Þjóðviljinn - 16.09.1980, Side 8

Þjóðviljinn - 16.09.1980, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 16. september 1980. Þribjudagur 16. september 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Herstöðvaandstæðingar héldu rokkhátið ársins í Laugardalshöllinni/ siðast liðiö laugardagskvöld. Húsið var troðfullt, það ríkti góö stemmning og allt fór fram með prýði. Þegar kvöldaði á laugardaga varð Ijóst að hernaðaráætlun Herstöðvaandstæðinga heppnaðist fullkomlega. Salurinn var skreyttur kröfuspjöldum og brúðum sem minntu á þann hildarleik sem stríðsæs- ingamenn leika við hvert tækifæri. Það fór enginn inn i húsið án þess að herflokkurinn frægi heföi alla gát þar á. Þegar blaöamaður nálgaðist Höllina alsaklaus á fjölskyIdubilnum var fyrsta hindrunin sandpokavirki við afleggjarann að Höllinni. Þegar nær dró Höllinni var billinn stöðvaður af hermönnum sem kröfðust skilrikja. Meðan þau voru gaumgæfð brosti annar hermaður og bauö upp á tyggjó að góðum og gömlum ameriskum sið. Inni i Höllinni var allt að fyllast um það bii sem tónleikarnir hófust, það var setið i stúkunni og f jöldi manns tyllti sér á golfið með krosslagða fætur. Hljómsveitin Mezzoforte reið á vaðið með sitt djass- blandaða rokk við góðar undirtektir. Næstir voru Táragassveitin sem ætlaói að flytja tólist og leik við myndina frægu sem tekin var á Austurvelli 1949, þeg- ar táragasi var beitt gegn andstæðingum NATO samningsins i fyrsta (og vonandi eina) sinn. En i þann mund sem f jör var að færast i leikinn þar á vellinum hjá styttunni af Jóni Sig. varð hin óhjákvæmilega tæknibilun sem alltaf verður þegar Herstöðvaand- stæðingar og vinstra fólk heldur sinar samkomur. Hvaö um það, myndin var látin bíða og Þursarnir gengu fram og hófu leik sinn. Þeir fluttu frumsamið efni sem helgað var samkomunni, ásamt lögum úr söngleiknum Gretti sem nú er aó fæðast niðri i Iðnó. Bubbi Morthens og Utangarðsmenn voru næstir og fluttu meðal annars ,,Siðasta blómiö"#það fræga kvæði um gang heimsmála, lifiðog dauðann, strið og frið. Um leið var myndskreytingum úr bókinni varpað upp á vegg. Táragasflokkurinn kom svo fram aftur i lokin og að þessu sinni tókst að sýna kvikmyndina frá '49 áfallalaust. Allt fór fram með miklum sóma, það var sungið og dansaö, kröfur Herstöðvaandstæðinga hljómuðu öðru hverju úr öllum hornum: Island úr NATO — herinn burt4og víða i salnum voru uppákomur. Þar var her- flokkurinn enn einu sinni á ferö. Þeir voru kátir og „kammó" piltarnir, eins og hermenn eiga alltaf að vera, léku sér, sippuðu og munduðu vopnin sin. Meö þessum hljómleikum og ferðalögum herflokks- ins um bæinn vildu Herstöðvaandstæöingar reyna nýj- ar leiöir til að efla baráttuna gegn her og allri viga- mennsku í heiminum og vist er um það að með þessari aðferð tókst að ná til unglinga sem að öllu jöfnu sjást ekki á fundum og baráttusamkomum, sem hafa yfir sér alvarlegri blæ. Bæjarbúar fundu um leið smjör- þefinn af þeim aðferðum sem tiðkast i löndum þar sem herflokkar vaða um og traðka á öllu sem fyrir þeim verður, enda hrukku margir illilega við. I Laugardalshöllinni var rokki og fjöri blandað saman við aminntngar og sláandi myndir sem vonandi verða til þess að efla kröfuna: Island úr NATO — her- inn burt. Rokkleikhópurinn Táragas túlk- aöi kvikmvndina af atburöunum viö Alþingishúsiö 1949 meö tón- list og ieik undir stjórn Karls Sig- hvatssonar sem hér sést i hlut- verki lögreglumanns. Texti: ká Myndir: gel Ýmsar listir voru framdar i salnum á milli atriöa. þar á meöal þessi fánaleikur, sem hér sést aö ofan og minnir mjög á stórveldiö þar sem austriö er sagt rautt. Aö neöan bregöa Þursarnir Egill Ólafsson og Þóröur Arnason á leik, en auk þeirra voru þeir Asgeir Oskarsson og Tómas Tómasson i Þursaflokknum. Þeir félagar léku tónlist sem m.a. var tileinkuö sakomunni gegn her og vigamennsku Bubbi Morthens og félagar rokkuöu af miklum krafti / 5^1« p \( f i t éf -j 1 4 Wi• : V - | -ffj || i§ •.y. » • *-i • * ?i \ • p' ■ •. i . \ p i ! i" 1 1 1 ! ' : —: 1 ! Lj-Jl T

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.