Þjóðviljinn - 20.02.1981, Síða 3
Föstudagur 20. febrúar 1981. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Afleiðingar gossins
enn að koma í ljós
Hœttu-
legt flúor-
magn
finnst í
heyi
Það hefur komið i ijós, að
flúormagn í heyi á sumum
þeim bæjum sem urðu fyrir
öskufalli i Heklugosinu i
sumar er meira en svo, að
heyið sé með öllu hættulaust
skepnum.
— Við rannsökuðum flúor-
magn i grasi og heyi á ösku-
fallssvæðunum i sumar og
fylgdumst með efnainnihaldi
flúors i heyinu, sagði dr.
Sturla Friðriksson, erfða-
fræðingur, er við áttum tal
við hann um þetta. — Að
þessum athugunum loknum
töldum viðað gróður, sem þá
var i vexti og aðgengilegur,
yrði hættulaus orðinn til
beitar með haustinu.
Siðar kom svo i ljós að á
nokkrum bæjum i innsveit-
um Skagafjarðar reyndist
meira flúormagn i heyi, sem
hirt var eftir gosið, en æski-
legt þykir. Dr. Sturla sagði
að þeim bændum, sem þarna
ættu hlut að máli, hefði verið
ráðlagt að halda þessu heyi
sér, gefa það eldri gripum og
þá með öðru heyi, þvi ung-
viði i vexti væri mun hættara
við beinaskemmdum af
völdum flúors en fullorðnum
gripum.
— Um þetta vita þessir
bændur þvi viökomandi
ráðunautar eiga að hafa
komið til þeirra upplýs-
ingum um hvað einkum beri
að varast i þessum efnum,
sagði dr. Sturla Friðriksson.
Fyrstu tækin sem hjálparsveitin eignaðist voru þessar luktir. Frá vinstri: Birgir Dagbjartsson, Svavar
Geirsson, Guðmundur Jónsson og Garðar Gisiason, en hann hefur starfað i sveitinni siðan 1952. (Ljósm.
—eik.)
Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði 30 ára í gær:
Hugsjónastarf og
góður félagsskapur
— segir Svavar Geirsson, formaður sveitarinnar
Hjálparsveit skáta í
Hafnarfirði er 30 ára um
þessar mundir. i gær var
blaðamönnum boðið i
heimsókn i félagsheimili
sveitarinnar að Hraun-
vangi 7, til að kynnast
starfi og búnaði sveitar-
innar.
Þar kom fram að sveitin var
stofnuð 19. febrúar 1951 af 18
félögum sem tóku þátt i leitinni að
Geysi, sem fórst á Vatnajökli.
Nú eftir 30 ára starf hafa yfir
300 menn og konur starfaö með
sveitinni, en virkir félagar eru
milli 60 og 70. Hér er um algjört
sjálfboðastarf að ræða.
Einn þáttur i sögu H.S.H. er
mjög sérstæður. Allt frá árinu
1960 hefur sveitin þjálfað og gert
tilraunir með sporhunda til leitar
og björgunar. Nú á sveitin tvo
heinræktaða blóðhunda og sinnti
hún 27 útköllum á siðasta ári.
Hundarnir hafa oft bjargað
mannslifum.
Sveitin var alls 8 sinnum kölluð
út i heild á sl. ári að sögn Svavars
Geirssonar, formanns sveitarinn-
ar. Siðasta verkefni hennar var i
fárviðrinu nú i vikunni. Þá voru
40 manns að störfum við björgun
á fólki og viðgeröir á húsum.
Þóttbúnaður og aðstaða öll hafi
batnað mjög i áranna rás hefur
sveitin fullan hug á að efla enn
frekar tækjakost sinn og fá fleiri
til fullra starfa, þannig að hún sé i
stakk búin til aðgegna hlutverki
sinu eins vel og kostur er á i fram-
tiðinni. „Þetta starf er okkar hug-
sjón, en við sjáum ekki eftir tima
og fjármagni sem fer til starfsins,
þvi þetta er góður félagsskapur”,
sagði Svavar Geirsson, formaður
H.S.H..
Bó.
Félagsmálaráð og leikvallanefnd samþykkja:
Leikvelllr og daghefm-
ili undir sömu stjóm
Verður leikvallanefnd lögð niður?
Féiagsmálaráð og leikvalla-
nefnd Reykjavikurborgar hafa
fyrir sitt leyti samþykkt að fella
smábarnagæsluvelii undir sömu
stjórn og dagvistarþjónustuna i
þvi markmiði að tryggja sem best
samræmi i uppbyggingu og
rekstri á þessari starfsemi. Við-
hald lóða og leiktækja bæði á
gæsluvöllum og dagheimilum
verður endurskoðað og fellt undir
embætti garðyrkjustjóra sam-
kvæmt þessari samþykkt sem
borgarstjórn á eftir að staðfesta.
Þessar tillögur eru afurð frá
samstarfsnefnd Félagsmálaráös
og leikvallanefndar og voru sam-
þykktar samhljóða i báðum
nefndunum. Bessi Jóhannsdóttir,
fulltrúi i félagsmálaráði, hafði þó
þann fyrirvara á samykki sinu að
hún vildi láta færa alla starfsemi
leikvallanefndar undir félags-
málaráð og leggja leikvallanefnd
niður.
Hjörleifur Stefánsson, for-
maður leikvallanefndar, sagði i
samtali við Þjóðviljann i gær.að
hann liti svo á aö ef af þessum
framkvæmdum yrði myndi leik-
vallanefnd sjálfkrafa verða lögð
niður. A rekstrarsviði ieikvalla-
nefndar eru þá aðeins starfsvell-
irnir eftir og sagði Hjörleifur að
ef flytja ætti þá til ættu þeir helst
heima undir æskulýðsráði sem
hluti af tómstundastarfi fyrir
börn og unglinga að sumarlagi.
Minnkandi aðsókn
Hjöleifur sagði að nú væru 34
lokaðir gæsluvellir i borginni, 1
opinn og 12 starfsvellir. Þrátt
fyrir fjölgun gæsluvalla á undan-
förnum árum hefur aðsókn að
þeim dregist verulega saman eða
um 30% á árabilinu 1975—1979.
Sagöi Hjörleifur að ástæðan
væri þriþætt. 1 fyrsta lagi aukið
framboð á dagvistarrými af öðru
tagi, i öðru lagi hefði útivinna
beggja foreldra aukist og leik-
vellirnir nýttust ekki fyrir börn
þeirra og i þriðja lagi hefði börn-
um á forskólaaldri fækkað i
Reykjavik.
Tilgangurinn með þessum sam-
runa er hagræðing i sambandi við
allan rekstur svo og samræmi i
uppbyggingu og allri starfsemi
þessara þjónustustofnana fyrir
börn, sagði Hjörleifur. Með hon-
um i leikvallanefnd eru Hulda
Valtýsdóttir, Margrét S. Einars-
dóttir, Guðrún Flosadóttir og
Anna Kristbjörnsdóttir.
AI
Þjóðhagsstofnun ekki tilbúin með áætlun um afkomu veiða og vinnslu:
Hækkun á lélegra hráefni
Þjóöviljinn haföi I gær sam-
band við Ólaf Daviösson for-
stööumann Þjóðhagsstofnunar og
spurðist fyrir um horfur á
rekstrarafkomu hinna ýmsu
greina fiskvinnslu og útgerðar
eftir fiskverðsávörðunina.
Ólafur vildiá þessu stigi ekkert
láta uppi um það, en þessi mál
eru i skoðun hjá stofnuninni. Eitt
af því sem gerir stofnuninni erfitt
um vik i mati sinu að sögn ólafs,
eru breytingar á verði og gæða-
mati á þorskfiskinum.
Verðkerfinu var breytt á þorski
þannig að nú er stórþorskur
talinn 5 kg og þyngri, en áöur var
miðað við 4 kg. 2. og 3. gæða-
flokkur á þorski er hækkaður i
veröi þannig að 2. flokkur verður
nú 85% af verði 1. flokks i stað
75% áður. 3. flokkur verður 60%
af verði 1. flokks en var áður 50%.
Ufsi var áður flokkaður i 3
flokka, en nú aðeins i tvo. Sama
gildir um löngu. Þá var verð á
löngu og blálöngu hækkað.
Kassauppbót var nú lækkuð úr
12% i 10%.
Þessar breytingar hljóta að
vekja nokkra athygli. Það virðist
vera um þá stefnubreytingu að
ræða að hækka fremur en áður
verðiö á lélegra hráefninu. Um
það virðist hafa náðst nokkuð
viðtæk samstaða. Það getur varla
hvatt sjómenn til vandaðri
meðferðar aflans.
— Bó.
Kvikmynda-
hátíð SÁK
um helgina
Nú um helgina, 21. og 22.
febrúar, veröur haldin þriðja
kvikmyndahátiö Samtaka
áhugamanna um kvik-
myndagerð.
Hátiðin hefst i
Tjarnarbiói kl. 15 á laugar-
daginn og verða þar sýndar
allar myndir sem berast i
keppnina. Einsog áður er
keppt i tveimur flokkum: 1.
20 ára og eldri, og 2. Yngri en
20 ára.
Dómnefndin er skipuð
fulltrúum frá Blaðamanna-
félagi Islands, Félagi kvik-
myndagerðarmanna og
SAK.
A sunnudaginn kl. 14 verða
bestu myndirnar sýndar og
verðlaunaðar i kvikmynda-
sal Hótels Loftleiða, Strax á
eftir hefst svo þing
samtakanna.
Hátiðin er opin öllum þeim
sem áhuga hafa á kvik-
myndagerð.
Lesið úr
Biblíunni
frá föstu-
degi til
sunnudags
A hádegi i gær hófst bibliu-
lestur i Aöventistakirkjunni
viö Ingólfsstræti og mun
hann standa samfellt til kl.
14 á sunnudag, en þá verður
guðsþjónusta i kirkjunni i
tilefni af Bibliudeginum og
aðalfundi Bibliufélagsins,
sein einnig verður haldinn á
sunnudaginn.
Bibliulesturinn fer þannig
fram, að menn skipast á um
að lesa upphátt, og er öllum
sem vilja velkomið að hjálpa
til við upplesturinn. Mark-
miðið er að lesa alla
bibliuna, frá upphafi til
enda. Hátölurum hefur verið
komið fyrir á kirkjunni og
geta þeir sem leið eiga um
Ingólfsstrætið staldrað við
og hlustað, eða litið inn og
fylgst með lestrinum. —ih
Nýtt verð
á rœkju og
hörpudiski
Verðlagsráð sjávarútvegs-
ins hefur ákveðið nýtt lág-
marksverö á rækju og
hörpudiski frá 1. jan. sl. til
ioka maimánaðar n.k.. Um
tvöfalt verð er að ræða
þar sem almenn hækkun
verður á fiskvcrði nú aftur
um næstu mánaðamót.
Stórrækja, þ.e. 160 stk. eða
færri i hverju kg, kostar 6.38
kr/kg og hækkar siðan i 6.76
kr /kg eftir 1. mars. Fyrir
smárækju, þ.e. yfir 340 stk i
kg, er lágmarksverð nú
2.00 kr/kg en hækkar i 2.12
kr. um næstu mánaöamót.
Hörpudiskur yfir 7 cm og
stærri kostar nú 1.95 kr. kg
og hækkar siðan i 2.07 kr..
Fyrir smærri hörpudisk
fæst nú 1.60 kr. fyrir hvert
kg sem hækkar siðan i 1.70
kr. um mánaðamótin.
Úttekt á tjóni
í Reykjavík
Borgarstjórn Reykjavikur
samþykkti á fundi sinum
gær, að gera rækilega úttekt
á þvitjóni sem Reykvikingar
urðu fyrir i ofviörinu á dög-
unum.
Þá var samþykktur stuön-
ingur við það álit stjórnar
Bjargráðasjóðs, aö félags-
málaráðherra tæk
tjónamálin til nýrrar
■ ferðar.
með