Þjóðviljinn - 12.12.1980, Blaðsíða 13
Föstudagur 12. desember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Mikil samdráttur
í stálframleiðslu
Ekki gert ráð fyrir bata á næsta ári, segir Jón
Sigurðsson forstjóri járnblendiverksmiðjunnar
„Járnblendiverksmiðjan skilar
hagnaði strax og markaðsástand
er orðið eðlilegt”, sagði Jón
Sigurðsson forstjóri þegar blaða-
maður Þjóðviljans spurði hann i
gær hvenær búast mætti við að
verksmiðjan, sem hingað til hefur
verið rekin með stórtapi, fari að
sýna hagnað.
„Nú er mjög mikill samdrátt-
ur i stálframleiðslu i heiminum,”
sagði Jón ennfremur. „Stáliðju-
ver i öllum hinum vestræna heimi
nota aðeins hluta af framleiðslu-
getu sinni og meðan svo er, þá
keppa fleiri um markaðinn en svo
að eðlilegt verðlag haldist á vör-
unni, miðað við tilkostnað.”
Forstjórinn sagði að þetta hlyti
að ráðast af efnahagsþróun i
heiminum almennt. Hinsvegar
væru nú komin fram viss teikn
um betri tið i Bandarikjunum og
teldu sumir hagfræðingar að
hægfara bati væri væntanlegur,
en aðrir teldu aftur á móti að
ástandið færi enn versnandi.
Jón Sigurðsson
„í áætlun okkar höfum við ekki
gert ráð fyrir neinum teljandi
bata á næsta ári”, sagði Jón. „Við
gefum okkur svartsýnar forsend-
ur.” —eös
„Sölukerfið
i ekki úrelt”
■
| „Bœkur eru ekki eins og hver önnur
vara”, segir Lárus Blöndal bóksali
— Ég tel að bóksöiukerfið sé
ekki orðið úrelt, sagði Lárus
Blöndal bóksali i samtali við
■ Þjóðviljann i gær . Lárus hefur
Istundað bóksölu manna lengst i
Reykjavik og situr i stjórn Bók-
saiafélagsins.
• — Á Reykjavikursvæðinu eru
128 eða 29 bókabúðir og þess er
jafnan gætt að bókaverslun sé i
hverju hverfi i borginni, sagði
• Lárus. — Allir eiga þvi að hafa
Igóðan aðgang að bókum og
þannig er málum lika háttað úti
á landi, bókabúð er i hverjum
» kaupstað og i hverri sveit.
— Við veitum ákveðna þjón-
ustu i bókabúðunum, sem stór-
/erslanirveita ekki, sagði Lárus.
Hann sagðist ekki hafa trú á þvi
að „Hagkaupsmálið” yrði til
þess að bóksalar legðu upp
laupana. Sölukerfi bókaútgef-
enda myndi ekki breytast þótt
þetta mál hefði komið upp.
— Bækur eru ekki eins og hver
önnur vara, sagði Lárus. — Alls
staðar þar sem verslunarfrelsi
er talið mest, t.d. i Bandarikj-
unum og Vestur-Evrópu, er fast
verð á bókum.
Félag bókaútgefenda hélt
fund i gær um úrskurð sam-
keppnisnefndar i Hagkaups-
málinu og munu skoðanir
manna hafa verið talsvert
skiptar. t gærkvöld hélt Bók-
salafélagið fund um málið
f ÚTBOЮ
Tilboð óskast i jarðstrengi fyrir Raf-
magnsveitu Reykjavikur. útboðsgögn eru
afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 20. janúar 1981 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fnkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Svefnbekkir og svefnstólar
til sölu. Hagkvæmt verð. Sendum i póst-
kröfu.
Upplýsingar á
Öldugötu 33, simi 19407.
ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ
Happdrætti Þjóðviljans
Alþýðubandalagsfélagar i Reykjavik sem tekið hafa að sér að dreifa og
innheimta happdrætti Þjóðviljans 1980 eru hvattir til að ljúka störfum
og gera skil sem fyrst.
Hafið samband við skrifstofuna og fáið gefið upp hverjir eru búnir að
greiða. Alþýðubandalagið i Reykja vik
•Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Fundur i bæjarmálaráði
Fundur i bæjarmálaráði mánudaginn 15. þ.m. kl. 20.30 i skálanum. —
Ariðandi að allir mæti. — Stjórnin
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Félagsfundur
Alþýðubandalagið á Selfossi og nágrenni heldur félagsfund mánudag-
inn 15. desember nk. og hefst hann kl. 20.30 að Kirkjuvegi 7. Fundar-
efni: Fréttiraflandsfundiogmálefniflokksogfélags.— Stjórnin.
Landsstjóri
Kanada í
heimsókn
næsta ár
Edward Richard Schreyer,
landstjóri Kanada, mun koma i
opinbera heimsókn til íslands i
boði forseta islands, Vigdisar
Finnbogadóttur, dagana 3. til 5.
júni 1981, á leið til Kanada, að
aflokinni heimsókn til hinna
Norðurlandanna.
Skíðalyfta við
Vatnsendahæð
i haust var lokið við að útbúa
skiðabrekkur i Vatnsendahæðinni
suð-austan við Breiðholtið.
Þangað var fluttur uppgröftur og
hann lagður til þannig að fyrir-
myndar brekkur mynduðust. Nú
hefur verið keypt skiðalyfta, sem
sett verður upp á staðnum og
einnig á að lýsa svæðið.
Borgin veitti 5 milljónir til
kaupa á lyftunni og verður að-
gangur ókeypis eftir að hún verð-
ur tekin i notkun, þegar og ef ein-
hver snjór lætur sjá sig á Reykja-
vikursvæðinu. Lyftan.er keypt af
iþróttafélaginu Fram og er 300
metrar að lengd. —ká
Brekkugötu 1 — Simi 98-1534
A flugvelli 98-1464
Skírnir
komin út
Skirnir, timarit hins islenska
bókmenntafélags árið 1980 er
komiðút. Að þessu sinni ei það að
mestu helgað leikbókmenntum.
Sveinn Einarsson leikhússtjóri
skrifar grein sem nefnist: Um
leikstjórn, Jón Viðar Jónsson
fjallarum Loft á leiksviðinu (Jón
skrifaði prófritgerð um Galdra-
loft og sviðsetningu hans). Birt er
leikrit Jökuls Jakobssonar
„Hlæðu Magdalena, hlæðu”. Páll
Baldvin Baldvinsson skrifar
grein sem ber heitið „Og þú skalt
sofa i hundrað ár, um revi'ur i
Reykjavik.” Ólafur Jónsson rit-
stjóri Skirnis ritar um leikrit og
leikhus. Þá eru bréf til Skfrnis frá
Óskari Helga Óskarssyni og Þor-
steini Gylfasyni og i lokin koma
svo ritdómar. Jón Samsonarson
skrifar dóm um Sagnadansa
Vésteins Ólafssonar Gisli Agúst
Gunnlaugsson skrifar um Sögu
sveitarstjórnar á Islandi eftir Lýð
Björnsson og Helga Kress skrifar
um bók Gerðar Steinþórsdóttur
Kvenlýsingar i sex islenskum
skáldsögum eftir seinni
heimsstyrjöld.
Verð
Framhald af bls. 2
leiðendum hinna „hefðbundnu
búvara” og seljendum kjarn-
fóðurs, en ekki framleiöendum
alifugla og svinaafurða.
Þrátt fyrir nokkra tregðu
einstakra framleiðenda að gera
skil á lögboðnum gjöldum óvið-
komandi kjarnfóðurgjaldinu telur
Framleiðsluráðaðsamskiptin við
þessa framleiðendur hafi næstum
án undantekninga gengið mjög
vel og þeir sýnt skilning á þeim
vandamálum, sem verið er að
reyna að leysa með kjarnfóður-
gjaldinu.
Opið bréf
Framhald af bls. 12
vist er að margar og válegar
blikur eru nú á lofti, ástandiö i
heiminum er uggvænlegt. Friðar-
sinnar um allan heim verða nú aö
standa saman og veita stórþjóð-
unum aðhald. Islendingar hafa
sina ábyrgð og möguleika til
áhrifa.
Við viljum búa börnum okkar
sem öruggasta framtið i heimi án
striðsógnana og vopnaátaka. Eitt
skref i þessari viðleitni er að sjá
til þess að vopnaleikir séu ekki
eðlilegur þáttur i lifi og leikjum
barnanna.
• Þið sem eigið börn cöa ætlið aö
gleðja börn á þessari hátið Ijóss
og friöar seni nú fer i hönd: Gefiö
þeim ckki steina fyrir brauð —
GERIÐ BÖRNIN EKKI AÐ
LITLUM HERMÖNNUM.
Enginn setur timasprengju i
jóiaböggul barnanna — né heldur
önnur vopn.
Við skorum þvi á ykkur,
gefið ekki leikfangaVOPN á jól-
unum!
1. des. ’80.
Steinunn Harðardóttir
f.h. stjórnar
Menningar- og friðar-
samtaka islenskra kvenna.
Sími 86220
FÖSTUDAGUR: Opið kl. 19—3.
Hljómsveitin Glæsir og DISKÓ
'74.
LAUGARDAGUR: Opiö kl.
19—03.
Hljómsveitin Glæsir og-. DISKó >
74.
SUNNUDAGUR: Opið kl. 19—01.
Hljómsveitin Glæsir og DISKÓ
.74.
ilúbbutinn
Borgartúni 32 Símj. 35355.
FÖSTUDAGUR: Opið frá kl.
22.30—03. Hljómsveitin Hafrót
og diskótek.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
22.30 — 03. Hljómsveitin
Upplyfting og diskótek.
SUNNUDAGUR: Opið frá kl.
21—01. Diskótek.
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Simi 22322
BLÓMASALUR: Opiö alla daga
vikunnar kl. 12—14.30 og
19—23.30.
VINLANDSBAR: Opið alla daga
vikunnar, 19—23.30, nema um
helgar, en þá er opið til kl. 01.
Opið í hádeginu kl. 12—14.30 á
laugardögum og sunnudögum.
VEITINGABCÐIN: Opiö alla
daga vikunnar kl. 05.00—21.00.
Skálafeirsim\ 82200
FÖSTUDAGUR: Opiö kl. 19—0
Organleikur.
. LAUG ARD AGUR : Opiö kl
(12—14.30 og 19—23.30. — Organ
fleikur.
,SUNNUDAGUR: Opið kl
12—14.30 og kl. 19—01. — Organ-
deikur. Tiskusýningar alla
'fimmtudaga.
: ESJUBERG: Opiö alla daga kl.
[8-22. ...............
y^DíaaDQ
VKrrtNQAHÚ*
maMMömAn mcykxwík
FöSTUDAGUR: Einkasam-
kvæmi.
LAUGARDAGUR: Einka-
samkvæmi.
iSigtún
FÖSTUDAGUR: Opið frá kl.
22—03. Diskótek og „Video-
show”. Grillbarinn opinn.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
22—03. Hljómsveitin Pónik,
diskótek og „Video-show”.
Grillbarinn opinn.
FÖSTUDAGUR: Diskótek frá kl.
21—03.
LAUGARDAGUR: Diskótek frá
kl. 21—03.
i SUNNUDAGUR: Harmoniku-
unnendur frá kl. 15—17. Gömlu
i dansarnir frá kl. 21—01.