Þjóðviljinn - 13.11.1980, Page 16
NOÐVIUINN
Fimmtudagur 13. nóvember 1980.
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt aö ná i blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiðslu blaðsins 1 sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Þorskveiðin oröin fast að 400 þús. lestum:
Aðeins skrapveiðar
verða í desember
ef farið verður að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar
— fundur með hagsmunaaðilum haldinn í fyrramálið
Nú er orðið ljóst, að ef
fara á að ráði Hafrann-
sóknastofnunarinnar
um að heildarafli þorsks
i ár verði ekki meiri en
400 þúsund lestir, verður
ekki um neina þorsk-
veiði að ræða i desem-
ber, aðeins svonefndar
skrapveiðar. Um sið-
ustu mánaðamót var
þorskaflinn orðinn 370
þúsund lestir og siðustu
vikur hefur verið mjög
góð veiði hjá togurun-
um. Þarna er þvi um
mikið vandamál að
ræða og i fyrramálið
hefst fundur sem
Kristján ltagnarsson.
sjávarútvegsráðherra
hefur boðað til með
hagsmunaaðilum i sjáv-
arútvegi, sjómönnum,
útgerðarmönnum og
fiskvinnslustöðvamönn-
um.
Að sögn Boga Þórðarsonar, að-
stoðarmanns sjávarútvegsráð-
herra, hefur enn engin ákvörðun
verið tekin um hvað gert verður.
Hann benti á að hér væri um
stærra vandamál að ræða en svo,
að tekin yrði ákvörðun i málinu
án samráðs við hagsmunaaðila
og benti á að fundur með þeim
yrði einmitt haldinn i fyrramálið.
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Llú, sagðist ekki
eiga von á þvi að þorskaflinn yrði
kominn i 400 þús. lestir um mán-
aðamótin næstu. Hann sagði að
afli togaranna hefði minnkað
verulega nú siðustu daga, en hefði
verið mjög góður i september og
október. Þess vegna sagðist hann
eiga von á þvi að fyrri ákvörðun
um veiðitakmarkanir i desember
myndi gilda, þ.e. veiðar yrðu
leyfðar i 13 daga en 18 daga
þorskveiðibann. —S.dór.
!*»«* !»«**» • 8
~T'V
Engin meiðsli
í hördum
árekstri
Engin meiðsli urðu á
mönnum í þeim geysiharða
árekstri sem varð á gatna-
mótum Miklubrautar og
Grensásvegar kl. 15.43 í
gær.
ökumaöur var einn i Volks-
wagenbilnum, sem sést á mynd-
inni hér aö ofan heldur illa út-
leikinn. Hann mun hafa ekið út
á Miklubraut á rauöu ljósi og i
veg fyrir strætisvagn, sem kom
vestur Miklubraut. I sama bili
kom Bronco-jeppinn austur
Miklubraut. Fólksvagninn lenti
fyrst á vinstra framhorni strætis-
vagnsins, kastaðist siðan á
Broncoinn og þaðan á götuljósa-
staurinn, þar sem hann stöövaö-
ist. ökumaöur Volkswagen-bils-
ins slapp meö smárispur I andliti
og má þaö kallast mesta mildi.
— eös.
Deilan við Hrauneyjafossvirkjun óleyst:
Starfsmenn vilja falla
frá verkfallsboduninni
Deila v erk a lýðs f éla gs in s
Rangæings er óleyst enn. t gær
var sainningafundur hjá sátta-
semjara og i dag kl. !) árdegis
verður annar fundur.
1 fyrradag var haldinn fjöl-
mennur fundur starfsmanna við
Hrauneyjafossvirkjun þar sem
fram kom mikil óánægja með
verkfallsboðun Rangæings, þar
sem verkfallið og verkbanniö sem
sett hefur verið á félagið bitnar á
mönnum sem eru félagar i öðrum
sléttarfélögum, sem þegar hafa
samið.
A fundinum var skorað á stjórn
og trúnaðarmannaráð Rangæings
að falla frá verkíallsboðun. —ká
Morgunblaðsmenn felldu
tíllögu um yfirvinnubann
1 gær samþykktu blaðamenn á
Visi og Dagblaöinu aö hefja yfir-
vinnubann, en blaðamenn
Morgunblaösins felldu þá tillögu.
Samþykkt Visis- og Dagblaðs-
manna var bundin þvi skilyrði að
yfirvinnubann yröi á öllum
blöðunum þremur sem fengið
hafa á sig verkbann. Þvi er ljóst
að ekki verður af yfirvinnubann-
inu, en tilganur þess var m.a. að
koma i veg íyrir útgáfu helgar-
blaðanna.
Hallur Hallsson blaðamaður á
Morgunblaðinu sagði i gær, að
ljóst hefði veriö að i það minnsta
Visir mundi koma út og þvi hefðu
blaðamenn Morgunblaðsins talið
yfirvinnubann missa marks.
—ká
i.
i
l
Leikur og bllaumferð fer ekki saman, en hér má sjá eitt dæmið
um ástand umferðarmála i gamla vesturbænum. Ljósm: gel.
íbúar í Vesturbœnum:
Krefjast adgerda
vegna umferðaröngþveitis
„Borgaryfirvöld fá frest til
áramóta til að bæta úr
umferðaröngþveitinu i vestur-
bænum, en eftir þann tima
inunu íbúarnir hugsa sér tii
hreyfings”, sagði Stefán örn
Stefánsson arkitekt, einn
þeirra sem vann tillögur til úr-
bóta i umferðarmálum
vesturbæjarins, sem lagðar
voru fyrir fund lbúasamtaka
vesturbæjar sl. mánudags-
kvöld.
Áskorun á
byggingaryfirvöld
Ibúar vesturbæjarins i
Reykjavik eru margir hverjir
orðnir langþreyttir á
umferöarástandinu i hverfinu.
Þar er keyrt á töluverðum
hraða um ibúðargötur, bilum
er lagt upp á gangstéttar báðu
megin gatna, bilar geta varla
mæst sumstaðar og umferöar-
óhöpp eru tiö. I hverfinu er
mikið af börnum og öldruðu
fólki, enda hefur sú breyting
orðið á undanförnum árum að
ungt fólk með litil börn hefur
flust vestur i bæ, og þar er eitt
af stærstu elliheimilum bæjar-
ins.
Ibúasamtök vesturbæjar
héldu fund sl. mánudagskvöld
þar sem umferðarmálin voru
rædd og var þar samþykkt
ályktun sem send verður
ráöamönnum borgarinnar.
Þar er skoraö á borgaryfir-
völd að gripa til einhverra
ráða til að bæta ástandið.
A fundinum var lögö fram
greinargerð samin af starfs-
hóp sem i voru Siguröur
Harðarson, Anna Kristjáns-
dóttir og Stefán örn Stefáns-
son. Þau settu fram ýmsar til-
lögur til breytingar á umferð-
inni sem allar stefna að þvi aö
gera vesturbæinn aö mann-
eskjulegra og öruggara
hverfi.
1 samtali við Þjóöviljann
sagði Stefán örn Stefánsson
að það væri vilji ibúanna sem
um málið hafa fjallað aö borg-
in leggi fram fjármagn til að
vinna aö breytingum. Fyrst og
fremst þarf að draga úr
umferðinni gegnum hverfiö,
en nú liggur mikill þungi
neðan úr miðbæ gegnum
hverfiö og einnig er bilum lagt
um allt vegna skorts á bila-
stæðum i miöbænum.
,,Það er ekki markmiðið að
koma upp einhverju flóknu
kerfi, einstefnugötum og
sliku,” sagði Stefán, „heldur
að draga úr hraðanum og
skipuleggja umferðina. Frá
áramótum eru skráöir um 130
árekstrar i hverfinu, flestir
þeirra veröa á Hringbraut-
inni, Ægissiðunni og Vestur-
götunni þar sem umferðin er
hvað mest. Stefán sagði að
nær væri að beina umferðinni
inn á þær götur sem þola meiri
umferð, götur þar sem ekki er
allt fullt af börnum.
ibúarnir
langþreyttir
„Það rikti mikill áhugi á
fundinum og flestir eru orönir
langþreyttir á ásandinu”
sagöi Stefán. „Fólk óttast um
öryggi barna og aldraðra.”
Ibúar við Hjaröarhaga hafa
aö undanförnu safnað undir-
skriftum og ætla að skora á
borgaryfirvöld að gera ráö-
stafanir til að draga úr
umferðarhraða, enda hafa
orðið tiö slys þar.
Ibúi við Bræðraborgarstig
sagði blaðamanni að i fimm
húsum i grennd viö hann væru
22 börn og foreldrar þyrðu
ekki aö sleppa þeim einum út
á götu af ótta við umferðina.
Hún sagði greinilegt að
umferðaryfirvöld hefðu ekki
áttað sig á þeim breytingum
sem orðið hafa i gamla vestur-
bænum, þar hefur orðið
endurnýjun og ibúarnir vilja
aö þar verði geröar svipaðar
ráðstafanir og i öðrum ibúðar-
hverfum svo fólki sé ekki
hætta búin i nánasta umhverfi
sinu.
Þær tillögur sem lagöar
voru fram á fundi ibúasam-
taka vesturbæjar eru:
aðgerðir til að takmarka
gegnumakstur og ökuhraða
sem komi til framkvæmda
strax á þessu hausti. Undir-
búningur aö og tilraun meö
leikgötu er geti hafist á vori
komanda. Heildarendur-
skoöun á umferöarskipulagi
hverfisins á grundvelli stefnu-
mörkunar, sem miðist viö að
komast i framkvæmd i siðasta
lagi á næsta ári. Allar
breytingar verði gerðar i sam-
ráði við ibúasamtökin.
—ká