjóri frystra sjávar- afurða á Evrópumarkaöi Mikil aukning hefur oröiö á sölu frystra sjávarafuröa á Evrópumarkaöi nú hin siöustu missiri, einkum þó til Bret- lands. Bendir ailt til þess, aö framhald geti orðiö á þessari þróun nú hin næstu árin. Sjávarafuröadeild SiS hefur nú ráöiö sérstakan sölustjóra fyrir frystar sjávarafuröir á Evrópumarkaöi. Er hiö nýja starf þáttur í þeirri viöleitni Sjávarafuröadeildar aö auka þjónustu viö þau markaös- lönd, sem hér eiga hlut aö máli. Þaö er Gunnar Jónasson, sem tekur viö hinu nýja sölu- stjórastarfi. Undanfarin fjög- urárhefur hann veriö deildar- stjóri i Umbúöa- og veiöar- færadeild Sjávarafuröadeild- ar. Viö starfi Gunnars þar tek- ur Ragnar Sigurjónsson. Hann hefur, undanfarin fjögur ár, starfaö á skrifstofu Sam- bandsins i Hamborg. ihg i.oKun trystinusanna stafar af samdrættinum hjá SH Atvinnuleysiö á Ólafsfirði: Útlítið er dökkt segir Agúst Sigurlaugsson I Þjóöviljanum sl. föstudag var skýrt frá þvi aö rúmur helmingur af þeim sem skráöir voru at- vinnulausir um siöustu mánaöa- mót á Noröurlandi eystra eöa 59 á skrá á Ólafsfiröi. Agúst Sigur- laugsson, formaöur ólafsfjaröar- verkalýösfélagsins Einingar sagöi i samtali viö blaöiö í gær aö þessi tala segöi ekki rétt til um ástandiö og eins væru skýringar vinnumáladeildar félagsmála- ráöuneytisins á atvinnuleysinu ekki réttar en I fréttinni sagöi aö ástæöan væri sú aö Sigurborg, togari Ólafsfiröinga væri bilaöur og vinna heföi legiö niöri i frysti- húsinu af þeim sökum. Agústsagöiaöá Ólafsfiröi væru nú geröir út þrir skuttogarar og þar starfrækt tvö frystihús. Þó bilunin ISigurborgu heföi haft sitt aösegja væri ástæöa atvinnuleys- ins á ólafsfiröisú sama og annars staöar, — lokun frystihúsanna vegna samdráttar hjá SH. Hann sagöi aö eins og viöast annars staöar heföi átt aö fella sumar- leyfi starfsfóks inn i lokunartim- ann frá 7. júli til 5. ágússt en á þessum tima misstu á þriöja hundraö manns atvinnuna. Ein- ungis litill hluti þeirra eöa um 60 manns komust hins vegar á at- vinnuleysisskrá vegna reglna þar um. Þó frystihúsin hafi átt aö opna 5. ágúst sagöi Agúst aö litiö færifyrirþvi ennþá. Þann 5. kom togari inn meö afla og þá var opn- aö en aöeins boöaö I vinnu fólk sem var á kauptrygg- ingu, — hUsmæöur og skólafólk fékk aö sitja áfram heima. Agúst sagöi aö lokum aö nú væruyfir 20manns á atvinnuleys- isskrá á ólafsfiröi og útlitiö dökkt vegna þorskveiöitakmarkananna og eins yröi Sigurbjörgin liklega frá veiöum fram undir næstu mánaöamót. 1 saltfiskverkunar- húsunum, sem eru sex, hefur hins vegar veriö næg vinna. — AI Útiitið er dökkt á ólafsfiröi m.a. vegna þorskveiöitakmarkana. Eiðsgrandinn: 10 m. niður á fast Byggung vill margfalda byggingarmagnið Byggung hefur farið fram á endurskoðun á skipulagi að bygginga- svæði sinu á Eiðs- granda, þar sem dýpra reyndist þar niður á fast en áætlað hafði verið. Telja forsvarsmenn Byggung að þétt lág byggð eins og núverandi skipulag gerir ráð fyrir verði allt of dýr miðað við grunnana og fara þeir fram á að i stað 2ja- 4ra hæða húsa verði reist 6-9 hæða hús. Skipulagstillagan sem Byggung á aö byggja eftir gerir ráö fyrir 3- 4ra hæöa byggö og tveggja hæöa raöhúsum inn á milli. Þóröur sagöi aö fyrir hús af þeirri hæö og lægri mætti reka niöur staura og byggja á þeim, en slikt væri úti- lokaö ef um væri aö ræöa 9 hæöa hús eins og Byggung leggur til aö reist veröi á svæöinu. I þvi tilfelli kemur ekki annaö til mála en aö grafa sig útúr mýrinni og fylla hana meö grús, sagöi Þóröur. Þessa valkosti mun borgarverk- fræöingsembættiö og borgar- skipulagiö nú kanna en Þóröur gat þess aö I Fossvoginum heföi veriö reist lág byggö viö svipaöar aöstæöur. Onnur byggingasvæöi á Eiösgranda sleppa betur hvaö jarövegsdýpt varöar en Byggung- svæöiö. Kilja um Sovét Almenna bókafélagiö hefur gef- iödtbók meö ritgeröum eftir þrjá rússneska andófsmenn og nefnist hún „Frelsisbaráttan í Ráö- stjórnarrikjunum.” Kiljan er gefin út i samvinnu viö „Islensku andófsnefndina” og sá Hannes Hólmsteinn Gissurar- son um útgáfuna. Hann ritar einnig eftir mála. Þá er i kiljunni „andófsmannatal”; listi meö nöfnum 50 þekktra andófsmanna. Formála ritar Inga J. Þóröar- dóttir formaöur „íslensku and- ófsnefndarinnar”. Þóröur Þorbjarnarson, borgar- verkfræöingur, sagöi 1 samtali viö Þjóöviljann I gær aö jarökönn unarbor sem borgin notaöi viö ali kanna jarövegsdýpt á þessu svæöi heföi stöövast á malarlagi, sem þarna er. Þegar svo var fariö aö vinna aö lögn aöalræsis fyrir svæöiö nú i sumar kom I ljós aö önnur mýri var undir malarlag- inu. Dýpiö niöur á fast er þvi sex metrum undir meöal sjávarhæö. Þóröur sagöi aö hér munaöi þriöja metra frá fyrri útreikning- um og miöaö viö aö endanleg landhæö yröi 4-5 metrar yfir sjáv- armáli, væridýpiö rúmir 10 metr- ar á svæöi Byggung. USA ísbrjótur í Sundahöfn I dag kemur hingaö til lands bandariskur isbrjótur og dvelur skipiö þrjá daga I Sundahöfn i Reykjavik. Veröur þaö til sýnis fyrir ^ilmenning milli kl. 13 og 16 siödegis dagana 13., 14. og 15. ágúst. Nafn isbrjótsins er North- wind og var honum hleypt af stokkunum skömmu fyrir lok siö- ari heimsstyrjaldar. Þaö er af svonefndri Wind-gerö Isbrjóta, eitt þriggja sem enn eru i þjón- ustu bandarisku strandgæslunn- ar. Skipiö er 82ja metra langt, 19,4m breitt og djúprista er 8,8 metrar. Northwind komst fyrst á blöö sögunnar 1947 þegar þáö fylgdi Richard Byrd aömirál á ferö hans um Suöurheimsskautssvæöiö og sannaöi skipiö ágæti sitt i þeirri erfiöu för. Siöan hefur Northwind margt afrekaö, m.a. aö vera ann- ar tveggja i'sbrjóta sem fylgdu is- brjótnum og risaoliuskipinu Man- hattan á Ieiö þess gegnum Norö- vestur-sundiö áriö 1968 en þá var veriö aö kanna möguleika til aö nota þá leiö til oliuflutninga frá N- Alaska. (Fréttatilkynning)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.