Þjóðviljinn - 12.11.1980, Side 15
Miðvikudagur 12. nóvember 1980. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 15
■ ij Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum,
lesendum
fra
Réttvísin
Nýlega var skýrt frá þvi að
upp hefði komist um auðgunar-
brot af stærri gerðinni. Eftir þvi
sem mig minnir er þetta þá
fjórða stóra fjárdráttarmálið
sem nú er i höndum réttvis-
innar. Hin eru: stórþjófnaður úr
banka, framinn af starfsmanni
bankans, stórsvindl með ávis-
anir og stór gjaldeyrissvik við
kaup á skipum frá Noregi.
A árinu var lokið Jörgensens-
málinu, sem hafði verið s.l. 11
ár að velkjast I höndum réttvis-
innar. I upphafi var það blásið
út sem stórfellt fjársvikamál.
En nú eftir 11 ára þvott sýnist
helst eftir dómi, að brotið hafi
verið litið, eða jafnvel ekkert.
Biða nú þeirra fjárbrotamála
sem nú eru komin i hendur rétt-
visinnar sömu örlög og
Jörgensensmálið hlaut? Að
vera lögð i 11 ára þrifabað? Þau
elstu eru nú þegar búin að vera
árum saman i athugun. Byrjun-
in var með miklu brauki og
bramli, en slðan dregur smám
saman af og nú heyrist hvorki
hósti né stuna um þá stórfelldu
rannsókn sem fram fer að llk-
indum á þessum stórsvikamál-
um.
Ég held að það sé ekki hægt að
telja nokkrum venjulegum
manni trú um aö það þurfi endi-
lega að taka fleiri ár og jafnvel
áratugi að komast til botns i
svona fjársvikamálum, ef ötul-
lega er að þeim unnið. Og enn
siður er liklegt að flækjur I mál-
um leysist auðveldar þegar búið
er aö þvæla þvi árum saman I
rannsóknum.
Fjölmiðlar mættu þvi gjarnan
vera betur á verði meöan þessi
mál eru á leið gegnum réttvis-
ina, og hnippa við og við I þá
sem með þau hafa aö gera, svo
þeir sofni ekki fram á hendur
sinar.
Þaö er lika viöar en I fjár-
svikamálum sem grunur um aö
réttvisinni séu mislagðar
hendur læðist að manni, og er
stærsta afbrotamál okkar tima,
Guðmundar- og Geirfinnsmálið
ekki undan skilið.
Glúmur Hólmgeirsson
Veöriö hefur haldiö áfram aö leika viö lifriki landsins, — hér höfum viö einn af viröulegum höföingjum
þess rikis, sem iætur ótvirætt iljós velþóknun sina yfir bliöunni.
Barnahornid
Umsjón: Jónas og Birgir.
Skrýtlur
Faöirinn: Hvert ætlar
þú með þessa mýflugu,
Mangi minn?
Mangi: Ég ætla með
hana inn til hennar
mömmu og láta hana búa
til úr henni úlfalda handa
mér. Þú sagðir í gær að
hún gerði alltaf úlfalda
úr mýflugunni. Nú ætla
ég að sjá hvernig hún fer
að því.
Móðirin: Skelfing hef-
urðu fengið slæman
vitnisburð í skólanum í
dag, Geiri minn.
Geiri: Á-á! Kennarinn
sagði að hann væri alltof
góður handa mér.
Jóhannes: Hvort viltu
heldur missa peningana
eða lífið?
Jakob: Lifið, auðvitað.
Ég þarf að geyma pen-
ingana til elliáranna.
Gesturinn: Hversvegna
starir hundurinn svona
grimmdarlega á mig
meðan ég borða?
Húsfreyjan: Ætli það
sé ekki vegna þess, að þú
ert að borða af diskinum
hans.
é
Reiknings-
þraut
Hlutirnir á myndinni
tákna ákveðnar tölur.
Sami hlutur táknar sömu
tölu. Getur þú fundið út-
komuna?
Lausn á
punktaþraut
Ferskt og fryst
Sjónvarp
O kl. 21.05
Sjðnvarpiö hefur fundiö nýtt
vandamál til aö glima við á
þessum erfiöu timum: margir
neytendur kunna ekki skil á
fiokkun og merkingu kjöts.
Til þess að koma i veg fyrir
frekari afglöp landsmanna á
þessu sviöi, hefur sjónvarpið
látið gera fræösluþáttinn
Ferskt og fryst, sem sýndur
verður I kvöld. Á tæpum
klukkutima fá áhorfendur að
sjá hvernig þeir eiga að
umgangast kjöt: velja það,
ganga frá þvi til geymslu og
matreiða það.
Valdimar Leifsson er
umsjónarmaður þáttarins—ih
Börn i mannkynssögunni
• Sjónvarp
kl. 17,20
Vert er aö benda bömum og
unglingum á öllum aidri á
nýjan, franskan framhaids-
myndaflokk sem hefur göngu
sina i sjónvarpinu i dag og
verður á dagskrá næstu
fjórtán miövikudaga. Nefnist
hann ,,Börn i mannkynssög-
unni”.
Þetta er leikinn heimilda-
myndaflokkur frá franska
sjónvarpinu. Að sögn Björns
Baldurssonar hjá Sjónvarpinu
fjallar flokkurinn um börn og
unglinga á ýmsum timum.
— 1 einstökum þáttum er
sagt frá unglingum sem kom-
ust til æðstu metorða, — sagði
Bjöm, — t.d. einum pilti sem
varð biskup 14 ára og öörum
sem varö hershöföingi á svip-
uöum aldri. En aö öðru leyti
eru þættirnir flestir um sögu-
lega viðburði sem á einhvern
hátt höföu áhrif á lif barna og
unglinga. Má þar nefna t.d.
fyrstu skólana, sem settir
voru á laggimar, iðnbylt-
inguna og þá barnaþrælkun
sem hiln hafði i för með sér.
Fyrsti þátturinn nefnist
„Krossferð barnanna”. Þýð-
andi er Ólöf Pétursdóttir.
— ih
)a Sjónvarp
O kl. 22.00
Mynda-
flokki
lýkur
i kvöid lýkur danska fram-
haldsmyndaflokknum Arin
okkar, sem haldið hefur mörg-
um límdum viö kassann
undanfarin miövikudags-
kvöld.
Arin okkarsegir fra danskri
sjómannafjölskyldu sem á við
aö striða flest þau vandamál
sem dunið hafa á Dönum
undanfarin ár. Börnin lenda i
eiturlyfjum og atvinnuleysi,
að ógleymdu poppinu.
Krabbameinið kemur lika við
sögu. En þrátt fyrir
#Útvarp
kl. 22.00
Bein
lína til
Kjartans
Kjartan Jóhannsson,
nýkjörinn formaöur Aiþýöu-
flokksins, veröur i þættinum
„Bein lina” sem er á dagskrá
hljóðvarps i kvöld.
Kjartan hefur verið mikiö I
sviðsljósinu aö undanförnu og
er ekki að efa að marga hlust-
endur fýsir að spyrja hann
nánar út i innanflokksmál
þeirra krata, og þá kannski
sérstaklega þá miklu vináttu
sem rikir i þeirra herbdöum,
og þann nýja stæl — eða stfl —
sem Kjartan hefur boðað.
Ekki má heldur gleyma að
Kjartan er i' stjðrnarandstööu
og hlýtur aö hafa á takteinum
lausnir á öllum þeim
vandamálum sem stjórnin
ræður ekkert viö.
Þættinum stjóma Helgi H.
Jónsson og Vilhelm G. Krist-
insson.
— ih
Klaus Rifbjerg, höfundur
„Aranna okkar”.
vandamálin er myndaflokkur-
inn vel gerður og skemmtileg-
ur, og einmitt vegna
vandamálanna kemur hann
okkur ölllum við.
Margir af þekktustu sjón-
varpsleikurum Dana leika i
þessum myndaflokki, og er
þeim vel stýrt af leikstjóran-
um Palle Kjærluff-Schmidt,
enhöfundur handritsins er rit-
höfundurinn frægi, Klaus Rif-
bjerg. — ih