Þjóðviljinn - 17.09.1980, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 17.09.1980, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN MiOvikudagur 17. september 1980. *Matreiðslumenn , matreiðslumenn Aðalfundur félags matreiðslumanna verður haldinn miðvikudaginn 24. sept. 1980 kl. 15.00 að Óðinsgötu 7 Rvik. Dagskrá: Almenn aðalfundarstörf, önnur mál; félagar fjölmennið. Stjórnin. Starf skrifstofumanns við Almannavarnir rikisins er laust til umsóknar og veitist frá og með 1. nóvem- ber n.k. Upplýsingar um starfið veitir fram- kvæmdastjóri Almannavarna rikisins og skulu umsóknir berast honum fyrir 23. september n.k.. Almannavarnir rikisins. LÖGTÖK Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimt- unnar i Reykjavik og samkvæmt fógetaúr- skurði uppkveðnum 16. þ.m. verða lögtök látin fara fram fyrir vangreiddum opinberum gjöld- um, skv. gjaldheimtuseðli 1980, er féllu i ein- daga þ. 15. þ.m. sbr. lögum nr. 40/1978 og 1. gr. bráðabirgðalaga nr. 65/1980. Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignarskatt- ur, sóknargjald, kirkjugarðsgjald, slysa- tryggingagjald vegna heimilisstarfa, slysa- tryggingargjald atvinnurekenda skv. 36. gr. 1. nr. 67/1971 um almannatryggingar, lifeyris- tryggingargjald skv. 25. gr. sömu laga, at- vinnuleysistryggingargjald, launaskattur, út- svar, aðstöðugjald, iðnlánasjóðsgjald, iðnaðarmálagjald, sjúkratryggingargjald og sérstakur skattur á skrifstofu- og verslunar- húsnæði. Ennfremur nær úrskurðurinn til hverskonar gjaldhækkana og til skatta, sem innheimta ber x skv. Norðurlandasamningi sbr. 1. nr. 111/1972. Lögtök fyrir framangreindum sköttum og gjöldum ásamt dráttarvöxtum og kostnaði verða látin fram fara að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess tima. Borgarfógetaembættið i Reykjavík, 16. september 1980. Kristján Andrésson Vöröustíg 7 Hafnarfiröi lést aö heimili sinu mánudaginn 15. september. Salbjörg Magnúsdóttir. Otför móöur minnar, tengdamóöur og ömmu Soffiu Túvinu sem lést í Landspitalanum 11. þ.m. veröur gerö frá Fri- kirkjunni á morgun, fimmtudag, kl. 15.00. Lena og Arni Bergmann Snorri og Olga Þökkum innilega auösýnda samúö vegna andláts Sigrúnar Ásdisar Pálmadóttur sem andaðist i Luxemburg 6. þ.m. Útförhefur þegar fariö fram. Ingi Koibeinsson Elfn Siguröardóttir Pálmi Guömundsson Kristln Pálmadóttir Inga Kolbeinsdóttir Pálmi Jósefsson Siguröur S. Kolbeinsson Ingileif Glsladóttir íþróttirW íþróttir g Mótherjar ÍBV í kvöld ekki af verri endanum Banik Ostrava skartar 5 gullverðlaunahöfum frá 01 í Moskvu 1 dag kl. 17.30 hefst á Kópavogs- velli leikur tþróttabandalags Vestmannaeyja og Banik Ostrava frá Tékkósióvakiu. Leikur þessi er liöur I Evrópukeppni meistara- liöa I knattspyrnu. Eyjamenn mæta meö sitt sterk- asta lið til leiks I dag og þeir hafa fullan hug á að sýna hinum tékk- nesku mótherjum sinum hvar Davið keypti ölið. Hvort það tekst kemur i ljós I dag. Banik Ostrava knattspyrnu- félagið var stofnaö 8. september 1922 i Slezká Ostrava borgarhlut- anum I Prag og I aldarfjóröung var félagiö þekkt undir nafninu SK Slezká Ostrava. Banik liðið er beinn arftaki þess liðs og byggir á sömu hefðum og siðvenjum i starfi sinu. Félagið hóf keppni opinberlega áriö 1923, en það komst ekki upp I fyrstu deild fyrr en 1937. Slðan hefur liðið skipað sæti meðal þekktustu liða Tékkó- slóvakiu og nær undantekningar- laust hefur það átt menn I lands- liði Tékkóslóvakiu allan þennan tima. Samkvæmt skýrslum yfir félög og leikmenn frá þvi að I. deildarkeppni hófst i landinu er Banik Ostrava I 5. sæti miðað við bestu leikmenn og kemur næst á eftir elstu félögunum, Spörtu og Slaviu frá Prag. Slóvan frá Bratislava og Dukla frá Prag. Banik hefur á löngum tlma getiö sér orð fyrir skemmtilegan leik og óvænta sigra þar sem félagið hefur ósjaldan unnið þekkt stjörnulið. Ariö 1954 varö Banik nr. 2 i Tékknesku meistarakeppninni á eftir Spörtu, 1960—1961 var það nr. 4 og tveimur árum seinna nr. 3. Hin raunverulega sigurganga Banik hófst þó ekki fyrr en upp úr 1970, en slðan hefur félagið tekið þátt I 4 Evrópubikarkeppnum. Arið 1975—1976 varð Banik Tékkóslóyakiumeistari og tók þar af leiöandi þátt i Evrópukeppni meistaraliða. Banik hefur sjö sinnum komist i úrslit eöa undanúrslit tékknesku bikar- keppninnar og 1972—1973 og 1977—1978 unnu þeir bikarkeppni Tékkóslóvakiu og meistara- keppnina. Banik varð meistari I siðustu keppni með 1—0 yfir Jednota Trecin frá Bratislava. 1 fyrra tók liðið þátt I Evrópu- keppni bikarhafa og komst alla leið I 4. umferð. Fyrst sigraði Banik Sporting Lissabon frá Portúgal (1:0, 1:0), siöan Shamrock Rovers frá trlandi (3:0, 3:1), þá 1 FC Magdeburg frá Austur-Þýskalandi (1:2, 4:2), en tapaði loks fyrir Fortuna Kappinn á myndinni hér aö ofan, Zdenek Sreiner, var I tékkneska liðinu sem sigraöi á Olympiuleik- unum I Moskvu. Dusseldorf (1:3, 2:1). 1 liöi Banik Ostrava sem leikur gegn ÍBV I dag eru 5 leikmenn sem voru I landsliði Tékkósló- vakiu, sem sigraði I knattspyrnu- keppni Olympiuleikanna i Moskvu. I 16 manna hópi eru hvorki fleiri né færri en 11 leik- menn sem hafa leikið I olympiu- liði eða A—landsliði Tékkósló- vakiu á undanförnum árum. Þessar staðreyndir segja meira en mörg orð um ágæti liðs Banik Ostrava. Eins og áður sagði hefst leikur IBV og Banik Ostrava kl. 17.30 i dag á Kópavogsvelli. Forsala að- göngumiða hefst á vellinum kl. 15. Fram leikur í kvöld ytra Fyrri leikur Fram og danska iiðsins Hvidovre I Evrópukeppni bikarhafa I knattspyrnu veröur háður I Danmörku I kvöld. Seinni leikur liöanna veröur slöan hér heima i lok mánaöarins. j 8-9 miljónir í tap ■ I „Þessir leikir gegn Banik Ostrava frál I Tékkóslóvakíu eru okkur þungur f járhagslegur baggi Z ■og það verður erfitt að ná saman endum að þessu" |"sinni," sagði formaður Knattspyrnuráðs fBV, Jóhann j Alaícertn í e + i i++i i cni slli \/iA hii/ í f\/rrarlan I | Olafsson, í stuttu spjalli við Þjv. í fyrradag. Jóhann sagði að kostnaður IBV vegna þátttöku I Evrópu- | keppninni að þessu sinni væri * 12—13 miljónir. Reikna mætti með þvi að tekjurnar yrðu 3—4 miljónir, þannig að tapið verð- ur frá 8 til 10 miljónir. Við spurðum Jóhann hvern- ig hægt væri að brúa þetta bil. I I „Orslitaleikurinn I Bikar- keppninni gaf ágætiega af sér og siðan hefst þetta með hin- um hefðbundnu snikjum.” Þess má einnig geta að nokkr- ir knattspyrnuáhugamenn I Eyjum fóru i róður fyrir skömmu og öfluðu tekna fyrir IBV. I ■ I ■ I ■ I ■ J Vetrarstarfsemin að hefjast Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Vetrarstarf B.R. hefst miðvikudaginn 17. sept. kl. 19.30 I Domus Medica, meö tveimur einskvölds tvimenningum. Þann 2. okt. hefst slöan haust- tvimenningskeppnin sem er í f jögur kvöid, og aö henni lokinni v«rður spiluö aöalsveitakeppni B.R. tii jóla. Keppnisstjóri f vetur veröur Agnar Jörgensson, og eru spilarar hvattir til aö mæta þann 17. sept. kl. 19.30 stundvlsiega. Keppnisyfirlit BR Keppnisyfirlit B.R. septem-' ber-desember 1980. Keppnis- stjöri er Agnar Jörgensson. Spilastaður: Domus Medica og hefjast keppnir kl. 19.30., stund- vislega. a) 17. og 24. sept., eins kvölds keppnir. b) 1., 8., 15., og 22. okt., 4 kvölda hausttvimenningur. c) 29. okt., til 17. des., 8kvölda aðalsveitakeppni. Þátttöku skal tilkynna með viku fyrirvara i öll lengri mót á vegum B.R., til keppnisstjóra eða einhvers stjórnarmanns. Stjórn B.R. 1980—1981 skipa: JakobR. Möller formaöur, Þor- geir P. Eyjólfsson v-formaður, Guðbrandur Sigurbergsson rit- ari, Sigmundur Stefánsson gjaldkeri og Jón Baldursson fjármálaritari. Frá Bridgefélagi Suðurnesja Bridgefélag Suöurnesja hóf vetrarstarfsemi slna þriðjudag- inn 2. september siðastliðinn með upphitunaræfingu i tvi- menningi, sem og var gert þriöjudaginn 9. sept. Næsta keppni hjá Bridge- félagi Suðurnesja verður þriöju- daginn 16. september, kl. 20. Þá veröur spilaður einmenningur. Hann verður spilaður tvö næstu þriöjudagskvöld og siðan verður spilaö til úrslita laugardaginn 27. sept. Undanfarna vetur hefur veriö spilað i Félagsheimilinu Stapa, en nú hefur orðið sú breyting á að spilað verður i nýinnréttuð- um húsakynnum mötuneytis Skipasmiðastöðvar Njarðvikur. Frá TBK Vetrarstarfsemi félagsins hefst á morgun, fimmtudag I Domus Medica, með eins kvölds firmakeppni. Allir velkomnir. Spilamennska hefst kl. 19.30.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.