Þjóðviljinn - 07.01.1981, Side 6

Þjóðviljinn - 07.01.1981, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 7. janúar 1981 Vinningshafar frá siöasta ári ásamt framkvæmdastjóra happdrættisins. Frá vinstri: Eggert Garöars- son frá Hvammstanga, Auöur Kjartansdóttir og unnusti hennar Steinar Jónsson, Ragnheiöur Ragnars- dóttir og Jóhannes Helgason framkvæmdastjóri. — Ljós. Ella. Happdrætti Háskólans 1981 að fara af stað Dreymdl hjónin sem hafa umboðfð — og hljóp þá til og endumýjaði, sagði Ragnheiður Ragnarsdóttir, ein þeirra heppnu á síðastliðnu ári — Mig dreymdi hjónin sem eru með umboðið, og hljóp þá til og endurnýjaöi. Ég var eiginiega hætt aöspila i þessu, fannst ég illa hafa efni á þvi, en tók miðann upp, sem kallað er, og borgaði einhverja mánuði til baka. Þetta segir Ragnheiöur Ragnarsdóttir, sem spilar á trompmiða i Happdrætti Háskólans i umboðinu i Keflavik. 1 júli i fyrra vann hún svo á þennan sama miða, að visu ekki hæsta vinning, en peninga sem hreint og beint björguðu henni einsog á stóð, segir hún. 500 þúsund komu á númerið og hún fékk þvi Gkr. 2.500.000. Dóttir hennar 15 ára hafði slasað sig al- varlega og til aö hún gæti veriö i skóla var Ragnheiður sjálf farin að vinna næturvinnu á veitinga- húsi til viðbótar daglegri vinnu sinni i verslun. Ragnheiður er einstæð móðir með tvö börn. Ýmsar fleiri sólskinssögur mætti vafalaust segja um vel- komna happdrættisvinninga og sem betur fer fleiri en hinar, þegar vinningurinn verður ekki til góðs. bau hjónin Jón Tómas- son umboðsmaöur i Keflavik og Ragnheiður Eiriksdóttir sögðu td. frá kunningjakonu, sem hafði ekki komið til aö endurnýja og þau lögðu peningana út fyrir, — og viti menn, hún vann á miðann, einmitt i þetta skipti. Ekki að furða þótt hún færði afgreiðslu- stúlkunum konfekt þegar hún vitjaði vinningsins. í árlegu hófi stjórnar Happ- drættis Háskóla íslands i fyrra- kvöld var rifjað upp margt skemmtilegt sem skeð hefur gegnum árin og þar voru auk Ragnheiðar staddir fleiri sem duttu i lukkupottinn á siðasta ári: Eggert Garðarsson frá Hvamms- tanga, sem ásamt konu sinni Arn- disi Sölvadóttur vann samtals 10.215.000 Gkr., á tvo nifalda miöa sem þau eiga, og Auður Kjartans- dóttir úr Reykjavik, sem vann miljón á trompmiða, þe. 5 miljón- ir. Hjá forráðamönnum happdrættisins kom fram, að auk myntbreytingarinnar sem að sjálfsögðu breytir upphæðunum verða ýmsar aðrar breytingar á þessu ári. Heildarvinningsfjár- hæðin hækkar um tæp 50%. Lægstu vinningar hækka úr 35. þús gkr. i 50 þúsund eða 500 nýkrónur og fækkar nú heldur, en i staðinn fjölgar 100 þúsund króna vinningunum sem áður voru, þe. 100.000 nýkrónur (eða 10 miljónir Aukavinningar, 450 talsins, hækka úr 1000 i 2.500 nýkrónur og falla sem áður á næstu númer sitt hvoru megin við hæstu vinn- ingana. Að lokum hefur verið bætt við nýjum hæsta vinningi, 100. OOOnýkrónur (eða lOmiljónir Gkr.). Þýðir það, að sá sem á alla miðana af vinningsnúmerinu fengi greiddar 900 þúsund nýkr. (90 miljónir Gkr.) og er það tíæsti vinningur sem nokkurntima hefur verið i happdrættinu. Sem fyrr er 70% af veltunni varið til vinninga. Háskólinn hefur nær eingöngu fengið framkvæmdafé af tekjum happdrættisins.en á þessu ári eru fyrirhugaðar framkvæmdir og tækjakaup fyrir 22.430 þús. nýkr.. Þaraf nemur framlag happ- drættisins i ár og frá fyrri árum 15.600 þús. nýkr.. Stærsta átakið er áframhald nýbygginga fyrir læknadeild og tannlæknadeild á Landspitalalóð. Þá hófust einnig framkvæmdir við hús á Háskólalóð i nóvember sl. en það verður einkum i þágu viöskiptadeildar, félagsvisinda- deildar og nokkurra greina heim- spekideildar, auk þess sem þar verður almennt kennsluhúsnæði. Næsti áfangi þar á eftir er fyrir- hugaður i þágu verkfræði- og raunvisindadeildar vestan Suður- götu. Húsnæöisleysi háir nú mjög kennslu i Háskólanum og einnig er tækjavæðing brýn nauðsyn i verkfræði og raunvisindum, læknisfræði og tannlækningum, bæöi vegna kennslu og rann- sókna. Norrænn styrkur til bókmennta nágrannalandanna. Fyrsta úthlutún norrænu ráöherranefndarinnar (mennta- og menningarmálaráðherrarnir) 1981 — til úthlutunar á styrkjum til útgáfu á norrænum bókmenntum i þýðingu á Norðurlöndunum — fer fram i byrjun júni-mánaðar. Festur til aðskila umsóknum er: l.april 1981. Eyðublöðásamt leiðbeiningum fást hjá menntamálaráðu- neytinu i Reykjavik. Umsóknir sendist til: NORDISK MINISTERRAD Sekretariatet for nordisk kulturelt samarbejde Snaregade 10 KD-1205 Köbenhavn K Simi: KD 01-11 47 11 og þar má einnig fá allar upplýs- ingar. Reisa Ásgrími minnisvarða Um þessar mundir vinnur Arnesingafélagið aö þvi, aö Asgrlmi Jónssyni listmálara veröi reistur minnisvaröi á fæöingarstaö hans, Rútsstaöasuöurkoti i Flóa. Hefur sérstök nefnd unniö aö málinu á vegum félagsins og hefur veriö rætt um aö hafa sam- vinnu viö aðila heima i héraöi um máliö. A aðalfundi félagsins kom fram, að merkasti þáttur starfsins sl. starfsár var útgáfa á lögum Pálmars b. Eyjólfssonar tón- skálds og organista á Stokkseyri. 1 söngvasafninu eru 36 af lög- um Pálmars, flest fyrir karlakóra eða 13, en einnig eru mörg sálmalög og lög fyrir blandaða kóra. Söngvasafnið er gefið út i eiginhandarriti höfundar og er allur frágangur af hans hálfu með miklum glæsibrag. Söngvasafnið kom út fyrir nokkru og annast Arnesingafélagið dreifingu þess. Það er til sölu hjá félaginu á sérstöku áskriftar- verði, en auk þess verður það fáanlegt i nokkrum bókaverslun- um. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa: Arinbjörn Kolbeinsson formaður, Bjarni K. Bjarnason, Sigmundur Stefánsson, Unnur Stefánsdóttir, og Sigriður Guðmundsdóttir. Sóleyjarsamtökin um sjálfstœði Sóleyjarsamtökin nefnist nýlega stofnaður félagsskapur, ópólitískur, sem hefur þaö á stefnuskrá aö vernda og styrkja efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæöi tslendinga, aö þvl er segir i fréttatilkynningu. Telja samtökin, að núverandi þróun i efnahags- og menningar- málum sé varhugaverð og stefni til ósjálfstæðis þjóðarinnar. Benda þau á, að fleira séu lifsgæði en það sem metið er i pening- um og vilja vinna aðbreyttu gildismati gegn núverandi lifsgæða- kapphlaupi og að þvi að íslendingar miði iðnaðar- og atvinnu- stefnu viö þörf á innanlandsmarkaöi, nýtingu innlendra hráefna og orku við að verða sjálfum sér nógir um lifsnauðsynjar og að félagslegt, menningarlegt og náttúrulegt umhverfi sé tekið með i dæmið i áætlanagerð. Herrakvöld Njarðar í Lœkjarhvammi Málverkauppboð á herrakvöldi hjá Niröi. Hiö árlega herrakvöld Lionsklúbbsins Njaröar veröur haldiö föstudaginn 9. janúar n.k. aö Lækjarhvammi Hótel Sögu. Lionsklúbburinn Njörður hefur um árabil starfað að liknar- málum og rennur allur ágóöi af skemmtun þessari i liknarsjóð - klúbbsins m.a. til styrktar sjón- og heyrnarskertum. Að vanda verður margt til skemmtunar auk málverkauppboðs, sem flestir bestu listamenn landsins hafa gefiö listaverk til. Fjöldi aögöngu- miða er takmarkaður en pöntunum er veitt móttaka i sima 25442 og á kvöldin i sima 71402. Keppa á hjólum í Noregi í vor Tveir ungir piltar, þeir ólafur E. Jóhannsson Flataskóla I Garðabæ og Þórarinn Sævarsson Arbæjarskóla Rekjavik, veröa fulltrúar lslands I reiöhjólakeppni á vegum PRI, alþjóðasam- taka umferöarráöa, i Noregi i vor. Þeir uröu nr. 1 og 2 i lokaúrslitum reiðhjólakeppni umferðar- ráðs, Ólafur meö 611 stig og bórarinn 607. Umsjónarmaöur keppninnar var Guömundur Þorsteinsson, en auk hans sáu kenn- arar og lögregluþjónar um hana. Keppnin var þriþætt, þ.e. spurningar um umferöarmái, góöakstur og hjólreiðaþrautir, og var hún alljöfn. I þriðja sæti keppninnar varð Sigurður Rúnarsson, ÆKÍ, Reykjavik, 4. Stefán Gunnarsson, Flataskóla Garðabæ, 5. Björg Eiriksdóttir, Gagn- fræðaskóla Akureyrar, 6. Sigurður Þór Baldvinsson, Viðistaöa- skóla Hafn., 7.-8. Tryggvi Jónsson, öldutúnsskóla Hafn.,og Kristinn Einarsson Grunnskóla Njarðvikur, 9.-10. Arni Kolbeins- son og Bjarnfreður Ólafsson, báðir Mýrarhúsaskóla Seltjarnar- nesi,og 11.-12. Jóhannes Guömundsson Varmárskóla Mosfells- sveit og Sveinn Þór Hallgrimsson, Egilsstaðaskóla. Fjórðungsmót hestamanna í júlí Akveðiö hefur veriö aö halda Fjóröungsmót sunnlenskra hestamanna dagana 2. til 5. júli á mótssvæöi hestamannafélags- ins Geysis á Rangárbökkum viö Hellu. Framkvæmdastjóri hefur veriö ráðinn Gunnar Jóhannsson Asmundarstöðum og geta menn leitaö upplýsinga hjá honum eöa öðrum framkvæmdanefndarmönnum, auk þess geta menn af þessu svæði snúið sér til formanna sinna félaga. 2259 af 3083 sóttu fræðslufundi Fimmtán endurmcnntunarnámskeið fyrir grunnskólakennara voru haldin á vegum Kennaraháskóla íslands á sl. sumri og stóðu flest I eina viku. Á námskeiöunum var einkum fjallað um starfshætti og námsefni i grunnskóla og viöhorf í kennsíumálum. Þátttakendur voru samtals 639. Einnig stóðu kennurum til boða fræöslufundir um ýmis efni. 89 fundir voru haldnir á árinu og sóttu þá 2259 kennarar. —vh

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.