Þjóðviljinn - 12.12.1980, Blaðsíða 4
4 StÐA —ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. desember 1980.
UOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
C'rfsson.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Ólafsson.
Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friörikssoii.
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnils H. Gislason,
Sigurdór Sigurdórsson.
tþróttafréttamaöur: Ingóifur Hannesson.
Útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiösia: Kristin Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir,
Bára Siguröardóttir.
S'mavarsia: ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir,
Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiösla og augiýsingar: Siöumúia 6,
Reykjavik, simi 8 13 33.
Prentun: Biaöaprent hf.
Skref í rétta átt
e Lengi býr að f yrstu gerð, segir máltækið. Það hef ur
um margra ára skeið verið baráttumál að allir foreldrar
í landinu ættu réttá greiðslum i fæðingarorlof i til þess að
geta annast vel um börn sín á fyrsta æviskeiði. f sam-
ræmi við yfirlýsingu sína við gerð kjarasamninga milli
ASl og VSl i október hef ur ríkisstjórnin lagt fram f rum-
varp til laga um fæðingarorlof og verður það afgreitt
fyrir jólahlé þingmanna.
• Stéttarfélögin hafa á liðnum árum knúið fram ýmis
ákvæði og afar mismunandi um fæðingarorlof, auk þess
sem íhaldsstjórn lagði það á Atvinnuleysistryggingar-
sjóðaðstanda undir greiðslum í fæðingarorlofi. I báðum
tilfellum er réttur til fæðingarorlofs bundinn atvinnu-
þátttöku og aðild að stéttarfélagi. Verkakonum hefur
verið skammtaður naumur tími og lítið fé í þessu kerf i,
og má m.a. nefna að í kjarasamningum Verkamanna-
sambands Islands er fæðingarstyrkur kvenna dagvinnu-
kaup í þrjár vikur.
• Tafist hefur að afgreiða lög um fæðingarorlof m.a.
vegna þess að veigamiklir gallar voru á f rumvarpssmíð
AAagnúsar AAagnússonar, fyrrum félagsmálaráðherra,
enda varð hún fyrir gagnrýni ýmissa félagasamtaka.
Frumvarp það sem nú hef ur verið lagt fyrir gerir ekki
aðeins ráð fyrir að lögfestur verði lágmarksréttur til
fæðingarorlofs fyrir alla foreldra á almennum vinnu-
markaði, heldur einnig til þeirra sem heimavinnandi
eru. AAá búast við að um það bil 2000 konur á hverju ári
öðlist nú í fyrsta sinn rétt á fæðingarorlof i.Nýjum lögum
er ætlað að leysa af hólmi gamla kerfið, án þess þó að
skerða skuli betri rétt, sem stéttarfélög hafa þegar í
samningnum, eða banna samninga um meiri rétt í f ram-
tíðinni.
• Öllum foreldrum sem lögheimili eiga á fslandi verður
frá og með áramótum tryggt fæðingarorlof í þrjá
mánuði. Greiðslur frá Tryggingarstofnun verða hins-
vegar mismunandi eftir þátttöku í atvinnulíf inu. Ekki er
miðað við ákveðna taxta í samningum,heldur sett upp
föst viðmiðun sem gildir fyrir alla. Fullur réttur tryggir
530 þúsund kr. á mánuði um þriggja mánaða skeið miðað
við l. desember,en foreldri sem er í fjórðungs til hálfs
dags vinnu fær 353 þúsund á mánuði. Heimavinnandi
foreldri eða foreldri í hlutastarfi sem ekki nær f jórðungi
á réttá ca. 177 þús. kr. á mánuði. Þessar upphæðir munu
taka ársfjórðungslegum breytingum í samræmi við
þróun kauplags. Algengasta mánaðarkaup verkafólks
fyrir dagvinnu er eftir 1. desember ríflega 368 þúsund
krónur. Þvi lætur nærri að fullt fæðingarorlof nemi fjög-
urra mánaða dagvinnulaunum verkafólks.
• I frumvarpinu um fæðingarorlof eru ýmis sér-
ákvæði um lengingu orlofs vegna fleirburafæðingar,
heilsufars móður eða veikinda barns, svo og um ættleið-
ingu. Þá er gert ráð fyrir að óheimilt sé að láta barns-
hafandi konu eða foreldri í fæðingarorlofi gjalda að-
stæðna sinna með uppsögn úr starfi,nema að knýjandi
ástæður svo sem gjaldþrot, flutningur fyrirtækis eða
lokun, séu fyrir hendi.
• Svavar Gestsson félagsmálaráðherra fylgdi frum-
varpinu um fæðingarorlof úr hlaði á Alþingi og sagði
m.a. við það tækifæri:
,,Ég vil taka þaðfram að tilgangur með fæðingarorlof i
er sá að konur fái tækifæri til að ná sér eftir þá áreynslu
sem barnsburður vissulega er. En tilgangur þess er
einnig sá að foreldrar geti annast barn sitt á f yrsta ævi-
skeiði þess. Þráttfyrir öll sjónarmið í uppeldismálum og
deilur um htutverk heimila, fjölskyldna og dagvistunar-
heimila í nútima þjóðfélagi, hljóta allir að vera sammála
þvi,að fyrsta æviskeiðið verður barn að geta notið for-
eldra sinna sem lengst. Að slíku ber þjóðfélaginu að
stuðla. Þrir mánuðir eru vissulega ekki langur tími til
fæðingarorlofs og greiðslur ekki háar. En líta má á þetta
sem eitt skref í rétta átt. Ef til vill verður þessi réttur
aukinn síðar í sókn okkar til bætts og betra mannlífs og
aukins jafnaðar með öllu fólki".
—e.k.h.
Þröngsýni
Franski herinn kemur tölu-
vert við sögu á Islandi þessa
vetrarmánuði. Hingað rekur á
fjörur skilrikjalausan Frakka
úr verkalýðsstéttsem ér á flótta
undan frönskum herdómstóli.
Af ástæðum sem þjóð er ekki
býr við herskyldu ætti að skilja
hefur hann neitað að gegn her-
þjónustu, og ekki viljað heldur
afplána hana með tvöfalt lengri
þegnskylduvinnu, sem Amnesty
International flokkar undir
refsingu. Enda hafa þessi sam-
tök gengist við Patrick Gerva-
soni sem samviskufanga verði
hann fangelsaður.
Alltof margir tslendingar eru
svo þröngáýnir og foraktugir i
garð þeirra alþjóðasáttmála,
sem Alþingihefurgengist undir,
að vilja senda hann i franskt
herfangelsi með eða án milli-
lendingar i Danmörku.
Diplómatinn
En fleiri eiga i útstöðum við
franska herinn og vilja ekkert
eiga saman við hann að sælda.
Einn af sendiráðsfulltrúum
Frakka gegnir störfum i
franska sendiráðinu á Islandi i
stað herskyldu i Frakklandi.
Hann nýtur þeirra forréttinda
að fá að afplána sina herskyldu
sem sendifulltrúi sins rikis með
fullum réttindum veifandi
diplómatapassa, þegar það á
við. Ekki kannast klippari við
gripinn en af öllu að dæma virð-
ist hann vera ómerkilegur
pappir. Ef að likum lætur er
hann ekki úr verkalýösstétt, og
miklu liklegra er að hann sé
broddborgarasonur, sem pabbi
hans i kerfinu hefur beðið um
gott veður fyrir.
k Sérri’ttindi scnilirúdsmunna:
T)k á konu
' l.öf;renlan rard aö sleppa ökumann-
iinum venna þess u<) hann hafdi
yjiplomula- venahré/ ; .
Friöhelgur
Þegar þessum undanþágu-
fulltrúa franska hersins þóknast
að aka yfir gangbraut á rauðu
ljósi og stórslasa kunnan
danskennara i Reykjavik vant-
ar ekki að lögin og alþjóða-
samningar séu til reiðu honum
til varnar. Þá er i gildi Vinar-
samkomulag um friðhelgi
diplómata og i dómsmála-
ráðuneytinu kunna menn full
skil á þvi hhvernig túlka ber slik
plögg, þannig að allt gangi
diplómatanum i haginn „let og
smidigt” eins og danskurinn
segir.
Höföingja-
réttlœti
A hinn bóginn setja „ráðu-
nautin” eins og Dagblaðs-Jónas
nefnir þau kikirinn fyrir blinda
augað ef minnst er á að til séu
alþjóðasamþykktir sem veitt
geti Patrick Gervasoni nokkra
stoð, og vegi að minnsta kosti
jafnt á metunum og röksemdir
útlendingaeftirlitsins.
Sjaldan hefur eins skýru ljósi
verið varpað á það hversu mis-
jafnirmenn standa frammifyr-
ir þeim reglum sem mannlegt
félag hefur sett. Úr þvi fær ekk-
ert bætt nema mannúðar- og
manngildissjónarmið sem setur
mönnum fyrir að túlka og leggja
út lög og reglur rúmt fyrir
smælingjann. Annars verður
réttlætið vont og verra en rang-
lætið, eins og Jón Hreggviðsson
orðaði um. Höfðingja réttlæti og
höfðingjaranglæti
Sérréttindi
sendiráds-
manna:
Allt
leyfflegt
i Frétt Þjóöviljans I gær um
franska sendiráösmanninn,
sem ók á konu sl. föstudags-
kvöld og störslasaöi hana,
veifaöi svo diplómata-veea
Séra
Gervasoni
Hinn sanni Gervasoni hefur
brotið það eitt af sér á Islandi a ð
vera skilrikjalaus og koma án
skilrikja til landsins. Fyrir það
skal hann ekkert skjól eiga hér
ogsendastsem fyrst i fúla vist i
frönsku herfangelsi. En séra
Gervasonii franska sendiráðinu
hefur senniiega marg- og þver-
brotið tslensk lög með þvi að
aka á rauðu ljósi og limlesta
ágæta konu. Og varla hefur það
verið af ástæöulausu að hann
veifaðirauða passanum erhann
var beðinn um að koma i blóð-
prufu eins og allir þurfa að gera
ervalda slysum. Fyrir það skal
hanneiga öruggt skjól á tslandi
og góða vist með islenskum
höfðingjum. Þetta er sagan um
Gervasoni og séra Gervasoni.
Prófsteinn
Ragnar Aðalsteinsson lög-
maður Patrick Gervasoni minn-
ir á þær skyldur sem íslending-
ar hafa tekist á herðar með
aðild að alþjóðasáttmálum um
mannréttindi og flóttamanna-
aðstoð i viðtali sem Visir á við
hann i gær. Hann segir þar
m.a.:
„Ég lit á þetta mál sem próf-
stein á afstöðu okkar Islendinga
tilþeirra skuldbindinga sem eru
fólgnar i þvi að gerast aðilar að
ýmis konar mannréttindasátt-
málum og i þeim efnum virðist
ekki standa á okkur. En slikri
aðild fylgja skyldur og skyldum
fylgja siðan ákveðin óþægindi
og ákveðin ábyrgð. Spurningin
er þvi hvort við séum almennt
séðreiðubúin að axla þær skyld-
ur og skuldbindingar sem fylgja
aðild að alþjóðlegum samning-
um um mannréttindi, eða vilj-
um við aðeins láta lita svo út á
ytra borði að við séum fylgjandi
þeim markmiðum sem hinir
alþjóðlegu samningar stefna
að.”.
Stœrra samhengi
„Hér er fólk að fjalla um ein-
hverja flokkadrætti og menn.
Þetta er orðið þáttur i einhverri
pólitiskri baráttu hér á landi.
Þaö er ekkert verið að hugsa um
málið út frá mannréttindasjón-
armiðum og mannúðarsjónar-
miðum. Mér virðist yngri kyn-
slóðin i landinu almennt séð
skilja þetta betur og sé reiðu-
búiðaðsetja þetta i stærra sam-
hengi en margir aðrir, og málið
er prófsteinn á það hvernig við
bregðumst við slikum málum i
framtiðinni. Ég er mjög
óánægður með það að frétta-
menná Islandi hafa ekkert gert
til þess að fjalla um þessa teg-
und flóttamannavandamáls i
breiðu áamhengi, aldrei verið
reynt að gera lesendum grein
fyrir þessu máli sérstaklega”.
—e.k.b
skorið
Sporthús-
ið komið
í Hamborg
klrippt
Nýlega flutti verslunin Sport-
húsið á Akureyri i stærra og betra
húsnæöi. Sporthúsiö er i Hafnar-
stræti 94, en það hús gengur undir
nalninu Hamborg. Verslunin var
stofnuð árið 1976 og hefur eigandi
hennar frá upphaíi verið Sigbjörn
Gunnarsson, fyrrum meistara-
flokksmaður i knattspyrnu.
Aðaláherslan er lögð á bolta-
iþróttavörur hverskonar og vörur
i tengslum við skiðaiþróttir.
Hinn þekkti hagy röingur, Rögnvaldur Rögnvaldsson, sést hér á tali viö
Sigbjörn Gunnarsson, kaupmann I Sporthúsinu. I baksýn er einn af af-
greiöslumönnum verslunarinnar, Gunnar (Gassi) Gunnarsson, bróöir
Sigbjörns. Hvort Röngvaldur er hér aö biöja um vatnsheldan galla til
útreiöa á skáldfákinum, skal ósagt látiö. (Ljósm. R. Lár.)