Þjóðviljinn - 13.11.1980, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 13.11.1980, Qupperneq 7
Fimmtudagur 13. nóvember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Bæjarbókasafn Keflavikur flutti áriö 1974 i ný húsakynni á Mánagötu 7, þriggja hæða einbýlishús. A þessu hausti hefur þessu húsi endanlega verið breytt i mjög snoturt safn. Umsjón með þvi verki hefur haft Karl Jeppesen, arkitekt. 1 sumar var húsið málað að utan og nú i haust voru tekin í notkun þrjú her- bergi i kjallara, sem áður voru ónotuð. 1 kjallara eru nú dagblöð, timarit og fræðibækur ásamt mjög góðu úrvali erlendra bóka. A miðhæð er barnadeild og útlánasal- ir. A efstu hæð lesherbergi fyrir fræðimenn eða námsfólk. bá er þar geymt úrklippusafn um sögu Suðurnesja. Ennfremur vinnu- herbergi starfsfólks. Mörg málverk eftir Suðurnesjamenn, Aka Granz, Kristin Reyr, Helga S. Jónsson og Þorstein Eggertsson, prýöa veggi A fundi bankaráös Landsbanka tslands nýlega, var Arni Sveinsson skipaður útibússtjóri við útibú bankans i Neskaupstað og Hreinn Hermannsson við útibúið á Fáskrúösfirði. Arni Sveinsson er fæddur 1933 á Akureyri, hóf störf i bankan- um árið 1956 og hefur lengst af starfað i endurskoöunardeild, sið- ustu tiu ár sem deildarstjóri. Hreinn Hermannsson er fæddur 1935 á Akureyri, hefur starfað i bankanum i tólf ár og verið bókari viö útibú bankans á Höfn, Hornafirði, frá árinu 1971. Grútarbiblía á bóksöluskrá Bókavaröan, verslun með gamlar og nýlegar bækur að Skóla- vörðustig 20, hefur gefið út bóksöluskrá yfir notaðar bækur, is- lenskar og erlendar. Húmlega 1200 bækur eru I skránni, og eru þær aðeins hluti þess sem verslunin hefur aö bjóða. Skráin er flokkuð eftir efni: þjóðlegur fróöleikur, saga, islensk fræöi, islenskar ævisögur, erlendar skáldsögur, stjórnmál, náttúrufræði og margt fleira. Kennir þar margra grasa, og bæk- urnar eru seldar við æöi misjöfnu verði. Sem dæmi má nefna, að algengustu bækur, ljóð og skáldsögur, kosta þetta 1-4 þúsund krónur, en sjaldgæf eintök eldri bóka kosta svimandi háar upp- hæðir, eins og t.d. „Grútarbiblian”, sem kostar kr. 950.000.- Bókin er nefnd svo vegna meinlegrar prentvillu i textanum, þar sem „harmagrátur” verður fyrir mistök „harmagrútur”. Margar aðrar fáséðar og gamlar bækur eru i skránni. Þeir sem þess óska geta fengið bóksöluskrána senda frá versl- uninni, meðan upplag endist. —ih Framkvœmdastofnunin á Höfn Stjórnarfundur Framkvæmdastofnunar rikisins var haldinri sl. föstudag á Höfn i Hornafirði og hefur stofnunin þarmeö haldið fundi á öllum svæðum landshlutasamtaka. A fundinn siðdegis var boðið alþingismönnum kjördæmisins, stjórn og framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga i Austur- landskjördæmi, oddvitum og sveitarstjórum. Fundurinn var vel sóttur og fóru fram umræður um helstu hagsmunamál kjör- dæmisins. Daginn eftir notuðu stjórn og starfsmenn stofnunar- innar til að heimsækja atvinnufyrirtæki á Höfn. Nýlega afhenti Heinz Pallasch vestur-þýskur sendiráðsfulltrúi Bæjarbókasafni Keflavikur myndarlega gjöf frá Martin-Behaim -félaginu. Þetta eru llObækur á þýsku og er þar að finna verk eftir marga þekktustu rithöfunda Þýskalands. Við- stödd afhendinguna voru ögmundur Guðmundsson formaöur bókasafnsstjórnar og Maria Loebell þýskukennari við Fjöl- brautarskóiann ásamt bæjarbókaverði. Myndin er tekin I safn- inu við afhendinguna Breytt húsakynni Bœjarbókasafns Arni Sveinsson Hreinn Hermannsson r Utibússtjórar á Austurlandi Kvikmyndir Ingibjörg Haraldsdóttir skrifar Hjóna band Maríu Braun Regnboginn hefur tekið til sýn- ingar eina af nýjustu myndum Fassbinders: Hjónaband Mariu Braun (1979). Þetta er jafnframt ein þeirra mynda þessa þýska af- kastamanns sem mesta aðsókn hafa hlotið og jákvæðust viðbrögð áhorfenda. Rainer Werner Fassbinder hefur þann ágæta eiginleika aö koma áhorfendum sifellt á óvart. 1 þessari mynd gerir hann það með þvi að nota frásagnaraðferð sem minnir helst á „melódrama” frá Hollywood til að segja sögu sem er vægast sagt óvenjuleg. Söguþráðurinn verður ekki rak- inn hér, enda áhorfendum litill greiði gerður með þvi. Hinsvegar er ekki úr vegi að benda á að Fassbinder er samur við sig i þessari mynd hvað varð- ar boðskap og hugmyndir. Hann er enn að kryfja þýskt þjóðfélag eftirstriðsáranna og nútimans, og enn er hann að fjalla um þann menningarheim sem gerir allt að söluvöru, lika tilfinningarnar. Ofgnóttasamfélagið elur af sér tilfinningalega vesöld. Hanna Schygulla leikur Mariu Braun. Hún hefur áður leikið I myndum Fassbinders og fer hér á kostum i hlutverki sem gagn- rýnendur hafa kallaö „Mata Hari atvinnullfsins”. Aðrir leikendur eru m.a. Ivan Densy og Klaus 4 Hanna Schygulla i hlutverki Marfu Braun. Löwitsch. Myndatökuna annast Michael Ballhaus, sem unniö hef- ur með Fassbinder um margra ára skeið. Það er ekki feitan gölt að flá i bióunum þessa dagana, og þvi hlýtur kvikmyndaunnendum aö þykja fengur i þessari mynd i Regnboganum. Að undanförnu hefur verið sýnd þar sænska myndin Mannsæmandi lif, sem telst til meiriháttar viöburða. Vonandi er Regnboginn nú loks kominn á þá braut sem margir létu sig dreyma þegar húsiö var opnaö: að nota þá góðu mögu- leika sem fjórir sýningarsalir bjóða upp á til að sýna að stað- aldri a.m.k. eina góða mynd. —ih Anna Karina i myndinni Pétur vitlausi Pétur vitlausi Myndin sem Fjalakötturinn sýnir i þessari viku er „Pétur vit- lausi” (Pierrot le fou), sem Jean- Luc Godard gerði árið 1965. i að- alhlutverkunum eru Jean-Paui Belmondo og Anna Karina. Godard er einn af þessum kvik- myndastjórum sem óhætt er aö fullyrða um aö þeir séu höfundar. Hann er af kynslóð nýbylgju- manna svonefndra, sem komu til sögunnar i Frakklandi I lok sjötta áratugarins, og af mörgum talinn þeirramerkilegastur. Hann hefur aldrei fetað troönar slóöir i list- sköpun sinni, og þegar jafnaldrar hans og félagar urðu gróðahug- sjóninni að bráð, hver á fætur öðrum, fór hann alltaf lengra og lengra út I pólitikina og tilrauna- mennskuna. A siðustu árum hefur veriö heldur hljótt um hann. En Pierrot le fou er gerð þegar hann var upp á sitt besta. Einsog aðrar myndir Godards hlaut hún móttökur sem einkenndust af öfg- um: annaöhvort hældu menn henni upp I hástert („list vorra tima — það er Jean-Luc Godard” sagði rithöfundurinn Aragon) eða þeir lýstu þvi yfir að myndin vær, óþolandi með öllu. Myndin er frábærlega tekin af snillingnum Raoul Coutard, og vel þess viröi að sjá hana þótt ekki væri nema þess vegna. Sýningar Fjalakattarins eru sem kunnugt er i Tjarnarbiói i kvöld kl. 19, á laugardag kl. 13 og á sunnudag kl. 19 og 22. Skirteini eru enn til sölu viö innganginn. —-ih

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.