Þjóðviljinn - 02.10.1980, Side 15

Þjóðviljinn - 02.10.1980, Side 15
Penna- vinir í Kóreu Kennslukona i Seoul i S-Kóreu hefur sent okkur fallegt bréf meö mynd af bekknum sinum, sem hún segir hafa mikinn áhuga á að eignast pennavini á Islandi. Nemendur hennar eru á aldrinum 12—19 ára, af báðum kynjum. Þeir kunna ensku. Fólk á þessum aldri, sem áhuga hefur á pennavináttu, getur skrifað kennslukonunni og gefið henni upplýsingar um Miss An-soon Kim aldur, áhugamál o.s.frv. Centrai P.O. Box 8365 Utanáskriftin er: Seoul, Korea. Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum, Siðumúla 6. lesendum Ekkert annað en. pólitískar ofsóknir Reiður Grindvikingurhringdi vegna bréfs „Reykviskrar hús- móður” i lesendadálki Þjóðviljans sl. fimmtudag, en Skúii Helgason prentari hringdi: — Visismenn eru uppfullir af samúð i garð verkamanna i Pól- landi, það vantar ekki. Þessir elsku hjartans aumingjar i austrinu eru englar með vængi, hún telur ástæðuna til kennara- erja i Grindavik þá að Ragnari Agústssyni gangi illa að halda aga og foreldrarnir hafi ef marka má Visi. Oðru máli gegnir um okkur prentara hér á Islandi. Við erum djöflar með horn og klauf- ir á siðum Visis. Mér finnst vanta samræmi i þetta hjá þeim, blessuðum mönnunum. áhyggjur af að börnin fái ekki kennslu. ,,Ég hef nú átt krakka i bekk hjá Ragnari og hefur þaö ekki verið verra en hjá öðrum kennurum. Ég tel mig færan um að fullyrða, að þetta eru pólitiskar ofsóknir og ekkert annað,” sagði Grindvikingurinn sem hringdi. Hann sagöi, að hér væri að verki ákveöinn hópur, og skyldi sig ekki undra þótt formaður skólanefndarinnar yrði tekinn fyrir næst. „Vel má vera, að ekki séu all- ir kennarar nægilega grimmir gagnvart krökkunum, en hafi hinsvegar átt að beita aga, þá hefur það heldur ekki mátt. Ég tel, að við hér á staðnum þekkj- um betur til en húsmæður i Reykjavik.” Elsku hjartans aumingjarnir Umsjónarmenn óskast! Jæja krakkar. Nú er lokið efninu sem þær Sigþrúður Gunnarsdóttir og Dýrleif Ýr ör- lygsdóttir komu með til okkar, og nú vantar okkur nýja um- sjónarmenn. Viljiö þið ekki taka ykkur saman, tvö eða þrjú, og semja svolitiö af efni I Barna- hornið? Þið getið fundið margt skemmtilegt i bókum og blöö- um, t.d. i gömlum barna- blöðum — efnið þarf ekki endi- lega að vera allt frumsamið. Svo getið þiö áreiðanlega teikn- aö skemmtilegar myndir með. En munið að við getum ekki prentað Barnahornið i litum, og þvi er best að teikna myndirnar meö svörtum tússpennum, þaö kemur langbest út i blaöinu. Sum ykkar eiga áreiöanlega i fórum sinum eitthvert efni — smásögu, skrýtlu, gátu eða teikningu, þótt þau treysti sér kannski ekki til að sjá um Barnahornið i heila viku —• og svoleiðis efni er lika mjög vel þegið. Hingað til hafa allir um- sjónarmennirnir verið stelpur. Hvernig er það eiginlega með strákana, vilja þeir ekki lika verða ritstjórar? Þið getið hringt i okkur i sima 81333 eöa heimsótt okkur i Siöu- múla 6kl. 9-5alla virka daga, og svo getið þið lika skrifað okkur. Utanáskriftin er: | Þjóðviljinn (Barnahorniö) I Slðumúla 6 j 105 Reykjavik. HVAÐ ER Á MYNDUNUM? Getið þið séð af hverju þessar Ijósmyndir eru? Ekki kíkja strax á svörin! Þau eru á hvolf i hér fyrir neðan. xa>j z pnus L barnahorníð Fimmtudagur 2. október 1980. ÞJóÐVILJINN — SÍÐÁ 15 Djass í Tónhorni Sverrir Gauti Diego kennari sér um Tónhornið I dag og heldur áfram að kynna gítar- tónlist. — Ég hef gitarinn fyrir fastan punkt I þessum þáttum, — sagði Sverrir, — og hef áður kynnt ýmiskonar gitarleik, klassiskan og annan. Nú er rööin komin að djassinum, og ég hef þegar gert nokkra grein fyrir frumherjum djassins og blues-tónlist sem er nátengd djassi. Segja má að ég vilji með þessu rekja sögu gítars- ins i djassi. Vissulega tengjast mörg önnur hljóðfæri þessu, en gitarinn er það hljóðfæri sem ég byggi þættina á. Tónhorniö verður á dagskrá áfram i vetur. Umsjónarmenn þess eru Sverrir Gauti Diego og Guðrún Birna Hannesdótt- ir, og sjá þau um þáttinn hálfsmánaðarlega hvort um sig. — ih. Reggae í áföngum — Mér skilst að ætlunin sé að við höldum áfram með Afanga, a.m.k. i vetur, — sagði Ásmundur Jónsson Afangamaður I sam- tali við Þjóðviljann. — Þor- steinn Hannesson sagðist ekki vita betur, siðast þegar við töluðum við hann. Sem kunnugt er hefur verið lagt til að leggja niður Afanga og ýmsa fleiri tónlistarþætti útvarpsins, og hefur sú tillaga mælst mjög illa fyrir hjá hlustendum, a.m.k. þeim sem ekki hafa náð fimmtugsaldri. Verður spennandi að fylgjast með framvindu þessa máls. Að sögn Asmundar ætla þeir Guðni Rúnar að kynna reggae- tónlist i þættinum i kvpld. — Við höfum ekki fjall- að sérstaklega um hana fyrr- en núna, — sagöi hann, — og finnst þvi timi til kominn, einkum þar sem þessi tónlist frá Jamaica er farin að hafa €| Útvarp ^ kl. 23.00 mjög sterk áhrif á rokktónlist, aðallega i Bretlandi, þar sem mikið er af innflytjendum frá Jamaica. Við höfum hugsað okkur að kynna svolitið bakgrunn þess- arar tónlistar og þau trúar- brögð sem setja sterkan svip á hana, rastafari-trúna. Annars má segja að reggae-menn skiptist i tvo hópa: þá sem aö- hyllast rastafari og hinna sem telja þau frumstæð og enga lausn á vandamálum fólksins á Jamaica. Helsti málsvari þessa siðarnefnda hóps er Lin- ton Kwesi Johnson. En i þætt- inum i kvöld verðum við mest með eldri reggae-tónlist, frá 1970 og árunum næst á eftir, þegar Bob Marley var að komafram. — ih Skilnaður á sænska vísu Útvarpsleikritið I kvöld heitir ,,Þú vilt skilnað” (Du vill alltsS skiljas) og er eftir Lars Helgesson. Þýðinguna gerði Jakob S. Jónsson, en leikstjóri er Guðmundur Magnússon. Með hlutverkin þrjú fara Þóra Friöriksdóttir, Róbert Arnfinnsson og Guðbjörg Þorbjarnardóttir. Flutningur leiksins tekur rúmar 40 minútur. Tækni- maður: Astvaldur Kristins- son. Hjónaband Ullu og Urbans er orðið meir en litið hnökrótt, án þess aö nokkur ein ástæða sé sjáanleg fyrir þvi. Ester, móðir Ullu, sem er helsti ráðgjafi hennar, telur aö hægt sé að bjarga við sambúðinni ef rétt er að farið. Dóttir hennar eigi kannski ekki siður sökina en tengdasonurinn. Lars Helgesson er Svii, Útvarp kl. 21.30 fæddur árið 1921. Fyrsta út- varpsleikrithans var „Hringir á vatni” (flutt 1951), en siöan hefur hann skrifað milli 20 og 30 útvarpsleikrit. Hann hefur auk þess skrifað leikrit fyrir sviö og sjónvarp. Gagnrýnin lýsing á samfélaginu og siðræn átök innan þess er eitthelsta viðfangsefni hans. örlög einstaklingsins hljóta að skoðast I ljósi heildarinnar. A annan veg verða þau ekki skil- in. Útvarpið hefur áður flutt tvö leikrit Helgessens, „Læstar dyr” 1964 og „Mynd i albúmi” 1965.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.