Þjóðviljinn - 05.02.1981, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.02.1981, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 5. febrúar 1981 ÞJ'ÓÐVILJINN — SIÐA 5 ■~Aðstoð USA viö valdaklíkuna í El Salvador j Sjálfsagður hlutur jeða hin iversta heimska? Skæruliðar i E1 Salvador: Hvaft annaö gátu þeir gert? spyr Guardian. Rétt áður en stjórn Carters forseta fór frá tók hún aftur upp hernaðaraðstoð við þá hægrikliku i E1 Salva- dor, sem um hríð var slikri aðstoð svipt — meðal annars vegna þess að meðal fórnar- lamba morðsveita henni tengdra voru banda- riskar nunnur og ráðu- nautar. Ástæðan er augljós: Bandarikin sjá ,,nýja Kúbu” á bak við allar vinstrihreyfingar og kjósa, þegar á reynir, að styðja við bakið á hægrisinnuðum, ,,hefð- bundnum” harðstjórn- um fremur en að taka áhættur lýðræðis. Enginn vafi er talinn leika á þvi, að stjórn Reagan verði enn umsvifameiri i stiöning við blóð- stjórn Napelons Duarte i E1 Salvador, og muni ekki hika við að senda eigin hersveitir á vett- vang ef þurfa þykir. En i þessu máli kemur fram djdpstæður ágreiningur milli bandariskra og evrópskra sjónar- miða. Ljós dæmi þar um má t.a.m. finna i einu og sama tölu- blaði breska blaðsins Guardian Weekly, en þar eru og birtir „kálfar” með greinum úr banda- riska blaðinu Washington Postog franska blaðinu Le Monde. „Enginn annar kostur” t leiðarastúf um E1 Salvador i Washington Post, sannast það enn, að þótt hin skástu bandarisk blöð kunni vel að fara með ýmis- leg gagnrýnin viðhorf til yfir- valdsins, þá munu þau sjá rautt þegar komið er að ástandinu i þeirri Rómönsku Ameriku sem Bandarikin hafa jafnan fjarstýrt i krafti hins „stóra stáfs” her- veldis sins. Washington Post tekur undir aukinn stuðning við E1 Salvador þvi að blaðið sér Kúbu og Sovétrikin á bak við hverja hræringu þar i álfu sem er Stóra bróður i norðri óþægileg. Blaðið segir: „Hernaðaraðstoð kemur ekki i staöinn fyrir þær umbætur sem einar geta tryggt löglega st jórn til langframa. En það er heldur engin þörf á að sneiða hjá nauð- syn varfærinnar og virkrar hern- aðaraðstoðar. Nicaragua, Kúba og Sovétrikin einhversstaðar á bak við þau riki hafa ekki gefið Fréttaskýring Reagan forseta neinn annan kost.”. Ný Kampútsea? Evrdpsku stórblöðin hafa allt önnur viðhorf til þessa máls, sem fyrr segir. Le Monde tekur svo stórt upp i sig, aö spyrja i fyrir- sögn: „E1 Salvador: er vestræn Kampútsea að verða til” — og á þá við hiö mikla blóðbað þar vestra. Le Monde telur banda- risku forsetana á verstu villu- stigum i þessum málum og segir: „Þaö er ekki slæmt að hjálpa bandamönnum sinum gegn and- stæðingi. En það er hættulegt að hafa vinskap við harðstjóra, sem traðka á þeim grundvallarreglum sem Bandarikinlýsa sig fylgjandi og draga jafnaöarmerki milli andstöðu við kommúnisma og þess að verja hagsmuni for- réttindastéttar, sem er jafnvel skammsýnni en okkar eigin (franska) reyndist I uppreisn vef- aranna i Lyon 1831... Ef mannréttindi eru alls- staðar látin vikja fyrir baráttunni við kommúnismann eru meiri likur á þvi að mannréttindi setji enn meir ofan en fyrr en að kommúnisma sé 1 reynd haldið i skefjum. Þvi þegar sú harðstjórn sem fyrir er verður enn harðhentari er ýtt undir kommúnisma. Sú skipan sem haldið er uppi með vopnavaldi elur af sér þrá eftir byltingu sem reynist eina leiðin út úr ógöngunum. Með þvi að kremja undir sér „þriðja aflið” eru einræðisherrar Suður- Ameriku aö hrekja hina kúguðu i átt til kommúnisma yst til vinstri eða kommúnisma af sovéskri gerðl’. Skelfileg yfirsjón Hið breska blað sjálft, Guard- ian.tekur mjög eindregna afstöðu með FDR, þeirri fylkingu sem berst nú við hægriklikuna 1 E1 Salvador. Guardian segir: „Bandarikjamenn eru að fremja skelfilega yfirsjón. Þeir senda ekki þyrlur eða „ráðgjafa- sveitir” til að svæla út nokkra skæruliöa heldur reyna þeir að brjóta á bak aftur þá einu póli- tisku hreyfingu sem liklegt er að hægt verði aö binda vonir við i E1 Salvador. FRD, Lýðræðislega byltingarhreyfingin, andstöðu- hreyfing óbreyttra borgara sem styður uppreisnina, er hin breið- asta af breiðfylkingum, spannar allt frá Kristilegum demókrötum tíl hægri til Kommúnista og utar til vinstri. Hún er studd af sveitum vopn- aðra bænda úti á landsbyggðinni og götunefndum 1 borgum, af stúdentum, verkalýðsfélögum, kaþólskum prestum og starfs- greinasamtökum. Foringjar hennar eru vel þekktir stjórn- málamenn úr miðju stjórnmál- anna. Núverandi forseti hennar er Guillermo Ungo, sósialdemó- krati, varaforsetaefni i kosning- unum 1973 og ráöherra 19791’ Gátu þeir annað? „Kosningar? Hvenær hafa frjálsar kosningar verið leyfðar i E1 Salvador siðustu hálfa öld? Kannski sigra vinsælir leiðtogar i þeim, en það er alltaf herinn sem endanlega vinnur talninguna. Og hver áræðir að gegna opinberum störfum i E1 Salvador þegar svo er ástatt, aö á siðastliðnu ári einu saman myrtu dauöasveitir hægri- sinna, sem verndaðar eru af öflum innan rikisstjórnarinnar, erkibiskupinn, rektor háskólans, alla þáverandi foringja stjórnar- andstöðunnar, helsta foringja bænda — að ekki sé minnst á þrjár bandariskar nunnur og tvo bandariska sérfræðinga I jarða- bótum? Við þessar aðstæöur er það ekki undarlegt þótt margir föður- landsvinir I E1 Salvador skuli hafa viljað skipuleggja og hefja vopnaða uppreisn alþýðu. Hvaða leið áttu þeir aðra?” Keðjuverkanir Guardian kemur og með fróð- lega athugasemd um alþjóðleg áhrif hinnar bandarisku Ihlutunar i E1 Salvador. Blaöið segir, að kannske muni fréttirnar um aðstoð Bandarikjanna við stjórn E1 Salvador hafa komið einna verst við mann að nafni Lech Walesa — vegna þess að þessi aðstoð „gerir það nokkru auð- veldara en ella fyrir Kremlverja að velta fyrir sér innrás i Pólland. Rétt eins og Súezævintýri Breta og Frakka 1956 gerði rússneska innrás i Ungverjalandi auðveld- ari og rétt eins og bandarisk inn- rás i Dóminkanska lýðveldið ruddi veginn fyrir þvi að Dubcek var steypt i Tékkóslóvakiu — einmitt þannig er sú ákvörðun Bandarikjamanna að reyna að hressa upp á hrynjandi virki sitt i Mið-Ameriku óbein en raunveru- leg hætta fyrir Samstöðu (hin óháðu pólsku verkamannasam- tök). Kannski ekki þessa viku, ekki á næsta mánuði, en til að setja á dagskrá i framtiöinni. Þaö er einmitt þannig sem stórveldi haga sér. Þetta er það sem áhrifasvæði snúast um”. Sálir sóslaldemókrata Það mætti vel hugsa sér i fram- haldi af þessu, að heitt og ákaft yrði mótmælt ef dulbúnar lög- reglusveitir pólskar væru búnar að myrða Lech Walesa, einnig foringja bændasamtakanna pólsku sem nú biða eftir viöur- kenningu, sömuleiðis Wyszinski kardinála og alla nefndarmenn i KOR — svo að rakin séu dæmi hliðstæð við það sem gerst hefur i E1 Salvador. Og væru þau mót- mæli meira en sjálfsögð og nauðsynleg. Margir stjórnmála- menn evrópskir hafa og tekið ein- arðlega afstöðu gegn þeirri valdakliku sem Bandarikjamenn eru að reyna að bjarga, ekki sist sósialdemókratar, enda er flokksbróðir þeirra, Ungo, nú for- seti uppreisnarfylkingarinnar. Það er lika vitað, að bandariskir sendimenn ganga nú um eins og grenjandi ljón i bækistöðvum evrópskra sósialdemókrata- flokka til að fá þá til að breyta af- stöðu sinni. Til dæmis að taka hafa ábyrgðarmenn 1 Verka- mannaflokkinum norska og Sósialdemókrataflokknum danska skýrt frá þvi, aö þeir hafi fengið heimsóknir af þessu tagi, en visað tilmælum hinna banda- risku útsendara á bug. Það væri gaman aö vita hvort Alþýðuflokkurinn heföi hlotið slika heimsókn; eða kannski þykir Könum ekki taka þvi að tala við hann? Hitt er svo vist, að þeir hinir sömu þurfa ekki aö hafa áhyggjur af Morgunblaðinu i þessum efnum — það mun alltaf og alveg af sjálfsdáðum og ótil- kvatt trimma á eftir Reagan i hans úthlaupum gegn „kommún- isma” — reyna að hlauDa feti framar ef hægt væri. —00. Carter kveður Hvita húsið hnugginn og hefur slokknaö á þvi ljóskeri mannréttinda sem hann heldur á En Reagan gengur I garð meöljá mikinná öxl. Þarstendur: Sá sem er sterkur hefur rétt fyrir sér! ■ ■ .»1 Danska sósíalistadagblaðið er í hættu Reynt aö koma á samstatfi tveggja vinstrijlokka um dagblaösútgáfu Vinstrisinnuð dagblöð eiga jafnan i erfiðleikum og ber þar helst til að staða þeirra á auglýs- ingarmarkaði er erfið. Eitt slikt blað, Socialistisk Dagblad (SoDa), sem tengt er SF, Sósial- iska alþýðuflokknum danska, á' nú I miklum erfiðleikum og hyggst leysa þá m.a. með auknu samstarfi við annan flokk vinstri- sinna, VS, Vinstrisósialista. SoDa er eina dagblaðið sem byrjað hefur verið á i Danmörku eftir striö sem hefur getað lifað. Það hóf göngu sina 1970 sem flokksmálgagn SF en hefur siðan Torben Krogh tók við ritstjórn þess 1974 reynt að vera „opið” dagblað fyrir vinstrisinna. Það er m.a. á þeirri reynslu sem sam- starf við VS er nú rætt, en VS er reyndar upphaflega klofningur út úr SF, sem varð þegar hinn rót- tækari armur Sósialiska alþýðu- flokksins sagði skilið við flokkinn vegna stuðnings hans við óvin- sælar efnahagsráðstafanir minni- hlutastjórnar Sósialdemókrata. SF hefur jafnan verið allmiklu stærri flokkur en VS, en saman hafa þessir tveir flokkar vinstri- sósialista haft 10—12% atkvæða i siðustu kosningum. Kommúnista- flokkurinn, DKP, er svo sér á báti og á nú ekki menn á þingi, en 2% atkvæða þarf til að komast á danska þingið. Socialistisk Dagblad er litið i fréttum en þeim mun iðnara blað við birtingu greina um sósialiska baráttulist, félagsleg vandamál og alþjóðamál. Blaðið kemur nú út i 6000 ein- tökum og er þvi allmiklu minna en t.d. Þjóðviljinn. Það hefur eins og svo mörg sósialistablöð lifað mjög á fjársöfnunum meðal stuðningsmanna. Til dæmis hafa blaðinu nýlega safnast 600 þúsund krónur. En skuldirnar nema 1.4 miljónum og verður blaðið að ganga i gegnum niðurskurðar- tima og m.a. lækka launin hjá flestum starfsmönnum ritstjórn- ar og prentsmiöju. Geta þeir samningar orðið mjög erfiðir. Það hefur einkum komið sér illa að dregiö hefur úr verkefnum hjá prentsmiðju þeirri sem blaöið á. Torben Krogh, hefur reynt afi gera SoDa að vettvangi vinstri- umræðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.