Þjóðviljinn - 12.12.1980, Page 5
Föstudagur 12. desember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Iita-
bók um
Grjóta-
þorp
Á vegum HELGAFELLS er
komin út bókin GRJÓTA-
ÞORPIÐ: LITABÓK eftir -
GYLFA GÍSLASON, myndlistar-
mann. Bókin er öðrum þræði lita-
bók en um leið skemmtirit um
sögu og þróun Reykjavikur frá
upphafi.
Markmiðið með útgáfunni er að
sýna vöxt borgarinnar frá óvæntu
og spennandi sjónarhorni, en
jafnframt að vekja fólk á öllum
aldri til umhugsunar á islensku
umhverfi og byggingarlist á
nýstárlegan hátt.
1 bókinni eru yfir fimmtiu
myndir með auðskiljanlegum og
liflegum texta sem listamaðurinn
hefur samið. Inn i eru dregnir^
lifshættir, helstu framfaraspor og'
nýjungar i sögu borgarinnar.
Farið er i gönguferð um
GRJÓTAÞORPIÐ og atburðir,
sérkenni, handverk og persónur
frá fyrri tið skoðuð.
GRJÓTAÞORPIÐ má muna
sinn fifil fegri. 1 bókinni kemur
fram hvernig hús hafa horfið
sporlaust. Bent er á ýmsa mögu-
leika til þess að sporna gegn ára-
tuga stöðnun. I hnotskurn segir
bókin sögu margra mannvirkja
frá fyrri tið um landið allt.
1 tengslum við útgáfuna verður
efnt til sýningar á öllum teikn-
ingum bókarinnar á Mokka-kaffi.
Þá verður bókin til sölu á tjti--
markaðnum Lækjartorgi næstu
tvær helgar. Einnig er ætlunin að
efna til verðlaunasamkeppni
meðal barna og unglinga. Verður
skýrt nánar frá tilhögun hennar
siðar.
Ósnert bók
Aðalfundur Hins Islenska bók-
menntafélags verður haldinn á
morgun, laugardag, i Lögbergi —
húsi lagadeildar Háskólans og
hefst kl. 14.00.
A fundinum fara fram venjuleg
aðalfundarstöf auk þess sem fyrir
fundinn verður lögð til afgreiðslu
tillaga að skipulagsskrá fyrir
Stofnun Jóns Sigurðssonar, sem
samþykkt var að koma á fót á
siðasta aðalfundi.
Loks mun Halldór Laxness rit-
höfundur minna á ósnerta bók frá
12. öld, en lengi hefur verið venja,
að fræðimaður ávarpaði fundar-
menn á aðalfundum Hins islenska
bókmenntafélaes.
Heimspekikenn-
ing um eðli laga
Næsti fundur félags áhuga-
manna um heimspeki verður
haldinn sunnudaginn 14. desem-
ber 1980 kl. 14.30 i Lögbergi. Dr.
Milner Ball, bandariskur sendi-
kennari við lagadeild Háskólans,
mun setjafram kenningu sina um
eðli laga, og að þvi loknu mun
Garðar Gislason borgardómari
gagnrýna kenninguna.
Efni fundarins verður flutt á
ensku.
Leiörétting
Röng eftirtekt undirritaðs varð
til þess að snúa við tölum i sam-
bandi við hugsanlega kola-
brennslu Sementsverksmiðj-
unnar á Akranesi. 1 fréttinni
sagði, að hagnaðurinn við kóla-
brennslu yrði á annan miljarð en
kolainnkaupin 600 miljónir.
Þarna snerust tölur við.
Hagnaðurinn er áætlaður 600
milj. kr., en innkaupsverð á þeim
kolum sem þarf er um 1,5 milj-
arður.
—S.dór
Gylfi i Grjótaþorpi að skoða Grjótaþorpið.
Framleiðsluráð landbúnaðarins:
Verð á hefðbundnum
búvörum ekki hækkað
vegna fóðurbætisgjalds
Vegna ummæla i fjölmiðlum að
undanförnu um áhrif fóðurbætis-
gjalds á framleiðslu og sölu ali-
fugla og svinaafurða hcfur Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins beðið
fyrir eftirfarandi athugasemdir:
1. Enginn breyting var gerð á
hlutverki Framleiðsluráðs i
framkvæmd hinna svokölluðu
Framleiðsluráðslaga við breyt-
ingu sem gerð var með bráða-
birgðalögunum frá.23. júni 1980:
2. Verð á framleiðsluvörum
hinna svokölluðu hefðbundnu bú-
greina, sauðfjár og nautgripa-
framleiðslu, hefur ekki verið
hækkuð vegna fóðurbætisgjalds-
ins. Framleiðendur þessara vara
hafa þvi tekið fóðurbætisgjaldið
alfarið á sig. Hins vegar hefur
fóðurbætisgjaldinu verið velt nær
jafnóðum út i verðlag alifugla og
svinaafurða og þvi hafa neyt-
endur en ekki framleiðendur
þessara afurða greitt fóðurbætis-
gjaldið.
' Nemur það 9 — 12% af heild-
söluverði þessara vörutegunda.
3. Samkvæmt upplýsingum
sem fyrir liggja hefur aldrei verið
minni munur á heildsöluverði
kjúklinga annarsvegar og niður-
greiddu heildsöluverði 1. flokks
dilkakjöts hinsvegar heldur en
einmitt nú, og er þó ekkiiþessum
samanburði tekið tillit til þeirrar
timabundnu lækkunar, sem nú
hefur verið ákveðip á kjúklinga-
kjöti. Erfið staða kjúklingakjöts á
markaðnum er þvi ekki vegna
óhagsstæðari verðsamanburðar
en áður, heldur hljóta þar að
koma til aðrar ástæður. Þá hefur
komið fram, að ekki eru erfið-
leikar nú á sölu eggja og svina-
kjöts.
4. Eggjaskortur nú getur ekki
verið vegna bráðabirgðalaganna
og fóðurbætisgjaldsins. Ungar úr
eggjum, sem lögð hefðu verið til
útungunar eftir 23. júni, gætu ekki
verið farnir að verpa. Þvi hljóta
allt aðrar ástæður að liggja til
eggjaskorts, ef um hann er að
ræða.
5. Til Framleiðsluráðs hafa
borist margar óskir um fóður-
skort vegna nýrra framleiðenda i
alifugla- og svinarækt og hafa
þeir allir fengið þá úrlausn, sem
þeirhafa beðið um. Sjálfsagt hafa
einhverjir hætt, en ekki hafa þeir
tilkynnt Framleiðsluráði það og
útgefin fóðurkort nú eru stórum
mun fleiri en i sumar.
6. Nokkrir byrjunarörðugleikar
hafa orðið á framkvæmd bráða-
birgðalaganna einkum i útgáfu og
dreifingu fóðurkorta og uppgjöri
á kjarnfóðurgjaldinu, en þeir
örðugleikar hafa bitnað á fram-
Framhald á bls. 13
Fylgist með því nýjasta og besta
í íslenskum bókmenntum
Guðbergur Bergsson
Sagan af
Ara Fróðasyni
og Hugborgu
konu hans
Bráðskemmtileg skáldsaga í
stíl prakkarasagna um at-
hafnamanninn Ara Fróðason
og ferð hans gegnum þjóð-
félagið.
„Stíll sögunnar er ákaflega
fjörlegur og fullur af margs-
konar skemmtilegheitum og
óvæntum uppákomum ...
þessi saga er full af lífsfjöri og
kímni... bráðskemmtileg
lesning og aðgengilegri fyrir
fleiri en sumar fyrri bækur
Guðbergs." Helgarpósturinn.
Verð kr. 14.820.
Félagsverð kr. 12.600
Líney Jóhannesdóttir
Aumingja Jens
Óvenjuleg og göldrótt skáld-
saga eftir einn sérstæðasta rit-
höfund okkar. Ytri umgerð er
líf listamannsfjölskyldu og
nokkurra nágranna þeirra einn
vetrarpart, en einmitt á þeim
dögum gerast atburðir sem
kalla fram miskunnarlaust
endurmat þess sem liðið er.
,,Einu gildir hvort sögumann-
eskja er heldur Marta eða
María, öll kvika frásagnarinnar
um AUMINGJA JENS er sjón-
armið konu. Heitt, lifandi, heilt,
sjálfsagt, Ijóðrænt, grimmt á
stundum en líka undra fallegt
án væmni.“
Saga sem endurómar í huga
lesandans löngu eftir að lestri
hennar sleppir.
Verð kr. 13.710.
Félagsverð kr. 11.650
Guðlaugur Arason
Pelastikk
Nýstárleg og skemmtileg
skáldsaga sem gerist á sjónum
eitt síldarsumar á 6. áratugn-
um. Lifandi lýsing á heimi sjó-
mannsins.
„Guðlaugi tekst meistaralega
að lýsa veröld drengsins og
hugmyndaheimi um leið og
hann sýnir skýrt þá fullorðins-
veröld sem drengurinn lifir og
hrærist í." Helgarpósturinn
....tilefni þessarar skáldsögu
og efnistök öll eru mjög líkleg
til að skapa Pelastikki merki-
lega sérstöðu: þá, að hún verði
ein þeirra skáldsagna sem
getur sameinað lesendur á
öllum aldri." Þjóðviljinn.
Verð kr. 15.930.
Félagsverð kr. 13.540
Ólafur Haukur Símonarson
Galeiðan
Tímabær og vel gerð nútíma-
skáldsaga. Lesandi kynnist
verkakonum í svipmyndum frá
vinnustað, í hamingjuleit helg-
arinnar og uggvænlegum tíð-
indum heima og í verksmiðju.
„Ólafur Haukur Símonarson er
í þessari sögu utan við þá tvo
strauma sem einna sterkastir
eru um þessar mundir... hann
glímir við þjóðfélagsraun-
sæið ... höfuðviðfangsefni
hans er að sýna að öreigar
samtímans eru fyrst og fremst
konur; hlutskipti þeirra er
kúgun á tveim hæðum." Þjóð-
viljinn.
Verð kr. 15.930. ,
Félagsverð kr. 13.540
- Lesið skáldsögur
Máls og menningar
Mál og menning ijijl