Þjóðviljinn - 02.10.1980, Side 3

Þjóðviljinn - 02.10.1980, Side 3
Fimmtudagur 2, október 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Almennur borgara fundur í kvöld: Kosninga- loggjof 1 • •• og kjor- dæmamálið Islenska mannréttinda- hreyfingin og Stúdentafélag Reykjavikur gaiigast fyrir almennum fundi i kvöld, um kjördæmamálið og kosningalöggjöfina, en stjórnarskrárnefnd hefur nú skilað fyrstu hugmyndum sinum um málið til þing- flokkanna. Frummæiendur á fundinum verða dr. Gunnar G. Schram,lagaprófessor og ráðgjafi stjórnarskrárnefnd- ar, og Jón Steinar Gunn- laugsson, hæstaréttarlög- maður, sem á undanförnum árum hefur kynnt sér ýmsar leiðir I kjördæmamálinu. Að loknum framsöguræð- um verða pallborösum- ræður, með þátttakendum frá öllum stjórnmálaflokk- um, auk framsögumanna. Frá Alþýðubandalagi verður Kjartan ólafsson fyrrver- andi alþingismaður og nú ritstjóri Þjóðviljans, frá Al- þýðuflokki verður Jón Baid- vin Hannibalsson ritstjóri Alþýðublaðsins, frá Fram- sóknarflokki Jón Sigurðsson ritstjóri Tímans og frá Sjálf- stæðisflokki Ólafur G. Einarsson alþingismaður og formaður þingflokks sjálf- stæðismanna. Fundarstjóri og stjórnandi pallborðsum- ræðnanna verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður Stúdentafélags Reykjavikur. Leyfðar verða fyrirspurnir úr sal. Fundurinn verður I Átt- hagasal Hótel Sögu, og hefst kl. 20.30. Ollum er heimill að- gangur á meðan húsrúm leyfir. Fjölskyldupólitík í kvöld að Grettisgötu 3 Dagvistar- málin eru á dagskrá 1 kvöld verður haldinn fjórði fundurinn i fundaröð starfshóps Alþýðubanda- lagsins i Reykjavik um fjöl- skyldupólitik. Að þessu sinni mun Guðrún Helgadóttir hafa framsogu um fjölskyld- una og dagvistarmálin. Sér- stök athygli skal vakin á þvi að þessi fundur er i kvöld kl. 20.30 að Grettisgötu 3 en ekki 10. þessa mánaðar eins og tvivegis hefur misritast i auglýsingu i blaðinu. Starfshópur ABR um fjöi- skyldupólitik hefur haidið þrjá almenna fundi sem eru öllum opnir. A þeim fyrsta fjallaði Guðný Guöbjörns- dóttir prófessor um ýmis skilgreiningaratriöi i sam- bandi við viðfangsefni starfshópsins, þvinæst talaði Dóra Bjarnason félags- fræðingur um unglinginn og fjölskylduna og á fundi starfshópsins fyrir viku inn- leiddi Gunnar Árnason sál- fræðingur umræður um skól- ann og fjölskylduna. A vegum starfshópsins eru geröar itarlegir úrdrættir úr framsöguerindum og um- ræöum á fundunum og liggja þeir frammi á Grettisgötu 3. Þaðer þvi engum vandkvæö- um bundið fyrir áhugafólk um þessi efni aö hefja störf með hópnum, þvi sæmilega er hægt aö glöggva sig á um- ræöum til þessa með lestri fundargerðanna. Fundir starfshópsins um fjölskyIdupóiillk hafa veriö vel sóttir. —ekh Wagner ásamt flugmönnum sinum við komuna til Reykjavikur á mánudag. — Ljósm.: —eik. Tækjaskortur, eldsneytisskortur og veðrið hefta för Vonast til aö komast af stað á föstudag ,,Ef allt gengur að óskum og veðrið verður gott vonast ég til þess að geta lagt af stað til Græn- lands á föstudag”, sagði þýski flugkappinn Wagner i samtali við Þjóðviljann i gær, en hann hefur nú verið strandaglópur hér frá þvi á þriðjudag og ekki komist af stað til Kulusuk sem er næsti á- fangastaður hinnarfifMjörfu far- ar hans til Bandarikjanna, stand- andi á þaki litillar rellu. Ýmislegt hefur orðið til þess að hefta för Wagners annað en óveð- ur á Grænlandi og bendir margt til þess að undirbúningi hafi verið mjög ábótavant. Radiótæki vélarinnar uppfylla t.d. ekki þær kröfur sem gerðar eru til flugs milli tslands og Grænlands, en þær eru að sögn Sveins Björns- sonar hjá Flugmálastjórn, að flugvélin geti verið i stöðugu radiósambandi allan timann. Wagner flýgur af skiljanlegum á- stæðum mjög lágt og þarf þvi há- tiðni radiótæki til aö uppfylla þessi skilyrði. Sagðist hann eiga von á þeim i gærdag frá Englandi. t fyrradag kom i ljós bilun á jafnvægisbúnaöi flugvélarinnar og sagði Wagner að við hana yrði gert I dag fimmtudag. Þá er enn eitt mál óleyst, en það er að fá eldsneyti i Nassasuak sem er næsti áfangastaður eftir Kulusuk. Þar er nefnilega ekkert eldsneyti að fá nema i neyðartilvikum og munu Grænlentíingarnir ekki til- búnir til þess að leyfa mönnum að reikna með slikum birgðum fyrir- fram. Wagner sagöist mundu nota daginn i dag til þess að ræða við danska sendiherrannn hér i Reykjavik um lausn á þessu máli og sagðist hann hafa góðar vonir um árangur. Takist þetta allt er það bara veðrið sem kynni að setja frekari strik i reikninginn. Aðspurður um hvers vegna þessi árstimi væri valinn til fararinnar hér norður frá, sagði Wagner að hann hefði fengið þær upplýsingar að haustið væri besti timinn, — þá væru miklar stillur og þvi hægast um vik fyrir þann ferðamáta sem hann hefur valið sér. Aætlaður flugtími til Kulusuk er 4-5 klukku- stundir en 6 klukkustundir frá Kulusuk til Nassasuak. Þetta á- samt næsta áfanga til Goose Bay eru hættulegustu hlutar leiðar- innar. —AI. Yfir 19 þúsund undirskriftir: Textun innlends sjónvarps- efnis Menntamálaráðherra voru i gær afhentar undirskriftir 19.311 manns undir kröfu um að texti verði settur á allt efni sem flutt er á islensku i sjónvarpi til að heyrnarlausir og heyrnarskertir geti notið þess. „Þetta er krafa um jafnrétti til handa fólki, sem ætlast er til af, að fylgjast með þróun þjóðmála til jafns við okkur, sem heyrandi erum. En einhvers staðar að verður sú vitneskja að koma”, benda þau á sem fyrir undir- skriftasöfn minni hafa staðiö, Erla Magnúsdóttir, Halldóra Jónsdóttir og Magnús Viðir. Þau segjast gera sér grein fyrir, að framkvæmdin geti orðið erfið, td. þegar um er að ræða þætti i beinni útsendingu en samt mætti skjóta inn i þá skýringum, sbr. nöfn þátttakenda. Æskilegt væri þá, að efni slikra þátta væri dregið saman og flutt, td. i frétta- tima, einu sinni i viku eða á annan hátt. Ekki er talið nóg að settur verði texti á fréttir eingöngu. Til frétta heyra þættir svo sem iþrótta- þættir, Vaka, Umheimurinn, eða sá þáttur sem tekur við af honum, Nýasta tækni og visindi svo og ýmsir fræðsluþættir, sem nær eingöngu eru fluttir með islensku tali, og fara þvi fyrir ofan garð og neðan hjá þeim sem ekki heyra. Sömu sögu er að segja um öll is- lensk leikrit og kvikmyndir, sem og aðra islenska menningarvið- burði. Pingflokkur krata: Síldin í sumarfríi! — Við erura nú ekkert byrjaðir á sildarsöttun ennþá þvi við erum eingöngu með hringnótabáta og þeir eru ekki farnir af stað enn, Ekkert rætt viö flugfreyjur Mál flugfreyja er enn i biðstöðu i og hefur ekkert verið við þær rætt ] siðan i fyrri viku, að þvi er Gréta { Onundardóttir i stjórn Flug- j freyjufélags Islands sagði Þjóð- | viljanum. Fundur var haldinn | i félaginu á mánudag og þar sam- j þykkt eftirfarandi ályktun: „Félagsfundur i Flugfreyju- 1 félagi tslands itrekar þá kröfu ] félagsins að flugfreyjur og flug- j þjónar verði endurráðin eftir ] starfsaldri. sagði Pétur Jóhannsson hjá sölt- unarstöðinni Stemmu i Þorláks- höfn. — Hinsvegar hafa þeir feng- ið hér góðan afla I reknet, bætti Pétur við, — og það er i fyrsta skipti um langt árabil sem þeir hafa fengið síld fyrir vestan Vestmannaeyjar. Og það hefur verið örstutt að sækja, þvi sildin hefur verið beint suður af Þorlákshöfn og vestur undir Sel- vogi. Aflinn hefur leikið þetta á 90—140 tunnum og verður að telj- ast gott, sagði Pétur Jóhannsson. Við ræddum einnig við þá Bald- ur Sigurðsson og Jón Arnason hjá Söltunarstöð Guðna og Borgum. Baldur sagði þá vera rétt að byrja söltun, búnir að salta 1192 tunnur og var það mest reknetasild. Hann sagði sildina mjög góða. — Þetta er netaveiði, sagði Jón Arnason, — það er aðeins einn hringnótabátur byrjaður veiðar og hann fékk 30 tonn við Surtsey, i gær. Sildin er ágæt, sagði Jón,,,og það er óvenjulegt aö hún virðist vera umhverfis allt landið þó að hún sé sein að komast á sinar venjulegu vetrarslóðir, e.t.v. vegna þess að sjórinn er óvenju hlýr svo hún hefur tekið sér lengra sumarfri”. En það er daufara yfir sildveið- unum hjá þeim á Höfn i Horna- firði. Þar vottaði fyrir sild rétt fyrst en siðan ekki söguna meir og nú er alger ördeyða, og hefur svo verið i hálfan mánuð, sagði Guðmundur Guðmundsson, verk- stjóri hjá söltunarstöðinni Stemmu á Höfn i Hornafirði i gær. Og Guðmundur bætti við: — En sildin er einþykk og ekki á þvi að vera alltaf þar, sem maður vill helsthafa hana. En við vonum hið besta og viljum ekki trúa öðru en hún komi á þetta svæði. Við verð- um rólegir svona fram um miðjan mánuðinn en úr þvi förum við nú að ókyrrast ef engin hreyting verður á. —mhg Krefst skýrslu um málefni Flugleiða Þingflokkur Alþýöuflokksins ætlar við upphaf þings i næstu viku að fara þess á lcit, að Stein- grimur Hermannsson samgöngu- ráðherra flytji alþingi skýrslu um málefni Flugleiða svo fljótt sem verða má og skýrslan verði tekin til umræðu. Vilja þeir Alþýðuflokksþing- menn að i skýrslunni verði allar upplýsingar sem rikisstjórnin hefur undir höndum um mál Flugleiða, þ.á. m. um eignastöðu fyrirtækisins og rekstrarafkomu og auk þess skýrt frá öllum af- skiptum, sem rikisstjórnin hefur haft af málefnum félagsins, þ.á.m. hvaða skuldbindingar rikisstjórnin ýmist hefur undir- gengist eða hyggst undirgangast i þvi sambandi og hvaða skilyrði sett kunna að vera i tengslum við það. Kaffistofur stúdenta Opnar í hádeginu Félagsstofnun Stúdenta vinnur um þessar mundir að nokkrum breytingum á starfsemi sinni. Kaffistof- ur stofnunarinnar sem eru til húsa í flestum bygging- um á háskólalóðinni færa út kvíarnar og munu selja eitthvað matarkyns í há- deginu, en hingað til hafa þær aðeins verið opnar á kaff itímum. Að sögn Skúla Thoroddsen framkvæmdastjóra F.S. á að bjóða upp á hamborgara, pizzur og heitar súpur, auk brauðs og kaffis og létta þar með álaginu af matstofunni þar sem löngum má sjá langar biðraðir um há- degisbilið. t september var gerð tilraun með að hafa kaffistofurnar opnar frá kl. 9-15.30 daglega. Ekki ligg- ur fyrir ennþá hvernig reksturinn gekk, en ákveðið er að halda á- fram i ve;tur. Þessar breytingar eru geröar i samráði við starfs- fólk að sögn Skúla. —ká Kaffistofan I Árnagarði býður nú upp á snarl í hádeginufeins og aðrar kaffistofur á háskólasvæðinu. Ljósm.: eik

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.