Þjóðviljinn - 07.01.1981, Qupperneq 16
mmu/M
Miövikudagur 7. janúar 1981
Sinfónían:
V ínar-
kvöld
Sinfóniuhljómsveit Islands
heidur tónleika i Háskólabiói á
fimmtudagskvöldið og hefjast
þeir kl. 20.30 einsog venjulega..
Tónleikum þessum hefur verið
gefið nafnið „Vinarkvöld” þvi að
eingöngu verður leikin tónlist frá
Vin, þ.e. úr óperettum eftir
Strauss, Lehar, Stolz o.fl.
Óperusöngkonan Birgit Pitsch-
Sarata kemur gagngert frá Vin til
þess að syngja á þessum tónleik-
um. Hún lærði söng og pianóspil
við músikháskólann i fæðingar-
borg sinni, Vin. Þaðan lauk hún
prófum átján ára gömul og var
þegar ráöin við óperuna i Salz-
burg.
Þar söng hún mörg hlut-
verk, en á seinni árum hefur hún
ekki verið fastráðin neinsstaðar.
Hins vegar hefur hún verið gestur
við mörg óperuhús. Mesta
áherslu hefur hún lagt á klassiska
óperettu eins og hún gerðist I
Vinarborg á öldinni sem leið og
fyrstu áratugum þessarar aldar.
Þegar Austurriki tók þátt i
heimsmeistarakeppni i fótbolta i
Buenos Aires 1977, var hún send
þangaö af listaráöuneyti lands
sins, sem sérstakur músiksendi-
boði.
Stjórnandinn, Páll P. Pálsson
hefur starfað á vegum Sinfóniu-
hljómsveitar Islands i 30 ár, eða
frá þvi hún var stofnuð. Hann er
fæddur i Austurriki, en fluttist
hingað 1949. Hann hefur undan-
farin 20 ár stjórnað hljómsveit-
inni i æ rikari mæli og átt mikinn
og merkan þátt i uppbyggingu
hennar.
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aöra starfsmenn
blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot
8iz85, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af-
greiöslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og
eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Ég hef
ekki séð
dómiirn
sagði forseti
sameinaðs þings
Ég er ekki búinn að sjá þennan
dóm, svo efnislega get ég ekkert
um hann sagt, sagði Jón Helgason
forseti Sameinaðs alþingis i gær,
en hann er nú heima hjá sér að
Seglbúðum, þar sem allt hefur
verið teppt i vikutima.
Jón Helgason rifjaði upp
aðdraganda þess að Kjaradómi
var falið að ákvarða laun þing-
manna, en til þessa hefur það
verið verkefni þingfararkaups-
nefndar. S.l. sumar varð ekki
samstaða um þá ákvörðun nefnd-
arinnar að hækka þingfararkaup
um 20% frá 1. janúar 1980 og miða
að öðru leyti viö 120. launaflokk
rikisstarfsmanna. Var þeirri
ákvörðun þvi frestað þar til
alþingi hafði fjallað aftur um
málið og niðurstaðan varð sú að
framvegis skyldi Kjaradómur
annast það verk að ákveða kaup
og kjör þingmanna, sagði Jón.
Hann sagði ennfremur að það
hefði oft komið til tals áður að fela
Kjaradómi þetta verk ef ágrein-
ingur hefði risið um kaup þing-
manna en þetta væri i fyrsta sinn
sem meirihluti hefði verið fyrir
sliku. — AI
Fimmtán
sækja um
tvær frétta-
Birgit Pitsch-Sarata ásamt Sigurði Björnssyni (ljósm.: eik)
Hvað líöur fiskverðinu?
Allt er fast vegna
stífni í sairniingum
segir Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra
„Það stendur allt fast
vegna þess sem ég vil kalla
stífni i samningamálum
sjómanna og útvegs-
manna" sagði Steingrímur
Hermannsson sjávarút-
vegsráðherra í gær þegar
hann var inntur eftir því
hvenær mætti vænta niður-
stöðu um nýtt fiskverð.
„Þaö eru stöðugir fundir i
gangi” sagi Steingrimur og Þjóð-
hagsstofnun er að leggja fram
nýjar upplýsingar um afkomu
sjávarútvegsins sem byggð er á
skattaskýrslum. Það verður
reynt til hlitar að ná samstöðu um
fiskverðiö, en útgerðarmenn hafa
neitaðað setjast niður vegna þess
sem þeir kalla „afskipti rikis-
valdsins”, m.a. út af lffeyris-
sjóðsmálum sjómanna o.fl. (Út-
gerðarmenn krefjast þess að
rikisstjórnin dragi Ioforð sin til
sjómanna til baka. Sjá Þjóðvilj-
ann i gær — ká) Rikisstjórnin
hvorki getur né vill gefa slikar
langtimayfirlýsingar. Ég vona aö
menn átti sig á þessu og ég vænti
þess að skriður komist á málin
seinni hluta vikunnar” sagði
Steingrimur. —ká
Úrskuröur Kjaradóms um:
Hœstu embættislaun
■
Ráðherrar njóta ekkl hækkunar frá 1. maí 1980
Kjaradómur ákvað á
Iföstudaginn var laun
rikisstjórnar islands, for-
seta Islands, dómara í
■ Hæstarétti, rikissaksókn-
I ara, ríkissáttasemjara og
I ráðuneytisstjóra.
■
Samkvæmt ákvöröun em-
bqgttisins skulu laun eftirtalinna
embættismanna vera sem hér
segirfrá og með 1. janúar 1981:
Forseti Islands, 24.750 nýkr.,
forseti Hæstaréttar 19.800 nýkr.,
aörir Hæstaréttardómarar,
rikissaksóknari, rikissátta-
semjari 18.500 nýkr., og ráöu-
neytisstjórar 15.450 nýkr. á
mánuöi. Um verðbætur á laun
þessara embættismanna fer
skv. bráðabirgðalögum rikis-
stjórnarinnar.
Þá ákvað Kjaradómur laun
rikisstjórnarinnar en ráðherrar
taka þingfararkaup eins og
aörir þingmenn, en það hækkaöi
Kjaradómur frá 1. mai 1980. I
dómsoröi um laun rikisstjórnar-
innar segir: Frá 1. mai til 31.
desember 1980 ákvarðast laun
I
ráðherra i rikisstjórn Islands
þannig aö samanlögð ráðherra- |
laun og þingfararkaup haldist •
óbreytt þrátt fyrir hækkun þittg- I
fararkaups þennan tima. Frá 1.
janúar 1981 skulu laun forsætis- I
ráöherra vera 11.900 nýkr. á •
mánuði en laun annarra ráð- I
herra 10.600 nýkr. á mánuöi.
mannastöður
Fimmtán umsóknir bárust um
tvær auglýstar stöður frétta-
manna við Hljóðvarpið.
Þeir sem um sækja eru: Asdis
Jónasdóttir Rafnar, Ellen Nina
Sveinsdóttir, Guðmundur Reynir
Guðmundsson, Gunnar Einarsson
Kvaran, Jón Guðni Kristjánsson,
Sigurður Orn Ingólfsson, Sólveig
Georgsdóttir, Birna Þóröardóttir,
Einar Orn Stefánsson, Erna
Indriðadóttir, Jóhann Hauksson,
Kristin Ástgeirsdóttir, Klara
Bragadóttir, en tveir óska nafn-
leyndar. Sjö sækja um hálft starf i
afleysingar: Björn Jónsson,
Halldór Ingi Guðmundsson,
Hörður Erlingsson, Ingólfur
Gislason og ólafur Gislason, en
auk þeirra tveir þeirra sem
einnig sækja um fullt starf, Einar
Orn og Jóhann.
Umsóknirnar voru lagðar fram
á fundi útvarpsráðs i gær en
ákvarðanir væntanlega teknar
nk. þriöjudag.
Styrkur
úr Mál-
frelsissjóði
9 Stjórn Málfrelsissjóðs hefur
veitt Stúdentaráði Háskóla
íslands styrk að upphæð 630.500
Gkr. til greiðslu málskostnaðar
og miskabóta Gests Guðmunds-
sonar og Rúnars Armanns
Arthúrssonar fyrrverandi for-
manns Stúdentaráðs og ritstjóra
Stúdentablaðsins, sem þeir voru
dæmdir til að greiða aðstand-
endum undirskriftasöfnunar
Varins lands.
Það var núverandi formaður
Stúdentaráös, Stefán Jóh.
Stefánsson, sem sótti um styrkinn
og komst stjórn sjóösins að þeirri
niðurstöðu, eftir að hafa kynnt sér
gengna dóma Hæstaréttar i mál-
um þeirra Gests og Rúnars
Armanns, að aðstoðin sem farið
var fram á félli undir hlutverk
sjóðsins. Var styrkurinn afhentur
formanni Stúdentaráðs 23. des.
sl..