Þjóðviljinn - 02.10.1980, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. október 1980.
Gestafyrirlesari Jaröhitaskóla SÞ
Þessa dagana dvelst hér á
landi i boöi Jaröhitaskóla Há-
skóla Sameinuöu þjóöanna
Christopher H. Armstead,
verkfræöingur frá Englandi
og flytur fyrirlestra á hans
vegum. Fjallar Armstead um
ýmsa þætti nýtingar jaröhita
út frá sjónarhóli verkfræö-
ingsins.
Þrir fyrirlestrar hafa þegar
veriö fluttir, sá fjóröi er i dag:
„Some engineering problems
in the planning of geothermal
projects”, og sá siöasti á
morgun, 3. október: „Future
geothermal prospects: heat
mining”. Báöir veröa fluttir i
fyrirlestrasal Orkustofnunar,
Grensásvegi 9 og hefjast kl.
9,15 árdegis.
Björgunarnet Markúsar reynist vel
Björgunarnet Markúsar
Þorgeirssonar skipstjóra virö-
ist ætla aö færa honum frægö
og frama. Ýmsir málsmetandi
skipstjórar og sjómenn hafa
hrósaö netinu upp i hástert.
Tveir slikir hafa skrifaö bréf
þar sem þeir lýsa þeirri skoö-
un sinni aö þaö eigi að lögleiöa
netiö i öllum islenskum bátum
og byggja báöir á tilraunum
sem gerðar voru um borö i
M/S Herjólfi (og utan borðs)
úti á rúmsjó. Þaö viröist þvi
sem net Markúsar eigi fram-
tiö fyrir sér og vonandi á þaö
eftir að bjarga mörgum
mannslifum.
Hermann Pálsson ræöir
Hrafnkötlu
Erkki Pohjola stjórnar Tapiolakórnum.
Tapiolakórinn í heimsókn
Um siöustu helgi kom
hingað til landsins viöfrægur
barnakór frá Tapiola i Finn-
landi. Kórinn hefur þegar
sungiö i Hafnarfiröi, á Akra-
nesi og Hvolsvelli viö hinar
bestu undirtektir, en næstu
tónleikar hans veröa i Nor-
ræna húsinu annað kvöld kl.
20.30, og lokatónleikarnir
veröa á laugardag i Háteigs-
kirkju kl. 17.00.
Stjórnandi kórsins er Erkki
Pohjola. Tapiola kórinn
dvelur hér i boöi Kórs öldu-
túnsskóla i Hafnarfiröi.
Skólafélag MS mótmælir
Fundur i Skólafélagi
Menntaskólans viö Sund sam-
þykkti aö mótmæla harölega
þeirri ákvöröun dómsmála-
ráðuneytisins aö visa franska
flóttamanninum Patrick
Gervasoni úr landi.
Ennfremur var skoraö á
stjórnvöld aö veita Gervasoni
landvistarleyfi hér eins lengi
og hann óskar.
Oröa fyrir
leiklistarstörf
Forseti tslands sæmdi i gær
Jón Laxdal, leikara, riddara-
krossi hinnar islensku fálda-
oröu, fyrir leiklistarstörf.
Krossaöur: — Jón Laxdal
leikari, — hér viö töku
Brekkukotsannáls ásamt
Halldóri Laxness.
Hermann Pálsson, kennari i
islensku viö Edinborgarhá-
skóla, flytur opinberan fyrir-
lestur i boði heimspekideildar
Háskóla Islandsföstudaginn 3.
október 1980 kl. 17:15 i stofu
201 i Árnagarði.
Hermann Pálsson er i röö
mikilvirkustu fræöimanna er
fást viö islenskar bókmenntir
og hefur flestum eða öllum
meira unnið aö kynningu is-
lenskra bókmennta i hinum
engilsaxneska heimi meö þýö-
ingum sinum.
Fyrirlesturinn enfnist:
„Nýjar rannsóknir á Hrafn-
kels sögu”. öllum er heimill
aögangur.
Hermann Pálsson. — Hvaö
segir hann um rannsóknirnar
á byggðaleifum í Hrafnkelsdal
og Jökuldal?
Tvær af myndum Rúnu á sýningunni I Galleri Langbrók. Ljósm. —gel—
Ótæmandí möguleikar
leirsins
Einsog litillega var getiö um i
Þjóöviljanum fyrir verkfall hefur
Sigrún Guöjónsdóttir, Rúna, opn-
aö sýningu i Galleri Langbrók,
sem nú er til húsa i Landlæknis-
húsinu á Bernhöftstorfu.
A sýningunni eru steinleirs-
myndir, grafikmyndir og teikn-
ingar. Sagöist Rúna hafa gert þaö
að gamni sinu aö vinna sömu
mótiv i mismunandi efni. Svotil
allar myndirnar eru byggöar á
einhverskonar landslagi, en i
teikningunum bregður fyrir
kvenlegum formum, sem renna
saman viö landslagiö. Allar
myndirnar eru unnar á þessu ári.
— Ég byrjaöi aö vinna i stein-
leir fyrir fjórum árum, - sagði
Rúna. — Aður var ég mest I
postulini og fannst mér ég vera
oröin svolitið stöönuö i þvi, þaö
var eiginlega hætt aö vera spenn-
andi. En leirinn gefur ótæmandi
möguleika.
Leirmyndirnar eru allar þri- og
jafnvel f jórbrenndar, þvi þær eru
með mismunandi glerjungum og
svo málaöar meö postulinslitum.
Mikiö er um aö vera hjá Rúnu
þessa dagana, þvi hún á einnig
myndir á haustsýningu FIM aö
Kjarvalsstööum. Hún er formaö-
ur FIM, sem kunnugt er, og ýmis-
legt er um að vera hjá félaginu,
m.a. sýning sænska listamanns-
ins Lars Hofsjö i FIM-salnum.
--- Ég hef engin ægileg plön
um framtiöina, — sagöi Rúna aö
lokum, — maöur vinnur bara og
vinnur! En ég hef hugsað mér aö
halda áfram meö steinleirinn.
Sýningin i Landlæknishúsinu er
opin kl. 12—18 virka daga, en lok-
'uð um helgar og á kvöldin. Henni
lýkur 17. október.
—ih
Rúna: Engin ægileg plön um
framtiöina
Verkfallsheimild i Borgarnesi:
Átalid seinlæti
atvinnurekenda
Fundur Verkalýösfélags
Borgarness í fyrrakvöld
samþykkti að heimila
trúnaðarmannaráði fé-
lagsinsað boða vinnustöðv-
un á félagssvæðinu ef
nauðsyn krefur til að knýja
fram samninga.
Heimildin var samþykkt sam-
hljóöa og einnig eftirfarandi á-
lyktun um samningamálin:
„Fundur hadinn i Verkalýðs-
félagi Borgarness 29. september
1980 átelur harölega seinlæti at-
vinnurekenda aö fallast á hóf-
legar kröfur verkalýösfélaganna i
yfirstandandi samningagerö.
Fundurinn telur, aö þver-
móösku atvinnurekenda beri aö
mæta meö algerri samstööu
verkalýöshreyfingarinnar til að
knýja fram kjarasamninga, sem
feli i sér ekki minni kjarabætur en
aörir launþegar i landinu hafa
þegar fengið.”
Haraldur
Ölafsson
formaöur
Þjóöleik-
hússráös
I fyrradag skipaði Ingvar
Gislason menntamálaráö-
herra nýtt Þjóöleikhúsráö og
var Haraldur Ólafsson lektor
skipaöur formaður þess.
Aörir i ráöinu eru: Mar-
grét Guömundsdóttir, skv.
tilnefningu Bandalags is-.
lenskra leikfélaga, Gylfi Þ.
Gislason, fyrrverandi ráö-
herra, skv. tilnefningu þing-
flokks Alþýöuflokksins,
Þuriöur Pálsdóttir, söng-
ari, ' tilnefnd af þingflokki
Sjálfstæöisflokksins, Þór-
hallur Sigurðsson, leikari,
tilnefndur af þingflokki Al-
þýöubandalagsins. Haraldur
Ólafsson lektor er tilnefndur
af þingflokki Framsóknar-
flokksins.
HAUST-
FAGNAÐUR
Alþýdubandalagid í Reykjavík
gengst fyrir veglegum haustfagnaði í félagsheimili Rafveitunnar við
Elliðaár
laugardaginn 4. okt.
frá kl. 21.00—03.00
VEISLUSTJÓRI: BÖÐVAR GUÐMUNDSSON
A miðnætti verður borinn fram glæsilegur náttverður.
Forsala aðgöngumiða er að Grettisgötu 3 (Verði miöq stillt í hóf.).
Tónlist við allra hæfi.
Tryggið ykkur miða í tíma þar sem húsið tekur aðeins 160 manns.
STJÓRN ABR.