Þjóðviljinn - 13.01.1981, Blaðsíða 1
UOBVIUINN
Þriðjudagur 13. janúar 1981 9. tbl. 46. árg.
'' .— .......... ..................,1 ■■■■■.■■■I ..... II »
S ALTFISKM ARK AÐURINN:
Útlitið sjaldan
verið eins gott
Langt frá því að
Norðmenn geti
annað eftirspurn
Samkvæmt heimildum,
sem Jóhann J.E. Kúld
hefur frá Noregi/ hefur út-
litiö á saltfiskmörkuðum
sjaldan verið jafn gott og á
þessu ári. Norðmenn gátu
ekki fullnægt eftirspurn á
sínum mörkuðum hvað
þorski viðkom og kom
þetta auðvitað niður á
mörkuðum þeirra, svo sem
i Brasiliu, þar sem þeir
urðu að bjóða saltaða,
þurrkaða keilu í stað
þorsks.
Norðmenn óttast að geta ekki
annað eftirspurn i ár á sinum
saltfiskmörkuðum. Jðhann J.E.
Kúld telur augljóst að Islendingar
ættu að geta komist inná norska
markaðinn fyrst þeir geta ekki
annað eftirspurn. Telur hann
augljóst að ef við gerum það ekki,
þá muni Kanadamenn gera það i
staðinn.
Þá segir Jóhann ennfremur, að
mjög gott útlit sé einnig á
skreiðarmörkuðum, svo fremi
sem Nigeriu markaðurinn lokist
ekki. Fersk-fiskmarkaðina segir
Jóhann vera i mun meiri óvissu
en þó sé almennt búist við hækk-
andi verði á þessu ári þegar á
liður.
Undanfarið hefur verið talað
um að freðfiskmarkaðurinn i
Bandarikjunum þoli ekki meira
framboð án þess að til verðlækk-
unar komi. Þetta er m.a. haft
eftir Guðmundi H. Garðarssyni
hjá SH um siðustu helgi. Ekki er
þvi útilokað að þessir auknu
möguleikar á saltfiskmörkuðun-
um geti bjargað málunum þar
sem ljóst er að þorskveiði verður
með allra mesta móti i ár hér við
land.
— S. dór
Listaverki fagnað
L.
Hér takast þeir i hendur, Ragnar Jónsson i Smára t.v. og Sigur-
jón ólafsson myndhöggvari,austur á Eyrarbakka sl. sunnudag,
en þá var listaverkið „Krian” eftir Sigurjón, formlega afhent
Eyrarbakkahreppi til varðveislu. Verkið er reist þar eystra til
hciðurs og þakklætis Ragnari i Smára fyrir hina stórkostlegu
listaverkagjöf hans til „heildarsamtaka islenskra erfiðis-
manna” og það var Listasafn alþýðu sem lét smiða og reisa
listaverkið nærri Mundakoti á Eyrarbakka, þar sem Ragnar er
fæddur og uppalinn.
Nánar segir frá þessum atburði á bls. 6 i blaðinu idag.
— S.dór.
J
sóttar
stöður í
Kanada
Fyrir skömmu var auglýst
i islenskum blöðum eftir
framkvæmdastjóra við fisk-
vinnslu i Kanada og sóttu um
IIOO manns um stöðuna.
Kanadamenn eru i mjög
harðri samkeppni við
islendinga i fisksölumálum
bæði i Ameriku og Evrópu og
hafa gert mikið af þvi að fá
til sin islcndinga með
sérþekkingu i þessum
málum. Auglýsa þeir
gjarnan að vara þeirra sé
unnin undir eftirliti íslenskra
sérfræðinga.
Kanadamenn eru nú sem
stendur Tiörðustu keppinaut-
ar okkar i sildarsölu á hinum
hefðbundnu sildarmörk-
uðum i Evrópu. Bjóða þeir
sild fyrir mun lægra verð en
tslendingar geta gert. Og
það eru einmitt tslendingar
sem hafa aðstoðað þá mest
við að verka sildina á sama
hátt og við höfum gert hér
um áratuga skeið. Um
þessar mundir vinna
islenskir sérfræðingar um
sildarsöltun á norðurslóðum.
i Kanada við að kenna
Kanadamönnum að verka
sild.
— S.dór.
Fundir um
efnahagsráð-
stafanirnar
i kvöld boðar Alþýðubanda-
lagið i Reykjavik til fundar um
efnahagsráðstafanir rikis-
stjórnarinnar og er frummælandi
Svavar Gestsson. Fundurinn er
að Hótcl Esju. Seinna i vikunni
hefst fundaröð á vegum flokksins
i öllum kjördæmum um sömu
mól. — Sjá bls J
Ekki samstaða í stjóminni um bráðabirgðalög:
„Kjaradómur þvert á
launaj öfnimarstefnuna’ ’
Stórfellt ósamræmi í launum opinberra
starfsmanna fær ekki staðist til lengdar,
segir Ragnar Arnalds fjármálaráðherra
„Til þess að unnt sé að koma i
veg fyrir þá skriðu launahækkana
hjá hálaunamönnum, sem hófst
með úrskurðum Kjaradóms um
áramótin, hefði þurft að setja
bráðabirgðalög þar sem
Kjaradómi væri falið að kveða
upp nýjan úrskurð, eða ein-
hverjum yfirdómi falið að endur-
skoða þessa úrskurði fyrir ein-
hvern ákveðinn tima. En til þess
að þessi leið sé fær, þarf auðvitað
að vcra samstaða uni hana.”
Þetta sagði Ragnar Arnalds
fjármálaráðherra i samtali við
Þjóðviljann i gær. Hugmyndin
um bráðabirgðalög til ógildingar
úrskurðum Kjaradóms um kaup-
hækkun alþingismanna og BHM-
manna naut ekki nægilegs fylgis
innan rikisstjórnarinnar. Þriggja
manna ráðherranefndin, sem
skipuð var til að kanna málið,
hafnaði þeirri leið að ógilda
úrskurði Kjaradóms með bráða-
birgðalögum.
„Min afstaða er algjörlega
óbreytt,” sagði Ragnar. „Ég tel
að skynsamlegast hefði verið að
stemma á að ósi og stöðva þessar
hækkanir, en þar sem fyrir liggur
að nægileg samstaða um þessa
leið er ekki fyrir hendi, þá er ljóst
að hún verður ekki farin.”
Ragnar sagði að rikisstjórnin
hefði mótað launajöfnunarstefnu
með samningum við BSRB en
með þessum úrskurðum
Kjaradóms væri gengið þvert á
þá stefnu. Hann sagðist ekkert
vilja segja ujn bað að sinni,
r-
hvernig brugðist yrði við kröfum
BSRB um kauphækkanir til jafns
við BHM.
„Það kynni aftur á móti að vera
að þingmenn vildu endurskoða
þessa niðurstöðu kjaradóms”
sagði Ragnar. „Spurningin er,
hvernig verði best komið i veg
fyrir að stórfellt ósamræmi
skapist i launum opinberra
starfsmanna eftir þvi hvort þeir
eru i BSRB eða BHM. Ég tel að
slikt ósamræmi geti ekki staðist
til lengdar.” _ eös
■1
FALL ER
FARAR-
HEILL
Smábyltur veröa allir skiðamenn að þola, enda var hann ekkert að sýta fallið, heldur stóð upp
jafnharðan til þess að fara aðra bunu I nýju skiðabrekkunni i Vatnsendahæðinni. Þar hefur veriö
komið upp góðri brekku fyrir byrjendur I skiðaiþróttinni,og þó snjórinn væri i minna lagi i gær var
þar krökkt af krökkum. Fleiri myndir frá Vatnsendabrekkunni verða i Þjóðviljanum á morgun.
Ljósm.—gel.