Þjóðviljinn - 05.02.1981, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 05.02.1981, Blaðsíða 16
Aðalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná I blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná i afgreiöslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 t fyrrakvöld voru haldnir i Austurbæjarbiói tónleikar I minningu John Lennon, hins ástsæla Iaga- og textahöfundar The Beatles. Troðfullt var á tvenna tónleika og komust færri að en vildu. Var það mál manna að mjög vel hefði tekist, enda lögðu allir okkar fremstu tónlistarmenn á þessu sviði hönd á plóginn, undir trausti framkvæmdastjórn óttars Felix Haukssonar. Rfkti mikil stemning meðai áhorenda og flytjendur klappaðir upp margsinnis. Aliur ágóði af tiltækinu rennur til Geðverndarfélags islands, og er viðbúið að þar hafi bæst i sjóðinn nokkur hundruð þúsund nýkrónur A myndinni sést Egill Ólafsson syngja lagið Power To The People með tilheyrandi tilburðum. Nánar verður fjallað um tón- leikana i sunnudagsblaði Þjóðviljans. Ljósm. —gel— Ákvörðun um að dreifa skelfiskveiðum vekur deilur: Til að tryggja atvinnuöryggi — Segir sjávarútvegsráðherra DIOÐVIUINN Fimmtudagur 5. febrúar 1981 Tillaga 3 þingmanna Erlendir menn fái að halda nöfnum sínum Þrátt fyrir aö þeir taki sér íslenskan ríkisb orgararétt Þrir þingmenn, þeir Stefán Jónsson, Eiður Guðnason og Salóme Þorkelsdóttir.hafa ákveð- ið að flytja breytingartillögu við frumvarp um veitingu rikis- borgararéttar og felur tillagan i sér að þeir útlendingar sem fá islenskan rikisborgararétt þurfi ekki að skipta um nafn. Sam- kvæmt islenskum lögum skal maður er heitir erlendu nafni taka sér islenskt fornafn er hann hlýtur islenskt ríkisfang. Þá skulu börn hans taka islensk nöfn. Frumvarp um að veita 22 ein- staklingum islénsk rikisfang kom til umræðu i efri deild i gær og mælti dómsmálaráðherra fyrir þvi. Við það tækifæri lýstu ofan- greindir þingmenn yfir andstöðu sinni við það að útlendingar þyrftu að taka sér islenskt for- nafn. Bentuþessir þingmenn á að nafn hvers einstaklings væri það rikur hluti af persónu hans að ósanngjarnt væri að krefjast þess að menn köstuðu nafni sinu fyrir róða þegar þeir öðluðust islenskan rikisborgararétt. Þing- mennirnir töldu þó rétt að börn viðkomandi tækju sér islenskt fornafn. Uta nrikisráðherrar ólafur Jóhannesson, minnti á að nú þyrftu útlendingar aðeins að taka sér islenskt fornafn en fyrir nokkrum árum þurftu þeir einnig . að gefa frá sér eftirnafn sitt. Taldi ráðherra að með þvi hefði verið farinn millivegur i málinu auk þess sem enginn væri neydd- ur tilað sækja um islenskan rikis- borgararétt. Ddmsmáiaráðherra lagði áherslu á að brýnt væri að endur- skoða gildandi lög um islensk mannanöfn og tóku þingmenn undir það. A 6. siðu er birtur listi yfirþá sem gerð er tillaga um að öðlist íslenskan rikisborgararétt i ár. h Steingrimur Her- mannsson hefur ákveðið að veita leyfi til skelfiskvinnslu á þrem- ur stöðum við Breiða- fjörð. Hefur Stykkis- hólmi verið úthlutað leyfi til að vinna 7200 tonn, Grundarfirði 400 tonn og Brjánslæk á Barðaströnd 400 tonn. Ákvörðun ráðherra að dreifa vinnsluleyfum á þrjá staði var harðlega gagnrýnd á Alþingi i gær af Eiði Guðnasyni og Kjartani Jóhanns- syni. Taldi Eiður að með þessu væri verið að stefna atvinnuöryggi ibúa Stykkishólms i hættu i framtiðinni en Stykkishólmur hefur verið aðalvinnslustaður skelfisks og skelfiskur undirstaða atvinnulifs Framhald á bls. 13 Bæjarfoss stöðvast: Uppskipunar- bann í Skotlandi Sjómenn óánægðir með stefnu EBE 1 fiskveiðimálum Fregnirbárusthingaötillands I gær um þaö aö uppskipunarbann væri skolliö á i Skotlandi. Stöövaöist uppskipun úr Bæjar- fossi sem var aö flytja frysta sild á markað. Sjómenn i Skotlandi eru mjög óánægöir vegna þess aö ekki hefur verið mörkuð fisk- veiðistefna innan Efnahags- bandalagsins. Þeir hafa einnig lýst óánægju sinni með aö ódýr fiskur streymi aö meðan ekki borgi sig fyrir þá aö veiöa. Þvi hafa þeir hafiö herferð, lokaö höfnum og ætla aö reyna aö kný ja á um úrbætur I sinum málum. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson hjá Sölumiöstöö Hraöfrystihúsanna sagöi aö veriö væri aö leita aö öörum staö þar sem Bæjarfoss gæti landaö, en þetta mál heföi komiö svo skyndilega til, aö ekki heföi gefist timi til aö kanna hver áhrif uppskipunarbannið hefði. Hins vegar sagði hann aö mjög litiö væri um siglingar á erlenda markaði um þessar mundir, vegna þess hve veröiö væri þar lágt. ká Skelvinnslan á Barðaströnd: Fundið fé fyrir fólkið og okkur Fiskifræöingar hafa lagt til aö rýmkað veröi um skelfiskveiðar I Breiöafirði i ár og sjávarútvegs- ráöherra hefur heimilaö 8 þúsund lesta veiðar i staö 7 þúsund I fyrra og bætt Brjánslæk við sem þriöja vinnslustaö. Flóki h.f. sem hefur bækistöö sina á Brjánslæk á Barðaströnd hefur fengiö leyfi til vinnslu á 400 lestum, enda munu veiöarnar að einhverju leyti nú færact yfir á Breiöafjörö norðan- verðan. Ragnar Guðmundsson á Brjánslæk sagöi i samtali viö blaöið að skelvinnslan kæmi til meö aö bæta mjög atvinnu- ástandiðá Baröaströnd. Að Flóka h.f. stæðu ísfiröingar, einn Arn- firðingur auk Ragnars sjálfs. „Flóki h.f. hefur m.a. stundaö hrefnuveiöar”, sagöi Ragnar, og aöstaöa til vinnslunnar er hér að nokkru fyrir hendi. Viö höfum frystiaðstööuna en þurfum aö stækka húsiö dálitiö. Væntanlega veröur þaö gert i sumar og skel- fiskveiðarnar svo hafnar i haust. Hafnaraðstöðu þarf að bæta og standa vonir til að af þvi veröi i sumar.” Að lokum sagöi Ragnar Guömundsson aö skelvinnslan væri fundið fé bæöi fyrir verka- fólkiö og fyrirtækiö, þvi vinnan við hrefnuna hefði verið tiltölu- lega stutt og stopul, en fjárfesting mikil. — mhg Breska íhaldiö hætti að hlakka yfir klofningi Verkamannaflokksins Nýi krataflokkurinn tekur fylgiö frá íhaldsflokknum “I Frá össuri Skarphéðinssyni I ■ Bretlandi: IEnginn þeirra ellefu þingmanna sem hyggj- • ast kljúfa sig frá Verka- ' mannaflokknum og ^tofna nýjan flokk ■ sósialdemókrata myndi Ihalda þingsæti sinu ef kosningar færu fram nú. . Gildir þá einu hvort IFrjálslyndi flokkurinn styddi þá eða ekki. ■ Þetta kom fram i ýtarlegri I skoöanakönnun sem stórblaðið Enginn ellefumenn inganna úr klofningsliöinu kœmist á þing vœri kosið nú Guardian og ITV-sjónvarpsstööin létu gera í kjördæmum ellefu- menninganna. Samkvæmt skoðanakönnuninni myndi hinn tilvonandi flokkur sósialdemókrata veröa annar stærsti flokkur Bretlands, næst á eftir Verkamannaflokknum. 011- um á óvart sýndi könnunin aö ein- ungis litill hluti af fylgi Verka- mannaflokksins myndi snúast á sveif meö sósialdemókrötum. Mestur hiuti fylgis þeirra myndi hinsvegar koma frá ihaldinu sem nú er hætt aö hlakka yfir klofn- ingnum i Verkamannaflokknum, og sér fram á mikið fylgistap til nýja flokksins við næstu kosn- ingar. Frjálslyndi flokkurinn myndi jafnframt missa mikinn hluta af fylgi sini og ef til vill þurrkast út af þingi. Þess má geta að fyrri skoöana- kannanir, sem m.a. voru geröar af siödegisblööum eins og The Sun, og sýndu fylgishrun Verka- mannaflokksins, höföu þann ann- marka aö vera geröar i hefð- bundnum ihaldskjördæmum. En samkvæmt skoðanakönnun Guardian kæmist David Owen, einn af leiðtogum klofnings- manna og fyrrverandi utanrikis- ráöherra, ekki einu sinni aö sem þingmaöur þó aö hann sé fram- bjóöandi i kjördæmi þar sem vænta má verulegs ihaldsfylgis yfir til nýja flokksins. Stuöningsmönnum Verka- mannaflokksins hefur létt nokkuð viö þessi tiðindi, en Michael Foot leiðtogi flokksins hyggst gera frekari tilraunir til þess að halda klofningsliðinu inni, og segir að nú skipti öllu máli ,,aö öll litbrigði flokksins sameinist til aö varna þvi að Thatcher sparki bresku þjóðinni fram af barmi glötunar- innar”. —ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.