Þjóðviljinn - 20.02.1981, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 20.02.1981, Qupperneq 16
MQÐVIUINN Föstudagur 20. febrúar 1981. 1 Aöálsfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. I Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsúni 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Fóstrumálið 1 borgarstjórn: Lágmark að tala við þær — sagði Guðrún Helgadóttir Kosningaskjálfti hefur heltekið Davið Oddsson oddvita Sjálf- stæðisflokksins i borgarstjórn og reyndar smitað Sjöfn Sigur- björnsdóttur sem sagði i borgar- stjórn i gær að spurning væri hvort Alþýðuflokkur og Fram- sókn ættu ekki að fara að pakka saman þvi greinilegt væri að Alþýðubandalagið og Sjálfstæðis- flokkurinn væru gengin i eina sæng, ekki aðeins i rikisstjórn heldur lika i borgarstjórninni! Tilefni þessara orða var að hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Alþýðubandalag vildi styðja til- lögu þeirra Sjafnar Sigurbjörns- dóttur og Kristjáns Benediktsson- ar um að framlengja uppsagnar- frest fastráðinna fóstra um þrjá mánuði. Hlaut tillagan 2 atkvæði i borgarráði. Guðrún Helgadóttir sagðist álita það þjóna litlum tilgangi þar sem slik frestun myndi aðeins ná til 21ar af þeim 153 fóstrum sem sagt hafa upp frá 1. mai. Dag- heimili og leikskólar yrðu þvi eft- ir sem áður að mestu óstarfhæf. Davið Oddsson lagði áherslu á að meirihlutinn væri klofinn i þessu máli, Guðrún Helgadóttir væri á atkvæðaveiðum enda nálg- uðust kosningar óðum (!). Engar stjórnunarlegar forsendur væru hjá meirihlutanum i launamálum vegna þess að Alþýðubandalagið stundaði yfirborð og sýndar- mennsku. Guðrún Helgadóttir sagði að vera kynni að meirihlutann greindi á i þessum efnum. Alþýðubandalagið teldi að laun fóstra hjá borginni væru of lág, enda væru þau nú lægri en á Akureyri og i Kópavogi. Til- gangslaust væri að tala um það sem upphlaup sitt þegar borgar- stjórn hefði samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að ræða við starfsmannafélagið um kjaramál fóstra. Það hefði verið eðlileg ráðstöfun eftir að uppsagnirnar voru komnar fram. Hins vegar hefðu engar slikar viðræður átt sér stað ennþá og það harmaði hún. Markmiðið væri að koma i veg fyrir að dagheimilin lokuðu 1. mai — lágmarkið væri að tala við fóstrur. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir taldi að með frestuninni mætti halda 45 dagheimilum borgarinnar opnum þremur mánuðum lengurmeð þessum 20 fóstrum og þeim 25 sem ekki hafa sagt upp. Hún átaldi það harðlega aðekki hefði verið farið að samþykkt borgar- stjórnar um viðræöur og lyktaði málinu með þvi að Albert Guömundssonsem á sæti i launa- málanefnd tók að sér að skila þvi til formannsins, Björvins Langlegudeild á Hvítabandið Stjórn sjúkrastofnana Reykja- vikurborgar hefur samþykkt að leita eftir öðru húsnæði fyrir dag- deild geðdeildar sem nú er á Hvitabandinu og vinna að þvi að gera húsið að langlegudeild fyrir aldraða. Adda Bára Sigfúsdóttir, for- maöur stjórnarinnar, sagði i borgarstjórn i gærkvöldi að Hvitabandið gæti rúmað 25—30 langlegusjúklinga en gera þyrfti nokkrar breytingar á húsinu m.a. setja i það lyftu. Albert Guð- mundsson fagnaði samþykktinni og benti á að nýta mætti til sömu þarfa neðstu hæð Heilsuverndar- stöðvarinnar þar sem skrifstofur borgarlæknis og heilbrigðiseftir- litið eru til húsa. —AI Guðmundssonar aö Sjöfn vildi fund i nefndinni. Kristján Benediktsson sagðist óttast að aðrir starfshópar færu i slóð fóstranna og hefðu þegar borist erindi frá öðrum starfs- hópum um að ef mál fóstranna yrðu tekin upp nú þá mætti búast við þvi að þeir gripu til sömu að- gerða. Hér mun vera um brunaverði og strætóbflstjóra að ræða. _Var helst á honum að heyra að Reykjavikurborg, ein sveitar- félaganna, gæti ekki bætt kjör fóstra úr þessu vegna þessara hótana. —AI ,,Hver á þá aö passa mig?’ - ■ „Það eru þriár hliðar á hverju máli“ fl • 1 • •• r f f « w Fyrirhyggja í fjármálum Það er oítast betur heima setið ef fjár- hagslegar ákvarðanir hafa í för með sér óvæntar afleiðingar. Því er gott að viðra hug- myndir um sparnað og/eða aðrar ráðstafanir í peningamálunum við fólk sem þekkir þann vettvang til hlítar áður en af stað er haldið. Þar erum við einmitt komin að einu aðal hlutverki Hagdeildar heimilisins, nefnilega ráðgjafaþjónustunni. Þangað geta viðskiptavinir bankans, ein- staklingar sem íjölskyldur, leitað tilþess að fá upplýsingar og ráðgjöf um flest það sem að peninga- og bankamálum lýtur s. s. um: ðk Axrrivtiinnrmrimiloilcn nn lcinr • Inn- og útlánstegundir og kjör • Gerð greiðsluáætlunar o. fl. o. fl. í Verzlunarbankanum liggja einnig frammi upplýsingamöppur og eyðublöð til færslu á greiðsluáætlunum semþú tekurmeð þérheim. „ÞrjárhliÖará hverju máli“ Hver veit nema sú persónulega ráðgjöf sem þér stendur til boða í Verzlunarbankan- um leiddi í ljós að til væru fleiri en tvær hliðará málinu, t.d. þrjár. Kynntuþérþessa nýjuþjónustu Verzlun- arbankans . . þú ert alltaf velkominn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.