Þjóðviljinn - 17.09.1980, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 17.09.1980, Blaðsíða 13
MiOvikudagur 17. september 1980. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13 íþróttir Framhald af bls. 11. barski annaö Mark Kölnar. Hann hirti boltann af Siguröi og renndi honum i markiö 2:0. Þriöja mark Kölnar kom á 77 min. Engels brunaöi upp hægri kantinn gaf fyrir og Dieter Muller skallaöi mark., 3:0. Min. siöar geystist Engels upp vinstri kantinn, gaf fyrir og aftur var Miiller á réttum staö og renndi boltanumi netiö, 4:0. Kraftur og ákveöni Skagaliös- ins ifyrrihálfleiknum var til mik- illar fyrirmyndar. Þeir geröu sér gi/ein fyrir þvi aö viö ofurefli var aö etja og léku skynsamlega. Kölnarliöinuvarleyft aö sækja og siöan treyst á skyndisóknir. Þá lögöu Skagamenn mikla áherslu á aö útfæra aukaspymur, horn og innköst vel og þeim tókst oft aö skapa sér góö færi Ur slikum stöö- um. I seinni hálfleiknum misstu þeir móöinn eftir fyrsta mark Kölnar og um leiö fór Uthaldiö aö bresta sem vonlegt er. Hvaö um þaö, barátta Akurnesinganna var lengst af til fyrirmyndar þó aö uppskeran yröi helst til rýr. Jón Gunnlaugsson átti sann- kallaöan stórleik i liöi ÍA, yfir- vegaöur og ákveöinn allan leikinn. Bjarni varöi oft snilldar- lega i leiknum, en fékk á sig 2 svo- kölluö klaufamörk. Bjami er góö- ur markvöröur, en hefur þann stóra galla aö „frjósa” á mark- linunni. Arni Sveinsson og Kristján Olgeirsson héldu spilinu gangandi og sköpuöu Kölnar- búum oft vandræöi meö dugnaöi sinum og Utsjónarsemi. Liö Kölnar oili áhorfendum nokkrum vonbrigðum i gær- kvöld . Þeir voru heppnir að vinna svo stóran sigur, 2:0eöa 3:1 heföi gefið mun réttari mynd af getumuninum á liðunum. Bestan leik áttu nr. 5 (Gerber), nr. 3 (Kroth) og nr. 8 (Engels).-IngH Gasolian Framhald af bls. 1 næstu vikum, og lyki þá störfum. „Þessir samningar við BNOC eru einn ávöxturinn af störfum oliuviðskiptanefndarinnar, auk þess sem ég hef átt viðræður við Kuwaitmenn um hugsanleg oliu- viðskipti og einnig viö Norðmenn. En varðandi oliukaupasamninga viö Saudi Arabiu,sem mikið hafa veriö ræddar i fjölmiölum, þá viljum við aö komið verði á stjórnmálasambandi þjóðanna áður en frekari viðræður eiga sér stað. En þaö hefur ekkert gerst ennþá i' þeim efnum, hvers vegna veit ég ekki, það er ekki vist aö þeir hafi áhuga á sambandi við okkur”,sagði viðskiptaráöherra. Svavar Framhald af bls. 5 blaöiö hefur i þessu málí verið með kröfur um það aö islenskir skattgreiöendur veröi látnir standa undir hallanum af At- lantshafsfluginu hvaö sem öllu öðru liði. Þetta er tii marks um að Morgunblaðið er trútt þeirri stefnu pilsfaldakapitalista aö hlaupa upp i fangið á stóru mömmu, — rikinu, þegar á bjátar, jafnvel þótt það kosti stór- felldar skattahækkanir á almenn- ing. Ég minnist þess hins vegar ekki aö hafa séð Morgunblaöiö krefjast þess að Flugleiðir skili aftur gróða velmektardaga sinna i rikissjóö”, sagöi Svavar Gests- son aö lokum. Skipaútgerö ríkisins MS. COASTER EMMY fer frá Reykjavik 23. þ.m. vestur um land til Akureyrar og snýr þar við. MS. BALDUR fer frá Reykjavik 23. þ.m. til Patreksfjaröar, Þingeyrar og Breiðafjaröarhafna. MS. HEKLA fer frá Reykjavik 25. þ.m. til Austfjaröahafna og snýr viö á Vopnafiröi. MS. ESJA fer frá Reykjavik 26. þ.m. vestur um land i hringferö. Viökoma samkvæmt áætl- unum. Skipaútgerö rikisins Slæmt ástand á Akureyri: SUNN gerir tíllögur um mengunan arnir A opnum fundi um mengunar- mál á Akureyri i tengslum viö aöalfund SUNN, samtaka um náttúruvernd á Noröurlandi geröi Jóhannes Sigvaldason formaöur Heilbrigöisnefndar bæjarins grein fyrir stööunni i þeim málum og kom fram aö ástandiö er heldur slæmt, hvað snertir meng- un lofts og sjávar. Helstu loftmengunarvaldarnir eru Krossanesverksmiöjan og malbikunarstöðin og hefur heil- brigöisnefnd itrekaö fariö fram á aö reykur frá þessum iöju- verum veröi hreinsaöur, en árangur veriö litill til þessa. Þá er loftmengun frá bilum sennilega meiri á Akureyri en á öörum stöö- um hérlendis, vegna mikilla staö- viöra. SUNN samþykkti siöan á aðal- fundi sinum eftirfarandi ályktun um þessi mál: „Stefnt veröi aö hreinsun á loft- mengandi úrgangsefnum svo sem frá fiskmjölsverksmiðjunni i Krossanesi og malbikunar- stööinni viö Gerárgil. Samtengingu á skólplögnum bæjarins verði hraöaö eftir föngum og forhreinsun (set- og rotþróm) komið upp innan fimm ára. Komiö' veröi á fót sorp- eyöingarstöö fyrir Akureyri og nágrannabyggöirnar, hiö fyrsta, en sorphaugar bæjarins á Glerár- dai lagöir niöur. Eiturefni og önnur hættuleg úr- gangsefni frá iönaöi I bænum, verði framvegis ekki losuö i skólp eöa á sorphauga heldur geymd i þar til geröum geymslum, þar til hægt verður aö eyöa þeim eða endurnýta þau. Leita skal sam- vinnu viö önnur sveitarfélög i landinu um lausn þessara mála.” Danskt-íslenskt Linguaphone námskeið Linguaphone Institute hefur gefiö út danskt/Islenskt tungu- málanámskeið. Er þaö unniö i samráöi viö Hljóöfærahús Reykjavikur, umboösaöila Linguaphone á íslandi. Náfm- skeiöinu fylgir handbók á Is- lensku meö nákvæmum skýringum viö hvern kafla, mál- fræöiágripi, dansk/islensku oröa- safni o.fl.. tslenska handbókin er unnin af Jónasi Eysteinssyni og Sölva Eysteinssyni, en ráögjöf um islensku geröina veitti Hjálm- ar ólafsson. Hin 35 mismunandi tungumál sem fáanleg eru á Linguaphone námskeiöunum hafa hingaö til einkum veriö seld hérlendis meö dönskum og enskum skýringar- texta. Meö dansk/Islenska nám- skeiöinu er hins vegar komiö fyrsta „islenska” Linguaphone námskeiöiö og er vonast til þess aö þaö opni enn fleirum leiö til aukinnar norrænnar málakunn- áttu, aö þvi er segir I frétt Hljóö- færahússins. Linguaphone tungumálanám- skeiöin hafa veriö i þróun s.l. 60 ár og mun fjöldi nemenda nú kominn yfir fjórar miljónir alls staöar i heiminum . Nám- skeiöin byggjast upp á samverk- andi þjálfun heyrnar- og sjón- minnis, texti er leikinn af hljóm- piötum eöa kassettum um leiö og fylgst er meö i textabók. Ýmsar æfingar ásamt málfræöiágripi o.fl. byggja slðan upp talgetuna. Vitavörður Hornbjargsvita óskar að ráða konu sem aðstoðarvitavörð. Upplýsingar á Vitamálaskrifstofunni Seljavegi 32. Simi 27733. ALÞVHv jA^DALAGIÐ : ■ Arnmundur Bachman Alþýðubandalagið i Reykjavik 2. fundur i umræðuhóp ABR um kjaramál. veröur i kvöld miövikudaginn 17. sept. kl 20.30 að Grettisgötu 3. Arnmundur Bachman hefur framsögu um félagslegar umbætur og framkvæmd þeirra. Félagar fjölmenniö og takiö þátt i undirbúningi fyrir landafund. Stjórn ABR. Alþýðubandalagið i Kópavogi Fundur verður I Bæjarmálaráöi ABK miövikudaginn 17. september kl 20.30. Dagskrá: 1. úttekt á stööu bæjarmála. 2. Skipulag byggingarframkvæmda i Astúnshverfi. 3. önnur mál. Allir félagar i ABK eru velkomnir. Stjórn Bæjarmálaráös ABK. Alþýðubandalagið i Hafnarfirði Bæjarmálaráð Fundur mánudaginn 22. sept. kl. 20.301 Skálanum. Dagskrá: Bæjarmálin i sumar. Starf á komandi vetri. Ailir velkomnir. Alþýðubandalagið i Reykjavik Starfshópur um kjördæmamálið fundar aö Grettisgötu 3 i kvöld miövikudaginn 17. sept. kl. 20.00. Inngangsorð: Skúli Thoroddsen. Einar Olgeirsson mætir á fundinn. Sérstök athygli er vakin á grein Einars Olgeirssonar i 4. tbl. Réttar 1979. ABR Umræðufundur um fjölskyldupólitik Annar fundur i umræöuröð um fjölskyldupólitik veröur haldinn aö Grettisgötu 3Rvikn.k. fimmtudag, 18. sept., kl. 8.30. A fundinum mun Dóra S. Bjarnason flytja framsögu um unglinginn i fjölskyldunni. Félagar, komiö og fræöist jafnframt þvi aö taka þátt i undirbúningi ABR fyrir landsfund. StjórnABR. FOLDA [7— -------T Þau gömlu vilja L að þú verðir konan mín!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.