Þjóðviljinn - 27.08.1980, Page 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 27. ágúst 1980
Miðvikudagur 27. ágúst 1980 ÞJÓÐVlLjINN — StÐA 9
t sjónvarpsviðtali s.l. sunnudag
greindi Hjörleifur Guttormsson,
iðnaðarráðherra frá þvi að I iön-
aðarráðuneytinu væri verið að
vinna að athugun og undirbúningi
að hugsanlegum framkvæmdum á
sviði orkufreks iðnaðar hér á landi.
Okkur langaði til að heyra nokkru
nánar um þessi efni og sitthvað
annaö sem ofarlega er á baugi f
iðnaðarráðuneytinu. Hér á eftir fer
þvi viðtal sem Þjóðviljinn átti á
mánudag við Hjörleif Guttorms-
son, iðnaðarráðherra.
Mál sem varða landið allt
— Þetta viðtal i sjónvarpinu,
sagði Hjörleifur, fór fram i tilefni
af samþykktum.sem gerðar voru í
siðustu viku á fundi Sambands
sveitarstjórna i Austurlandskjör-
dæmi, þar sem m.a. voru til um-
ræðu orkumál fjórðungsins og iðn-
þróun þar eystra. Ég greindi þar
almennt frá stööu þessara mála og
það er ekki Ur vegi að sitthvaö af
því sem ég sagði þar komi fleiri
aðilum fyrir sjónir, þar eð þessi
mál varða vissulega landið allt.
Austfirðingar eru ekki einir um það
aðýtaáeftiriðnþróuná sinu svæði.
Hið sama er uppi á teningnum f
fleiri landshlutum og iðnaðarráöu-
neytið telur sér skylt að styðja við
viöleitni I þessu skyni og aðstoða
við að greina þá kosti sem til álita
gætu komið hvað varðar almenna
Hjörleifur Guttormsson:
Hjörleijur
Guttormsson:
framkvæmdaáætlun og mótun
orkustefnu til lengri tima, og því
hlýtur aö koma til álita að draga
ramma um fleiri en eina virkjun og
ákvarða þannig framkvæmdaröð.
Fljótsdalsvirkjun er stærst þessara
kosta 300 megawött, sem skipta
. mætti i mismunandi áfanga.
Blönduvirkjun yröi um 150 Mw, en
virkjun við Sultartanga á Þjórsár-
svæðinu, sem Landsvirkjun hefur
undirbúið, yrði um 120 Mw. Til
samanburöar er rétt að hafa I huga
að Búrfellsvirkjun er 240 MW.
Nýting orkunnar
— En hverjar eru svo þinar hug-
myndir i grófum dráttum um nýt-
ingu þeirrar orku, sem hér verður
væntanlega virkjuö á næstu árum?
Hvað um orkufrekan iönað, og
hvaö um eignarhald á slikum fyrir-
tækjum ef reist verða?
— Ég vil minna á það I fyrstu, aö
þær virkjanir sem hér eru á dag-
skrá teljast hagkvæmar til orkuöfl-
unar fyrir almennan markað þótt
engir stórkaupendur kæmu til, og
hagkvæmari til lengri tima litið að
mati sérfróðra manna en litlar
virkjanir. Menn geta þvi gert það
upp sér á parti hvort nýta skuli
hluta af orkuframleiðslunni til upp-
byggingar á orkufrekum iðnaði, og
á þau málhöfum við litið nokkuö aö
undanfömu hér i iðnaöarráöuneyt-
inu eins og gert er ráö fyrir i stjóm-
arsáttmála. en bar segir um þetta
Frá opnun Austurlinu
að taka tillit til áður en ákvarðanir
eru teknar um staðsetningu. Auk
tæknilegra atriða á ég hér við þætti
eins og landrými og hafnarskilyröi,
einnig félagslega þætti svo sem,
mannfjölda og það atvinnulif sem
fyrir er að ógleymdum náttúru-
farslegum aðstæðum meö tilliti til
landnýtingar og mengunar.
Raunar er það svo að við hljdtum
að útiloka hvern þann iðnaö þar
sem likur væru á skaðlegri mengun
umhverfis og gera verður hliðstæð-
ar kröfur til innri starfsskilyrða á
verksmiðjusvæðum.Um þetta mun
leitaö samstarfs við heilbrigðis-
yfirvöld, NáttUruverndarráð og
fleiri aðila. Siðan er að átta sig á
hvaða iðnaðarkostir og hvaða um-
hverfifalla saman. Hér er einnig á
það að lita að einn af þeim þáttum,
sem þarfnast endurskoöunar i'
sambandi við orkufrek iðnfyrirtæki
er ráðstöfun opinberra gjalda af
slikum rekstri, þannig aö hagn-
aðarsjónarmið einstakra sveitarfé-
laga ráöi ekki um of ferðinni. Auk
rfkissjóðs og sveitarsjóðs tel ég
ekki óeðlilegt að einhverjum hluta
af þeim opinberum gjöldum, sem
slik fyrirtadci greiða verði varið til
styrkingar atvinnulifs í öðrum
byggðarlögum. Vel mætti sjá fyrir
sér eitt slíkt fyrirtæki i hverjum
landsfjórðungi i framtiðinni og að
önnur byggðarlög í þeim lands-
hluta nytu sameiginlega góðs af
þeim opinberu gjöldum, sem slikt
fyrirtæki kæmi til með að greiða.
Aöeins islensk fyrirtæki koma til greina
Rætt viö
iðnaðarráð-
herra um
orkufrekan
iðnað og
fleiri þœtti
iðnþróunar
hér á landi
iönþróun og til stuðnings starfandi
iönfyrirtækjum.
Þegar orkufrekur iðnaður á i hlut
eru hins vegar stærri mál á ferðinni
en svo aö þau verði hrist fram úr
ermi eöa á þeim tekið út frá hags-
munum einstakra sveitarfélaga
eða svæöaeinhliða, enda þótt nauð-
synlegt sé aö eiga góða samvinnu
viö þá aðila er hugsanlega tækju
við slikum fyrirtækjum i sitt
byggðarlag.
Fljótsdalsvirkjun —
Blönduvirkjun
— Aður en lengra er haldið vilj-
um við heyra dálitið frá þér, Hjör-
leifur um þaö hvernig virkjunar-
mál standa svo mjög sem þau
tengjast ráðagerðum um iðnaöar-
uppbyggingu. Hvað er helst að
frétta af þeim vettvangi?
- - Þaö er rétt að verulegrar eftir-
væntingar gætir varðandi undir-
búning og ákvarðanir um næstu
skref i virkjunarmálum og ég vil
gjarnan greina hér i stuttu máli frá
stöðu þeirra mála.
Stjórnarsáttmálinn kveöur sem
kunnugt er á um aö stefnt skuli aö
næstu virkjun fyrir landskerfið
utan eldvirkra svæða, og i þvi sam-
bandi hafa sjónir einkum beinst að
svonefndri Fljótsdalsvirkjun og
Blönduvirkjun. Rannsóknum
vegna hinnar fyrrtöldu var talið
skemmra á veg komiö, og þvi hefur
iárveriðlögðáþaðáhersla aðfæra
vitneskju um tæknilegar og félags-
legar hliðar þessara virkjunar-
kosta á sama stig, einkum með
rannsóknum eystra. Þeim rann-
sóknum hefur i sumar miðaö betur
áfram en fyrirfram var þorað aö
vona,og nýlega hefurveriðákveðið
I rikisstjórninni að bæta þar við
fjármagni svo timinn veröi hag-
nýttur til fullnustu fram á haustiö
til vettvangsrannsókna. Ekkert
neikvætt hefur komiö fram að mér
er tjáð varðandi tæknilegar hliðar
þessarar virkjunar, t.d. gaf borun I
jarðgangna- og stöðvarhússstæði
með 600 metra holu I Valþjófs-
staöafjalligóöa raun og samsvörun
við það, sem lesa má út úr berglög-
um i fjallshliðinni. Ráöuneytið
ákvað á siöast liðnum vetri breytta
tilhögunum stjórnun þessara rann-
siScna með þvi aö fela Rafmagns-
veitum rilcisins hlutverk virkjunar-
aöila I samvinnu við Orkustofnun
og óskað samráðs við Landsvirkj-
un. Jafnframt setti ráðuneytið
niöur ráðgjafarnefnd til aö fylgjast
með framvindu rannsókna og með
eignarréttar- og umhverfismálum
varðandi þennan virkjunarkost.
Hliðstæðri skipan var siöan komið
á varðandi Blönduvirkjun, en þar
hefur verið lögð áhersla á að fara
ofan I hina viðkvæmu deilu sem
reis vegna landnýtingarsjónar-
miöa fyrir nokkrum árum i sam-
bandi við undirbúning þeirrar
virkjunar.
Ég geri mér vonir um að rann-
sóknir og aðrar athuganir sumars-
ins geri kleift að taka ákvarðanir i'
þessum málum á næsta vetri á
vettvangirikisstjórnar og Alþingis,
þar sem aflað yrði nauðsynlegra
lagaheimilda. í stjórnarsáttmál-
anum er reyndar gert ráð fyrir
Aðeins
einn
þáttur
,,Ég vil nú sem endranær
þegar þessi mál ber á góma
gjarnan nota tækifæriö til að
minna á, að orkufrekur iðnaður,
þótt i innlendri eigu sé, er ekki
allra meina bót i atvinnuþróun
hérlendis.
Við þurfum sérstaklega að
gæta þess að umræða og áætl-
anir þar að lútandi byrgi okkur
ekki sýn hvað varðar þróunar-
möguleika þeirra atvinnuvega
sem fyrir eru og hingað til hafa
gagnaö okkur vel. Slikur iðn-
rekstur getur ekki oröið annaö
en einn þáttur I Islenskri iðnþró-
un, þar sem hvað þarf að styðja
annað, almennur framleiðslu-
iðnaður, þjónustuiðnaður og
stórfyrirtæki.”
atriði: „Rikið stuöli að uppbygg-
ingu meiriháttar nýiðnaðar er m.a.
byggi á innlendri orku og hrá-
efnum, enda verði sllkurnýiðnaður
og frekari stóriðja á vegum lands-
manna sjálfra.”
Fyrst að útrýma oliu til
húshitunar
— Að mlnu mati er meginverk-
efni varðandi ráðstöfun orku og
fjármagns á allra næstu árum að
koma innlendum orkugjöfum I
gagniö svo sem verða má i stað
innfluttrar ollu I húshitun og at-
vinnurekstri. Að þessu átaki er nú
unniö með hitaveituframkvæmd-
um, nýlagningu og styrkingu stofn-
lina og dreifikerfis fyrir raforku, en
þar er Vesturlina stærsta verkefniö
I ár. Ég vænti að á næstu 3-4 árum
takist að ná því marki að útrýma
aðmestu oliu við húsahitun, þannig
að aöeins 3-5% landsmanna búi þá
enn við oliuupphitun hýbýla sinna.
Þegar þessu marki er náð ætti að
aukast til muna svigrúm til meiri-
háttar fjárfestingar I iðnaði enda
gæti það fallið saman við aukið
orkuframboð frá nýjum virkjunum
siðar á niunda áratugnum.
Stefna Alþýðubandalags-
ins
Þá má ekki gleyma að I athugun
eru nokkrir minni nýiðnaðarkostir
svo sem framleiðsla á steinull,
saltvinnsla og fleira, sem falla inn I
f ramk væmdaramm a næstu
þriggja ára, ef hagkvæmir teljast.
Varðandi uppbyggingu orkufreks
iðnaðar hefur Alþýðubandalagið
sett fram ákveðin pólitisk skilyrði
bæði I stefnuskrá og 1 sérstakri
stefnumörkun um orkumál og
orkufrekan iðnaö, sem samþykkt
var samhljóða á flokksráösfundi
1976. Þar ber fremst að telja að um
Islenskfyrirtækiverði að ræða meö
ótvíræöu meirihlutaeignarhaldi ís-
lenska rlkisins og reist i tengslum
við áætlanir um þróun annarra at-
vinnuvega, einnig að fullt tillit
verði tekið til byggðasjónarmiða og
umhverfisverndar. Þessari stefnu
Alþýðubandalagsins hefur verið að
aukast fylgi og nú eru þeir fáir sem
véfengja að það geti verið á færi
okkar tslendinga einna að byggja
upp myndarleg fyrirtæki á þessu
sviði.
Hitt greinir menn frekar á um
hvort stefna Alþýðubandalagsins
um skilyrðislausa meirihlutaeign
islenska rikisins sé sjálfsögð eða
ekki. Rétt er að taka fram, að þótt
við I Alþýöubandalaginu teljum að-
eins islensk fyrirtæki koma til
greina, þá útilokum viö ekki sam-
vinnu viö aðra um einstaka þætti,
m.a. á sviði markaðsmála, og telj-
um erlenda minnihlutaeign geta
komið til greina við vissar
kringumstæður.
Að standa á eigin fótum
1 samræmi við þetta er nú unnið
hér I iðnaöarráöuneytinu að upp-
lýsingaöflun til undirbúnings
stefnumótunar varðandi orkunýt
ingu. Það er breyting frá því sem
áður var, er fyrst og fremst var
hugsað til viöræðna við útlenda
aðila um slik mál og gert ráð fyrir
að þeir kæmu færandi hendi ekki
aðeinsmeð fjármagn heldur einnig
með alla þekkingu þegar á frum-
stigi. Ég tel það afar mikilsvert að
Islensk stjórnvöld geti staöiö á
eigin fótum i' þessum efnum, svar-
að til um og lagt sjálfstætt mat á
einstaka kosti og heildarþróun á
þessu sviði. Afraksturinn af vinnu
hér I ráðuneytinu til þessa leyfir
ekki að kveða upp úr um einstaka
kosti, til þess þarf mun meiri tima
cg greiningu. Við höfum i okkar
athugunum leitað út fyrir þann
ramma sem mest hefur veriö til
umræðu hjá ýmsum nú og oft áður
varðandi það að veðja einhliða á ál
og kisiljárn, þar eð við teljum
skynsamlegt að skoða ekki ein-
göngu einn eða tvo kosti á þessu
sviði, þótt svo þessir kostir geti
verið til athugunar lika ásamt
fleirum.
Kisilmálmur, agnesium,
titan, þungt vatn og fl.
Svo eitthvaö sé nefnt af þvl sem
hér er I athugun, þá má minna á
hugsanlega framleiðslu á kísil-
málmi, magnesium, titani, þungu
vatni að ógleymdu innlendu elds-
neyti á vetnisgrundvelli eða úr-
vinnslu benslns og gasoliu úr
þyngri olium, þ.e. eins konar oliu-
hreinsun. Til viöbótar eru svo verk-
efni er tengjast innlendri fóður-
efnaframleiðslu (graskögglar,
fiskimjöl ), fiskeldi og tilbúinn
áburður. Margt af þessum afuröum
mætti byggja á innlendum aðföng-
um að verulegu leyti og það er
vissulega mikill kostur að minu
mati. Þarna er einnig um minni
einingar að ræða heldur en i ál-
framleiðslu, bæði hvað fjármagn
og mannaafla snertir, og aö því
þarf að hyggja ef sllk fyrirtæki eru
sett niöur I tiltölulega fámennum
byggðum.
— Gætu ekki sumir þessara kosta
sem þú minnist á hentað vel hver
með öðrum, og hver er munurinn á
kisiljárni sem framleitt er á
Grundartanga og svo kisilmálmi?
— Jú, samþætt uppbygging
tveggja eðafleiri kosta getur i viss-
um tilvikum verið álitleg, t.d.
mætti tengja saman kísilmálm-
vinnslu og eldsneytisframleiöslu,
nýta kolefnissambönd er til féllu
frá kisilmálmvinnslu sem úrgangs-
efni til eldsneytisframleiðslu.
Um muninn á kisiljárni og kisil-
málmi er þaö að segja að fram-
leiðsluaöferðin er mjög áþekk,
notað er einkum kvars, kol og koks,
en markaðurinn er allur annar.
Kisiljárn er notað til iblöndunar við
stálframleiðslu, en kisilmálmur aö
meirihluta i álblöndur og tengist
þannig nýtingu á áli sem fer vax-
andi 1 heiminum, m.a. vegna orku-
sparnaðarviðhorfa. Kisilmáimur-
inn er m.a. hagnýttur I iðnaði sem
virðist eiga mikla framtið fyrir sér
t.d. við margs konar húðun og gerð
spegla er tengjast nýtingu sólar-
orku. Þetta minnir á að hafa ber
vel I huga úrvinnslumöguleika hér
innanlands á afurðum orkufreks
iðnaðar, en litiö hefur farið fyrir
sliku til þessa.
Byggðasjónarmið, um-
hverfisvernd
— Þú talaðir áðan, Hjörleifur,
um að fyrirtæki i orkufrekum iðn-
aði þyrftu helst að vera ekki alltof
stór, m.a. með tilliti til staðsetn-
ingar utan þéttbýlisins hér við
Faxaflóa. Hvað gætir þú sagt les-
endum nánar um hugmyndir þinar
I þessu sambandi og um um-
hverfismálin?
— Já, ég tel það mikilsvert að
hugmyndir um tilkomu fleiri fyrir-
tækja á sviöi orkufreks iönaöar
verði felldar að æskilegri byggða-
stefnu og skynsamleg dreifing milli
landshluta verði viðhöfð, ekki
ósvipað þvl sem nú er áformað um
virkjanir. Val á stöðum til sliks
meiriháttar iðnreksturs er raunar
sérstakt viðfangsefni sem iðnaðar-
ráðuneytið hyggst láta kanna með
þau mörgu atriði Ihuga, er skylt er
Stefna Alþýðub andalagsins
5. Orkufrekur iönaöur
5.1 Ýmis konar orkufrekur iðn-
aöur á fyllsta rétt á sér og
getur fallið meö eðlilegum
hætti inn i atvinnullf lands-
manna. Þess þarf hins vegar
að gæta, aö hann lúti stjórn
landsmanna sjálfra og sé
byggður upp innan ramma
viðtækra þjóðhagsáætlana,
þar sem rikt tillit veröi tekiö
til skynsamlegrar auðlinda-
nýtingar, svo og æskilegrar
atvinnu- og byggöaþróunar i
landinu.
5.2 Islenska rlkið eigi ætiö
meirihluta I orkufrekum iðn-
fyrirtækjum og að jafnaði séu
þau óskipt I eigu Islendinga.
5.3 Reyni á aðild útlendinga að
fjármögnun stóriðjufyrir-
tækja þarf að vanda sérstak-
lega val samstarfsaðila, og i
þvi sambandi ber að sneiöa
hjá fjölþjóðahringum, sem
hafa einokunaraðstöðu i viö-
komandi vinnslu eöa sölu. Al-
þýðubandalagið varar sér-
staklega við þeirri stefnu;
að ráöstafa hagstæðum
virkjunarmöguleikum til
orkusölu handa útlendum
fyrirtækjum;
aö ráðstafa orku til langs
tlma til erlendra fyrirtækja,
er haft gætu óhagstæö áhrif á
þróun a tvinnullfe og byggöar i
landinu.
5.4 Sem hugsanlegir útlendir
samstarfsaðilar meö islenska
rikinu sem meirihluta eig-
anda koma einkum til álita:
5.4.1 Alþjóðastofnanir sem
tengiliður samninga við
önnur riki (t.d. Iðnþróunar-
stofnun SÞ, UNIDO).
5.4.2 Erlend rikisfyrirtæki,
m.a. vegna hugsanlegra
kaupa á afurðum orkufreks
iðnaðar (t.d. þungu vatni)
með samningum til langs
tima.
5.5 Forgang hafi orkufrekur
iðnaður:
5.5.1 sem byggir á innlendum
aðföngum (hráefni og orka)
sbr. töflu 19;
5.5.2 sem greitt getur viðunandi
verð fyrir orkuna, sambæri-
legt við það sem öðrum iðnaði
er ætlað að greiða, þegar
tekið hefur veriö tillit til
lengri nýtingartima. og lægri
orkuflutningskostnaðar I
stórnotkun;
5.5.3 sem er sem minnst háöur
einokunarhringum um fram-
leiðsluaðföng og sölu afurða;
5.5.4 sem fellur að æskilegri
þróun byggöar;
5.5.5 sem unnt er að byggja upp
I áföngum meö tilliti til fjár-
hagsgetu þjóðarbúsins;
5.5.6 sem fellur að mótaðri
stefnu um umhverfisvernd,
sbr. 6.
Úr bókinni tslensk orku-
stefna. — Stefnumótun Alþýöu-
bandalagsins i orkumálum gefin
út I október 1976.
Áformað orkuverð i Nor-
egi þrefalt hærra en hér
— Hvað hugsa menn nú I iðnaöar-
ráðuneytinu um orkuverð til orku-
freks iðnaðar, ef til kæmi?
— 1 þvi sambandi er ljóst að við
hljótum að gera allt aðrar og meiri
kröfur en áður, bæði með eðlilegan
afrakstur af orkulindum okkar í
huga og vegna þróunar orkuverðs i'
veröldinni yfirleitt. Norðmenn,
Kanadamenn og fleiri þjóðir, sem
ráðstafað hafa umtalsverðum
hluta af vatnsafli til orkufreks iön-
aðar hafa verðlagninguna nú til
róttækrar endurskoöunar, bæði
með tilliti til gamalla og nýrra
samninga.
Norska rikisstjórnin setti á
siðastliðnum vetri fram þá stefnu
að æskilegt væri aö miða verðlagn-
ingu við kostnaðarverö raforku frá
komandi virkjunum, eöa þaö sem
þeir kalla „langtidsgrense-
kostnad”. Þetta þýddi verðlagn-
ingu að þeirra mati er svaraði til
um 11-12 norskum aurum á kiló-
wattstund eða 22-24 Bandaríkja-
mills fyrir kilówattstund af orku til
orkufreks iðnaðar. Til saman-
burðar er vert að minna á að hér-
lendis er verðlag til stórnotenda
6,5-7,5 mills, þ.e. um eða innan við
einn þriðja af þvi verði sem Norð-
mennirnir eru nú að tala um.
Þessar hugmyndir norskra
stjórnvalda hafa vissulega fengið
óbllðar viðtökur hjá forsvarsmönn-
um iðnfyrirtækja þarlendis, eink-
um áð þvi er varðar eldri samn-
inga, en þó er ljóst aö viðhorfin
hafa gjörbreyst og nýir samningar
munu bera þess vott.
Sanngirnissjónarmið
gegn samningsákvæðum
Þetta leiðir að sjálfsögðu hugann
að þeim smánarsamningum, sem
við erum njörvaðir við, einkum aö
þvi er varðar álverið I Straumsvík.
Og það hlýtur aö verða verkefni Is-
lenskra stjórnvalda á næstunni að
leita leiða til aö knýja fram breyt-
ingar i því efni. Samningar um
orkuverö til álversins eru sem
kunnugt er fastbundnir til ársins
1994 og á þvi tímabili eru fremur
horfur á en hitt, að orkuverð sam-
kvæmt samningunum fari lækk-
andi mælt á föstu verölagi. Þá
tekur við endurskoðunarákvæöi,
sem þó viröist ekki skipta miklu til
leiöréttingar, en sjálfur rennur
samningurinn ekki út fyrr en árið
2014. Ljóst er að fyrr en slðar hlýtur
að reyna á sanngirnissjónarmið i"
þessu máli, svo gifurlegar breyt-
ingar sem orðið hafa á orkuverði í
heiminum frá þvi samningurinn
var gerður. En minna verður á að
ágreiningsatriði varðandi samn-
inginn eiga samkvæmt honum aö
dæmast af erlendum dómstól.
Framhald á bls. 13
á dagskrá
>
Það var að ykkar kröfu að Ólafslög voru
sett, og engir eiga frekar en þið tilkall
til höfundarréttarins að þvi hrapallega
misræmi sem nú er á milli verðtryggingar
launa og verðtryggingar lána
Varðstaðan um kaupmáttinn
Bréfkorn til Sighvats Björgvinssonar
Heill og sæll.
Ég sá I Visi á dögunum að þú
ætlaðir að skrifa nokkrar greinar
i blaðið um efnahagsmál. Nú eru
vlst komnar einar þrjár greinar
frá þinni hendi og ég fæ ekki betur
séð en að allar séu þær þvl marki
brenndar að þú hefur að mestu
gleymt almennri umfjöllun um
efnahagsmál. Þess I stað fjallar
þú nær eingöngu um Alþýðu-
bandalagið og að þinu viti,fráleita
afstöðu þess til hinna og þessara
mála. Ég get auðvitað skilið að
Alþýðubandalagið sé ykkur kröt-
unum býsna hugstætt um þessar
mundir, einkum þó og sér I lagi
vegna þess að Alþýðubandalagið
hefur nú um sinn nokkur áhrif á
landsstjórnina. Þú viröist hafa
miklar áhyggjur af þvl að þeim
flokki farist verk sitt,
hraksmánarlega úr hendi svo
ekki sé meira sagt. Ég get út af
fyrir sig vel tekið undir með þér I
þvi, að enn betur hefði Alþýðu-
bandalagið mátt standa sig i
varðstööunni um kaupmáttinn.Og
það er aö sjálfsögðu rétt hjá þér
að lántakendur verðtryggðra
lána liða nú fyrir það að verð-
trygging launanna er minni en
verðtrygging lánanna. Ekki
verður þvl neitað að svona fyrir-
komulag er hábölvað fyrir launa-
fólk og getur alls ekki staðið til
lengdar án þess að illa fari. Varla
getum við láð verkalýðshreyfing-
unni þó að hún sé hörð á að reyna
að knýja fram fulla verðtrygg-
ingu launanna við þessi skilyrði.
ösköp hefði það nú verið gott ef
Alþýðubandalaginu hefði tekist
að verja kaupmáttinn að fullu
fyrir þeim öflum sem að honum
sækja.
Ég varð fyrir dálitlum vonbrigð-
um við lestur greina þinna, vegna
þess að þú slepptir með öllu að
minna Alþýðubandalagið á hvar
hætturnar leyndust og hverjum
Alþýðubandalagið hefur brugðist
I varðstöðunni. Það finnst mér að
þú hefðir átt að gera, Sighvatur
minn,þar sem ég get varla efast
um að þér sé annt um að Alþýðu-
bandalagið standi sig i varðstöð-
unni. Ég hlit að ganga út frá þvi
sem sjálfgefnu að þú og þinn
flokkur megið ekki til þess hugsa
að kaupmáttur launa verkafólks
verði skertur eða hvað?
Mér finnst rétt að huga örlitið
nánar að þessu atriði og skyggn-
ast litillega til baka, bara um
nokkra mánuði. Ekki alla leið
aftur i viðreisn, nei ónei. Þá var
öldin önnur og Alþýðuflokkurinn
gamall flokkur á gamla grunnin-
um. Nú er hann hins vegar orðinn
eins og afturbatapika og kallast
nýr flokkur á sama gamla góða
grunninum.
I nýja standinu vill flokk-
urinn alls ekki skerða kaup-
máttinn þó að hann hafi eil getað
með neinu móti komist frá þeirri
þráhyggju sinni i vinstri stjórn-
inni 1978—79 að skeröa yrði visi-
töluna. í rlkisstjórninni stóð hver
samningalotan annari haröari
um þá kröfu Alþýðuflokksins að
raska verðtryggingu launa. I
þeim efnahagsmálapökkum sem
flokkurinn var i sifellu aö bjóða
fram var llka krafist hárra vaxta
og verðtryggingar lána. Það var
rifist og skammast út I Alþýðu-
bandalagið vikum og mánuðum
saman vegna þess að það neitaði
að fallast á kröfuna um skerðingu
vfsitölunnar. I einni hatrömm-
ustu lotunni fæddust svo ólafslög
sem áttu aö verða allra meina
bót. Ekki man ég svo gjörla um-
ræður ykkar við afgreiðslu máls-
ins I þinginu, en ef mig misminnir
ekki allt of mikið þá taldi Kjartan
Jóhannesson ölafslögin merkan
áfanga I baráttunni við verðbólg-
una. Hvað fenguð þið svo fram
með Ólafslögum. Þið fenguð há-
vaxtastefnuna og skerðingu vlsi-
töluna.
Megin hluti þess mis-
munar sem er á verðtryggingu
launa og hækkunar framfærslu-
kostnaðar er til kominn vegna
Ólafslaganna. Visitalan mælir
ekki fullar bætur vegna teng-
ingarinnar við viðskiptakjör. Það
var að ykkar kröfu að ólafslög
voru sett og engir eiga frekar en
þið tilkall til höfundarréttarins að
þvi hrapallega misræmi, sem nú
er á milli verðtryggingar launa
og verðtryggingar lána. Þegar
liða tók á árið þótti ykkur alls
ekki nóg að gert, sprunguð á
limminu og fenguð desember-
kosningar og ráðherrastóla i
nokkrar vikur. Við stjórnar-
myndunartilraunirnar I vetur
hélduð þið uppteknum hætti og
slógust I lið með kauplækkunar-
postulunum. Patentlausnin var
sem fyrr fólgin i þvi að lækka laun
og þið hafið krafist gengislækk-
unar án þess að afleiðingarnar
kæmu fram i kaupi.
Nú skal ég auðvitað viðurkenna
það að þið hafið lagt margt annað
til en skerðingu á launum. Þið
höfðuð hinar og þessar
prósentutöflur i efnahagsmála-
frumvarpi Alþýðublaðsins og I
fjárlaga frumvarpi þlnu gerðir þú
vist ráð fyrir að lækka skatta og
gott ef ekki voru á lofti gamal-
kunn slagorð um að draga úr
þenslu rikisbáknsins og svo fram-
vegis. Allt kemur það að minnsta
kosti heim og saman við áhyggjur
þinar af skattpiningar stefnu Al-
þýðubandalagsins og kenningar
um að rikisgeirinn sé orðinn alltof
stór.
Það er óendanlega hlálegt að
sjá eftir þig á prenti skammir um
Alþýðubandalagið fyrir afleið-
ingar af lögum og stefnu sem þú
sjálfur hefur knúið fram i and-
stöðu við Alþýðubandalagið. Sitt
af hverju fleira er kyndugt af þvi
sem þú lætur frá þér fara I þeim
greinum sem komnar eru, eins og
til dæmis að Framsókn og Al-
þýðubandalag séu i visitölu-
skollaleik sem hafi ekki annan til-
gang en þann að svindla á launa-
fólki og spýta auknum peningum i
milliliðastarfsemi landbúnaðar-
ins. Auknar niðurgreiðslur nú,
séu ekki annað en pappirsleikur
þar sem kjötið sem á að greiða
niður sé ekki til. Það sé bara
pappirskjöt greitt niður meö
pappirskrónum. Það væri fróð-
legt að sjá hvernig niðurgreiðslur
á kjöti sem aldrei verður selt af
þvi að það er ekki til getur komið
sem peningainnspýting til hins
tómhenta seljanda.
Já^ Sighvatur minn. Málflutn-
ingur þinn þessa dagana er næsta
kostulegur og dapurlegur i senn.
Kostulegur fyrir mótsagnirnar
sem allt er fullt af en dapurlegur
fyrir flatneskjuna og svartsýnis-
rausið.
Þú ert formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins og hefur af þeim
sökum verið oft I fjölmiðlum.
Þegar ég reyni að rifja upp fyrir
mér það sem þú hefur f jallaö um i
ræðu og riti á undanförnum
misserum og ber það saman við
greinar þinar nú um „efnahags-
mál” þá segi ég bara þetta: þú ert
að tyggja sama tyggjóið. Hvergi
nokkurs staðar örlar á framsækn-
um tillögum frá formanni þing-
flokks Alþýðuflokksins, um það
hvernig þessi þjóð getur komist
betur af en hún gerir nú.
Þvi er með öllu sleppt aö minn-
ast á hvernig auka megi fjöl-
breytni I atvinnuháttum, auka
verðmæti og ábata af þvi sem
þegar er framleitt I landinu. Litið
fer fyrir hugmyndum um bráö-
nauðsynlegar framkvæmdir i
orkumálum, samgöngumálum,
heilbrigðismálum o.fl. o.fl. að
ekki sé nú minnst á menningar-
eða félagsmál.
Væri til of mikils mælst að i
næstu greinum þinum um „efna-
hagsmál” væru þessir þættir
teknir inn I myndina.
Með kveðju.
Helgi Guðmundsson
Akureyri.
Skoraö á Norðurlanda-
búa að hafna áfengi
„Aðstæður norrænnar æsku I
dag og á morgun” — var við-
fangsefni 18. ráðstefnu Norræna
Góðtemplararáðsins sem haldið
var I Bifröst i Borgarfirði og
Reykjavlk f sumar en hana sátu
130 þátttakendur frá. öllum
Norðurlöndunum.
í umræðum á ráðstefnunni um
áfengis- og vimuefnamál var ein-
kum lögð áhersla á þær afleiö-
ingar sem neysla þessara efna
hefur á aöstæöur og lifsskilyrði
unglinga og nauðsyn aukinna
rannsókna á þessu sviði. Eftir-
farandi ályktun var samþykkt.
„Með auknum umræðum um
þau vandamál sem tengjast
neyslu áfengis hafa fleiri og fleiri
fariö að íhuga eigin neyslu. Þetta
er mjög mikilsvert þar sem þaö er
mjög brýnt að hver þjóöfélags-
þegn taki á þessum málum með
ábyrgum hætti. Það að velja
sjálfur bindindi hefur alltof oft
lotið i lægra haldi en verði sú hug-
mynd gerð ákjósanlegri I al-
mennum umræðum opnast leið til
aö sporna gegn sívaxandi skaða
vegna áfengisneyslu.
Aukin vitneskja sem sýnir sam-
bandið á milli heildarneyslu og
skaðsemi hennar i samfélaginu
verður að leiða til þess að menn,
hver fyrir sig, taki tillit til
þessarar vitneskju og velji bind-
indi.
Foreldrar, kennarar og leið-
togar félaga og samtaka s.s.
Framhald á bls. 13