Þjóðviljinn - 02.10.1980, Side 12

Þjóðviljinn - 02.10.1980, Side 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. október 1980. skáh Umsjón: Helgi ólafsson (Ég hygg að Friðrik rati þarna á rétta uppbyggingu. Hann fær upp áþekka stöðu og stundum kemur upp úr Caro-Kann vörn en samt með eilitið meiri sveigjanleika, þvi að d-peðið hans er á d6 en ekki á d5.) Stöðumynd yarð illt Sá sem þessar linur skrifarhef- ur I u.þ.b. 4 ár dundað sér við að skrifa um skák fyrir Þjóöviljann, sjálfum sér og ugglaust öörum til leiöinda. Eða hvernig á að skýra siðasta skákþáttinn sem birtist i Þjóðviljanum i gær (þ.e.efþessi fær inni)? En þar mátti sjá hjá- kátleg mistök i formi stööumynd- ar frá Haustmóti TR, sem, eins og kunnugt er, hófst siðastliöinn sunnudag. Stöðumyndin var Ur biðskák Elvars Guðmundssonar og Karls Þorsteins, en svo baga- lega var hún samansett aö bæði vantaði i hana heilt peö, sem gef- ur til kynna aö greinarhöfundur hafi veriðað flýta sér, og svo var einu peði óleikið, sem i sjálfu sér skiptir minna máli, þvi að sá peðsleikur var hvort eð er þving- aður. Stööumyndin er þessi: Þeir sem hafa blaðið i gær fyrir framan augun á sér geta komið auga á, að svart peð á h6 hefur vantað, og rétt áður en skákin fór i bið lék Elvar f4-f5 þannig aö Karl hefur leikið biðlei. Eru við- komandi innvirðulega beönir af- sökunar og svo náttúrulega allir þeir sem svo rækilega voru hafðir aö fiflum. 2. umferð á Haustmótinu var tefld i gærkvöld en ógerlegt er að birta úrslit i blaðinu i dag þvi að úrslit lágu það seint fyrir. Þeir sem áttust viö i A-riðli voru þess- ir: Bragiog Jóhann örn, Gunnar og Elvar.Karlog Björn, Júliusog Stefán, Dan Hanssonog Margeir og svo Asgeir og Sævar. Eins og drepið var á i gær, er mótið ákaflega vel skipað að þessu sinni og er langt i samjöfn- uð, og þvi margar skemmtilegar viðureignir sem fram fara i þessu móti. Skák dagsins er ekki frá Haust- mótinu, heldur frá öðru móti ekki ómerkara, en það er 3. Helgarmót timaritsins Skákar sem fram fór á Isafirði og Bolungarvik snemma i ágústmánuð. Ég hygg að þessi skák hafi ekki áður birst i dagblöðunum, en hún hafði mikil áhrif á gang mála og var tefld I siðustu umferð milli Margeirs Péturssonar og Friðriks Ólafs- sonar: Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Friörik ólafsson Kóngsindversk vörn 1. d4-Rf6 2. Rf3-g6 3. Bg5 (Eitthvað á þessa leið hefur Kasparov nokkrum sinnum teflt.) 3. ..-Bg7 4. Rbd2-c5 5. e3-cxd4! 6. exd4-Rc6 7. c3-d6 9- 0-0-h6 8. Bd3-0-0 10- Bh4-Rh5! (Friðrik hefur brugðið fyrir sig áþekkri hugmynd i Caro-Kann vöminni (d-peð á d5) og unnið góðan sigur, ég held á Svæðamóti i byrjun 6. áratugsins. Þaö var sýnilegt að Margeir þekkti ekki vel til þeirrar skákar, þvi að að nú hugsaði hann sig lengi um.) 11. Hel-f5 13. Rxe5-dxe5 12. d5-Re5 14. Rc4? (Gefur peð eftir baráttulaust. Betra var einfaldlega 14. Bc4.) 14. ..—Rf4! 15. f3 (Eftir 15. Rxe5 tapar hvitur manni: 15. — Rxd3, 16. Dxd3 g5 o.s.frv..) 15. ..*Dxd5 (Friðrik hefur unniö peð og eitt peðgetur skipt höfuömáli. Þannig er skáklistin kapitalisk I eðli sinu.) 16. Bfl-Dc5+ Khl-b5 17. Bf2-Dc7 20. Re3-Hd8 18. Bg3-Kh7 21. Dcl (21. Dc2 kom ekki siöur tii álita.) 21. . .-Rd3 22. Bxd3-Hxd3 23. Rc2-Bb7 24. Rb4-Hd7 25. He2-Dc5 26. Del-e4 27. fxe4-Bxe4 28. Rc2-e5 29. Hxe4 (Það er örugglega rétt ákvörðun hjá Margeiri að gefa skiptamun i þessari stöðu. Að öðrum kosti hreinlega flæða menn svarts yfir hann.) 29. ,.»fxe4 32. Hel-Hxb2 30. Dxe4-Had8 33. h4-h5 31. Re3-Hd2 34. Rf5 (Skemmtileg mannsfórn sem þó breytir litlu um gang mála.) 34. ,.-Dd5 (öruggast.) 35. Dxd5-Hxd5 37. Bxe5-Kf7 36. Rxg7-Kxg7 38. c4 38. .. — Hxe5 (Hrókasendatafliö sem nú fer i hönd er algerlega óverjandi fyrir hvitan.) 39. Hxe5-bxcj 40. Hc5-Hb4 ' 41. Kh2 (Eöa 41. Hc7 Ke6, 42. Hxa7 Kd6 og f ör c-peðsins upp i' borð veröur ekki hindruð með góðu móti). 41. ..-Ke7 42. g4-Kd6 43. Hc8-hxg4 44. Kg3-Kd5 45. Hd8+-Ke4 46. He8 + -Kd3 47. Hd8 + -Kc2 48. Hd4-Kc3 49. Hd7-Kb2 — og hvitur gafst upp. Menningartengsl tslands og Ráðstjórnarrikjanna — MIR SOVÉSKIR DAGAR 1980 Nokkur dagskráratriði Sovéskra daga 1980 með þátttöku listamanna frá eistneska sovétlýðveldinu: Föstudagur 3. okt. kl. 20:30: Opnun sýningar á eistneskri myndiist og nytjalist i Listasafni ASI, Grensásvegi 16. Eistneskir listamenn skemmta. Laugard. 4. okt. Tónleikar og danssýning i Vestmanna- eyjum. Mánud. 6. okt.Tónleikar og danssýning i Þjóðleikhúsinu. Þriðjud. 7. okt. Tónleikar og danssýning i Neskaupstað. Miðvikud. 8. okt.Tónleikar og danssýning á Egilsstöðum. Laugard. 11. okt.kl. 16. Tónleikar og danssýning i félags- heimilinu Gunnarshólma, Austur-Landeyjum. Aögangur að opnun sýningarinnar i Listasafni ASl er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Miöasala á tónleikana og danssýninguna i Þjóðleikhúsinu er i leik- húsinu. MIR. Umsjón: Magnús H. Gislason Frá UlA: Ársþing UIA, hið 37. í röðinni, var haldið á Borgarfirði eystra 13.—14. sept. sl. Tæplega 40 fulltrúar sátu þingið. Um hvað skyldu þessir þrir forráöamenn UIA vera að fjalla? Frá v.: Sigurjón Bjarnason, Pétur Eiðsson og Jóhann Hansson. Mikið um að vera auk gesta. Meðal gesta var Sveinn Björnsson, forseti ÍSI, og flutti hann ávarp og kveðjur frá stjórn (Sí. Stjórn Sambandsins, fram- kvæmdastjórar þess og öll iþróttaráð UIA fluttu ýtarlegar skýrslur um starf samtakanna á liðnu starfsári. Þar kom fram, að mikið starf er unnið um þessar mundir i þeim rösklega 20félögum, sem standa að Ung- menna- og iþróttasambandi Austurlands. Miklar umræður urðu um það fjármagn, sem stjórn UIA leggur i frjálsar iþróttir umfram aðrar iþrótta- greinar, og sýndist þar sitt hverjum. Mest lif er þó i knatt- spyrnunni, en þar tefla félögin fram eigin liöi, hvert fyrir sig. Akveðið var að hefjast handa Hermann Nielsson um byggingu þjónustumið- stöðvar að Eiðum, þar sem i fyrsta áfanga yrði reist hrein- lætisaðstaða og búningsaðstaða við Iþróttavöllinn, sem þar er. Mikið var fjallað um fjármál Sambandsins, en það er sá liður, sem alltaf stendur starfinu mest fyrir þrifum. Þingfulltrúar sátu kvöld- verðarboð sveitarstjórnar Borgarfjarðar, þar sem hrein- dýrasteik var á borðum. Ung- mennafélag Borgarfjarðar bauð til kaffisamsætis auk þess sem ungmennafélagið stóð fyrir kvöldvöku og dansleik að henni lokinni. Undanfarin ár hefur UIA haft fastan starfsmann á skrifstofu sinni að Selási 11 á Egilsstöðum. Núverandi framkvæmdastjóri er Sigurjón Bjarnason. Eftir- taldir skipa stjórn UIA næsta kjörtimabil: Hermann Niels- son, formaður, Dóra Gunnars- dóttir, varaformaður, Jóhann Hansson, gjaldkeri, Björn Björgvinsson, ritari, Guö- mundur Gislason, Eskifiröi, meðstjórnandi. Pétur Eiðsson. Eyjarnar síga Frá fréttaritara okkar i Vest- mannaeyjum, Magnúsi Jó- hannssyni frá Hafnarnesi: Atvinnuhjólin farin að snúast Þegar þessir pistlar eru skrifaöir, þann 18. sept. er atvinna hér í Eyjum farin að glæðast, unnið 8—10 tíma á dag. Síldar hefur orðið vart vestan við Eyjar eða nánar til- tekið um Þrídrangaslóð- ina og vestar. Bátarnir hafa verið að fá 50—100 tunnur af góðri síld. Nokkrir bátar eru á trolli en afli er misjafn. Þó hafa bátar, sem sigla með af lann, fiskað vel og gert úrvals sölutúra. Til dæmis seldi Bylgjan fyrir rúmlega 700 kr. hvert kg. Aðalfundur TafIfélagsins Taflfélag Vestmannaeyja hélt aðalfund sinn sl. mánudags- kvöld i Alþýðuhúsinu. I skýrslu stjórnar kom fram, að blómlegt starf var hjá félaginu á sl. starfsári, sem hófst 15. sept. 1979 og lauk með bæjarkeppni við Akureyri i lok júli sl. Stjórn félagsins var öll endurkjörin en hana skipa: Ólafur Hermanns- son, formaöur, Óskar Sig- mundsson, gjaldkeri, Ágúst Ó. Einarsson, ritari og Lúðvik Bergvinsson, áhaldavörður. Spilavist á Elliheimilinu Byggingaþróunarnefnd JC hefur tekiö að sér að gangast fyrir spilakvöldum fyrir aldraða i Hraunbúðum. Allir ellilifeyrisþegar eru boðnir vel- komnir til þessa spilakvölds, sem verður með þeim hætti, að spiluö verður félagsvist, 12 um- ferðii’. Þarna verða veitt verð- laun fyrir bestu útkomu karl- fremur en hitt manns og kvenmanns. A eftir verða svo kaffiveitingar og sið- ast en ekki sist hefur verið feng- inn harmonikuleikari til að leika við þetta tækifæri. Kannski fær gamla fólkiö sér snúning smá stund, þvi margt af þvi er létt i anda og furðu sprækt á fæti. Litvæðing hjá Óskari Óskar Björgvinsson, ljós- myndarinn góði, hefur nú fest kaup á tækjum til litmynda- framköllunar á stofu sina. Er hér um að ræða stækkara, með litgreiningarútbúnaði og svo framköllunarvél. Með þessum tækjum getur stofan annað flestum óskum viðskiptavina á mun skemmri tima en áður, þar sem kaupa þurfti alla fram- köllun annarsstaðar frá. Óskar er nú að gera viðeigandi breyt- ingar, en stofan er þó opin eins og venjulega. En á næstu vikum munu litmyndirnar, fram- leiddar á staðnum, sjá dagsins ljós. Jarðsig á Eyjasvæði Starfsmenn Norrænu eldfjalla- stöövarinnar, i samvinnu viö Vestmannaeyjabæ, hafa fylgst nokkuð reglulega með jarð- skorpuhreyfingum i Eyjum og Mikil aö Hvanneyri Mikill áhugi er á búnaðar- námi og meiri en hægt er að anna á Hvanneyri. Þar er hægt að taka á móti i mesta lagi 110 nemendum en 130 sóttu um skólavist. Um allmörg undanfarin ár hefur búnaðarnám verið einn vetur á Hvanneyri, en nú verður eru m.a. með tvo siritandi hallamæla staðsetta hér. Er annar á Stórhöfða en hinn viö ráðhúsið. Fyrir skömmu fram- kvæmdu þeir mjög nákvæmar fjarlægðarmælingar með laser- geislatækni og kom i ljós, að fremur á sér stað landsig en ris við Eyjar. Frá þvi siðast var mælt hafa hinir föstu mæli- punktar nálgast um 4 senti- metra og er það að mati jarðvis- indamanna jákvæð þróun. Ný tölvusamstæða Um miðjan ágúst sl. var tekin i notkun hjá Bæjarsjóði Vest- mannaeyja ný tölvusamstæöa frá IBM, system 34, en það er samskonar tækjakostur og tölvudeild Samfrosts hefur haft til afnota frá byrjun ársins, Tölvusamstæðan verður notuð við launaúrvinnslu og færslu gjaldendabókhalds fyrst um sinaen um nk. áramót er fyrir- hugað að hefja vinnslu fjár- hagsbókhalds bæjarsjóðs og stofnana hans, samkvæmt nýju, samræmdu bókhaldskerfi sveitarfélaga og mun það verk- efni þá koma til viðbótar þeim, sem fyrr er getið. Einn kostur þess að fá þessa nýju tölvusam- stæðu I notkun er fólginn i aukn- um möguleikum á þjónustu viö gjaldendur. adsókn einnig um að ræða tveggja ára nám, eða tveir vetur og svo sumarið á milli þeirra, sem var- ið verður til verknáms. 1 búvisindadeild veröa 22 nemendur. Þá munu 38 nemendur hefja tveggja ára nám og 50 eins vetrar nám. — mhg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.