Þjóðviljinn - 13.01.1981, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 13. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
SÍS stærsta
fvrirtækið
bœði miðað við veltu og starfsmannnajjölda
Samband islrnskra samvinnu-
félaga ber höfuð og herðar yfir
islensk fvrirtæki hvað stærðina
varðar, að þvi er fram kemur í
lista sem timaritið Frjáls verslun
hefur tekið saman. Sama niður-
staða fékkst i fvrra, þá var ein-
Stofnað
Félag
skipa-
frœðinga
Nýlega var haldinn stofn-
fundur félags, sem hlaut
nafnið „Knörr” . félag
islenskra skipafræðinga”, en
eins og nafnið ber með sér
er þetta félagsskapur þeirra,
sem vinna að skipatækni-
málum á tslandi.
Hlutverk félagsins er að
efla samvinnu og samstöðu
félagsmanna sinna, vinna að
upplýsingastrey mi og
fræðslu um skipatæknimál
millí félagsmanna, stuðla að
auknum skilningi utanað-
komandi aðila á mikilvægi
skipatæknimála fyrir at-
vinnuvegi þjóðarinnar og að
eiga samvinnu við önnur
félög og samtök, innlend og
erlend, sem hafa málefni
tengd áhugamálum félags-
manna, á stefnuskrám sin-
um.
Félagsmenn geta orðið
islenskir skipatæknifræð-
ingar og skipaverkfræðing-
ar, sem játast undir lög
félagsins. Einnig geta orðið
félagsmenn aðrir aðilar, sem
vinna að skipatæknimálum á
tslandi.
Stjórn félagsins skipa Arn-
ar Erlingsson formaður,
Bárður Hafsteinsson ritari
og Steinar Viggósson gjald-
keri.
Stofnfélagar voru 20 tals-
ins en stjórnin beinir þeim
tilmælum til annarra, sem
áhuga hafa á að gerast félag-
ar, að hafa samband við einn
stjórnarmanna sem fyrst.
Stefnt er að fyrsta almenna
félagsfundi siðari hluta
mars-mánaðar.
göngu miðað við tryggðar vinnu-
vikur, en að þessu sinni var tekin
upp sú nvbreytni að raða fvrir-
tækjunum samkvæmt heildar-
veltu þeirra. Sú viðmiöun hefur
orðið ofaná í flestum öðruni
löndum við samanburð á fyrir-
tækjum.
Listinn sem nær yfir 100
stærstu fyrirtækin birtist i siðasta
tölublaði 1980, sem var að koma
út, og er unninn af Jóni Birgi
Péturssyni og Ólafi Geirssyni
blaðamönnum. Höfðu þeir sam-
band við hundruð fyrirtækja um
allt land auk þess sem unnið var
uppúr gögnum frá Hagstofu
tslands. 1 samanburðinum koma
fram upplýsingar um heildar-
veltu fyrirtækis, slysatryggðar
vinnuvikur, meðalfjölda starfs-
manna, beinar launagreiðslur og
meðallaun.
Samband islenskra samvinnu-
félaga reyndist hafa 107.478
miljarða króna veltu árið 1979,
Sölumiðstöö hraðfrystihúsanna
kom næst með 76.560 miljarða, en
i næstu þrem sætum komu Flug-
leiðir h.f„Landsbanki tslands og
Oiufélagið með innan við 40 milj-
arða króna veltu. Sambandið
reyndist einnig hafa flest starfs-
fólkið, 1432 að meðaltali yfir árið.
Flugleiðir næstflesta eða 1342,
KEA 1040 starfsmenn og Eimskip
með 1004 starfsmenn.
Launagreiðslur reyndust mjög
mismunandi eftir fyrirtækjum.
Listinn sýnir greinilega að út-
gerðarfyrirtæki togaranna greiða
hæstu meðallaunin. Þar kemur
einnig fram að „útlendu” fyrir-
tækin, s.s. tslenska álfélagið,
Járnblendifélagið, IBM og fleiri,
greiða góð meðallaun. Hæsti
launagreiðandinn árið 1979
reyndist vera togarafélagið
ögurvik, h.f. i Reykjavik, sem
gerir út aflatogarana miklu, Ogra
og Vigra. Meðallaun þess fyrir-
tækis reyndust 14.3 miljónir
króna á hvern starfsmann, en
þeir voru 45 talsins gegnumsneitt
á þvi ári samkvæmt upplýsingum
Hagstofu tslands. Þá vekur at-
hygli aðeitt verslunarfyrirtæki er
með geysiháar launagreiðslur,
það er Brimborg h.f., umboðs-
menn Da ihatsubilanna sem
seldust mjög greiðlega árið 1979.
Þar var meðallaunatalan 12.1
miljón á hvern hinna sjö starfs-
manna. Vitað er að bak við þessar
háu launatölur liggur gengdar-
laus vinna. Onnur fyrirtæki komu
ekki nálægt þessum hvað laun
varðar. Járnblendifélagið var
með meðallaunatölun 8.2 milj-
Tímarit Máls og menningar komið út
Kvennamál og ljóð-
list í brennidepli
Timarit Máls og menningar er
komið út, stórt og veglegt að
þessu sinni, enda er 3. og 4. hefti
slegið saman i eitt. Heftið er að
hluta helgað kvennamálum i
tcngslum við Kvennaráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna i Kaup-
mannahöfnsl. sumar, m.a.erþar
birtur kafli úr bók Domitilu de
Chuangara sem komst i heims-
fréttirnar vegna skörulegrar af-
stöðu til byltingarinnar i Bóiiviu,
cn þar eru maður hennar og börn
nú, meðan hún er landflótta á ferð
um Evrópu.
Það annað efni sem mest ber á i
heftinu er umfjöllun um nútima-
ljóðagerð, má þar nefna grein eft-
ir Silju Aðalsteinsdóttur um
gúanókveðskapinn og umfjöllun
Gunnlaugs Astgeirssonar um ljóð
Stefáns Haröar Grimssonar.þess
mikla skáldjöfurs.
Þá er heftið fullt af skáldskap,
bæði ljóðum og sögum eftir ung
skáld og aldin. Fremst i heftinu er
ljóð eftir Jón Helgason prófessor
sem slær þar á kunnuglega
strengi eins og honum einum er
lagiö.
Adrepurnar eru nokkrar aö
vanda, þar stinga niður penna
þau Svala Sigurleifsdóttir og Vé-
steinn Lúðviksson. Svala tekur til
meðferðar hlut kvenna i skrifum
timarita eins og MM og þá um-
fjöllun sem kour hljóta. Vésteinn
fjallar hins vegar um forsetakosn
ingarnar og stuðning nokkurra
verkalýösleiðtoga viö „alþýöu-
vininn” Albert Guðmundsson og
setur Vésteinn fram all athyglis-
verðar kenningar bar að lútandi
t Adrepu frá ritstjóranum Þor-
leifi Haukssyni er skýrt hvers
vegna svo lengi hefur dregist að
timaritið birtist okkur þyrstum
lesendum og er prentaraverkfalli
m.a. kennt um. Þá kvartar Þor-
leifur yfir þvi, að einkum konur
hafi brugöist við efnisöflun um
kvennamálin, og verði lesendur
þvi að sætta sig við að ýmsa efnis-
þætti vanti, en það er bætt upp
með stærðinni og fjölbreytninni
sem einkennir þetta hefti. _ká
Stærsta fyrirtækið á lika stærsta húsið, — amk. að grunnfleti. Það er
lloltagarðar við Holtaveg.
ónir króna starfsmann, Fisk-
iðjan i Keflavik með 11.7 miljónir,
Útgerðarfélag Skagfirðinga með
10,6 miljónir, IBM með 8.4 mil-
jónir, Fis'kimjölsverksmiðjan h.f.
i Vestm.eyjum með 7.8 miljónir.
Fiskanes i Grindavik með 7.7
miljónir, Hraðfrysihús Tálkna-
fjarðar með 7.7 miljónir.
Auk listans yfir þá 100 stærstu,
fylgja 35 sem næstir standa. Þá
eru sérlistar yfir ýmis fyrirtæki.
t.d. þjónustufyrirtæki, fyrirtæki i
byggingariðnaði, matvælaiðnaði,
bilasölur, stór fyrirtæki i málm-
iðnaði, sparisjóði og banka, fyrir-
tæki i fataiðnaðinum, plastiðnaði,
útgerð. Þá er að finna i blaðinu
lista yfir umfang kaupstaða og
bæja, sjúkrahús og stofnanir
innan rikiskerfisins jafnt sem
utan þess. Loks er listi yfir
nokkrar opinberar stofnanir og
fyrirtæki hins opinbera. Þar kem-
ur i ljós að Alþingi var riflegasti
launagreiðandi þess opinbera
með 9.3 miljón króna laun á hvern
hinn 72starfsmanna.
67 milj. nkr.
sparnaður
miðað við olíu
A sl. ári nam rafmagnsfram-
leiðsla Landsvirkjunar 85% af
rafmagnsframleiðslunni á land-
inu i heild.
I fyrra seidi Landsvirkjun alls
111 GWst inn á Norðurlinu, og
mældist álagið á þvi ári mest 52.6
MW, vegna umræddrar sölu.
Rafmagnssala Landsvirkjunar
inn á Norðurlinu hefur að öllu
leyti komið i stað framleiðslu með
oliu og þannig sparað gifurlega
fjármuni i oliukostnaði. Miðað við
núverandi verðlag á oliu áætlast
sparnaður þessi 67 miljónir ný-
króna (6700 milj. Gkr.) 1980 og 203
miljónir nýkróna (20300 milj.
Gkr.) 1977—1980.
Rafmagnssala Landsvirkjunar
inn á Norðurlinu á að verulegu
leyti rót sina að rekja til þess, að
Kröfluvirkjun hefur enn ekki náð
fullum afköstum. Þannig fram-
leiddi hún aðeins 35 GWst inn á
hið samtengda kerfi á árinu 1980,
og aflgetan hefur mest orðiö 11
MW af 70 MW ástimpluðu afli.
—eös
|~L ands virkjun:
Orkusala til almennings-
rafveitna eykst
i
en orkusala til stóriðju stendur i stað
Orkusala Landsvirkjunar
nam á sl. ári 2550 GWst og hafði
þá aukist um 192 GWst frá 1979
eða um 8.3%. A þessi aukning
rætur að rekja til aukins átags
frá stóriðjunni.
Nokkuð dró úr sölu til al-
menningsrafveitna á fyrri hluta
ársins 1980, en siðustu mánuði
ársins var hins vegar um veru-
lega aukningu að ræða. Vorið
1980 varð 20 MW stækkun hjá
ISAL og um haustið hófst rekst-
ur seinni ofns Járnblendiverk-
smiðjunnar. Af aukningunni hjá
álverinu voru 12 mw ótryggt afl
og 8 MW forgangsafl, en af
orkusölunni til Járnblendi-
félagsins var rúmlega helming-
ur ótryggð orka.
Aþessu ári er ekki fyrirhuguð
nein aukning á samningsbund-
inni sölu til stóriðju, en áætlað
er að orkusala til almennings-
rafveitna aukist um 130 GWst á
árinu.
• i»
* oftsrtva"”- "
W&
aonað se»;' ; hug f or aft Ver'
v a6-""
4272°
ársmm
viW
UO'0°6S'
,n>eot>
VtaPP6*
*"'s
Viáskó'a
ÍS'8°dS
a980
G(Wa Ga,ða"°'
Bókave's"""
Vte'81
,u4 s'ó"25^76670
iat9oW____6. s'o"
s'to'c
ortve«s""'írun6.á«'"
s'tP'^ro swn'38350
aniaö^ cvieQ' ’ oc.930
fc\ePP^60. 35 *
WOSFE±k?a^'n9S
Sttat"
úgöw"
c/o
Jóo
StQ0'1
ÖSSOP
S'ó"
6622®
\<.aoP
,té'a9
6vtat
yo"
8080
„fós'óO
ao9aT„e’
sve 9'
52
S'ó"
,\ B6AA V
Bó'te'"'” ,ut\ WQ'O'- V.\ao»-
6ók»ye.! sa'ató’í'a';u v'a'óa<''„„o
0óV<aöö6Si(Uat'óss°"3 s'm"9S?L Lao=
Ft'tt'aó" ^ tss'óoo.ortatvö'1 "688
V4es't\°t’ ,^at'sóó'"'' „aveg'112, 76 sío"128
O'ö'f'a:Se'9,'Sveswrt>e^r<08
O'b'°9Bria0Waoó',iee,iI s,rt"
Þóte7B'a s'tó'40 Qft0
\ <ri s#löb3fd
ea<&urc^Lftbot%atS^'
,vv'<
ib'W'
lefö'
Qtvoóa'
F'vvgv"
53009'
V'a'f"
voga'
£"6^S6'ssor'
s(ó"6®'9.560