Þjóðviljinn - 16.09.1980, Síða 11
Þriðjudagur 16. september 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
iþröttir m íþróttír Œ
■ Umsjón: Ingólfur Hannesson. H
Mjög góð uppskera kraft-
lyftingamanna á NM-móti
■ bqi ■ am n bb e m
Aukaleikurinn j
um næstu helgi
Leikur Vikings og ÍA um 3.
sæti 1. deildar verður að
öllum likindum á föstudag
eða laugardag. I gærdag var
mótanefnd ekki búin að setja
leikinn á.
Skúli og lón Páll nældu í gullverðlaun
tslenska landsliðið i kraftlyftingum gerði ágæta för á Norðulanda-
mótið, sem fram fór I Drammen I Noregi um helgina. Skúli Óskarsson
og Jón Páll Sigmarsson sigruðu I sinum flokkum og Ólafur Sigurgeirs-
son og Sverrir Hjaltason nældu I bronsverðlaun i sinum flokktAn. I
stigakeppninni hafnaði tsland i þriðja sæti, á eftir Finnum og Svium.
t 67,5 kg flokki hafnaði Kári
Eliasson i 4. sæti, lyfti samtals 565
kg. Skúli Óskarsson varð Noröur-
landameistari i 75 kg flokki með
samtals 715 kg. Hann reyndi við
heimsmet I réttstöðulyftu, 315 kg,
en mistókst naumlega. 1 82.5 kg
flokki varð Sverrir Hjaltason i
þriðja sæti með 740 kg samtals.
, Ólafur formaður LSt Sigur-
geirsson ' krækti i bronsverðlaun
i 90 kg flokki þegar hann lyfti 655
kg. Þeir Hörður Magnússon og
Halldór Sigurbjörnsson urðu
jafnir i 4. til 5. sæti i 100 kg flokki,
lyftu báðir 740 kg. I 110 kg flokki
hafnaði Viðar Sigurðsson i 4. sæti
með 700 kg. Sömu sögu er aö Segja
um Viking Traustason i 125 kg
flokki, hann varð fjórði með 730
kg-
Loks ber að geta sigurs Jóns
Páls Sigmarssonar I yfirþunga-
vigt, en hann lyfti þar 845 kg.
Hann setti tslandsmet, 210 kg I
bekkpressu, og bætti metiö I
samanlögðu um rúm 20 kg.
Steindauðir Blikar
Framarar unnu auð-
vetdan sigur á Breiðabliks-
mönnum þegar liðin mætt-
ust sl. laugardag/ 2—0.
Framararnir þurftu lítið
fyrir þessum sigri að hafa#
mest fyrir þá sök hve
Blikarnir voru siakir. I
þeim herbúðum virtist það
vera útbreidd skoöun, að
þessi leikur væri einungis
formsatriði. Leiðinlegt
þegar slíkur þankagangur
kemst að hjá ungum og
frískum strákum. Nóg um
það.
Fyrri hálfleikurinn var
einstaklega rólegur, menn
hlupu út um allan völl án
þess að eiga erindi sem
erfiði. Gústaf Björnsson
fékk reyndar 2 góð mark-
Framhald á bls. 13
Skagamenn tryggðu sér
Keflvikingar voru
fremur auðveld bráð fyrir
Skagamenn þegar liðin
áttust við á Akranesi á
laugardaginn. Sunnan-
menn komu til leiksins án
þriggja máttarstólpa#
Ragnars Margeirssonar,
sem er i leikbanni, og
þeirra félaganna ólafs
Júlíussonar og Óskars
Færseth, en þeir voru
farnir i sumarleyfi til
Spánar. Reyndar börðust
KefIvíkingarnir eins og
Ijón allan leikinn, en þeir
gáfu eftir í lokin og fengu
þá á sig 3 mörk, 3—0. Þessi
úrslit þýða að iBK leikur í
2. deild næsta ár, en Skaga-
menn verða að leika gegn
Víkingi um 3. sætið á is-
landsmótinu. Þar er til
mikils að vinna því það
sæti gefur þátttökurétt i
UEFA-keppninni að ári.
Þvi er skemmst frá að segja, að
Skagamennirnir höfðu undirtökin
frá fyrstu minútu leiksins, en
þeim gekk afleitlega að koma
boltanum framhjá Þorsteini
Lið 1. FC Köln keppnistimabiliö 1980 til 1981. Þarna eru margir frægir
kappar s.s. Zimmermann, Woodcock, Knopoka, Oudera, Dieter Miiller,
Bernd Schiister, Neumann, Littbarski og Bonhof.
í A — Köln í dag
t dag kl. 18 hefst sannkallaöur
stórleikur á Laugardalsvellinum
þegar Skagamenn leika gegn hinu
fræga liði 1. FC Köln og er viður-
eignin liður i UEFA-keppninni.
Leikur 1A og Köln i dag verður
17. Evrópuleikur Skagamanna og
hafa þeir oft staðið sig með mik-
illi prýði. í fyrrasumar lék IA
gegn spænska liöinu Barcelona og
tapaði 0 -1. Er það mál manna að
islenskt lið hafi sjaldan leikið
betur gegn erlendu stórliði i
Evrópukeppni. Nú ætla þeir
Skagamenn aö velgja þýska
liöinu hressilega undir uggum og
má þvi búast við fjörugri viður-
eign.
1 leiknum i dag mun væntan-
lega Jón Gunnlaugsson jafna
Evrópuleikjamet félaga sins Jóns
Alfreðssonar, sem er 16 leikir.
Skúli óskarsson varð Norðurlandameistari i sfnum flokki á NM-mótinu
i kraftlyftingum sem haldið var i Noregi um siðustu helgi.
lafnt hjá KR og ÍBV
KR-ingarogtBV geröu jafntefli
I leik sinum, sem fram fór I Vest-
aukaleik
landslíðsmarkverði Bjarnasyni.
Hann varði hvað eftir annaö með
miklum tilþrifum. A 75. min. varð
Þorsteinn þó að sjá á eftir boltan-
um i netið þegar Björn Björns-
son skoraði af stuttu færi eftir
hark i vitateigi ÍBK. Aftur varð
Þorsteinn aö láta i minni pokann
skömmu seinna, en þá þurfti lika
mikið til. Kristján Olgeirsson
þrumaði af löngu færi og boltinn
fór i þverslá og inn. Undir lok
leiksins bætti Guðbjörn Tryggva-
son við þriðja marki ÍA, 3—0.
Þorsteinn Bjarnason var lang-
bestur i liði IBK, heilum „klassa”
fyrir ofan aðra leikmenn. Krist-
ján Olgeirsson og Jón Gunnlaugs-
son stóðu sig best i liði IA.
Atli enn á
skotskónum
Atli Eðvaldsson skoraði eitt
marka Borussia Dortmund um
helgina. Liðið lék þá gegn
Armcnia Bilefeld, sem kom upp
úr 2. deild I fyrra, og sigruðu Atli
og félagar 5-0. Þessi sigur skaut
Dortmund-liðinu upp i 3. sæti
Bundesligunnar, og er liðiö nú
einungis einu stigi á eftir Bayern
Munchen og Hamburger SV.
Úrslit i Bundesligunni á laugar-
daginn urðu þessi:
Bayern Miinch— Leverk, 3-0
Gladbach — Hamburger 2-2
Uerdingen — Stuttgart 3-3
1 FC Köln — Bochum 2-2
Frankfurt —l860Munchen 2-1
Dortmund — Bielefeld 5-0
Nllrnberg — Karlsruher 5-0
Kaiserlautern — Duisburg 1-1
Diisseldorf — Schalke 04 3-3
Staða efstu liða er þannig
Bayern MDnchen 6 5 0 1 18:8 10
Hamborg SV 6 4 2 0 14:7 10
Dortmund 6 4 1 1 15:9 9
mannaeyjum sl. laugardag, 1-1.
Eftir atvikum geta þau úrslit
talist sanngjörn, hvorugt liðið átti
i rauninni sigur skilið.
Veður var hið besta i Eyjum
þegar leikurinn fór fram, logn og
sólskin. A 24. min tóku gestirnir
forystuna þegar Jón Oddsson
skallaði i mark eftir fyrirgjöf frá
Guðjóni Hilmarssyni. Þannig var
staðan i leikhléi.
I seinni hálfleiknum færöist ör-
litiö lif i leikinn, einkanlega
hresstust heimamenn. Þegar
aðeins örfáar min voru til leiks-
loka jafnaði IBV og var þar að
verki Ómar Jóhannsson.
Stefán markvörður Jóhannsson
var bestur i liði KR, en Omar
Jóhannsson stóö sig best Eyja-
manna.
Góður sigur
hjá Standard
Standard Liege, með Asgeir
Sigurviasson I fararbroddi,
sigraði Waterschei,á sunnudag-
inn, 3-2. Standard er nú i öðru sæti
i belgisku 1. deildinni, einu st:,i á
eftir hinu þekkta liði Anderle;ht.
Anderlecht sigraði Gent á út-
velli, 1-0. Lokeren, liö Arnórs
Guðjohnsen, geröi jafntefli á úti-
velli gegn Berchem, sem er i
fjórða sæti deildarinnar.
Lokeren er ofan við miðju i 1.
deildinni.
Karli Þórðarsyni og félögum i
La Louviere gengur hálf brösu-
lega og um helgina gerðu þeir
jafntefli i leik sinum.
Pétur skoraði —
Feyenoord tapaði
Feyenoord tapaði óvænt á
heimavelli á sunnudaginn þegar
liðið lék gegn Roda, 2-3. Pétur
Pétursson skoraði annað marka
Feyenoord, en það dugði ekki til.
Af öðrum úrslitum má nefna
að Ajax sigraði PSV 5-2, AZ
sigraði Den Haag 4-0 og Twente
sigraði Wageningen 2-1. Twente
er nú i forystu i hollensku úr-
valdsdeildinni.
Af fór skeggið
Að leik Vals og Víkings
afloknum greip Sigurður
Valsmarkvörður Haraldsson
skæri og byrjaði að rifa af
sér skeggið. Þetta tiltæki
vakti mikla athygli i
búningskelfa Vals, en þarna
mun Siggi hafa verið að
standa við gefiö loforð...
•
ÍBV sigraði í
2. flokki
IBV varð tslandsmeistari I
2. flokki I knattspyrnu.
Siðastliðinn föstudag sigruðu
Eyjamenn Breiðablik 2—1 og
tryggðu sér þar með titilinn.
Ipswich
heldur
sínu
striki
Ipswich hefur nú náð
tveggja stiga forskoti i ensku
I. deildinni. Liðið sigraöi á
iaugardaginn Crystal Palace
á útivelli, 2—1.
Úrslit leikja i 1. og 2. deild ■
urðu þessi:
1. deild:
Arsenal—Stoke . 2:0 I
Aston Villa—Everton 0:2 J
Brighton—Birmingh. .. . 2:2 |
C. Palace—Ipswich .... . 1:2 ■
Leeds—Tottenham 0:0 J!
Man.Utd.—Leicest. ... . 5:0 1
Norwich—Southampt. . . 1:0 ■
'i Nott.For.—Man. City . . 3:2 |
Sunderl —Middlesb. .. 0:1 ■
Wolves—Coventry .. .. .011
2. deild:
Blackbum—Luton . 3:0 ■
Bristol R.—Oldham .. 0:u 3
Cambridge—Chelsea .. . 0:1 g
Cardiff—Bolton . 1:1 I
Grimsby—Devoy . 0:1 ■
QPR—Newcastle . 1:2 I
Sheff. Wed.—Bristol C. . 2:1 «
Swansea— Notts County 1:1 1
I Watford—Preston . 2:1 l
J West Ham—Shrewsb. . . 3:0 1
■ Wrexham—Orient . 3:1 Z
Stórsigrar Liverpool og
Manchester United vöktu
mikla athygli. McDermott,
Souness og Fairclough (2)
skoruðu mörkin fyrir „rauða
herinn”. Jovanovic (2),
Macari, Grimes og Coppell
skoruðu mörk United.
Sökum plássleysis er ekki
hægt að birta stöðuna, en i 1.
deild er Ipswich með 11 stig,
Southampton með 9 stig og
Liverpool, Nottingham For-
est og Arsenal hafa öll 8 stig.
I 2. deild er Blackbum á
toppnum með 10 stig, Derby
með 9 stig og West Ham og
Notts County meö 8 stig.
Oster á
toppnum
«
Teitur Þórðarson og
félagar hans hjá öster i Svi-
þjóð eru á góðri leið með aö
tryggja sér sigur i 1. deild-
inni þarlendu. Um helgina
gerði liöiö jafntefli við Kal-
mar, en helsti keppi-
nauturinn, Brage, tapaði
gegn liði Arna Stefánssonar,
Landskrona.
Oster hefur 30 stig, Brage
og Malmö 27 stig og Gauta-
borg er með 26 stig.