Þjóðviljinn - 05.02.1981, Side 7

Þjóðviljinn - 05.02.1981, Side 7
Fimmtudagur 5. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 7 Manhattan Bandarisk, árgerö 1979. Leikstiórn: Woody Allen Handrit: Woody Allen og Marshall Brickman Kvikmyndun: Gordon Willis Tónlist: Gershwin Aöalhiutverk: Woody Allen, Diane Keaton, Mariel Hemmingway.Michael Murphy, Meryl Streep. Woody Allen hefur verið að færa sig upp á skaftið á undan- förnum árum. Hann byrjaði kvikmyndaferil sinn sem höfundur handrits að myndinni What’ s New Pussycat? árið 1965 og hefur siðan á einn eða annan hátt veriö viöriðinn u.þ.b. 14 kvikmyndir — sem leikari, höfundur handrits eða leik- stjóri, og oftast allt þetta i senn. Það er þó ekki fyrren i siðustu myndum hans sem hann kemur fram sem verulega þýöingar- mikill kvikmyndastjóri, einn af þeim sem sýna okkur samtiðina i spegli. Tónabió hefur sýnt tvær þess- ara mynda: Anne Hall(1977) og Manhattan (1979). Þessar myndir eiga ýmislegt sameigin- legt og fjalla um svipuð vandamál og samskonar fólk: taugaveiklaða „intelligentsiu” i New York. Þær eiga það lika sameiginlegt að samtölin i þeim eru fyndnari en gerist og gengur i kvikmyndum. En það sem ger- ir þær eftirminnilegar er þó fyrst og fremst Woody Allen sjálfur, sú persóna sem hann skapar á tjaldinu. Woody Allen er nefnilega einn af þessum gamanleikurum sem hefja sig upp yfir flatneskjuna og meðalmenskuna og eru fyrr en varir komnir i bás með snill- ingum. Ég held það sé ekki guð- last að tala um hann og Chaplin i sömu andránni, eða bera saman myndir einsog Borgar- ljósin og Manhattan. Við verðum þá aðsjálfsögðu aðhafa huga að timarnir hafa breyst, og vandamálin og mennirnir sömuleiðis. En Woody Allen hefur til að bera þennan eigin- leika sem Chaplin átti i svo rik- um mæli: að geta tjáð sig um alvarlega hluti með háði og skopi og koma áhorfendum til að hlæja „þrátt fyrir allt”. Manhattan er mynd sem er uppfull af mótsögnum. Hún er að stórum hluta ástaróður til New York, þar sem rómantikin er undirstrikuð með frábærri svarthvitri myndatöku og tón- list Gershwins. Jafnframt er hún lýsing á lifi fólks sem þjáist af öryggisleysi og sér ekki út fyrir eigin nafla. I þessum heimi er sálgreining stór hluti af tilverunni, en sálgreinendurnir eru kannski ruglaðastir allra. Fólk þetta slær um sig með lærðum frösum, sem koma eng- um að gagni, en á bak við Spegill Tarkofskís Sovésk, árgerö 1974 Leikstjóri Andrei Tarkofski Leikendur: lnnokenti Smoktunofski, Margarita Terekhova, Oleg Jankofski. Andrei Tarkofski er tvimæla- laust i hópi merkari sovéskra kvikmyndastjóra, þeirra sem nú lifa. Þekktastur er hann fyrir mynd sina um ikonamálarann Andrei Húbljof (sýnd i sjón- varpinu i vetur), en aðrar myndir hans eru Bernska tvans, Soiaris, Spegill og tvær nýrri myndir, ein sem á ensku heitir The Stalker og önnur sem ber heitið Nostalgia. Fjalakötturinn ætlar að vera svo elskulegur að sýna okkur Spegilinn i þessari viku. Þessi mynd er sovéskum kvik- myndayfirvöldum þyrnir i aug- um, og gefa þau upp þá ástæðu að hún sé „óskiljanleg, innhverf og leiðinleg”. Gagnrýnendur á Vesturlöndum hafa þó yfirleitt verið á öndverðum meiði við þetta sjónarmið og gefið Spegl- inum háar einkunnir. Spegill er afar persónuleg mynd. Hún er byggð að miklu leyti á bernskuminningum Tarkofskis; móðir hans leikur eitt hlutverkanna i myndinni og faðir hans les frumsamin ljóð, sem eru hluti af texta myndarinnar. Tarkofski stekkur fram og til baka i timanum, en dvelur þó lengstaf við fortiðina. Inn i myndina fléttast svo draumar og mar- traðir höfundarins frá bernsku- árunum. Tarkofski er semsé að sýna okkur fortiðina og lif sitt i marg- földum spegli, einsog segir i dagskrá Fjalakattarins. Til þess notar hann þau meðul sem kvikmyndalistin hefur upp á að bjóða og þá fyrst og fremst kvikmyndatöku sem hlotið hef- ur griðarlegt hrós — menn hafa likt myndinni við verk frægra málara fyrri alda, og til eru þeir sem segja að jafnvel þótt maður skilji ekki innihald og boðskap myndarinnar geti maður þó alltaf notið formsins. En um þetta getum við ekki dæmt fyrren við erum búin að sjá myndina, og verður hún sýnd i Tjarnarbiói kl. 20 i kvöld kl. 13 á laugardaginn og kl. 19 og 22 á sunnudaginn. 1 i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I siðan á eftir honum. Leikararnir i myndinni eru I hver öðrum betri. Diane Keaton ! er löngu þekkt sem „prima- | donna” Allenmyndanna, og ■ bregst ekki hér fremur en i I Annie Hall. Mariel Hemingway " er sannfærandi i hlutverki ■ skólastelpunnar, sem er algjör I andstæöa við allar aðrar persón- ! ur myndarinnar og sú þeirra | sem von er bundin við, einsog ■ best kemur fram i lokaatriðinu. J Að lokum vil ég taka undir I með danska gagnrýnandanum ■ sem sagði: „Ef þú ert einn | þeirra sem aðeins fara i bíó ■ tvisvar á ári skaltu sjá Man- | hattan i bæði skiptin”. Diane Keaton og Woody Ailen i „Manhattan”. frasana leynist ótti og örvænt- ing. Yfir vantrú á sjálfan sig er breitt með sifelldum yfirlýsing- um um eigið ágæti. Skopskyn Woody Allens hefur J3 kvikmyndir Ingibjörg Haralds- dóttir skrifar oft verið nefnt bóklegt, og vissu- lega eru samtölin ein sterkasta hlið hans. En hann kann lika að notfæra sér myndmálið án orða, um það er mörg dæmi að finna i Manhattan. Eitt af þessum mörgu dæmum er t.d. atriðið þar sem Isak (Allen) stendur fyrir utan búðarglugga með syni sinum. Kvikmyndavélin er staðsett inni i leikfangaverslun- inni og við fylgjumst með þög- ulli togstreitu feðganna: strákurinn vill stórt skip, en pabbinn bendir á annað minna. Þessari togstreitu lýkur með þvi að strákurinn tekur á rás inn i búðina og pabbinn þreifar i vasa sinn eftir peningum og röltir Filip Janovski heitir þessi drengur, sem leikur Tarkofski ungan I myndinni Spegill. Fjalakettínum Jk Samband íslenskra rafveitna: Aukning útgjalda meiri en gjaldskrárhækkunin Itafveitustjórar hvaöanæva af landinu sátu fund Sambands isl. rafveitna um fjárhagsstööuna og afgreiöslu stjórnvalda á bciönum um gjaldskrárhækkanir sl. föstu- dag einsog sagt var frá i Þjóövilj- anum. i lok fundar var samþykkt svohljóöandi ályktun: „Afgreiðsla stjórnvald'a á beiðnum rafveitna um leiðrétt- ingar á gjaldskrám hefur verið meö þeim hætti um langt skeið að núhorfir til algerra vandræða. Er þess skemmst að minnast að um áramót ákvað rikisstjórnin 10% hækkun á opinberri þjónustu, þ.á m. á verði raforku til notenda. Innan þeirrar hækkunar átti að rúmast 16% hækkun til heildsölu- aöila, þ.e. þeirra virkjanafyrir- tækja sem selja rafveitum orku. Þetta þýðir, að útgjöld flestra rafveitna vegna orkukaupanna einna saman aukast meira en gjaldskrárhækkuninni nemur. Er þetta svipuð afgreiðsla og raf- veitur hafa fengið siðustu 12—15 mánuðina og sigur þvi sifellt á ógæfuhliðina. Á þessu timabili hafa rafveitur engar hækkanir fengiö til að mæta auknum kostnaði viö aöra þætti i rekstri og uppbyggingu dreifikerfanna i þeirri veröbólgu sem geisað hefur. Kostnaður raf- veitna við orkukaup á undanförn- um árum hefur verið milli 40 og 50% af orkusölutekjum þeirra. Hefur hann farið vaxandi og er nú kominn upp i 60—65% aö jafnaði. Senn fer sá timi i hönd, sem notaður er til framkvæmda við dreifikeri á nýjum bygginga- hverfum auk viðhalds og lagfær- inga á eldri kerfum. Ekki er fyrirsjáanlegt að rafveitur geti keypt nægilegt efni til þessara framkvæmda né greitt laun vegna þeirra. Má þvi gera ráð fyrir miklum samdrætti i starf- seminni á þessu ári, sem getur stefnt rekstraröryggi i hættu og er ófyrirsjáanlegt hverjar afleiðingarnar kunna að verða m.a. fyrir húsbyggjendur.” Rafveitustjórar ræddu gjaldskrármálin á fundi s.l. föstudag. Haukur Pálmason sem situr fyrir borös endanum stýröi umræöum ásamt Aöalsteini Johnsen formanni SIR. — Ljósm. — gel.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.