Þjóðviljinn - 20.02.1981, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 20.02.1981, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. febrúar 1981. KÆRLEIKSHEIMILIÐ Hæ> pabbi! Komstu með litlar sápur? r Oþægileg uppákoma í bandarísku sædýrasafni: Finna reyndist karlkyns! C16 THt HARTFORD COURANT W.dnMdor, Jonoo/y Sex of Whale Is Surprise VANCOUVER t UPI * — Vancouver pubhc aquarium officials may stake a claim to first prize in the embarrassment sweepstakes — one of the fe- male whales they purchased in Iceland more than a month ago has tumed out to be a male To add to their embarrassment. the discoverv was made by a spectator at one of the daiiy whale shows in Stanley Park The spectator noticed Finna displaymg a phvs- ical characteristic that wayjnmistakab'ly male He told a guide who ín turn told chief trainer Klaus f Michaelis. Aquarium curator Gil Hewlett said the whales. imported from Iceland, were examined by a team of veterinarians before they left "Finna was the only one they had a little doubt about, but in the end they were sure she was female and we never dreamed of questionmg their word Hewlett said. "Sometimes /ou can tell if it's female and some- times you can’t," assistant chief trainer Doug Pem- berton explained Sunday before the revised two male-one female whale show resumed in SUnlev Park. 3 The aquarium had imported two Icelandic whales for company for their lonely 15-year-old male killer whale Hyak whose mate died in the fall Pemberton said the staff was sure the other Icelandic import. Bjossa, was female “There was some sloughing icovering) of skin over the nipple openings (on Finna)," Pemberton Mid. "A male whale has one long slit, but a female has three slits —one Iong one and two short ones." /== Málshátturinn: Eftirráöin eru mörg, fyrirráðin færri. Það kom heldur betur á einn gest i sædýrasafninu þeirra i Vancouvcr i Bandarikjunum þegar hann sá að kvenháhyrn- ingurinn Finna sem safnið keypti frá islandi fyrr i vetur brá undir sig betri fætinum eins og karlháhyrningar einir gera. Kallaði hann þegar á yfirþjálf- ara háhyrninganna og jú, — þvi varð ekki lengur leynt að Finna var greinilega karlkyns! Þessa frétt höfum við úr blað- inu Hartford Courant frá 28. janúar s.l. og fylgir það sögunni að hinn islenski háhyrningurinn sem heitir Bjössa sé aftur á móti örugglega kvenkyns. Þaö er lika eins gott þvi dömurnar tvær voru keyptar til þess að lifga upp á tilveru ekkilsins Hyak, en maki hans lést s.l. haust. 1 féttinni kemur einnig fram að i upphafi hafi leikið nokkur vafi á kynferði Finnu, en dýra- læknir safnsins sagðist þó ekki hafa séö ástæðu til þess að efa þá niðurstöðu islensku sérfræð- inganna að Finna væri kven- kyns. Kyngreining ungra háhyrn- inga er ekki með öllu einföld en kvendýrin hafa þrjár rifur yfir geirvötunum, eina langa og tvær stuttar en karldýrin aðeins eina langa. Alitið var að skinn- fellingar yfir stuttu rifunum tveimur á Finnu myndu opnast með timanum, hún væri sem sé kvenkyns. é . viðtalið Rætt viö Gísla Ingvarsson um menningarhúsið á Akureyri ,,Erum að svala eigin forvitni 55 i liðinni viku öðlaðist Rauða húsið á Akureyri, fyrrum kaffi- hús eyrarkarla nyrðra sem um árabil hefur i mikilli niður- niðslu, á ný fullt gildiog nú sem hvorki meira né minna en menningarmiðsiöð norðan- manna. Það er hópur ungs fólks á Akureyri sem stendur fyrir til- tækinu og hefur varið þeim tima sem liðinn er af nýju ári til að endurreisa Rauða húsið jafnt að veraldlegum sem andlegum mætti. Gisli Ingvarssoner einn i hópi fleiri góðra framtaksmanna. Hann sagði i samtali við Þjóð- viljann að hugmyndin með stofnun þessarar menningar- miðstöðvar hefði legið um nokk- urn tima i loftinu. — Okkur langaði að sjá hluti sem við höfðum haft kynni af annars staðar, og þá einkum að koma þeim á framfæri hér i bæ, og at- huga með viðtökur. Eiginlega Gisli Ingarsson: Erum öll venjulegt fólk, ekki i neinum stöðum. erum við að svala eigin forvitni, þvi það sem fyrir okkur vakir er að hafa á boðstólum ýmislegt sem ekki hefur áður þekkst hér. Hvað er þar helst til að tina? — Húsnæðiið sem við höfum til umráða samanstendur af um 40—50 fermetra sýningarsal og þvi má reikna með að nokkuð fari fyrir myndlistarþættinum. Hins vegar höfum við sem stöndum að þessu fyrirtæki mikinn áhuga á að hér verði fluttir heimspekifyrirlestrar, skáld og aðrir upplesarar komi i heimsókn og einnig hefur verið talað um tónlistarflutning þannig að ýmislegt kemur til greina. Hvaða hópur stendur að baki þessari starfsemi? — Ailt er þetta tiltölulega ungt fólk, og að hluta til listafólk, skáld og heimspekingar. Hins vegarerum við öli ósköp venju- legt fólk, þ.e. ekki fólk i neinum stöðum. Starfsemi þessarar menningarstöðvar er algjörlega rekin af okkur sjálfum. Við tök- um sameiginlega ákvarðanir um hvað er á boðstólum hverju sinni auk þess sem við borgum öll 8, sem stöndum aöallega að baki þessu, mánaðarlega skatt til að halda rekstrinum gang- andi. Hvað kom til að þið settust að i Rauða húsinu? — Við höfðum leitað þó nokkuð fyrir okkur með húsnæði hjá einkaaðilum en ekkert heppilegt fundið. Það má i raun segja að við höfum dottið ofan á þetta hús fyrir algjöra tilviljun. Bæjarfélagið tók vel i að við fengjum þar aðstöðu endur- gjaldslaust, gegn þvi að við gerðum húsið upp. I okkar hendur komst húsið þann 15. desember sl. og frá áramótum hefur hópurinn unnið að þvi að laga til og bæta. 1 raun hefur ekki staðið á neinu og uppbygg- ingin gengið framar vonum. Hvað er siðan á dagskrá hjá ykkur? — Við opnuðum formlega þann 14. þ.m. og nú stendur yfir sýning Magnúsar Pálssonar myndlistamanns á gipsskúlp- túrum sem hann framleiðir á staðnum. A þriðjudaginn kemur mun Eyjólfur Kjalar heimspek- ingur flytja erindi og jafnvel tvö ef vill. Það fyrra fjallar um Sögu sálarinnar i heimspekinní, og hitt fjallar um Efnishyggj- una. Þá verður ólafur Lárusson með ljósmynda- og myndlistar- sýningu og ýmislegt fleira er á döfinni. Hvernig hafa bæjarbúar tekið viðleitni ykkar? — Það er ekki hægt að segja að þeir hafi hlaupið upp til handa og fóta þegar við opn- uðum. Við vitum vel að það tekur sinn tima að kynna sig og sitt. Hins vegar erum við sem stöndum að þessu mjög ánægð og gleðjumst yfir fengnu tæki- færi til að koma ýmsum for- vitnilegum hlutum á framfæri sagði Gisli Ingvarsson. _ ig Þrír góðir á Vesturslóð Nýir kúrekar við skenkinn I Vesturslóö, Bjöggi, Tómas og Gunni Þórðar. — Ljósm. Ella. Þrir vinsælir hljómlistarmenn, þeir Gunnar Þórðarson, Björgvin Halldórsson og Tómas Tómasson, hafa gengiö til liðs viö veitinga- manninn i Vesturslóö, Anton Viggósson, og ætla að skemmta gestum hans tvisvar i viku, klukkutima i senn. Þeir félagar ætla að mæta i Vesturslóð, sem er eina smáveit- ingahúsið i Vesturbænum, stað- sett á Hagamei 67, fimmtudaga og sunnudaga kl. 21, og þessi kvöld verður gestum boðið uppá fina fjórréttaða máltið. Borð- haldið hefst þó ekki fyrr en kl. 20.30, svoað margir fastagestir sem koma með alla fjölskylduna geti eftir sem áður komið fyrr og borðaö af matseðlinum án þess að binda sig við stóru máltiðina. En mikið er um slikar heimsóknir, sagði Anton á blaðamannafundi sem hann boðaði til nú i vikunni. Fleiri breytingar eru fyrir- hugaðar og má m.a. nefna nýjan hádegisverðarseðil þar sem blandað verður saman stærri réttum og ódýrum réttum, sem byggðir eru á uppskriftum frá húsmæðrum úti bæ, sem auglýst var eftir og talsvert barst af. Sagðist Anton veitingamaður vænta góðs af þessari samvinnu við husmæðurnar. — vh Þingmenn hafa fundið Mink ársins: Togara Norður-Þingey- inga, sem sumir vilja skira Doiiaraprinsinn...

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.