Þjóðviljinn - 02.10.1980, Side 7
Fimmtudagur 2. október 1980. WÓðViLJINN — SIÐA 7
árum þegar næg raforka er til
eöur ei. Þetta væri þvi þjóöhags-
lega óhagkvæmur kostur enda
þótt þaö gæti tryggt rekstrar-
afkomu kyndistööva fjarvarma-
veitna.
Athugasemdir
viö grein Heimis
Sveinssonar
Heimir Sveinsson, tæknifræö-
ingur, hefur ritaö grein um þessi
mál, sem birtist i dagblööunum
Timanum og Þjóöviljanum 10. og
11. september. Þar segir hann
m.a. aö virkjunarkostnaöur sé 300
þús.kr/kW fyrir smávirkjun eins
og Fjaröarárvirkjun. Þetta fær
engan veginn staöist, þvi aö sam-
kvæmt skýrslu VST um Fjaröar-
árvirkjun útgefinni i mai 1975 má
áætla aö virkjunarkostnaöur fyrir
þá virkjun sé um 800 þús. kr/kW,
ef gengiö er út frá verölagi i júli
1980. Til samanburöar má geta
þess, aö þessi kostnaöur er um 365
þús. kr/kw fyrir Blönduvirkjun.
Þaö viröist vefjast fyrir mönn-
um aö skilja þaö, aö hagkvæm-
ustu virkjanir fyrir hinn almenna
markaö landskerfisins eru af
stæröargráöunni 100—200 MW,
þ.e. án þess aö til komi stóriöju-
notkun. Minni virkjanir geta fyrst
og fremst átt rétt á sér fyrir ein-
angruö landssvæöi, sem of dýrt er
aö tengja landskerfinu. Austur-
land tengdist landskerfinu siöla
árs 1978 og virkjun i Fjaröará i
Seyöisfirði er ekki fjárhagslega
samkeppnisfær viö aöra valkosti i
dag.
1 grein sinni kemur Heimir inn
á það, að raforkuverö til húshit-
unar sé of hátt, eöa um 18,30
kr/kWh hjá Rafmagnsveitum
rikisins,og aö lækka megi veröið
niður i 12,80 kr/kWh. Þetta stenst
ekki við núverandi aöstæöur.
Rafmagnsveitur rikisins greiða i
dag 13,92 kr/kWh fyrir raforku
inn á Norðurlinu og á sama veröi
er raforka frá Kröfluvirkjun
reiknuð. Þaö eru þvi 4,38 kr/kWh
sem Rafmagnsveitur rikisins fá i
sinn hlut af þessum 18,30 kr/kWh.
Fyrir það flytja Rafmagnsveitur
rikisins orkuna eftir Byggöalin-
um, i gegnum aöveitustöðvar á
Byggðalinum, eftir 66/33 kV
stofnlinukerfi sinu, i gegnum
aöveitustöðvar viö þéttbýlisstaöi,
eftir 11 kV háspennukerfi i bæj-
um, i gegnum dreifistöövar þaöan
sem orkunni er siöan dreift á lág-
spennu (380 V) til notenda. Aö
visu er flutningur og dreifing á
orkunni eftir innanbæjarkerfum
ekki kostnaöarsöm, en raf-
hitunarnotendur verða að greiöa
sinn þátt i flutningsvirkjum eins
og aörir notendur. Ef selja á raf-
magn til húshitunar á kostnaöar-
veröi þurfa Rafmagnsveitur rik-
isins aö fá a.m.k. 5 kr/kWh fyrir
flutning og dreifingu eftir kerfum
sinum og er þá ekki tekið inn i þaö
dæmi kostnaöur viö flutninga eft-
ir Byggöalinum.
Þess má geta aö aökeypt raf-
orka frá Landsvirkjun var um 492
GWh á árinu 1979 eða 68,6% af
heildarraforkuöflun Rafmagns-
veitna rikisins þaö ár. Af framan-
rituðu má sjá, að verö á raforku
til húshitunar er sist of lágt. Verð-
lagning á raforku frá Landsvirkj-
un er kapftuli út af fyrir sig, og
veröur ekki nánar ræddur hér.
Það er út af fyrir sig rétt hjá
Heimi Sveinssyni, aö varaafl (i
svartoliukötlum) R/O-veitna nýt-
ist aðeins til upphitunar á þeim
húsum, sem tengd eru fjar-
varmaveitu. Hluti af þeim hús-
um, sem áætlað er að tengist fjar-
varmaveitu á Neskaupstaö.er i
dag hitaöur upp meö raftúpum.
Viö þaö minnkar sá hluti afls,
sem varaafl i dieselvélum þar aö
sjá um, og mundu þvi þau 3 MW i
dieselafli, sem til eru á Neskaup-
staö i dag, duga mun lengur en
ella.
Viö truflanir í raforkukerfinu
t.d. vegna istruflana viö virkjan-
ir, linubilanir i stofnlinukerfum
o.fl. kemur þó hiö ódýra varaafl i
svartoliukötlum i góöar þarfir
ekki aöeins fyrir Neskaupstaö
heldur einnig fyrir kerfiö i heild,
þar eö aftengja má rafskauts-
katla kyndistööva frá kerfinu og
létta þar meö fjarvarmaveitu-
álagi af þvi. Breytilegur kostn-
aöur við að framleiöa 1 kWh af
heitu vatni meö svartoliu i kyndi-
stöö er um 20% af kostnaöi viö aö
framleiöa 1 kWh af rafmagni meö
dieselvélum. Auk þess er stofn-
kostnaöur viö hvert 1 MW af upp-
settu afli i dieselvélum a.m.k. tiu
sinnum meiri en fyrir hvert 1 MW
af pppsettu afli i svartoliukötlum.
1 framkvæmdaáætlunum Raf-
magnsveitna rikisins hefur veriö
gert ráö fyrir nýrri linu til Nes
kaupstaöar eftir 7—8 ár miöaö viö
þaö, aö bein rafhitun yröi ráöandi
þar. Til þess aö halda uppi sæmi-
legu varaafli fram aö þeim tima
er ný lina tengist hefur verið
miöaö viö aö bæta viö um 1,5 MW
i dieselvaraafli i Neskaupstaö
1983. Kostnaöurinn við þaö er
a.m.k. 200 Mkr. á verölagi i dag
og er þá reiknaö meö aö ekki þurfi
aö auka viö húsrými diesel-
stöövarinnar, en það þarf nánari
athugunar við.
Til samanburðar má geta þess,
aö kyndistöö fjarvarmaveitu á
Neskaupstaö, sem dugir fram yf-
ir aldamót,er áætluö muni kosta
um 350 Mkr. á sama verðlagi. 1
dag eru umrædd 3 MW i varaafli i
Neskaupstaö 75% af hámarksafl-
þörf staöarins, en minnkar i um
45% 1982. Eftir aukningu á
varaafli 1983 veröur þaö væntan-
lega um 62%, en minnkar úr þvi
og veröur um 48% 1986. Meö til-
komu nýrrar linu 1987 veröur ekki
þöcf á auknu varaafli fyrir stað-
inn a.m.k. fyrst um sinn. Til sam-
anburöar má geta þess, aö ef
fjarvarmaveita kemur á Nes-
kaupstaö mun samsvarandi hlut-
fall varaafls af hámarksaflþörf
staðarins verða um 87% 1990, en
ný lina kæmi þá um 1992 i þessu
tilviki vegna seinkunaráhrifa
fjarvarmaveitunnar.
Lokaorð
Fyrir dyrum stendur
ákvaröanataka um það, hvort
farið veröur út i fjarvarmaveitur
viöar en á Höfn og Seyðisfiröi.
Eins og áður kom fram er það
mat stjórnenda Rafmagnsveitna
rikisins aö stefna beri að blöndu
af fjarvarmaveitum og beinni
rafhitun á þeim svæöum þar sem
talin er litil von um aö heitt vatn
finnist i jörðu. Rafmagnsveitur
rikisins biöa eftir svari frá
Landsvirkjun um verö á raforku
til kyndistöðva fjarvarmaveitna.
Þaö mun væntanlega liggja fyrir
um næstu mánaöamót.
Ef samningar takast viö Lands-
virkjun um verö á raforku til
kyndistööva, sem Rafmagnsveit-
ur rikisins telja hagstætt,munu
þær væntanlega veröa reiöubúnar
til að reisa og reka kyndistöövar i
allt að sex þéttbýlisstööum. Viö-
komandi sveitarfélög veröa hins
vegar sjálf aö ákvaröa hvort þau
treysta sér til þess að byggja og
reka dreifikerfi fyrir fjarvarma-
veitu og afhenda orkuna til not-
enda á samkeppnisfæru verði. Ef
svo veröur ekki og ef ekki takast
samningar um verö á raforku til
kyndistööva f jarvarmaveitna
mun vart veröa af frekari fram-
kvæmdum á þessu sviði aö sinni.
Til þess aö tryggja rekstrar-
grundvöll kyndistöðvanna á Höfn
og Seyöisfiröi yröi raforka keypt
frá Landsvirkjun eftir almennri
gjaldskrá, en nýtingartimi auk-
inn m.a. meö þvi aö kynda meö
svartoliu i kyndistöövunum á
þeim timum, þegar mest aflnotk-
un veröur i raforkukerfunum. 1
öörum þéttbýlisstööum munu
Rafmagnsveitur rikisins stefna
að þvi, að hægt verði að anna eft-
irspurn eftir beinni rafhitun á
næstu 3—4 árum meö styrkingu á
innanbæjarrafdreifikerfum og
uppbyggingu á stofnlinukerfum
svo og aöveitustöövum.
Rétt er aö geta þess hér, aö eitt
af þvi sem skiptir aðalmáli um
hver fjárhagsleg afkoma fjar-
varmaveitna veröur er þaö, hvert
samband veröur á milli lánskjara
á þvi fjármagni, sem veitt veröur
til þeirra,og hækkunar á sölutöxt-
um veitnanna. Gera veröur ráö
fyrir aö þeir hækki svipaö og
annaö verölag i landinu, enda þótt
timabundnar sveiflur geti orðið.
Leggja verður rika áherslu á það,
aö fá sem hagstæöust lánakjör, en
slikt mundi tryggja enn frekar
góöa afkomu kyndistööva og
dreifikerfa fjarvarmaveitna og
leiða til þess, aö meiri möguleiki
yrði á þvi aö lækka sölutaxta til
notenda þegar fram i sækti.
Miiming
Soffía Túvína
Soffia Túvina lést i Land-
spitalanum 11. september. Ctför
hennar var gerð frá Frikirkjunni
þann 18. september aö viö-
stöddum fjölmennum hópi vina
og kunningja.
Margir hafa skrifað um Soffiu
og rakiö æviferil hennar og mun
ég ekki reyna þaö i þessum fáu
linum, sem eiga að vera þakk-
lætisvottur fyrir þá vináttu og
kærleika sem Soffia sýndi okkur
þau ár sem hún dvaldi hér á landi
á heimili Arna sonar mins og
Lenu dóttur sinnar.
Þegar við hjónin komum i
heimsókn var það ekki sist við-
mót og hlýja Soffiu sem geröi
dvölina þar skemmtilega og
bjarta. Hún var sérstök persóna.
Hún lét sér ekkert óviökomandi. 1
fjölskyldunni var ekkert kyn-
slóöabil, þvi hún tók þátt i öllum
störfum heimilisins, haföi
vakandi auga meö öllu og þá ekki
sist börnunum, Snorra og Olgu.
Þeirra missir er mikill, en það
var þeim lika mikið lán að hafa
getaö notiö Soffiu i svo rikum
mæli á uppvaxtarárunum.
Ég hefi oft sagt, að ekki væru
jafnmiklir erfiöleikar með gamla
fólkiö og nú er einatt rakið ef
sambúðin við þaö væri yfirleitt
eins jákvæð og var með Soffiu og
hennar fólki.
Nú aö leiðarlokum flyt ég henni
þakkir og virðingu fyrir alla
Soffia Túvina
hennar umhyggju og velvild mér
og minum nánustu til handa.
Hvili hún i friði.
Halldóra Arnadóttir.
„Leiðarlýsing Vestur-
Skaftafellssýslu”
Ritlingur meö ofanskráöu nafni
komst i umferö laust fyrir siöustu
„verslunarmannahelgi”. Útgef-
endur hans eru nokkrir mætir
Mýrdælingar sem telja sig hafa
áhuga á ferðamálum. Þetta
framtak þeirra er mjög lofsvert
þvi allmikils veröur ókunnugur
feröamaöur visari ef hann hefur
ritlinginn i höndum þó viöa sé frá-
sagnarstillinn all-torskilinn aö
dómi ýmsra er hafa ætlaö sér aö
sækja fræöslu í hann.
Ekki ætla ég mér aö gera neina
árás á þessa vini mina sem aö út-
gáfunni standa, en þar sem ég
skrifaöi Arbók Feröafélags Is-
lands 1975 sem var um Mýrdalinn
tel ég mig tilney ddan aö mótmæla
nokkrum atriöum i þessari nýju
leiðarlýsingu þar sem sannleik-
anum er skarpast snúið við og
mest stangastá við frásögn mina.
1 leiðarlýsingu þeirra félaga
stendur um bæinn Fell:
„Fell stórbýli og prestssetur
áður fyrr sunnanundir Fells-
fjalli”. Þarna er vart um hálfan
sannleik aö ræöa þvi fram aö siö-
ustu aldamótum stóö bærinn
vesta n undir sunnanveröu f jallinu
en fluttur þá austur með hliöinni
undan ágangi Klifandi er var að
brjóta og aurkæfa land jarðarinn-
ar.
Um Loftsalahelli segir:
„Þar var þingstaöur Dyrhóla-
hrepps til ársins 1900”. Guö-
laugur Guömundsson sýslumaöur
hélt siöasta manntalsþing þar
1901. Viö Vatnsá stendur: „Kár-
hólmar eru niöur meö ánni. Þar
feldi Kári Sölmundarson nokkra
af brennumönnum aö sögn Njáls-
sögu”. Hér átti nú fyrst og fremst
aöstanda „Kárhólmi” þvi svo hét
bærinn meðan þar var búiö, og i
öðru lagi hefur sagngeymd Mýr-
dæla ætið viljað láta Kára vega
brennumenn i nesi þvi er syöst er
i Kerlingardalstúni og aö þar séu
þeir dysjaöir, enda sá staður þá i
þjóöbraut.
Skiphellir; um hann segir i
Leiðarlýsingu:
„Þaðan var áöur útræöi sem
tók af f Kötluhlaupi 1723,þá var 12
faöma dýpi skammt frá Skiphelli,
hjá Skorbeinsflúöum hjá Víkur-
hömrum þar sem þjóövegurinn
liggurnú”.Um þettasegirsr. Jón
Salomonsson i sinni ágætu lýs-
ingu af Kötlugosinu 1660, tekið
oröréttúrskýrslu sr. Jóns:,,Þetta
hlaup (þ.e. 1660) tók af útræöi viö
Skiphelli, svo frá hellinum eru nú
400 faömar til sjávar, en fyrir
þetta hlaup var sjórinn rétt viö
Skiphellisnefiö. Lika tókst af út-
ræði viö Vikurklett, þaö var milli
Askvikur og Krukkshellis. Fyrir
þetta hlaup lá sjórinn fast viö
Skorbeinsflúöir. Var þar svo
mikið djúp aö skip sátu þar á 16
faöma djúpi svo sem 40 faöma frá
berginu”.
Þarna virðist höfundur leiöar-
lýsingar hafa meira en litiö rugl-
asti' riminu þegar við þaö sem aö
framan er sagt bætist aö Skor-
beinsflúöir eru litiö vestan viö
miðja Fagradalshamra en ekki
hjá Vikurhömrum eins og hann
vill vera láta.
Leiðarlýsing segir um Vik:
„Þar voru aöeins tvö býli
Suður-Vik og Noröur-Vik fram til
aldamóta”. Att mun viö siðustu
aldamót, en iskráöum heimildum
frá 1900 eru talin sex ibúðarhús i
Vik utan Suöur- og Noröur-VIkur;
fyrsta ibúðarhúsiö niður á sandi
reisti Einar Hjaltason árið 1895.
Þá viröist mér litt greinileg sú
frásögn þar sem segir, aö um
Brandslæk liggi hreppamörk
Dyrhóla og Hvammshreppa. Rétt
er aö áþjóövegil og c.a. 400 m. til
suöurs eru mörkin um lækinn en
að ööru er hann innan hreppa-
marka Hvammshrepps. Þetta
heföi veriö hægt aö segja I mjög
fáum oröum.
Þessar athugasemdir læt ég
nægja aö sinni, og lái mér hver
sem vill þó ég taki þvi ekki þegj-
andi aö ráöast svo aftan aö mér
sem gert er i umræddri leiðarlýs-
ingu meö þvi aö rengja á fleiri
stööum frásögn mina i Arbók F.l.
1975 án þess aö tilgreina traustari
heimildir en ég haföi i höndum.
Þá er ég ekki sérlega hrifinn af
þvi að fariö var aö kynna mig aö
mér forspuröum i umræddum
bæklingi þvf ekki er laust við aö
þaö hafi valdið mér litt skemmti-
legum átroöningi. Læt ég hér
staöar numiö og vona aö þeir
góöu menn sem aö Leiðarlýsing-
unni stóöu láti ekki þar staöar
numið, en sendi a næsta ári
frá sér framhald þar sem frum-
smiöac . agnúarnir verði sniönir
af og framsögn skýrari og
áreiöanlegri, þvi svona feröabæk
Jingargeta veriö ómetanleg feröar-
uppbót ef vel er til þeirra vandað,
og mætti þessi byrjun þeirra
félaga gjarna vera hvatning
lil annarra’sýslna að senda' frá
sér stuttar skýrar leiðarlýsing
ar íyrir ókunnuga ferðamenn.
Skrifað á höfuödag 1980
Einar H. Einarsson,
Skammadalshóli.
UTBOÐ
Stjórn Verkamannabústaða i Reykjavik
óskar eftir tilboðum i eftirtalda verk- og
efnisþætti i 60 raðhúsaibúðir i Hólahverfi.
1. Blikksmiði.
2. Hreinlætistæki og fylgihluti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu VB
Mávahlið 4 frá fimmtudeginum 2. okt.
Tilboð verða opnuð miðvikudaginn 15. okt.
á Hótel Esju 2. hæð kl. 14.00.
Stúdentakjallarinn
Klubbur eff ess
DJASS
I
KVÖLD
kl. 9—11.30.
Nýja kompaníld,
Tómas Einarsson
og félagar, leika.
Stúdentakjallarinn
Klúbbur eff ess
v/Hringbraut.