Þjóðviljinn - 07.01.1981, Blaðsíða 12
12 StÐA — ÞJOÐVILJINN Miðvikudagur 7. janúar 1981
MINNING
Sigurdur Tómasson
úrsmiður
Sigurður Tómasson, úrsmiður,
lést á Þorláksmessu s.l. þann 23.
des. 1980, á 88. aidursári. Hér er
horfinn sjónum okkar þekktur og
fjölhæfur iðnaðarmaður, sem
starfað hefur hér i borg marga
tugi ára. Verður hans hér minnst
með nokkrum orðum. Og minn-
ingin er góð, þvi það er ekki
aðeins um góðan iðnaðarmann að
ræða, heldur fjölhæfan leitandi
uppfinningamann og sérlega
elskulegan og háttvisan persónu-
leika.
Sem kunnugt er vann Sigurður
Tómasson allt sitt lif að
úrsmíðum og verslun, og að við-
gerðum og tækjum sem á ýmsan
hátt voru skyld hinu fina og
nákvæma gangverki úranna. T.d.
sagði hann mér að hann hefði
fundið upp mikla endurbót á einni
tegund svissneskra úra, sem
hann taldi mjög nytsama. Þetta
varð þó ekki honum til sérstaks
gagns þvi hann lét Svisslendinga
vita um það og þeir tóku þetta
þegjandi og hljóðalaust i sinn
framleiðslurekstur.
Ég hygg að i eöli sinu hafi Sig-
urður á ýmsan hátt, veriö rann-
sakandi og leitandi visinda-
maður. Hann glimdi við aö finna
upp texta i kvikmyndir fyrir
mörgum áratugum og tókst það,
aðhann taldi, og var á leiö með að
fá þetta viðurkennt. En i raun
varð þó ekkert úr þvi. Sigurður
glimdi við margar slikar uppfinn-
ingar. Og myndasmiður var Sig-
urður afbragðssnjall og gerði
miklar kröfur um form, lit og
gæði myndanna. Og þar var hann
ekki við eina fjöl felldur. Flestar
voru myndirnar af venjulegri
gerð, en auk þess tók hann
margar stuttar kvikmyndir og
hinar svo nefndu þrividdarmynd-
ir, sem ekki var eða er titt. Mynd-
ir af fuglum og fögrum skógum,
glitrandi hafi og gjósandi fjöllum.
Það vakti eftirtekt hér heima
fyrir mörgum árum, er hann
hafði með íleirum heimsótt
Sovétrikin, að þegar hann kom
heim setti hann upp sýningu á þar
til gerðu hringsviði og sýndi
fjölda þrividdarmynda úr ferða-
laginu.
Það var fast i eðli Sigurðar —
snyrtimennska og hugkvæmni,
sem ekki var bundin við skyldu-
verkin ein heldur einnig tóm-
stundir, ferðalög og daglegt iif.
Ég kynntist Sigurði fyrst fyrir
rúmum 60 árum, og höfum við
haft æði mikið samneyti allan
þann tima. Mig rekur ekki minni
til að ég hafi séð hann skipta
skapi eða verða reiðan, en ég
minnist þess að hann hafði sagt:
„Til hvers er að reiðast og þusa,
það bætir ekki fyrir það málefni
sem fyrir er, — en ég yrði eftir
mig og blóð mitt yrði svart!”
Hvað um það. Hitt er vist, að
hann kunni að stilla skap sitt og
að aga undir skynsemina.
Ég hef aldrei þekkt jafn kurt-
eisan og dagfarslega háttvisan
mann og Sigurð Tómasson. Ég
hygg að hér sé ekkert of sagt. Sig-
urður var félagslyndur og i mörg-
um félagssamtökum. I sumum
var hann lengi i stjórn, t.d.
Úrsmiðafélagi Islands, og i
innkaupasambandi þeirra o.s.frv.
Sigurður Tómasson er fæddur i
Gegnishólum i Flóa, 12. april
1893. Foreldrar hans voru:
Halldóra Sigurðardóttir frá
Elliðavatni, siðar Elliðakoti i
Mosfellssveit, og móðir Halldóru
var Guðrún Halldórsdóttir i
Elliðakoti. Voru þær taldar af
Fellsætt. Faðir hans var Tómas,
bóndi, Bjarnason frá Túni i Flóa,
— af hinni svo nefndu Bolholtsætt.
Langafi Sigurðar Tómassonar
var séra Sigurður Tómasson.
Sigurður var heima hjá foreldr-
um sinum til 1909. Þá fór hann til
Reykjavikur að læra úrsmiði á
verkstæði Guðmundar
Kristjánssonar úrsmiðs. Hann
var ekki sterkur til heilsu og hug-
ur hans lá ákveðið i þá átt að
komast hjá mikilli erfiðisvinnu.
Hjá Guðmundi var hann i eitt ár.
Vann hann svo hjá ýmsum
úrsmiðum: Magnúsi Benja-
minssyni i þrjú ár, Jóni
Hermannssyni á Eyrarbakka i
tvö ár og hjá Árna Björnssyni,
gullsmiði, i yfir át.ta ár.
Árið 1916 vatt hann sér til Dan-
merkur og þaðan til Þýskalands
— Frankfurt am Main, og hélt þar
áfram lærdómi ög vinnu allt fyrra
striðið. Á þessum tima kynntist
hann Þjóðverjum vel, og lifði með
þeim sætt og súrt i styrjöldinni.
Til Islands kom hann til baka árið
1919. Þá brá hann sér aftur til
Þýskalands 1922 og var eitt ár i
ferðinni. lengst af i Hamborg,
kynnti sér marga nytsama hluti:
sjónauka, kvikmyndavélar, ýmsa
mæla og fleira.
Eftir þessar lærdómsferðir,
nokkru seinna, stofnaði hann sitt
eigið fyrirtæki, rak það i fjölda
ára — og er það til ennþá. Lengi á
þessum seinni árum höfðu þeir
Jón Dalmann, gullsmiður og hann
sama verkstæðið, eða fram i mai
1976.
Sigurður Tómasson hefur ekki
kvænst eða afkomendur eignast,
en sinu fólki hefur hann verið
hugstæður og afhaldinn, enda er
þar um mannvænlegan hóp að
ræða. 011 geymum við hlýja og
ógleymanlega minningu um vin
okkar og kunningja — Sigurð
Tómasson, úrsmið.
Blessuð sé minning hans.
Haraldur S. Norðdahl.
MINNINGARORÐ
Jónína Sæborg
auðsýnd á svo notalegan og eðli-
legan hátt að ljúft var að þiggja.
Jóni'na var Bjömsdóttir, fædd
19.júni' 1890 norður á Ólafsfirðii á
kvenfrelsisdaginn sem síðar
varð, góða mín, sagði hún mér
með stoltu og kankvísu brosi, yfir
kaffibolla úti f Osló. Foreldrar
Jóninu fluttu frá Ólafsfirði að
Básum i Grimsey, og þar var
Jóni'na fram á unglingsár. Siðar
lá leiðin til Akureyrar. Þangað
kom einnig hópur Norðmanna,
sem vannviðað reisa Krossanes-
verksmiðjuna. Einn þeirra var
Even Jöhannessen, gjörvilegur
og góður maður. Honum giftist
Jóni'na og eftir fyrri heimsstyrj-
öldina fluttu þau búferlum til
Noregs. Þau eignuðust fjögur
börn og eru þrjú þeirra á lffi.
Eftirað til Noregs kom, tóku þau
hjón upp ættarnafnið Sæborg.
sem raunar var nafn á húsi sem
þau hjón bjuggu i á Akureyri um
hrið.
Eftir siðari heimsstyrjöldina
tóku fslenskir námsmenn að
sækja mun meira til Osló en áður
hafði verið. Þá voru erfiðir timar
i þeirri borg, húsnæði illfáanlegt
og ýmsar nauðsynjar af skornum
skammti. Þá var það að þau hjón-
in Jónina og Even opnuðu heimili
sitt upp á gátt fyrir islenskum /
námsmönnum og öðru ungu fólki,'
sem þangað kom i atvinnuleit.
Ég kom til Osló haustið 1947 og
hélt i bjartsýni minni að það hlyti
að rætast úr með einhverja
vistarveru til að búa i á skömm-
um tima. En það teygðist úr dvöl
minniá hótelherbergiog ég fór að
verða áhyggjufull. Við skulum
fara til Jóninu Sæborg, sagði
kunningi minn sem var orðinn
hagvanur i borginni, vera má að
hún kunni einhver ráð. Ég var
hálf hikandi, þegar við nálg-
uðumst dymar á snotra húsinu á
Furuvejen. Hvernig skyldu
hjónin taka bláókunnugri stúlku-
kind? En hikið hvarf um leið og
þau heilsuðu og buðu mig vel-
komna eins og ég væri náinn ætt-
ingi, sem gaman væri að hitta.
Við sátum drjúga stund 1 góðu
yfirlæti, og þegar við vorum að
fara benti Jónina mér á hús-hlið-
ina og sagði: Sjáðu, hér erum við
búin að fá leyfi til að byggja við
og þá fáum við tvö herbergi i við-
bót og getum þá haft tvær stúlkur
og tvo pilta búandi hjá okkur. Þú
getur komið hingað þegar við er-
um búin að byggja, ef þú vilt.
Siðan sagði hún mér stolt af þvi,
hvernig hún hefði sannfært þá
sem úthlutuöu torfengnum bygg-
ingaleyfum um nauðsyn þess að
I dag verður Jónlna Sæborg
kvödd hinstu kveðju i Osló, og hér
heima á Islandi er stór hópur
manna, sem kveður hana úr fjar-
lægð með þökk fyrir vináttu og
hjálpsemi. Hjálpsemi sem öllum
löndum sem að garði bar hjá
þeim hjónum Jóninu og Even var
u .lUUWarReu L: .
Innritun á vetrarönn fer
fram í Miðbæjarskólanum
miðvikudag 7. jan. og
fimmtudag 8. jan. kl. 17-21
islenska 1. og 2. fldkkur. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
llanska 1.-5. flokkur. Kennslustaöur: Miðbæjarskóli
Norska 1.-3. flokkur. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Sænska 1.-3. flokkur. Kennslustaður: Laugalækjarskóli
Færeyska Byrjendaflokkur. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Enska 1.-6. flokkur. Kennslustaöir: Miðbæjarskóli, Laugalækj-
arskóli, Breiðholtsskóli, Fellahellir
Þýska 1.-4. flokkur. Kennslustaðir: Miðbæjarskóli, Breiðholts-
skóli
Latina Byrjendaflokkur. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Franska 1.-3. flokkur. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
italska 1.-5. flokkur. Kennslustaöur: Miðbæjarskóli
Spænska 1.-5. flokkur. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Rússneska Byrjendaflokkur. Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Auk þess verða byrjenda námskeiö i ölluni ofangreindum tungu-
málum.
Vélritun 1. og 2. flokkur. Kennslustaður: Laugalækjarskóli
Stærðfræði Fyrir grunnskólastig og iðnskólastig. Kennslustað-
ur: Miðbæjarskóli
ATH! Dagkennsla i stærðfræði á grunnskólastigi verður einnig i
Fellahelli.
Bókfærsla 1. og 2. ílokkur. Kennslustaður: Laugalækjarskóli
• Ættfræði Kennslustaðúr: Miðbæjarskóli
Jarðfræði Kennslustaður : Miöbæjarskóli
Almenn leikræn tjáning, framsögn, upplestur, spuni. Kennslu-
staður: Miðbæjarskóli, Laugalækjarskóli
Leikfimi Kennslustaður: Fellahellir
Slökun og léttar æfingar Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Hjálp i viðlögum Kennslustaður: Miðbæjarskóli
islenska fyrir útlendinga 1. og 2. flokkur. Kennslustaður: Mið-
bæjarskóli
Barnafatasaumur Kennslustaðir: Miðbæjarskóli, Breiðholts-
skóli
Teikning og akrýlmálun Byrjenda og framhaldsflokkur.
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Bótasaumur — Postulinsmálun —Hnýtingar — Myndvefnaður —
Sníöar og saumar Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Leirmunagerð — Ljósmyndun Kennslustaður: Fellahellir
leyfa þeim hjónum að stækka
húsið sitt svo að þau gætu greitt
götu islenskra námsmanna. Aður
en margir mánuðir liðu var ég
flutt i annað nýja herbergið og bjó
þar i nokkurdr. A þeim árum sá
ég marga koma á svipaðan hátt
og ég kom sjálf og öllum var jafn-
vel tekið og einhver úrlausn veitt.
Menn fengu aö sofa i stofunni eða
á veröndinni þar til úr rættist um
húsnæði. Þaö var alveg sjálfsagt
mál. Minnisstæður er mér
maðurinn sem eitt sinn stóð i dyr-
unum og sagði við Jóninu: Ég hef
heyrt að þú sért góð við Islend-
inga. Jæja góði minn, sagði Jón-
ina, gjörðu svo vel að koma inn.
Og hann fékk að sofa í stofunni og
einnig mat, þvi að peningar
reyndust af of skornum skammti
til matarkaupa á öðrum stöðum.
Þannig var Jónina, og þannig
varEveneinnig.Þaunutu þess að
greiða götu fólks og hafa marga á
heimili sínu. Þegar fram liðu
stundið vænkaðist hagur Norö-
manna mjög, og þar með einnig
húsnæöismál islenskra náms-
manna i Osló. og þeim fækk-
aði sem skjóta þurfti skjólshúsi
yfir. Þá sneri Jónina sér að þvi að
selja ýmsa smáhluti og safna fé
til að styrkja byggingu elliheim-
ilis heima á ólafsfirði. Eftir lát
Evens lagði hún mikið kapp á
þetta verkefni og gerði það i
minningu hans.
Þegar Jónina var komin mjög á
efri ár, var henni veitt hin is-
lenska fálkaorða og var sú orðu-
veiting sannarlega vel til fundin.
Orðan gladdi Jöninu og hún var
vel að heiðrinum komin.
Ég hitti Jóninu siöast fyrir
þremur árum. Þá var hún komin
á hjúkrunarheimili, en hýr i
bragði eins og jafnan fyrr þegar
gest bar að garði. Hún átti smá-
kökur i boxi og gat keypt kaffi i
notalegri setustofu og naut þess
eins og áður að geta verið veit-
andi. Við spjölluðum saman góða
stund og ég fann aö minni hennar
var enn óbrigðult og hugsunin
skýr. Það er gott að hafa kynnst
konu eins og Jóninu. Friður sé
með henni.
Adda Bára Sigfúsdóttir
Rafmagnsveita Reykjavikur óskar að ráða raftækni til eftirlitsstarfa. Nánari upplýsingar varðandi starfið eru veittar á skrifstofu vorri i Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 4. hæð, og þar fást einnig umsóknareyðublöð. Láun eru samkvæmt launakerfi Rey k javikurborgar. Væntanlegum umsóknum sé skilað til starfsmannastjóra eigi siðar en þann 14.01.1981. f/3 RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall
eiginmanns mins, föður, tengdaföður og afa
Karls Lilliendahl Marteinssonar,
Þiljuvöllum 21,
Neskaupstað
Guðrún Eiriksdóttir
Eirikur M. Karlsson Iðunn Haraldsdóttir
Elisabet G. Karlsdóttir Ilagnar Guðmundsson
og barnabörn